Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2002, Qupperneq 4
24
MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2002
Sport
FH-ingar hafa kynnt tillögur sínar að framtíðarskipulagi á félagssvæði sínu:
Glæsileg framtíðar-
aðstaða félagsins
- næsta skref að kynna bæjaryfirvöldum í Hafnarfirði tillögurnar
Félagssvæði^
Númer á mynd aö ofan
1. Frjálsíþróttahús
2. Frjálsíþróttavöllur
3. Félagsaðstaða FH
4. Áhorfendastúka
5. íþróttahús
6. Æfingasalur
7. Aðalleikvangur
Framtíðarnefnd aðalstjómar FH
hefur lokið við og kynnt nýjar tillög-
ur að framtíðarskipulagi á svæði fé-
lagsins í Kaplakrika í Hafnarfirði.
Nú þegar hefur verið lokið við end-
urbætur á knattspymuvellinum
sjálfum og eins og kunnugt er hefur
verið reist íþróttahús og frjáls-
íþróttavöllur hefur nýlega verið
gerður. Kostnaðartölur við að fram-
kvæma eftir þessum tillögum liggja
ekki fyrir.
FH-ingar næstir í röðinni!
FH-ingum flnnst nú vera komið að
því að hrinda í framkvæmd endur-
bótum og uppbyggingu á félagssvæði
sínu enda hefur þegar verið byggt
upp féfagssvæði Hauka að Ásvöllum
og Fimleikafélagsins Bjarkar á
gamla félagsvæði Hauka, auk þess
sem aðstaða Golfklúbbsins Keilis
hefur nýlega verið byggð upp.
í hinu nýja skipulagi er gert ráð
fyrir glæsilegri félagsaðstöðu, áhorf-
endastúka samtengd félagsaðstöð-
unni verður lengd til muna, auk þess
sem byggð verður æflngaaðstaða
tengd íþróttahúsinu og frjálsíþrótta-
húsi við hlið núverandi frjálsíþrótta-
svæðis. í húsinu er gert ráð fyrir
80-100 metra langri hlaupabraut og
tilheyrandi æflnga- og keppnisað-
stöðu, en húsið tengist búningsklef-
unum í aðalbyggingunni með undir-
göngum. Fjölgað verður búningsher-
bergjum til muna, auk nýrra leik-
flmi-, og þreksala. I félagsaðstöðunni
er gert ráð fyrir skrifstofum deilda
félagsins, auk fundarsala.
Forsagan
Ingvar Viktorsson, formaður aðal-
stjómar FH, segir að nýlega hafl ver-
ið gerð úttekt á félagssvæöi FH að
frumkvæði bæjaryfirvalda og félags-
ins. Það voru hlutlausir aðilar sem
fengnir voru til verksins og þeir
komust að þeirri niðurstöðu að félag-
ið ætti í raun sem nemur um 515
milljónum í félagssvæðinu, en þess
má geta að eignarhlutur félagsins í
iþróttahúsinu er 20% eins og lög
segja til um, á móti 80% eignarhlut
félagsins.
Samningurinn um íþróttahúsið
var þó gerður löngu eftir heilmiklar
framkvæmdir sem rekja má allt aft-
ur til ársins 1967. Þessar fram-
kvæmdir, auk eignarhluta í íþrótta-
húsinu, voru metnar, eins og áður
sagði, á 515 milljónir, sem að sögn
Ingvars kom mönnum nokkuð á
óvart. Hann segir þó félagið ekki
hafa lagt út alla þessa fjármuni, því
að einhverju leyti sé þama um gjafa-
vinnu að ræða, en þó einhveija út-
lagða peninga.
Skuldir greiddar upp
Ingvar segir að þá hafi komið upp
sú hugmynd að selja bæjarfélaginu
strax 80% í svæðinu, sem hefði
numið um 400 milljónum króna, en
eðlilega hefði það ekki verið hægt.
Það hefði hins vegar náðst sam-
komulag um að Hafnarfjarðarbær
keypti hluta svæðisins og greiddi
fyrir það 100 milljónir króna.
„Þannig gerðum við félagið skuld-
laust. I framhaldinu er svo mögu-
leiki að selja bæjarfélaginu jafnt og
þétt af afganginum þar til þvi er náð
að við eigum 20% eftir.
Þegar svo var komið var ákveðið
að fara út í þessa vinnu við framtíð-
arskipulagningu á félagsvæði FH og
sú vinna sett í gang í samvinnu við
arkitektastofu. Ingvar segir næsta
skref að kynna þessar tillögur fyrir
formönnum allra deilda félagsins
sem munu kynna þetta hver í sinni
deild og að því loknu verða bæjaryf-
irvöldum kynntar tillögurnar.
Hann segir að íþróttabandalag
Hafnarfjarðar, sem sé mjög virkt
innan Hafnarfj arðarbæj ar, hafi í
gegnum tíðina orsakað að í
framkvæmdum við íþróttamann-
virki í bænum og hafl bæjaryfirvöld
ávallt farið að ráðum bandalagsins.
Nú sé 'svo komið að uppbygging f-
élagssvæðis FH og bygging 50 metra
sundlaugar eru forgangsverkefni
þau sem íþróttabandalagið leggur til.
Aöaláhersla á félagsaöstööu
Ingvar segist ekki sjá hversu hratt
sú uppbygging sem lagt er til verði á
svæðinu muni ganga, þ.e.a.s. ef bæj-
aryfirvöld samþykkja tillögumar.
„Við munum þó leggja aðaláherslu á
að farið verði í viðbyggingu við nú-
verandi stúku, sem einnig munu
hýsa félagsaðstöðuna og aukinn
fjölda búningsherbergja (merkt 3 og
4 á mynd).
„Okkur finnst þessi vinna hafa
tekist mjög vel og við eram bjartsýn-
ir á að þessar tillögur verði að veru-
leika. Með þessum framkvæmdum
verðum við mjög vel settir, að öðru
leyti en því að okkur vantar gras-
svæði til knattspyrnuæfinga. Það er
því byrjað að þökuleggja svæði við
Hvaleyrarvatn, þar sem gerðir verða
tveir knattspyrnuvellir, þar sem
eldri aldursflokkar munu æfa, en
yngri aldursflokkarnir munu áfram
æfa á æfingavöllunum í Kaplakrik-
anum.“
Vísir aö fyrsta áfanga á afmæli
„Við erum mjög illa staddir með
félagslegt húsnæði í Kaplakrika, en
félagið verður 75 ára í október árið
2004 og er það draumur okkar að fyr-
ir þann tíma verði lokið við fyrsta
áfanga, sem er bygging félagsaðstöðu
og búningsherbergja, eða í það
minnsta mikill vísir aö því, auk þess
sem það verði búið að undirrita
framtíðarsamninga fyrir félagið.
Þetta yrði allavega upphafið, en síð-
an verðum við að sjá til um fram-
haldið,“ sagði Ingvar Viktorsson.
Það dylst engum þegar horft er á
þessar tillögur að svigrúm til stækk-
unar er ekki mikið frá því sem nú
er. Svæðið lokast af Reykjanesbraut
til suðurs, Fjarðarhrauni, til vestars,
Flatahrauni til norðurs og Garðabæ
til austurs.
„Menn hafa alltaf verið að velta
fyrir sér öðru framtíðarsvæði fyrir
félagið en menn hafa ekki komið
auga á það. Það er hins vegar svolít-
ið merkilegur kostar að ef Reykja-
nesbrautin verður sett í stokk verð-
ur hægt að stækka félagssvæðið yfir
stokknum, sem væri hægt að nýta
fyrir aukna æfingaaðstöðu fyrir
knattspymu og fijálsar íþróttir. Það
er þó ekki langt síðan það stóð til að
breikka brautina og þá hefði verið
klipið af svæðinu eins og það er nú.
Við hefðum þó aldrei getað sam-
þykkt það, því nógu er nú þröngt um
okkur nú,“ sagði Ingvar að lokum.
-PS
1 L
FH-ingar léku Evrópuleik gegn spænska liöinu Villarreal í Kaplakrika í sumar.
DV-mynd Hari