Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2002, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2002, Page 7
MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2002 27 I>V - Valsarar einir á botninum eftir tap gegn Skallagrími í Borgarnesi Valur um Val Menn voru í jólaskapi í Borgamesi á fóstudaginn þegar Skallagrímur mætti Val í síðasta leik liðanna íyrir jól. Jóla- sveinamir vom mættir og sáu um að halda áhorfendum við efnið. Leikur- inn var ekki mikið fyrir augað til að byija með. Enda mikið í húfi fyrir bæði lið. Saman sátu þau á botni deild- arinnar með tvö stig hvort. Hlíðar- endapiltamir munu þó eyða jólunum einmana á botninum því Skallagrímur tryggði sér sigur undir lokin, 79-74, í æsispennandi leik. Borgnesingar byijuðu leikinn betur og vom komnir í 8-2 eftir tæpar tvær mínútur. Gestimir reyndu að beita svæðisvöm en það gekk upp og ofan. Valsmönnum tókst aldrei að komast al- mennilega af stað í fyrsta leikhluta og vom komnir 12 stigum undir þegar hinn annar hófst. Þeir mættu mjög grimmir tii annars leikhluta þar sem baráttugleðin var í fyrirrúmi. Borgnes- ingumhélst þó á forystunni þrátt fyrir að sóknarleikurinn gengi erfiðlega. Gestunum tókst að saxa forskotið niður í 6 stig fyrir hálfleik. Skalla- grímur hóf síðari hálfleikinn betur og vom fljótlega komnir með 12 stiga for- ystu á ný. Valsmenn treystu á erlenda leikmanninn sinn Lavem Smith í þriðja leikhluta. Hann gerði 12 stig í leikhlutanum en það dugði ekki eitt og sér. Sköllunum hélst enn á forskotinu og þegar rúmlega minúta var liðin af fjórða leikhlutanum var munurinn 13 stig og virtust Völsurum allar bjargir bannaðar. Þá skellti Valsvömin í lás og skotin fóru að detta fyrir þá. Þeir gerðu 15 stig í röð og Borgnesingar skomðu ekki stig í sex mínútur. Gestimir komust í fyrsta skipti yflr 65-67 þegar 4:41 mínúta var eftir og í framhaldinu virtist sem leikurinn væri að renna Borgnesingum úr greipum og vindur- inn blés með Valsmönnum. Þá kom til skjalanna hinn fertugi þjálfari Skallagrims, Valur Ingimund- arson. Hann gerði magnaða þriggja stiga körfú i næstu sókn og jafnaði leikinn rétt áður en skotklukkan rann út og tilþrif hans minntu helst á gull- aldarárin hans með Njarðvíkingum þegar hann skoraði aðra þriggja stiga körfu lengst utan af velli og breytti stöðunni í 72-71 sem varð til þess að jólasveinar og aðrir áhorfendur á leiknum hreinlega ærðust af fógnuði. Borgnesingar náðu síðan boltanum á ný og Hafþór Ingi skoraði úr einu af sínum mögnuðu gegnumbrotum og fékk vítaskot að auki, sem hann skoraði úr og heimamenn kláruðu síðan leikinn á vítalínunni. í liði Skallagríms átti Hafþór Ingi enn einn skínandi leikinn og virðist bæta sig með hverri raun. Hann gerði 21 stig, tók 5 fráköst og gaf 6 stoðsend- ingar. Sigmar Egilsson átti fina endur- komu, gerði 15 stig og spilaði af- burðagóða vöm. Pétur lék vel í sókn- inni auk þess að taka 7 fráköst. Þá má ekki gleyma þjálfamum Val Ingimund- arsyni sem var í rauninni munurinn á liðunum í lokin. Hann gerði 8 stig í leiknum og komu þau öll á síðustu tveim mínútum leiksins. Leikmenn Skallagríms hafa oft leik- ið betur í vetur og duttu allt of oft nið- ur á lágt plan gestanna í leiknum. Stig- in tvö vom þó það sem skipti máli úr þessum leik. í liði Vals var það Lavem Smith sem gerði rétt tæpan helming af stigum þeirra. Bjarki Gústafsson náði sér ekki almennilega á strik hjá þeim en gerði þó 13 stig. Þessir tveir em greinilega potturinn og pannan i sókn- arleik Valsliðsins og aðrir leikmenn liðsins virtust vera aukaleikarar í sókn- arleik þeirra. Baráttan i liði þeirra var þó til fyrirmyndar og greinilegt að þeir ætla að beijast til síðasta blóðdropa fyrir sæti sínu í deildinni. Hinn ungi þjálfari Vals, Ágúst Björgvinsson, á greinilega erfitt verk fyrir höndum og verður gaman að sjá hvemig honum tekst til með liðið. -Rag VINTERSftan' DEILDÍN KR 11 9 2 996-877 18 Grindavík 11 9 2 1034-911 18 Keflavík 11 8 3 1111-915 16 Njarðvík 11 7 4 900-897 14 Tindastóll 11 7 4 1009-973 14 Haukar 11 6 5 970-914 12 ÍR 11 6 5 963-966 12 Hamar 11 4 7 1050-1151 8 Snæfell 11 4 7 885-898 8 Breiðablik 11 3 8 991-1048 6 Skailagrímurll 2 9 851-990 4 Valur 11 1 10 824-1044 2 Næstu leikir: Skallagrímur-ÍR .. sun. 5. jan. KR-Hamar .... .. sun. 5. jan. Tindastóll-Snæfefl .. sun. 5. jan. Breiðablik-Haukar .. sun. 5. jan. Grindavík-Valur . mán. 6. jan Keflavík-Njarðvík . mán. 6. jan Fyrri hálfleikur gerði útslagið Grindvíkingar hirtu bæði stigin þegar þeir tóku á móti Hamars- mönnum og höfðu sigur, 115-107, í Röstinni á fóstudagskvöldið var í Intersportdeild karla I körfuknatt- leik. Eftir leikinn em Grindvíkingar samsíða KR-ingum á toppnum með 18 stig en Hvergerðingar og nær- sveitamenn sitja í níunda sætinu með 8 stig í farteskinu. Heimamenn mættu til leiks eins og særö ljón eft- ir slæmt tap gegn Njarðvíkingum í sextán liða úrslitum bikarkeppninn- ar fjórum dögum áður. I fyrsta fjórðungi fóm þeir á kostum og gerðu þá 42 stig gegn 23 stigum gestanna; slíkt stigaskor kemur ekki oft fyrir hér á landi á aðeins tíu mínútum. Sama fjörið var í öðrum fjórðungi og þegar flautað var til leikhlés höfðu þeir gulklæddu skorað 71 stig gegn 49. Liðsheild Grindvíkinga var að skila þessu forskoti en hjá gestun- um héldu þeir Svavar Birgisson og Robert O’Kelley uppi fjörinu, skor- uðu í sameiningu 37 stig af þessum 49. Áfram hélst þessi munur í þriðja leikhluta og engin spenna var á dagskrá. í síðasta fjórðungnum fóm heimamenn hins vegar að slaka full- mikið á og þeir hættu að spila eins og lið og leikmenn fóra að gera erf- iðahlutiuppá eiginspýtur. Hið baráttuglaða lið gestanna var fljótt að þefa þetta uppi og þeir minnkuðu muninn smám saman en vora aðeins of seinir til að gera leik- inn veralega spennandi þótt eflaust væri farið að fara um heimamenn þegar munurinn var kominn niður í 6 stig, tæpri mínútu fyrir leikslok. Páll Axel Vilbergsson og Helgi Jónas Guðfinnsson fóru fyrir heimamönnum og þá vora þeir Guð- laugur Eyjólfsson og Guðmundur Bragason sterkir. Hjá Hamarsmönn- um var Robert O’Kelley öflugur þeg- ar líða tók á leikinn, Svavar Birgis- son var kraftmikill í fyrri hálfleik og Láras Jónsson átti stórgóðan endasprett. -SMS Breiðablik tók á móti Njarðvík á laug- ardag í síðasta leik 11. umferðar og jafh- framt síðasta körfúboltaleiks ársins í Intersport-deildinni. Leikurinn var jafh og spennandi allan tímann en heima- menn vora þó oftast hálfu skrefi á und- an en það dugði ekki gegn G.J. Hunter sem skellti Blikum upp á sitt eindæmi, 88-91, og tryggði Njarðvíkurliðinu tvö dýrmæt stig í toppbaráttunni. Blikar byijuðu leikinn betur og sýndu skemmtilegar fléttur í sókninni og skoraðu mikið inni í teig með þá Kenny Tate og Mirko Virijevic fremsta í flokki. Hunter hélt Njarövík á floti í 1. leikhluta og skoraði 12 stig af 19 stigum liðsins. Gestimir úr Njarðvík vora síðan sterk- ari í öðrum leikhluta og gerðu þrjár 3ja stiga körfur á skömmum tíma. Á þess- um kafla sat Hunter á bekknum og var aðeins meira flæði í sónarleik Njarðvík- inga á meðan. Blikar jöfnuðu fljótlega í seinni hálfleik, 50-50, og var það Pálmi Freyr Sigurgeirsson sem það gerði en það voru hans fyrstu stig í leiknum en Friðrik Ragnarsson, þjálfari Njarðvikinga, ítrek- aði við sína menn í leiknum að gæta vel Pálma og Tate í vöminni og tókst Njarð- víkingum vel upp með að halda Pálma niðri i leiknum. Blikar komust aftur flmm stigum yfir í lok þriðja leikhluta en Hunter skoraði 3ja stiga körfú áður en leikhlutinn var allur og þvi munaði aðeins tveimur stig- um á liðunum, 69-67. Fjórða og siðasta leikhluta verður minnst fyrir frammi- stöðu Hunters en hann átti eftir að klára leikinn sjálfúr og skoraði enginn annar leikmaður Njarðvíkinga í leikhlutanum. Hunter gerði 13 stig gegn tveimur Blika og fyrstu mínútunum og kom Njarðvík átta stigum yfir, 72-80. Blikar gáftist ekki upp og jafhaði Tate leikinn með tveimur vítaskotum þegar sjö sekúndur vora eftir af leiknum og stefndi allt í framlengingu en Hunter var ekki á því að spila fimm mínútum leng- ur heldur skoraði úr erfiðu 3ja stiga skoti og tryggði Njarðvík sigur á ævin- týranlegan hátt. Hunter skoraði alls 47 stig í leiknum sem er það mesta sem einn leikmaður hefur skorað í deildinni í vetur. Kenny Tate hafði skorað 46 stig fyrir Blika gegn Tindastóli fyrr í vetur. Hunter er aug- ljóslega frábær leikmaður og hefur Njarðvík gengið mun betur eftir að hann kom inn í liðið. Njarðvíkingar verða þó að passa sig að láta hann ekki gera of mikið og verða fleiri leikmenn að vera með gegn sterk- ari liðunum í deildinni. Teitur hitti vel og skoraði fjórar 3ja stiga körfur og góð- um tíma. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Blik- ar tapa jöfnum leik í lokin og virðist vanta herslumuninn til að hðið nái að klára leikina. Liðið er aðeins með þijá sigra eftir fyrri umferðina en með smá- heppni gætu fleiri stig verið komin í hús. Tate var þeirra jafnbesti maður og Mirko byijaði vel en minna fór fyrir honum eftir þvi sem leið á leikinn. Pálmi var ekki skugginn af sjálfum sér og munaði um minna fyrir Blika. -Ben Sport Skallagrímur-Valur 79-74 2-0, 8-4, 13-4, 20-12, (24-12), 24-14, 23-18, 30-20, 35-27, 38-30, (41-35), 43-35, 43-37, 45-39, 54-41, 58-45, (61-52), 63-52, 65-57, 65-67, 71-71, 79-74. Stig Skallagríms: Hafþór Ingi Gunnars- son 21, Sigmar Egilsson 15, Pétur Már Sig- urðsson 15, Isaac Hawkins 10, Valur Ingi- mundarson 8, Egill Örn Egilsson 8, Finnur Jónsson 2. Stig Vals: Lavem Smith Jr. 35, Bjarki Gústafsson 13, Gylfi Geirsson, Ægir H Jóns- son 8, Ragnar Steinsson 6, Alexander Dungal 4. Maöur leiksins: Valur Ingimundarson, Skallagr. Fráköst: Skallagrímur 39 (10 í sókn, 29 í vöm, Hawkins 14), Valur 38 (11 í sókn, 27 í vöm, Bjarki 10). Stoösendingar: Skallagrímur 21 (Hafþór 6, Valur 6), Valur 11 (Gylfi 2, Bjarki 2, Guöbjöm 2, Smith 2). Stolnir boltar: Skallagrímur 11 (Hawkins 4), Valur 9 (Smith 4). Tapaöir boltar: Skallagrímur 16, Valur 16. Varin skot: Skallagrímur 2 (Hawkins 2), Valur 1 (Smith). 3ja stiga: Skallagrímur 30/9, Valur 19/4. Víti: Skallagrímur 24/14, Valur 23/18. Breiðablik-Njarðvík 88-91 2-0, 2-2, 6-2, 8-7, 14-9, 16-16, 20-16, (24-19), 24-21, 30-28, 30-34, 34-39, 38-39 (4641), 4644, 4646, 50-30, 55-52, 69-64 (69-67), 69-71-72-71, 72-80, 77-80, 80-86, 88-88, 88-91. Stig Breióabliks: Kenneth Tate 24, Mirko Virijevic 16, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 14, Friðrik Hreinsson 13, Jón Amar Ingvarsson 9, Þórarinn Andrésson 6, fsak Einarsson 4, Jóhannes Hauksson 2. Stig NJarAvlkur: Gary Hunter 47, Teitur örlygsson 12, Páll Kristinsson 10, Friðrik Stefánsson 5, Þorsteinn Húnfjörð 5, Ragnar Ragnarsson 5, Ólafur Aron Ingvason 5, Guðmundur Jónsson 2. Dómarar (1-10): Björgvin Rúnnrs- son og Einar Þór Skarphéðinsson (5). Gœói leiks (1-10): 6. Áhorfendur: 170. Ma&ur leiksins: Gary Hunter, Njarövfk Fráköst: Breiðablik 52 (18 i sókn, 34 í vöm, Tate 14, Pálmi 10, Jón Amar 10), Njarövik 40 (9 í sókn, 31 i vöm, Hunter 17) Stoósendingar: Breiðablik 22 (Jón Amar 7), Njarðvík 16 (Hunter 4, Ólafur Aron 4). Stolnir boltar: Breiöablik 14 (Jón Amar 4), Njarðvík 11 (Teitur 3). Tapaóir boltar: Breiðabl. 16, Njarðv. 14. Varin skot: Breiðablik 5 (Virijevic 3), Njarðvík 4 (Friðrik, Hunter, Páll, Teitur). 3Ja stiga: Breiðablik 25/6 (24%), Njarðvík 30/8 (27%). Vfti: Breiöablik 19/14 (74%), Njarðvík 29/23 (79%). Gary Hunter skoraði öll 24 stig Njarövíkur i 4. leikhluta. Hunter hitti úr 8 af 10 skotum slnum og 7 af 8 vítum sinum 1 leikhiutanum en aðrir í liöinu tóku aðeins sex skot siðustu 12 minútumar i leiknum og klikkuðu á þeim öllum. Hunter tðk einnig 5 af 9 fráköstum liðsins í leikhlutanum. Grindavík-Hamar 115-107 2-0, 2-2, 14-2, 23-6, 30-10, 40-19, (42-23), 42-25, 50-27, 50-34, 58-89, 68-44, (71-49), 71-52, 77-56, 82-62, 89-87, 92-72, (94-72), 94-74, 99-74, 103-84, 106-94, 110-102, 115-107. Stig Grindavikur: Helgi Jónas GuðFmnsson 24, Páll Axel Vilbergsson 23, Guölaugur Eyjólfsson 17, Guömundur Bragason 15, Darrel Lewis 11, Davíð Páll Hermannsson 9, Bosko Boskovic 9, Bjami Magnússon 6, Jóhann Þór Ólafsson 1. Stig Hamars: Robert O’Kelley 38, Svavar Birgisson 22, Lárus Jónsson 18, Svavar Páll Pálsson 12, Hjalti Pálsson 8, Pétur Ingvarsson 5, Marvin Valdimarsson 2, Ægir Öm Gunnarsson 2. Dómarar (1-10): Rögnvaldur Hreiöarsson og Einar Einarsson (7). Gœöi leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 90. Maöur leiksins: Guömundur Bragason, Grindavik Fráköst: Grindavík 50 (20 í sókn, 30 í vörn, Guömundur 13, Davíö Páll 11), Hamar 29 (13 í sókn, 16 í vörn, Svavar Páll 7). Stoösendingar: Grindavík 23 (Davíö Páll 6), Hamar 17 (Pétur 6). Stolnir boltar: Grindavík 12 (Helgi Jónas 3), Hamar 13 (Pétur 4). Tapaöir boltar: Grindavík 24, Hamar 15. Varin skot: Grindavík 9 (PáU Axel 3, Guömundur 3), Hamar 7 (Hjalti 3). 3ja stiga: Grindavík 23/13 (57%), Hamar 23/10 (44%). Víti: Grindavík 44/32 (73%), Hamar 15/11 (73%). Dómarar (1-10): Sigmundur Már Herbertsson og Ge- org Andersen (8). Gœöi leiks (1-10): 5. Áhorfendur: 200.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.