Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2003, Side 7
FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2003
DV
7
Fréttir
DV-MYND GVA
Æ lengri biðraðir
Samkvæmt upplýsingum frá Mæörastyrksnefnd hafa aldrei fleiri leitaö ásjár nefndarinnar en á sföasta ári. Þaö htýtur
aö vera nokkur vitnisburöur um stööu fátæktar á íslandi.
Hvernig mælist fátækt?
Er hægt að mæla fátækt, og ef svo
er, hvernig mælist fátækt? Ára-
mótaávarp Ólafs Ragnars Grímsson-
ar, forseta íslands, hefur vakið upp
þessar spumingar og fleiri, og
kannski komið við kaunin á ein-
hverjum.
Öm Bárður Jónsson, sóknar-
prestur í Neskirkju í Reykjavík, seg-
ir að það sé algjört lágmark að eiga
fyrir húsaskjóli og fæði, geta komist
ferða sinna, keypt dagblað, horft á
sjónvarp, farið í bíó, leikhús og
kaffihús, farið í ferðalög og geta
veitt sér menningu og þátttöku í
þjóðfélaginu innan eðlilegra marka.
Sjálfsögð lífsgæði?
„Hvað telst til sjálfsagðra lífs-
gæða?“ spyr Öm Bárður og bætir
viö: „Þetta meðalstrik hlýtur að
vera töluvert hærra en það var fyr-
ir hálfri öld því við gerum meiri
kröfur en þá. Svo má segja að fólk
verði að eiga farsíma eins og aðrir,
það þykir ekki neinn lúxus í dag.
En svo má spyrja hvort við þurfum
allt þetta drasl í kringum okkur.
Þegar tekjur minnka, ýmist tíma-
bundið eða alfarið, skorti marga
hina gömlu dygð, nægjusemi, en
krafan um mannsæmandi kjör verð-
ur þá svolítið vandmeðfarin. Það
getur gengið of langt að heimta allt
af þjóðfélaginu, en við verðum að
ingum sem þar er að fá og þeirri
stöðu sem það veitir. Hjá stjórnvöld-
um eru flestar stöður auglýstar á
vefnum en við höfum einnig verið
með kröfu um það að lausar stöður
séu einnig auglýstar í fjöimiðlum
þannig að fólk hafi þar aðgengi að
þeim upplýsingum. En þá þarf fólk
að hafa efni á þvi að kaupa aðgang
eða áskrift að fjölmiðlum. Tóm-
stundastarf unglinga kostar í dag
mikla peninga, og það er orðið stað-
fest vísbending um stéttaskiptingu í
landinu þegar fjölskyldur hafa ekki
ráð á því að veita börnum sínum
þann munað að sparka bolta, spila
tónlist eða stunda önnur tómstunda-
störf og taka þar með þátt í félags-
legu samneyti við sína jafnaldra.
Lægstu laun
Fjölskylda sem er með lægstu laun
í dag hefur ekki efni á þessu í dag og
telst því samkvæmt því fátæk. Eng-
um einstaklingi eru greidd lægri
laun en 92.000 krónur. Nú taka hús-
næðismál til sín stöðugt stærri hlut
tekna, svo samkvæmt því er fátækt
að aukast jafnt og þétt. Sá árangur
ASÍ að tvöfalda lægstu laun á síðustu
fimm árum hefur ekki skilað sér í
tekjustöðu þessa fólks vegna þess að
húsnæðismál gleypa þá aukningu.
Það er mikið áhyggjuefni," segir
Gylfi Arnbjörnsson. -GG
Örn Bárður Gylfi
Jónsson. Arnbjörnsson.
taka eitthvert þversnið og gera
kröfu til þess að fólk sé ekki undir
því. Allt neðan við það þversnið er
þá fátækt," segir sr. Örn Bárður
Jónsson.
Þátttaka í samfélaginu
Gylfi Arnbjömsson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðusambands ís-
lands, segir að þegar fólk hafi ekki
tekjur til þess að greiða lífsnauð-
synjar eins og húsnæði og matvæli
þá sé það fólk augljóslega fátækt. En
breytingar í þjóðfélaginu krefjist
ýmislegs fleira, eins og t.d. aðgengis
að tölvum og svipaðri tækni.
„Auðvitað er það partur af fá-
tæktarvandamáli þegar hluti þjóð-
arinnar hefur ekki tekjulegar for-
sendur til að taka þátt í samfélaginu
til jafns við alla aðra, s.s. með að-
gengi að tölvu og intemeti, og er
þannig sniðgengið af þeim upplýs-
Línan milli nægju-
semi og nauðsynja
Ræða forseta íslands um fátækt vekur athygli:
Kjör atvinnulausra
eru skelfileg
- segir formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur
Þjóðarátak
gegn fátækt
Þingflokkur Vinstrihreyfingar-
innar - græns framboðs tekur und-
ir þau orð í áramótaræðu forseta Is-
lands að vaxandi fátækt fjölda fólks
mitt i öllu ríkidæminu er ein mesta
þversögn samtímans. Þingflokkur-
inn styður heils hugar að skorin
verði upp herör gegn fátækt og efnt
til þjóðarátaks í því skyni. VG hefur
sett baráttu fyrir myndun velferðar-
stjómar á oddinn að loknum þing-
kosningum í vor.
Orð forseta Islands í áramóta-
ávarpi um fátækt á íslandi hafa vak-
ið verðskuldaða athygli. Aðalsteinn
Baldursson, formaður Verkalýðsfé-
lags Húsavíkur og formaður mat-
vælasviðs Starfsgreinasambands ís-
lands, er mjög ánægður með ræðu
forsetans á nýársdag, sérstaklega
hvað varðar fátæktina.
„Ég hef m.a. verið að vekja at-
hygli á kjörum atvinnulausra sem
eru skelfiíeg og í því sambandi hef-
ur Verkalýðsfélag Húsavikur óskað
eftir að ASÍ taki málið fyrir. Því
miður hefur það ekki skilað þeim
árangri sem ég hafði væntingar til.
Það t.d. vekur athygli að atvinnu-
leysisbætur skuli hækka um 5%
meðan hátekjumenn eru hækkaðir
um 7% nú um áramótin. Atvinnu-
leysisbætur, sem vora 73.764 krón-
ur, hækka í 77.452 krónur en hefðu
atvinnuleysisbætur hins vegar fylgt
taxta fiskvinnslufólks eins og var
1995 væru þær í dag 92.768 krónur,
Umsamin lágmarkslaun í dag sam-
kvæmt kjarasamningi Starfsgreina-
sambands íslands og Samtaka at-
vínnulifsins eru 93.000 krónur.
Hefðu atvinnuleysisbætur haft
sömu viðmið eins og var 1995 væru
þær í takt við umsamin lágmarks-
laun.
Þetta er mjög alvarlegt mál og því
mikilvægt að verkalýðshreyfingin,
atvinnurekendur, stjómvöld og
sveitarfélög taki orð forsetans til
skoðunar," segir Aðalsteinn Bald-
ursson, formaður matvælasviðs
Starfsgreinasambands íslands. -GG
Áskorun forseta íslands um baráttu gegn fátækt:
Megum ekki
bregðast illa við
staðreyndum
- segir Guðni Ágústsson
„Ég tel víst að á næstunni fari af
stað umræða um fátækt í kjölfar
nýársræðu forseta íslands. Þegar
hafa samtök launþega heitið því að
taka til hendi, það heyrðum við
strax á viðbrögðum Grétars Þor-
steinssonar, forseta ASÍ. Jafnframt
á ég von á því að ríkisstjórn og
sveitarfélög taki vel þessum orðum
og að gripið verði til aðgerða," sagði
Guðni Ágústsson, landbúnaðarráö-
herra og varaformaður Framsókn-
arflokksins, við DV í gærkvöldi.
Tilefnið voru ummæli forseta ís-
lands sem í ávarpi sínu á nýársdag
skoraði á menn að grípa til aðgerða
gegn sárri fátækt fjölda fólks.
Mannleg og hlý ræða
„Mælingar segja frá því að í
auknum mæli leiti fólk á náðir
hjálparstarfs til að geta veitt sínum
vel um hátíð eins og jólin. Þetta eru
staðreyndir sem ber að taka mark á
og enginn má bregðast illa við. Mér
fannst ræða forseta íslands mannleg
og hlý í garð fólks sem á sannarlega
erfitt. Áskorunin til forystu launa-
fólks er líka gott útspil,“ sagði
Guðni Ágústsson.
Hann minnti á að sl. haust hefði
ríkisstjórnin gert bragarbót í því að
bæta kjör aldraðra og öryrkja og al-
mennt hefðu lífskjör hér á landi
batnað mikið undanfarið.
, Guöni Ólafur Ragnar
Ágústsson. Grímsson.
„Það er mikilvægt að greina fá-
tækt á íslandi. Hverjir eru illa
staddir, hvers vegna og hvaða leiðir
við höfum til að taka á málinu. Eru
þetta einstæðar mæður eða barna-
fólk með miklar skuldir? Eða hópar
í tilteknum stéttum? Ég þekki fólk
sem býr við bág kjör og veit að
neyðin ein fær það til að leita sér
hjálpar. Við eigum ekki aö gleyma
þessu fólki, því hver íslendingur á í
ranni sínum sögur um hungur og
fátækt,“ sagði Guðni Ágústsson.
Orð Guðna hér að ofan um fátækt
eru ekki alveg með sama hætti og
viðbrögð flokksbróður hans ogg
samráðherra, Páls Péturssonar,
voru í DV í gær. Þar sagði hann
forseta íslands taka of djúpt í árinni
í lýsingum sínum um fátækt á
íslandi eins og þær voru settar fram
í nýársávarpi. -sbs
ÞJÓÐHÁTÍÐARSJÓÐ UR
auglýsir eftir umsóknum
um styrki úr sjóðnum
á árinu 2003
Samkvæmt skipulagsskrá
sjóðsins nr. 361 30. september
1977, sbr. auglýsingu nr. 673 frá
12. september 2000 um
breytingu á skipulagsskrá fyrir
þjóðhátíðarsjóð, er tilgangur
sjóðsins: "að veita styrki til
stofnana og annarra aðila er hafa
það verkefni að vinna að
varðveislu og vemd þeirra
verðmæta lands og menningar
sem núverandi kynslóð hefur
tekið í arf.
Við það skal miða að styrkir úr
sjóðnum verði viðbótarframlag
til þeirra verkefna sem styrkt em
en verði ekki til þess að lækka
önnur opinber framlög til þeirra
eða draga úr stuðningi annarra
við þau.""
Stefnt er að úthlutun á fyrri hluta
komandi árs. Umsóknarfrestur
er til og með 28. febrúar 2003.
Eldri umsóknir ber að endumýja.
Nálgast má umsóknareyðublöð
í Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík.
Nánari upplýsingar gefur ritari
sjóðsstjórnar, Sveinbjöm
Hafliðason, í síma 569 9600.
Reykjavík 27. desember 2002
Þ J ÓÐHÁTÍÐ ARS JÓÐUR