Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2003, Síða 8
8
FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2003
DV
Fréttir
DV ræðir við 14 ára stúlku sem slasaðist lífshættulega á Holtavörðuheiði:
Voru að fara norður
í leyfisleysi á ball
- fjölskyldan fylgdist með henni meðvitundarlausri í viku - óvissa eftir vöknun
DV-MYND HARI
Fjölskyldan og endurheimta dóttirin
Móöirín, Thelma Krístín Ingólfsdóttir, og faöirínn, Gunnar Gunnarsson, með Helenu Ósk, 14 ára, og systkinunum,
Aroni Gunnarssyni, 9 ára, og Söndru Gunnarsdóttur, 11 ára. Helena Ósk ætlar ekki aö fara aftur í ferö eins og í lok
nóvember nema hafa samráö viö foreldra sína fyrst.
DV-MYND GVA
Einar Valsson skipherra meö nætursjónauka
Tæki sem þessi gera undraveröa hluti - margar þyrlubjarganir mögulegar
sem annars væru þaö ekki. Tækin skiptu sköpum viö aö komast á slysstaö
á Holtavöröuheiöinni þegar Helena Ósk var sótt.
Aö kvöldi föstudagsins 29. nóvember
er Toyota Corolla-bíl frá höfuðborgar-
svæðinu ekið á um 100 kílómetra
hraöa upp á Holtavörðuheiöina,
skammt frá rauðleita sæluhúsinu efst
á heiðinni. Fimm ungmenni eru í bíln-
um. Þau eru á leiðinni á bail í Mið-
garði í Skagafirði þar sem hljómsveit-
in í svörtum fótum á að leika. Foreldr-
ar og forráðamenn fjögurra þeirra sem
í bilnum eru hafa ekki gefið leyfi til
ferðarinnar og vita reyndar ekki af því
að börn þeirra eru á leiðinni aila leið
norður í land. Aðeins eigandi bílsins,
19 ára piltur frá Suðumesjum, er ekki
á ferð án leyfis. Hann er nýbúinn, fyr-
ir um 4 mínútum, að skipta um sæti
við þann sem áður hafði setið frammí
- ætlar að hvUa sig aðeins á akstrin-
um.
Krakkamir fóru út úr bUnum þegar
skipt var um og fyUtu lungun með
svölu fjallaloftinu en enginn hefur
drukkið áfengi. Hitastigið er um eða
rétt undir frostmarki. Þegar bUnum er
ekið af stað aftur spennir enginn í aft-
ursætinu á sig öryggisbelti - tvær 14
ára vinkonur og 17 ára pUtur, Ámi
Magnússon sem er kærasti annarrar
stúlkunnar, Helenar Óskar Gunnars-
dóttur úr Hafnarflrði. Um það leyti
sem bUlinn er að fara í beygju biðja
krakkamir ökumanninn að fara hæg-
ar. Hann hægir ekki ferðina. Því mið-
ur. Svo Ula vUl tU að launhált er - bUl-
inn er kominn úr beygjunni en öku-
maðurinn er búinn að missa stjóm á
honum. Fimmenningamir em á leið-
inni út af malbikuðum glerhálum
fjaUaþjóðveginum. Árni heldur dauða-
haldi í Helenu Ósk aftur í, reynir að
passa kærustuna.
Lemst utan í stein
Hjartslátturinn eykst, allir verða
logandi hræddir. Ungmennin missa
jafnvægisskynið, vita ekki hvað snýr
upp og hvað niður. SkyndUega skeUur
bUlinn niður og fer svo aftur veltu.
Þegar bUlinn skeUur aftur á urð og
grjóti verður það Áma um megn að
halda i kærustuna. Nú er höggið svo
gríðarlegt að hin 14 ára hafnfirska
stúlka hendist í afturrúðuna, brýtur
hana og kastast út. Hún lendir á steini
- andlitið lemst í gijótið og höggið á
höfuðið er slíkt að hún missir sam-
stundis meðvitund. Hún hefur skorist
víða um líkamann. Blóðið lekur og
skelfing grípur um sig hjá ungmenn-
unum. Ámi er Ula handleggsbrotinn á
báðum höndum og hlýtur einnig bak-
meiðsl. Vinkona Helenar Óskar slasast
minna, svo og eigandi bUsins. Sá sem
ók sleppur nánast alveg við meiðsl.
Hvað gemm við nú? hugsuðu sjálf-
sagt öU fjögur sem vom nú með með-
vitund.
Duglegur samferöamaöur
Ökumaður og samferðamenn unga
fóUtsins eru í bU, sem ekið er á eftir og
sjá hvað gerist. Hringt er í Neyðarlm-
una, 112, og óskaö eftir aðstoð. Starfs-
maður þar leiðbeinir nú 18 ára öku-
manni bUsins sem kom á eftir hvemig
hann eigi að veita Helenu Ósk fyrstu
hjálp. Þegar hann kemur að stúlkunni
sér hann að hluta af andliti hennar
vantar hreinlega - það er op á hægri
kinninni. Miðað við þær upplýsingar
sem liggja fyrir er ijóst að nauðsynlegt
er að káUa út þyrlu. Lögreglumenn á
Hólmavík og Borgamesi hraða sér sem
mest á vettvang, svo og menn í sjúkra-
bU - þetta mun taka tíma því vega-
lengdir em miklar. FljóUega kemur
sjúkraflutningamaður, sem er í fríi, á
slysstað. TUvUjun að hann var þama.
Allir hjálpast að eins og kostur er viö
að hlúa að Helenu Ósk. Mun hún lifa?
hugsa aUir.
Áhöfn þyrlunnar TF-LÍF ákveður að
nota nýju nætursjónaukana sem
keyptir hafa verið frá Bandaríkjunum
enda hafa menn nú tekið út þjálfún
með þá. Einar Valsson skipherra hefúr
samband við sjúkraflutningabU og bið-
ur um að lögregla og aðrir hafi ekki
ljós kveikt á bUum þegar þyrlan kem-
ur inn tU lendingar yfir svæðið enda
byggjast sjónaukamir á því að menn
sjái helst með þeim í algjöru myrkri.
Þetta er fyrsta flugiö yfir land þar sem
sjónaukamir eru notaðir í útkaUi.
Benóný Ásgrímsson flugstjóri sagði
við DV að þessi flugferð hefði orðið
mjög erfið og hættuleg ef áhöfnin hefði
ekki haft nætursjónaukana - sennUega
heföi þyrlan ekki náð á staðinn.
„Slys“ meö blys
AUt gekk að óskum á slysstað. Þeg-
ar þyrlan nálgast og kemur inn tU
lendingar á veginum gerist nokkuð
sem áhöfhin á aUs ekki von. Lögreglu-
maður tendrar blys - algjörlega í sam-
ræmi við það sem gera á með þyrlur
almennt - en skUaboðin um að öU ljós
skyldu vera slökkt í þetta skiptið höfðu
greinUega ekki skUað sér.
„Við blinduðumst algjörlega," sagði
Benóný flugstjóri. Einar segir að sjón-
aukarnir lokist hreinlega við aðstæður
eins og þessar - likt og ljósop í mynda-
vél. „Við urðum einfaldlega að rUa
sjónaukana af okkur, lyfta þeim upp á
hjálminn," segir Einar.
Þegar vélin lenti opnaði Einar dym-
ar að aftan og steig út. „Ég hefði aldrei
getað ímyndaö mér það, þama var
hálka sem maður sá alls ekki, mjög
lúmskt, ég var rétt dottinn." Nú var
farið inn í sjúkrabU þar sem búið var
að koma Helenu Ósk fyrir á börum.
Ljóst var að hún þurfti að komast sem
aUra fyrst á sjúkrahús. Aðeins 6 mín-
útum eftir lendingu hóf þyrlan sig á
loft á ný og stefhan tekin á Landspítal-
ann í Fossvogi.
Móðirín fær fréttir af þyrlunni
Thelma Kristín Ingólfsdóttir, móðir
Helenu Óskar, hafði fregnað um slysið.
„Mér var sagt að eitt af bömunum
væri alvarlega slasað." Móðirin spurði
þá hver það væri og var sagt síðar að
þetta væri dóttir hennar. „Hversu al-
varlegt er þetta?" spurði ég. Mér var
sagt að það væm alvarlegir höfuð-
áverkar. Ég vUdi ekki vita meira,“ seg-
ir Thelma. Hún og fjölskyldan fóru nú
út á spítala en dóttirin gekkst undir 7
klukkustunda aðgerð. Rafri Ragnars-
son lýtalæknir var meðal annarra við
stjómvölinn þar.
Móðirin segir að Helena Ósk hafi
verið lögð inn á gjörgæslu þar sem
henni var haldið sofandi i sjö daga.
„Þegar hún vaknaði hægt og rólega
sagði hún ekki orð, bara horfði á okk-
ur. Þetta var hræðUegur tími. Við viss-
um ekkert hvemig henni myndi reiða
af - hvort hún yröi andlega heU á ný,“
segir móðirin alvarleg og hugsandi.
„En svo kom þetta aftur," segir hún og
brosið færist yfir andlit hennar.
Svefninn djúpi
Helena Ósk sofnaði um klukkan sex,
rétt fyrir kvöldmat, þegar 6 dagar vom
frá þvi hún opnaði augun á ný eftir
slysið. Hún féU í sérstakan og mjög
djúpan svefn. Þegar klukkan var hálf-
níu um kvöldið vaknaöi hún á ný. Þá
var eins og aUt væri breytt. Stúlkan fór
að tala og áttaði sig vel á því sem var
að gerast í kringum hana. Eftir það
hafa framfarimar lofað mjög góðu.
Helena Ósk á reyndar eftir að fara í
sneiðmyndatöku en þá kemur í ljós
hvaða áhrif hin alvarlega framheUa-
röskun sem hún hlaut mun hafa. Hún
missti máttinn vinstra megin en kraft-
urinn I líkamanum eykst dag frá degi.
„Hún er að minnsta kosti farin að geta
gengið upp og niður stiga,“ segir móð-
irin, strýkur dótturinni varlega en hlý-
lega um vangann. Báðar brosa blítt -
þær hafa fengið vonina.
Nei, ekki aftur
En hvað vUl mamma segja um að
dóttirin fór í leyfisleysi? „Hún ætlar
aUa vega ekki að gera þetta aftur," seg-
ir hún og viðstaddir brosa. „Ég verð
hins vegar að segja að mér myndi líða
enn verr í dag ef ég hefði gefið henni
leyfi. Þá hefði ég kennt sjálfri mér um
hvemig fór. En það er eins og það er,“
segir Thelma vongóð um að með að-
stoð Rafhs lýtalæknis og ótal marga
annarra lækna og hjúkrunarfólks
muni dóttirin ná heUsu, andlegri sem
likamlegri, á ný. Fram undan era að-
gerðir en stúlkan fékk að koma heim á
aðfangadagskvöld í leyfi og var svo
heima 4 sólarhringa um áramótin.
Þetta er aUt aö koma.
-Ótt
DV-MYND JÚLÍA IMSLAND
Góö gjöf frá Eyjum
Björgunarsveitarmennirnir Jónas Þor-
geirsson, tii vinstri á myndinni, meö
sjónaukann, og Björn Ingi Jónsson,
formaöur björgunarsveitarinnar, sem
þakkar þessa góöu gjöf. Frá hægri
eru Skúli Ingólfsson og Olgeir Jó-
hannesson i Kiwanisklúbbnum Ósi.
Eyjamenn gefa
nætursjónauka
Á gamlársdag afhenti Kiwanis-
klúbburinn Ós á Hornafirði Björg-
unarsveit Hornafjarðar nætur-
sjónauka sem er gjöf frá Kiwanis-
klúbbnum HelgafeUi í Vestmanna-
eyjum.
„Þorsteinn Finnbogason, forseti
Kiwanisklúbbsins HelgafeUs, hafði
samband við mig í haust og sagði aö
í tUefni af 35 ára afmæli klúbbsins
hefðu þeir ákveðið að gefa fjóra
nætursjónauka og að Ós væri einn
þeirra sem fengi sjónauka frá
þeim,“ sagði Skúli Ingólfssson, for-
seti Kiwanisklúbssins Óss. Skúli
sagði að þeim hefði verið falið að af-
henda sjónaukann þar sem hans
væri mest þörf og hefði björgunar-
sveitin orðið fyrir valinu. Kiwanis-
klúbburinn HelgafeU er einn sá
stærsti í Evrópu, með um 80 félaga.
Klúbbfélagar í Ósi eru 23.
Snæfellsbær.
Lítiö svigrúm til framkvæmda
Lítið svigrúm er tU framkvæmda
í SnæfeUsbæ á árinu 2003 og ljóst að
reksturinn mun taka tU sín hærra
hlut skatttekna en var á árinu 2002.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur skipað
meirihluta í bæjarstjórninni síðan
1998 og telja fuUtrúar hans að nauð-
synlegt sé að lengja lán sveitarfé-
lagsins og taka ný lán vegna
breyttra kjara í lánaviðskiptum.
í fjárhagsáætlun Snæfellsbæjar
fyrir árið 2003 er m.a. gert ráð fyr-
ir stækkun leikskólans KrUakots í
Ólafsvík, áframhaldandi undirbún-
ingsvinnu vegna þjónustuíbúða
fyrir aldraða, stuðningur við æsku-
lýðsstarf sem hófst í haust heldur
édram ásamt því að stefnt er að
opnun nýrrar félagsmiðstöðvar á
árinu. Lagt er mun meira af fjár-
munum tU íþróttafélaganna þar
sem ljóst þykir að þar er unnið
mikið og gott forvarnarstarf.
Helstu hafnarframkvæmdir verða
dýpkun, grjótvörn við GUið og raf-
magn í trébryggjuna í Ólafsvik og í
Rifi verður rekið niöur nýtt stálþU
á Norðurgarði og ljós sett í bryggju-
stiga.
Annað besta áriö
Tæplega 210 þúsund manns heim-
sóttu Fjölskyldu- og húsdýragarðinn
á árinu sem var að líða. Það þykir
góð aðsókn en aðeins einu sinni
áður, árið 1993, hafa gestir verið
fleiri - þá heimsóttu garðinn um 220
þúsund manns. Aðsóknarmet var
hins vegar slegið í desember en þá
voru gestimir 7400 samborið við
4.700 á sama tíma í fyrra.
Eins og DV hefur greint frá þá
hefur Húsdýragarðinum bæst nýr
íbúi en það er storkurinn Styrmir
sem mun dvelja í garðinum tU vors.
-JI/GG/aþ