Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2003, Qupperneq 13
13
FÖSTUDAGUR 3. JANÍIAR 2003
DV
Samstarfssamningur um
rekstur Eldborgar
Hitaveita Suðumesja hf. og Bláa lón-
ið hf. hafa gert með sér samstarfssamn-
ing um leigu og rekstur funda-, ráð-
stefnu- og veitingaaðstöðu auk kynning-
arstarfsemi í Eldborg, kynningar- og
ráðstefnuhúsi Hitaveitu Suðumesja við
orkuverið í Svartsengi. Bláa lónið hf.
mun taka við rekstri Eldborgar frá og
með 1. janúar 2003. Veitingaþjónusta
Bláa lónsins hf. mun þá annast rekstur,
bókanir og kynningu á Eldborg
í Eldborg em þrír ráðsteínusalir sem
rúma allt að 300 gesti. Felliveggir em á
miili salanna og því auðvelt að aðskilja
og sameina sali. Góð lofthæð og failegt
útsýni er úr öllum sölum Eldborgar sem
eru jafnframt meðal tæknivæddustu
fundarsala landsins. Saiarkynnin má
einnig nota til mannfagnaða og veislu-
halda af ýmsu tagi.
í Gjánni í kjallara Eldborgar er sýn-
ing þar sem gestir geta kynnst jarðfræði
íslands á lifandi og skemmtilegan hátt.
Samningsaðilar telja að með auknu
samstarfi muni nást fram rekstrarhag-
ræði, auk þess að markaðssetning þess-
arar glæsilegu ráðstefnu-, funda- og veit-
ingaaðstöðu efli Reykjanes enn frekar
sem vinsælan áfangastað innlendra
jafnt sem erlendra gesta.
Kaupir í
Fiskmarkaði Suðurnesja
Fiskmarkaður íslands hf. hefur
keypt 30% hlut í Fiskmarkaði Suð-
urnesja hf. og er eignarhlutur
Fiskmarkaðar íslands hf. eftir
kaupin 31,3%.
Kaupverðið er trúnaðarmál á
milli seljenda og kaupenda en fé-
lagið hefur tekið skammtímalán
að fjárhæð kr. 50 milljónir vegna
þessara viðskipta en fjármagnað
afganginn úr sjóðum þess. í til-
kynningu frá Fiskmarkaði íslands
kemur fram að tilgangurinn með
þessum kaupum sé að auka arð-
semi félaganna beggja.
Budweiser
kaupir íslensk rafeindamerki
Stærsti bjórframleiðandi Banda-
ríkjanna, Budweiser, hefur gert
samning um kaup á rafeindamæli-
merkjum frá íslenska fyrirtækinu
Stjörnu-Odda. Budweiser hyggst
nota merkin við rannsóknir og eftir-
lit á gæðum bjórframleiðslu sinnar
og athuga hvaða áhrif ýmsir þættir,
eins og hita- og þrýstingsbreytingar,
hafi á gæði framleiðslunnar.
Sigmar Guðbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Stjömu-Odda, sagði í
samtali við Viðskiptablaðið samn-
inginn í sjálfu sér lítinn og að um
tiltölulega fá merki væri að ræða
enda einungis veriö að prófa hvort
rafeindamerkin uppfylltu vænting-
ar Budweiser. „Ef forsvarsmenn
Budweiser verða ánægðir búumst
við fastlega við því að mun stærri
pantanir verði gerðar af hálfu fyrir-
tækisins og hugsanlega tengdra fyr-
irtækja," segir Sigmar. „Mikilvægi
þessarar pöntunar fyrir Stjörnu-
Odda fer að stærstum hluta eftir því
hvort hún leiðir af sér sölu merkja
til fleiri fýrirtækja innan þessarar
atvinnugreinar."
Sigmar sagði þessi rafeindamerki
vera nokkra byltingu miðað við
fyrri mælitæki sem Budweiser hef-
ur notað þar sem merkin verða inn-
an í dósunum en ekki utan á eins og
fyrri greiningarbúnaður fyrirtækis-
ins. „Merkin okkur munu því opna
þeim nýjar víddir við gæðaeftirlit
og rannsóknir." Mælimerki Stjörnu-
Odda hafa hingað til eingöngu verið
notuð til merkinga á dýrum og þá
aðallega á fiskum og til umhverfis-
mælinga í höfum. Rafeindamerkin
eru lítil mælitæki sem skrá og
geyma upplýsingar í innra minni
merkisins.
Það var í raun ráðgjafarfyrirtæki
Budweiser sem fann Stjörnu-Odda.
Sigmar sagði það fyrirtæki vera nokk-
uð stórt og teygja anga sína víða um
heim. „Þeir eru að sinna Budweiser
og gætu því greitt okkur frekari leið
til annarra fyrirtækja vegna þess
trausts sem þeir njóta vegna ráðgjafar
við Budweiser." Þær hugmyndir hafa
verið reifaðar að ef merkin geri sitt
gagn, sem Sigmar er sannfærður um
að þau geri, þá leggi ráðgjafarfyrir-
tækið í markaðssókn á merkinu á
markaði gosdrykkja- og bjórfram-
leiðslufyrirtækja.
Viðskipti
Umsjón: Vi&skiptabiaðið
Bakkabræður orðnir stórir
hluthafar í Kaupþingi
Með kaupum Bakkabræðra
Holding, eignarhaldsfélags Ágústs
og Lýðs Guðmundssona, á 55%
hlutafjár í fjárfestingarfélaginu
Meiði ehf., eru þeir bræður orðnir
áhrifaríkir hluthafar í Kaupþingi.
Greinilegt er að kaupin eru gerð í
góðri sátt á milli þeirra bræðra og
stjórnenda Kaupþings og ljóst að
stjómendur Kaupþings gátu ekki
fundið heppilegri kaupendur. Með
ákveðnum einföldunum má segja
að veldi þeirra Bakkabræðra hafi
orðið til vegna Kaupþingsmanna
og þeir því að launa þeim greið-
ann núna.
Þó að þeir Bakkabræður hafi
verið að berjast í fyrirtækja-
rekstri sínum síðan 1986 þá var
það ekki fyrr en með skráningu
Bakkavarar á markað árið 2000
sem veldi þeirra fór að vaxa. Fyr-
irætlanir þeirra voru ekki smáar í
sniðum; félagið átti að vera alþjóð-
legt markaðs- og matvælafram-
leiðslufyrirtæki og með kaupum
félagsins á breska matvælafram-
leiðslufyrirtækinu Katsouris
Fresh Foods Ltd. (KFF) árið 2001
Bakkabræður
Ágúst og Lýöur Guömundssynir.
varð það að veruleika. Áður höfðu
þeir framkvæmt vel heppnuð fyr-
irtækjakaup í Svíþjóð. Með kaup-
unum varð Bakkavör Group eitt
af stærstu fyrirtækjum á íslandi,
hvort sem mælt er í hagnaði, veltu
eða starfsmannafjölda. Áætluð
velta sameinaðs félags fyrir árið
2002 er um 20 milljarðar króna og
starfsmenn um 2000 talsins.
Bakkavör Group greiddi 101,8
milljónir punda fyrir KFF, eða
sem nam 15,6 milljörðum króna á
þáverandi gengi. Þessi kaup voru
stærstu fyrirtækjakaup í íslenskri
viðskiptasögu.
Vöxtur Bakkavarar síðustu ár
hefur verið með ólíkindum en bréf
félagsins hafa hækkað um 80% á
árinu. Þeir bræður eiga tæplega
30% í félaginu sem nú er metið á
17,6 milljarða. Eign þeirra hefur
því margfaldast en gera má ráð
fyrir að eignarhlutur þeirra þar sé
um 5 milljarða virði og litlar
skuldir bak við það. Það gerir
þeim kleift að skuldsetja sig fyrir
kaupunum á bréfunum í Meiði en
ekki hefur heyrst að þeir hafi selt
neinar eignir á móti. Miðað við
kaupverðið þar má ætla að þeir
hafi skuldsett sig fyrir ríflega 2,3
milljörðum króna. Þar sem áætl-
anir þeirra varðandi Bakkavör
hafa gengið eftir til þess má ætla
Neikvæður hagvoxtur a
þriðja ársfjórðungi
Landsframleiðslan á íslandi dróst
saman um 1,6% á þriðja ársfjórð-
ungi þessa árs sé borið saman við
sama timabil í fyrra. Er þetta i
fyrsta skipti sem ársfjórðungsreikn-
ingar sýna samdrátt landsfram-
leiðslu frá því samantekt þeirra
hófst frá og með 1. ársfjórðungi
1998. Skýringuna má rekja til þess
að frá þvi þjóðarútgjöld fóru að
dragast saman á 2. ársfjórðungi 2001
hefur hagvöxturinn átt rót sina að
rekja ýmist til mikils samdráttar í
innílutningi eða vaxtar í útflutn-
ingi. Þetta gildir ekki um 3. ársfjórð-
ung þessa árs. Þannig er útflutning-
ur talinn hafa aukist um 1,5% sem
er mun minni vöxtur en á 2. fjórð-
ungi ársins. Innflutningur er hins
vegar talinn hafa dregist saman um
3,8% sem er minni samdráttur en
oft áður. Þetta kemur fram í upplýs-
ingum frá Hagstofunni.
Þjóðarútgjöldin eru talin hafa
dregist saman um 3,7% að raungildi
á 3. ársfjórðungi 2002 miðað við
sama fjórðung fyrra árs. Þetta er
meiri samdráttur en á 2. ársfjórð-
ungi en þá drógust þjóðarútgjöldin
saman um 2,7% frá fyrra ári.
Einkaneysla er stærsti liður þjóð-
arútgjaldanna og er hún talin hafa
verið óbreytt á 3. fjórðungi þessa
árs, samanborið við 0,7% samdrátt
á 2. fjórðungi ársins, hvort tveggja
miðað við sama tíma árið áður.
Áfram gætti samdráttar í fjárfest-
ingu á 3. ársfjórðungi, nú um nær
23% frá fyrra ári samanborið við
7,7% á 2. ársfjórðungi. Samneysla er
talin hafa vaxið um 6,5% á 3. fjórð-
ungi þessa árs sem er mun meiri
vöxtur en áður. Aukinn samdráttur
þjóðarútgjalda á 3. ársfjórðungi
skýrist því fyrst og fremst af mikl-
um samdrætti i fjárfestingu. Rétt er
að benda á að skipting samneysl-
unnar á ársfjórðunga byggir enn
sem komið er á upplýsingum úr
greiðsluuppgjörum ríkisins og fjár-
hagsáætlunum sveitarfélaga en
rekstraruppgjör hvers ársfjórðungs
eru ekki fyrir hendi.
Þær miklu sveiflur sem fram
koma í útflutningi og innflutningi
má að nokkru leyti rekja til birgða-
breytinga. Enn sem komið er liggja
ekki fyrir tölur um birgðabreyting-
ar annarra atvinnugreina en ál- og
kísiljárnframleiðslu. Af því leiðir að
aukist útflutningur mikið í einum
ársfjórðungi kann það að leiða til of-
mats á framleiðslu og þar með á
hagvexti í þeim ársíjórðungi. Að
sama skapi er hætta á að framleiðsl-
an verði vanmetin í þeim ársfjórð-
ungi þegar birgðir safnast fyrir.
að 20-30% vöxtur þar geri þeim
kleift að halda þessari fjárfestingu
sinni og jafnvel auka hana. Ljóst
er að þeir Bakkabræður og Kaup-
þingsmenn munu eiga samleið
enn um sinn.
Mjöl! hf. kaupir
fyrirtækjaþjón-
ustu Höfða
Mjöll hf. hefur keypt fyrirtækja-
þjónustu Höfða ehf., Hafharstræti
34 á Akureyri, í þvotti og hreinsun
og tekur við rekstrinum frá og
með áramótum. Starfsemin mun
strax eftir áramót flytjast í hús-
næði Mjallar við Austursíðu á Ak-
ureyri.
Eftir sem áður munu eigendur
Höfða ehf., Björgvin Yngvason og
Birna Guðrún Hermannsdóttir,
annast sölu á hreingerningarefn-
um, bjóða upp á fatalitun, leigu og
sölu á dúkum og aðra tengda þjón-
ustu segir í fréttatilkynningu frá
Mjöll.
„Mjöll hf. hefur að undanfornu
verið í örum vexti og hefur fyrir-
tækið breyst úr því að vera ein-
göngu framleiðandi hreinlætis-
vara yfir í alhliða þjónustufyrir-
tæki í hreinlætisvöruiðnaði. Fyrir
nokkrum mánuðum tók Mjöll hf.
yfir rekstur þvottahúss Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri og
sömuleiðis keypti MjöU rekstur og
tækjabúnað Fatahreinsimarinnar
hf. í Hofsbót á Akureyri. Hvort
tveggja er nú i húsnæði MjaUar
við Austursiðu á Akureyri. Þá hef-
ur MjöU hf. verið að byggja upp
þjónustu í ræstingum og þrifum.
Með kaupum á þvottahúsi og
fatahreinsun Höfða ehf. er Mjöll
nú eitt stærsta fyrirtæki landsins
á þessu sviði, sem gefur því færi
tU enn frekari sóknar," segir í
fréttatilkynningunni.
MjöU hf. hefur nú þegar ráðið
Qóra fastráðna starfsmenn Höfða
ehf. tU starfa hjá Mjöll frá og með
áramótum.
SKRIFSTOFUVORUR
Vinnslustöðin kaupir 9,5% eigin bréfa:
Hluti af frekara sameining-
arferli hjá Vinnslustöðinni
MikU viðskipti áttu sér stað með
bréf Vinnslustöðvarinnar hf. á Þor-
láksmessu þegar Ker hf. og tengdir
aðUar seldu 12,5% hlut í félaginu tU
Vinnsíustöðvarinnar og tengdra að-
Ua. AUs keypti Viimslustöðin eigin
bréf fyrir um 670 mUljónir króna,
eða sem nemur 9,5% af heUdarhlut-
fé, en stjómarmaðurinn Haraldur
Gíslason og varastjómarmaðurinn
Gunnlaugur Ólafsson keyptu hvor
um sig 0,6% í félaginu. Þá keyptu
aðUar tengdir Vinnslustöðinni þau
tæpu 2% sem eftir standa af þeim
bréfum sem Ker og tengdir aðUar
seldu. í tilkynningu frá Keri er
ástæðan fyrr sölu bréfanna sögð
vera sú að „þetta [sé] gert tU að
tryggja að hagsmunir Vestmannaey-
inga muni ráða framtíðarskipulagi
og uppbyggingu félagsins. Það er
mat fyrirsvarsmanna Kers hf. að
nauðsynlegt hafl verið að stíga þetta
skref nú, eftir að rekstur Vinnslu-
stöðvarinnar hf. hefur færst í rétt
horf, og áhugi hefur aukist á kaup-
um á hlutum í félaginu." MUligöngu
með viðskiptunum hafði Búnaðar-
banki íslands og er hann nú skráð-
ur stærsti hluthafi Vinnslustöðvar-
innar með 21,44% hlutafjár. Bank-
inn hefur auk þess mUligöngu um
kauprétt/kaupskyldu Vinnslustöðv-
arinnar á öðrum 12% hlut í félaginu
af sömu aðUum og seldu bréf í
Vinnslustöðinni í Þorláksmessu.
Verður sá kaupréttur virkur þann
23. janúar næstkomandi. I samtali
við Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson,
framkvæmdastjóra Vinnslustöðvar-
innar, kom fram að kaup á eigin
bréfum tengdust frekari sameining-
aráformum félagins. Vinnslustöðin
eignaðist á árinu alla hluti í útgerð-
arfélaginu Jóni Erlingssyni ehf. i
Sandgerði og á í dag 50% í útgerð-
inni Úndínu en gert er ráð fyrir að
sameina þessi félög bæði undir
nafni Vinnslustöðvarinnar og munu
nýkeypt eigin bréf Vinnslustöðvar-
innar koma sem greiðsla i þeim við-
skiptum.
Á tilboði núna
Vandaður 80 gr fjölnotapappír
500 blöð í búnti
Geisladiskar CD-R 25 stk
720Mb / 80 mín / Ix - 32x
^ekstr-
18/
Bréfabindi A4 7 cm kjölur
Ýmsir litir
Sölumenn okkar eru viö símann frá kl. 8:00 - 17:00.
Hringdu í síma 520 6666 eða líttu á úrvalið í stórverslun
okkar að Réttarhálsi 2. Opið mán. - fös. 8:00 - 18:00.
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavfk
Sfmi: 520 6666 • Fax: 520 6665
Netfang: sala@rv.is
ly