Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2003, Page 15
15
FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2003
PV__________________________________________________________________________________________________Menning
Graz
- menningarborg 2003
Graz í Austurríki er menning-
arborg Evrópu árið 2003, sú fyrsta
sem fær þann heiður þar i landi.
Undirbúningur hefur staðið lengi
og verða margir glæsilegir við-
burðir strax i upphafí árs. Menn-
ingarárið hefst aðra helgi janúar-
mánaðar með frumsýningum og
opnunum listsýninga og gala-
kvöldi sem verður sjónvarpað
beint á 3sat og ORF. Meðal ann-
arra viðburða má nefna að arki-
tektinn Vito Acconci hefur hann-
að „eyju“ á ána Mur sem er i lag-
inu eins og gríðarstór skel og
tengir með brúm gömlu borgina
við Mariahilferplatz. Á „eynni“ er
meðal annars hringleikhús,
barnaleikvöliur og kaffihús. Frá
Frakklandi kemur ljósameistar-
inn Laurent Fachard og lýsir upp
borgina og þekktustu byggingar
hennar.
Meðal sviðsviðburða er upp-
setning á leikriti eftir sænska
glæpasagnahöfundinn Henning
Mankell sem hann stýrir sjálfur.
Efniviðurinn er erfiðleikar
afrískra innflytjenda í Evrópu og
árekstrar evrópskrar og afriskrar
menningar og samdi Mankell leik-
ritið sérstaklega af þessu tilefni.
Eru leikarar bæði frá borgarleik-
húsinu í Graz og Teatro Avenida í
Mósabík.
Meðal listsýninga má nefna sýn-
ingu á ljósmyndum Inge Morath
sem fæddist i Graz en bjó lengst af
í New York og lést fyrir ári. Fjöl-
margir tónlistarviðburðir verða á
árinu, eins og nærri má geta,
einnig dans og blandaðir viðburð-
ir af ýmsu tagi. Vefsíða menning-
arborgarinnar er á slóðinni
http://www.graz03.at.
Moröklúbbur kvenna
kemur upp um
brúðh j ónamor ðing j a
Konur eru að taka völdin í nútíma-
sakamálasögum erlendis. Hörkutólin í
sakamálasögunum eru ekkert síður kon-
ur en karlar - þær eru ekki lengur bara
kynþokkafullar og skoðanalausar hjá-
svæfur hörðu gauranna. James Bond og
hans nótar verða ekki lengi inni í mynd-
inni ef þessi þróun heldur áfram. Ein slík
kvennahreystibók lenti hjá mér um jólin,
og hún bráðskemmtileg. Hún heitir
Fyrstur til að deyja og er eftir bandaríska
rithöfundinn James Patterson, en hann
nýtur gríðarlegra vinsælda víða um ver-
öld.
Sakamálasagan að gera sig
Sakamálasagan er að öðlast ótrúlega
traustan sess á íslandi. Höfundar á þessu
sviði njóta loks sannmælis - góð sakamálasaga er í
engu eftirbátur annarra ritverka. Menningcirheim-
urinn flokkaði lengi reyfara sem eins konar óþrif
utan á menningunni - nema sagan væri sænskrar
ættar.
Bókmenntir
Patterson seldist vel fyrir jólin, enda á hann
marga aðdáendur hér á landi og er það að verðleik-
um. Ég verð að segja eins og er að langt er síðan ég
las eins spennandi bók og Fyrstur til að deyja. Frá
fyrstu síðu til hinnar síðustu magnast upp spennan.
Patterson er enginn gullpenni en snilli hans felst i
því að búa til einstæða atburðarás og plott sem
ganga upp. Þessi bók er skýr og meistaralega upp-
byggð. Maður vill gjaman missa af jólaboði og
halda áfram að lesa.
Kvennaklíka upplýsir morðin
Sagan fjallar um geðsjúkan morðingja sem leitar
uppi brúðhjón og myrðir þau á
ógeðslegan hátt á sjálfan brúð-
kaupsdaginn. Metsöluhöfund-
ur hryllingssagna liggur senn
undir grun en ekki væri heið-
arlegt að fara langt i atburða-
rásina sem kemur á óvart.
Patterson fléttar mannlegum
tilfinningum í sögu sína og ást-
in á þar sína góðu spretti. Og
hann fléttar öðrum spennu-
þræði samhliða morðmálun-
um í bókina, en þar er um að
ræða baráttu söguhetjunnar
við blóðkrabbamein.
Patterson er eflaust einn af
mjúku mönmmum og tekst að
gera söguna kvenvinsamlega á
afar skemmtilegan hátt. Fjórar
konur vinna að því í tómstundum að upplýsa brúð-
hjónamorðin. Þetta eru rannsóknarlögreglukonan,
saksóknari, réttarlæknir og blaðakona. Þessi klíka
vinnur án vitundar lögregluyfirvalda en lögreglu-
varðstjórinn Lindsay stjórnar báðum þessum rann-
sóknum. Hún fær einn karlmann til liðs við sig,
prúðan, fyndinn og snyrtilegan leynilögreglumann,
Raleigh að nafni. Hann reynist góður elskhugi en
lítið fer fyrir afrekum hans í að koma upp um
morðingjann. Bókin snýst um snilli kvenna og
illsku og fávisku karla og eflaust munu margar
karlrembur eiga erfitt með að lesa þessa bók.
Gaman væri að sjá fleiri bækur James Patter-
sons. Undan honum gengur mikið af efni og satt að
segja nenni ég varla að bíða næstu jóla til að fá nýja
bók.
Jón Birgir Pétursson
James Patterson: Fyrstur til aö deyja. Harald G. Haralds
þýddi. JPV útgáfa 2002.
Háskóli í hvert
kjördæmi?
í dag milli kl. 15 og 18
verður árleg rannsóknar-
stefna ReykjavíkurAkademí-
unnar. Viðfangsefnið að
þessu sinni er stefhan í há-
skólamálum og uppbygging
háskóla um landið. Meðal
þátttakenda verða Tómas
Ingi Olrich menntamálaráð-
herra, rektorar nokkurra
háskóla, nefhdarmenn úr menntamálanefnd
Alþingis auk fulltrúa atvinnulífs og fræði-
manna. Rannsóknarstefnan er haldin í
húskynnum ReykjavíkurAkademíunnar, JL-
húsinu við Hringbraut, 4. hæð, og er öllum
opin.
Fjöldi nemenda á háskóla-
stigi hér á landi hefur fjór-
faldast frá árinu 1977 og frá
árinu 1980 hefur fjöldi
þeirra sem útskrifast úr há-
skólum hér á landi tvöfald-
ast. Nú útskrifast árlega ríf-
lega 1800 manns úr háskól-
unum sem starfræktir eru í
landinu. Fram tO 1971 var
Háskóli íslands eini skólinn sem útskrifaði
nemendur á háskólastigi, nú eru háskólamir
átta. Spurningin er hvert stefnir í málefnum
háskóla á Islandi. Er rétt að fjölga skólunum
svona mikið eða eru menn með því að dreifa
takmörkuðum fjármunum og kröftum of mik-
ið?
Meðal þeirra sem taka til
máls á rannsóknarstefnunni
eru Stefán Arnórsson pró-
fessor, Ólafur Proppé, rekt-
or Kennaraháskóla Islands,
Ari Edwald framkvæmda-
stjóri, þingmennirnir Ólafur
Örn Haraldsson og Kolbrún
Halldórsdóttir, Guðfinna
Bjarnadóttir, rektor Háskól-
ans í Reykjavík, Páll Skúlason, rektor Háskóla
íslands, og Stefán Baldursson, skrifstofustjóri
í menntamálaráðuneytinu.
Fundarstjóri og stjórnandi pallborðsum-
ræðu er Erna Indriðadóttir fréttamaður.
BORGARLEIKHÚSIÐ
Leikfélag Reykjavikur
STÓRA SVIÐ
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
! eftir Sálina og KarlÁgúst Úlfsson
Frumsýning lau. 11/1. UPPSELT
2. sýn. su. 12/1, gul kort. UPPSELT
3. sýn. fö. 17/1, rauð kort
4. sýn. lau. 18/1, græn kort
5. sýn. fö. 24/1, blá kort
SÖLUMAÐUR DEYR
e. Arthur Miller
Su. 5/1 kl. 20
Su. 19/1 kl. 20
SÝNINGUM FER FÆKKANDI
HONKl UÓTIANDARUNGINN
e. George Stiles ogAnthony Drewe
Gamansöngleikurfyrir allafjölskylduna.
Su. 12/1 kl. 14__________________
NÝJA SVIÐ
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR
Frekar erótískt leiktrit t þrem þáttum
e. Gabor Rassov
íkvöld, kl. 20
JÓLAGAMAN BORGARLEIKHÚSSINS
Jólasveinakvteði Jóhannesar úr Kötlum
t leikbúningi o.Jl.
Su. 5/1 kl. 14 og 15 - Kr. 500
KVETCH eftir Steven Berkoff,
í SAMSTARFI VIO VESTURPORT
Fö. 10/1, kl. 20
ÞRIÐJA HÆÐIN
HERPINGUR eftirAuðiHaralds
HINN FULLKOMNI MAÐUR
eftir Mikael Torfason
í SAMSTARFI VID DRAUMASMIÐJUNA
Fö. 10/1, kl. 20
SÍÐASTA SÝNING
LITLA SVIÐ
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespearc
f SAMSTARFI VIÐ VESTURPORT
f kvöld, kl. 20 UPPSELT
Fim. 9/1, kl. 20
Fö. 10/1, kl. 20
ALIIR í LEIKHÚSIÐ - ENGINN HEIMA!
Borgarleikhúsið er fjölskylduvænt leikhús:
Börn, 12 ára og yngri, fá frítt í leikhúsið í
fylgd með forráðamönnum.
(Gildir ekki á söngleiki og barnasýningar.)
SKJALLBANDALAGIÐ KYNNIR
í IÐNÓ
Miðaverð i íorsölu 2.800 ki.
MUNIÐ GJAFAKORIIN!
:ikrél^li|v^.-ikur * Ustabrout 2 • 103 Rcykjavi
ióasala 5gív3u0ö • A'v.'w.borgarlcikhus.is
eftir Sálina hans Jóns mfns
og Karl Ágúst Úlfsson
b Frumsýning11. janúar
Leikfélag Reykjavikur
íslenski dansflokkurinn
Dýrlingagengið - takmarkaður sýningafjöldi
Rétt er að minna leikhúsáhugamenn á að leiksýningin Dýrlingagengið
sem Egg-leikhúsið frumsýndi I Listasafni Reykjavíkur- Hafnarhúsi
um síðustu helgi verður aðeins á fjölunum tíu sinnum, kl. 16 alla
laugardaga og sunnudaga í janúar.
Þetta eru þrír einþáttungar eftir Neil LaBute - þrír harmleikir úr
nútímanum - leiknir af Birni Hlyni Haraldssyni, Agnari Jóni Egilssyni,
Þðrunni E. Clausen og Ragnheiði Skúladóttur. Persónurnar eiga
sér skelfileg leyndarmál og finna sig knúnar til að segja okkur
sögu sína - líka til að
átta sig á því sjálfar
hvers vegna þær hafa
skilið eftir sig eins
óafmáanleg spor og
raun ber vitni.
Viðar Eggertsson stýrir
sýningunni.
"Leikmátinn er hófstilltur
og agaður en þrunginn
tilfinningum og öllum
leikurunum tekst að
skapa sannfærandi og
eftirminnilegar pers-
ónur." HF, DV
Fös. 3.1. kl. 21. Uppselt
Lau. 11.1. kl. 21. Nokkur sæti
Miöasalan í Iðnó er opin frá 10-16 alla
virka daga, 14-17 um helgar og frá kl.
19 sýningardaga. Pantanlr i s. 562
9700. Ósóttar pantanir eru seldar 4
dögum fyrir sýningar.