Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2003, Page 4
4
FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2003
Fréttir
Bráðnun jökla mun valda verulegri hækkun á sjávarstöðu á næstu öldum:
Gert ráð fyrir hálfs metra
hækkun á þessari öld
- bráðnun Grænlandsjökuls getur hækkað yfirborðið um 5 til 10 metra
Bryggjuhverfiö í Grafarvogi
Landfylling viö Gullinbrú hefur veriö hækkuö um 30-40 sentímetra frá því
sem fyrirhugaö var í upphafi.
Bráðnun haflsbreiðunnar á norð-
urpólnum er ekki talin hafa umtals-
verð áhrif á sjávarstöðu í heiminum
en bráðnun jökla mun hafa þeim
mun meiri áhrif. Þar geta afleiðing-
arnar orðið skelfilegar til langs
tima litið fyrir byggðir sem lágt
standa. Þetta getur haft veruleg
áhrif hér á landi þótt óvissa ríki um
við hverju sé að búast. Þó er gert
ráð fyrir því við hönnun mann-
virkja hérlendis að yfirborð sjávar
hækki um allt að hálfan metra
næstu hundrað árin.
Hækkandi hitastig á jörðinni er
talið hafa valdið 20% bráðnun á ís á
norðurheimskautinu siðan 1978. Þá
var einnig sögulegt met i bráðnun
iss á Grænlandi i sumar. Hafís
bráðnar nú hraðar en áður var
talið, eða um 9% á áratug, sam-
kvæmt rannsóknum NASA. Ef held-
ur fram sem horfír verður hafísinn,
sem hylur nú verulegan hluta Norð-
ur-íshafsins, horfmn undir lok þess-
arar aldar. Áhrifm af hafísbráðnun
eru þó óveruleg þar sem hann ryður
þegar frá sér sama massa sjávar.
Jöklar á landi hafa hins vegar verið
að bráðna nokkuð ört víða og talið
skýra hluta af 10-25% hækkun á yf-
irborði sjávar síðustu 100 árin.
Tveir þriðju þeirrar hækkunar eru
þó taldir vegna útþenslu sjávar í
takt við hlýnandi veðurfar.
Stefán Hermannsson borgarverk-
fræðingur segir að undanfarin ár
hafi skipulagsaðilar haft þetta i
huga þó ekki sé til nein opinber for-
skrift á því við hvað eigi nákvæm-
lega að miða. Stefán segir að þessi
umræða hafi m.a. verið í gangi þeg-
ar ráðhúsið var byggt við enda
Reykjavíkurtjarnar. Þar var gert
ráð fyrir hugsanlegri hækkun yfir-
borðs. Sama hafi verið uppi á ten-
ingnum þegar fyllt var upp fyrir
Bryggjuhverfið við Gullinbrú. Þar
hafi landfyliing verið hækkuð um
30-40 sentímetra frá því sem fyrir-
hugað var í upphafi. Líkt sé uppi á
teningnum varðandi uppfyllingar á
vegum Reykjavikurhafnar. þar sé
hugsanleg hækkun sjávarstöðu tek-
in með í reikninginn. Sama eigi við
um lagningar á nýjum frárennslis-
kerfum. Mikil óvissa sé þó um við
hvað eigi að miða. Hins vegar segir
Stefán að varðandi hönnun varnar-
garða og mannvirkja nærri sjó
verði að hafa marga þætti inni í
myndinni. Þar er m.a. talaö um
áhlaðandi áhrif af völdum lægða,
vinds og ölduhæðar séu stór þáttur.
Siglingastofnun gerir ráð fyrir
því i hönnun mannvirkja að sjávar-
borð hækki hér við land um 1/2
metra á næstu hundrað árum. Ef
menn gefa sér hins vegar að allur
Grænlandsjökull bráðnaði á næstu
öldum gæti það þýtt hækkun á sjáv-
arborði um 5 til 10 metra að meðal-
tali. Áhrifin yrðu enn meiri við
bráðnun jökla á suðurpólnum. Þá
gæti sjávarstaðan hækkað um allt
að 50 til 100 metra. Taka skal fram
að slík bráðnun tæki þó væntanlega
mjög langan tíma sem mældur yrði
í öldum eða árþúsundum.
-HKr.
Lögöu tll atlögu viö kanínur
Hundarnir dvelja nú á Leirum og eru viö góöa heilsu. Annar hundanna fékk í sig högi en mun á batavegi.
Hundarnir sem réðust á kanínurnar í Skerjafirði á jólanótt:
Eigendurnir sviptir leyfi
- hundarnir dvelja á hundahóteli þar til framtíð þeirra verður ráðin
Sala eiturefna:
Aðeins 3,4%
söluaðila
með leyfi
Könnun Heilbrigðiseftirlits sveitar-
félaga og Hollustuverndar ríkisins á
sölu og notkun eiturefna er lokið og
kemur í ljós að um verulega brotalöm
er þar að ræða því aðeins 4 leyfi voru
til staðar á þeim 115 stöðum sem skoð-
aðir voru. Kannaö var hvort viðkom-
andi söluaðilar hefðu tilskilin leyfi til
að selja og flytja inn eiturefhi og hvort
notendur hefðu sérstök leyfi til að
kaupa og að nota eiturefni en sam-
kvæmt lögum eru viðskipti með eitur-
efni og notkun þeirra leyfisskyld.
Þeim seljendum eiturefna sem ekki
hafa leyfi verður gerð grein fyrir að-
gerðum heilbrigðiseftirlitsins gegn
þeim. Könnunin fór fram sl. sumar.
Niðurstöðurnar benda til að í að-
eins örfáum fyrirtækjum hafi menn
tilskilin leyfi til notkunar eiturefna.
14 seljendur eiturefna sáu þessum 115
stöðum fyrir efni og minnihluti þeirra
hafði leyfi, en það voru þeir umsvifa-
mestu sem höfðu leyfi til sölu eitur-
efna en seldu allir vöru sína leyfis-
lausum einstaklingum sem er brot á
ákvæði söluleyfis. Varnaðarmerki
voru almennt í lagi hjá þeim sem
höfðu söluleyfi en yfirleitt ekki hjá
öðrum.
Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga og
Hollustuvemd ríkisins munu stöðva
sölu eiturefna hjá leyfislausum selj-
endum og sjá til þess að kaupendur
eiturefna kvitti fyrir þau í sérstaka
bók. -GG
Skráðir eigendur hundanna sem
réðust á kanínumar í Skerjafirði á
jólanótt hafa verið sviptir leyfi til
hundahalds. Hundamir dvelja nú á
hundahótelinu á Leirum meðan verið
er að taka ákvörðun um ráðstöfun á
þeim til framtíðar. Þetta kom fram hjá
Guðmundi B. Friðrikssyni þegar DV
ræddi við hann í gær.
Hundamir, sem eru af samojed-
kyni, gerðu tvisvar atlögu að kanínu-
búrum í Skerjafirði á síðasta ári. í
fyrra skiptið tókst þeim að drepa kan-
ínumar. Heimilisfólkið í Skerjafirði
fékk sér þá nýjar. Á jólanótt sluppu
hundarnir enn lausir. Þeir fóru þá á
sama stað og gerðu árás á nýju kanín-
umar. Húsbóndinn varð þeirra var og
reyndi að flæma þá frá búrunum. Þeg-
ar það tókst ekki náði hann í byssu og
skaut á þá. Fékk annar hundanna
högl í sig og var fluttur á dýraspítala
til aðhlynningar. Síðan voru þeir
teknir og fluttir á hundahótelið. Málið
var kært til lögreglu.
Hundarnir eru skráðir á aðstand-
endur mannsins sem hefur haldið þá.
Þeir eru nú við besta atlæti á Leirum.
Hreiðar Karlsson hótelhaldari sagði
að þeir væru við góða heilsu og sá
sem fyrir höglunum heföi orðið væri
búinn að jafna sig. Hann sagði
hundana ljúfa og góða í umgengni.
Eigendumir geta visað ákvörðun
umhverfis- og heilbrigðisstofu um
leyfissviptinguna til úrskurðar um-
hverfis- og heilbrigðisnefndar, að sögn
Guðmundar B. Friðrikssonar. -JSS
42 létust í slysum
árið 2002
Á tímabilinu frá 1. janúar 2002 til
1. desember 2002 létust 42 af völdum
slysa á íslandi í 32 slysum. Flestir af
þeim sem létust af slysförum létust
í umferðarslysum eða um 70%. Þá
kemur eflaust mörgum á óvart að
næstflest slysin gerðust á heimilum
fólks eða um 17%. Þá létust fæstir í
sjóslysum þetta árið eða um 5% af
öllum slysum.
Flest slysin gerðust í janúar- og í
júnhnánuði en fæst urðu slysin í april-
og í septembermánuði samkvæmt nið-
urstöðum samantektar Valgeirs Elías-
sonar, upplýsingafulltrúa Slysavama-
félagsins Landsbjargar. Ekki eru slysa-
tölur í desembermánuði teknar með
þar sem mánuðurinn var ekki á enda
þegar þetta er skrifað og því upplýsing-
ar ekki til. Árið í ár kemur verr út en
árið í fyrra en alls létust 30 manns í
slysum það árið. -ss
Banaslys 2002
SJóslys Fjöldl slysa FJöldl Iðtinna Karlar Konur Böm
1 2 2 0 0
Umferöarslys 22 29 14 10 5
Rugslys 0 : O 0 0 O
Drukknanlr 2 2 - 2 0 0
Frítíma-slys 2 2 1 1 0
Heimaslys 5 i 7 4 1 2
Vinnuslys 0 1 0 0 0 0 I
Ónnur slys o| O 0 0 0
Samtals 32 42 23 12 7
DV-MYNDIR PETRA
Nakinn að ofan
Þeir eru hressir, strákarnir í Nes-
kaupstaö - viö brennuna eru þeir
Perir aö ofan þegar þeir kynda undir
báliö. Hér koma tveir þeirra, nýbúnir
aö skvetta olíu á eld.
Þurrkhjallar á báiköstinn
Allir þurrkhjallarnir í Neskaup-
stað voru rifnir i haust og á
gamlárskvöld loguðu þeir glatt á
áramótabrennu Björgunarsveitar-
innar Gerpis. Brennan var því
óvenjulega stór að þessu sinni, enda
barst heilmikill annar brennumatur
á köstinn.
Mikil stemning var hjá strákun-
um sem skvettu olíu á eldinn og
voru þeir, eins og jafnan, berir að
ofan og olíubomir í hita leiksins.
Einnig var björgunarsveitin með
flugeldasýningu sem var mjög veg-
leg að vanda. Bæjarbúar fjölmenntu
við brennuna og blíðskaparveður
var eystra eins og viðast hvar á
landinu þetta síðasta kvöld ársins
2002.
Yfir 60 rúður brotnar
Um 30 rúður voru brotnar í
Hamraskóla í Grafarvogi á
nýársnótt. Jón Eyjólfsson, trésmiö-
ur og yfirverkstjóri Fasteignastofu
Reykjavíkurborgar, segir að þó svo
að mikið hafi verið að gera hjá Fast-
eignastofunni við að skipta um
glugga hér og þar um borgina eftir
eyðileggingar sem áttu sér stað um
áramótin hafi eyðileggingarnar í
fyrra verið mun meiri. Þá segir Jón
að 10-15 rúður hafi verið brotnar í
Ölduselskóla í Breiðholti, sjö rúður
á gæsluvelli í Fífuseli í Breiðholti
og rúður í einum og einum leik-
skóla á höfuðborgarsvæðinu. „Rúð-
ur í grunnskólum, leikskólum og á
leikvöllum eru helstu skotmörkin,"
segir Jón. Jón segist hins vegar
ekki geta svarað hver sé ástæðan
fyrir því. Erfitt sé að finna söku-
dólgana þar sem ekki séu eftirlits-
myndavélar í grunnskólum á höfuð-
borgarsvæðinu og ekki vuðist sem
bót verði ráðin á þvi máli að svo
stöddu.
Óskoðaðar bifreiðar
Samkvæmt upplýsingum Lögregl-
unnar í Reykjanesbæ er nokkuð um
að eigendur ökutækja séu ekki bún-
ir að fara með bifreiðar sínar til
skoðunar en hún stöðvaði alls 12
bifreiðar þar í bæ í gærkvöld vegna
vanrækslu á skoðun. Þá vill lögregl-
an benda á að það eigi að vera búið
að skoða allar þær bifreiðar sem
eru með 02 miða. Þá skal það einnig
tekið fram að þeir sem ekki hafa lát-
ið skoða bifreiðar sínar á tilskildum
tima geta átt von á sekt vegna þess.
Erilsamt hjá Slökkviliðinu
Mikill erill var hjá Slökkviliðinu
í Reykjavík í nótt en það var kallað
út fimm sinnum. Um tíuleytið í gær-
kvöld kom upp eldur í sorpgámi við
verslunarmiðstöðina Kringluna en
grunur leikur á að kveikt hafi verið
í og er málið í rannsókn. Þá var beð-
ið um aðstoð, á svipuðum tima, við
að losa gám þar sem eldur hafði
komið upp í honum. Þá þurfti að
reykræsta íbúð um ellefuleytið í
gærkvöld þar sem eldur kom upp i
örbylgjuofni við Vatnsstíg og eldur
kom upp í bíl við Óseyrarbraut í
Hafnarfirði um fjögurleytið í nótt.
Samkvæmt Slökkviliðinu í Reykja-
vík urðu engin slys á fólki og gengu
öll slökkvistörfin vel fyrir sig enda
um minni háttar mál að ræða.
-ss/PJ