Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2003, Blaðsíða 28
28
FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2003
Sport
Knattspyrna:
Þrír nýir
tilKA
- og fleiri
kunna að vera á
leiðinni
Þrír nýir leikmenn hafa gengið
til liðs við KA-menn í knatt-
spyrnunni. Þetta eru þeir Hjörvar
Marinósson frá Leiftri/Dalvík,
Örlygur Helgason frá Þór og Þor-
leifur Árnason frá Leiftri Dalvík.
Hjörvar er 18 ára varnar- og
miðjumaður og þykir mikið efni
en hann gerði þriggja ára samn-
ing við KA. Örlygur og Þorleifur
eru ekki ókunnugir í herbúðum
KA þar sem þeir hafa leikið áður.
„Þessir umræddu leikmenn
styrkja okkur fyrir næsta tímabil
en það er meira í undirbúningi og
það mun jafnvel skýrast um helg-
ina hvaða fleiri leikmenn bætast
í hópinn. Við ætlum að styrkja
okkur frekar og væntanlega
munum við þurfa að leita erlend-
is í þeim efnum en tíminn mun
leiða það ljós. Við erum búnir að
missa nokkra sterka leikmenn
eins og Kristján Sigurðsson til
KR og flest bendir til að Þórður
Þórðarson verði ekki með okkur
áfram. Ásgeir Ásgeirsson, sem lék
vel með liðinu á síðasta tímabili,
er síðan hættur," sagði Vignir
Þormóðsson, formaður knatt-
spymudeildar KA, í samtali við
DV í gær.
-JKS
Leikmannamarkaðurinn í evrópskri knattspyrnu opnaður að nýju:
Leikmannalán setja
svip sinn á markaðinn
- Qórir nýir leikmenn bættust í ensku úrvalsdeildina
Leikmannamarkaðurinn opnaðist
að nýju í Evrópu á nýársdag og er
félögum heimilt að kaupa og selja
samningsbundna leikmenn næsta
mánuðinn, en þá lokast markaður-
inn að nýju. Það sem setur svip sinn
fyrstu tvo dagana er að félag, í það
minnsta ensk félög, hafa einungis
verið að fá leikmenn lánaða tíma-
bundið en ekki verið að kaupa.
Það var Birmingham sem reið á
vaðið með því að gera samning við
Christophe Dugarry, hinn þrítuga
franska leikmann sem hefur verið á
samningi við Bodeaux í Frakklandi,
en hann varð heimsmeistari með
Frökkum árið 1998. Samningurinn
við Dugarry gildir fram á vorið, en
hins vegar hefur Birmingham for-
kaupsrétt á honum.
Everton bætti í gær við sig tveim-
ur leikmönnum, þeim Brian
McBride og Ibrahim Said, en það
gildir það sama um þá og Dugarry
að um lánssamninga er að ræða.
McBride er bandarískur landsliðs-
maður sem leikið hefur í banda-
rísku atvinnumannadeildinni, en
David Moyse, framkvæmdastjóri
Everton, er alls ekki ókunnur þess-
um leikmanni, því hann lék með
Preston þegar Moyse var fram-
kvæmdastjóri á þeim bænum. Said
kemur frá Egyptalandi og lék síðast
hann er 23 ára gamall.
Man. City hefur einnig bætt við
sig nýjum leikmanni en það er
alsírskur landsliðsmaður, Djamel
Belmadi að nafni. Hann er samn-
ingsbundinn franska félaginu
MarseiUe en hann hefur fengið fá
tækifæri með liðinu, en hann hefur
einnig leikið með spænska liðinu
Celta Vigo og Paris St. Germain. Fé-
lagi hans í alsirska landsliðinu er
einmitt fyrirliði Man. City, Ali Ben-
arbia.
Benarbia er reyndar ekki sá eini
sem Belmadi kannast við í herbúð-
um Man. City, því hann lék með
Nicolas Anelka þegar hann lék með
Paris St. Germain. -PS
Vassell ekki
með á móti KR
Kanada-
maðurinn
Keith
Vassell, sem
nýlega samdi
við Hamar
frá Hvera-
gerði, spilar
ekki með fé-
lögum sínum
þegar Hamar
mætir KR í fyrsta leik á nýju ári
sem fram fer á sunnudagskvöld.
Vassell lenti i gærmorgun en var
ekki kominn með tUskilin leyfi og
var því sendur tU síns heima sam-
dægurs. Hann er þó væntanlegur
aftur í næstu viku og ætti að vera
klár í slaginn þegar Hamar tekur á
móti Ármanni/Þrótti í bikarnum
næsta miðvikudag.
VasseU lék í nokkur ár með KR
og því hefði verið gaman fyrir
hann og KR-inga ef hann hefði spU-
að sinn fyrsta leik með Hamri í
KR-heimUinu en það verður ekki.
-Ben
íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu:
Vináttulandsleikur
við Bandaríkin
Christophe Dugarry.
með liði í Kaíró. Hann er samnings-
bundinn liðinu þar tU í vor, en
Islenska kvennalandsliðið í knatt-
spymu leikur vináttulandsleik við
bandaríska kvennalandsliðið þann
16. febrúar næstkomandi. Leikurinn
fer fram í Charleston í Suður-Kar-
ólínu og verðm- flmmta viðureign
þjóðanna í greininni. Þetta verður
án efa erfiður leikur fyrir íslenska
liðið, en bandaríska kvennalands-
liðið er eitt sterkasta landslið í
heiminum og hefur tvívegis orðið
heimsmeistari. -PS
Er kominn tími á friðun?Veiðivon
einu lélegasta rjúpnaveiðitímabilinu að ljúka
„Við erum á tímamótum núna,
rjúpnaveiðin hefur sjaldan verið eins
slöpp og í ár, margir veiðimenn
fengu ekki einu sinni í jólamatinn,"
sagði veiðimaður sem DV-Sport hitti
á Bröttubrekkunni fyrir fáum dög-
um, með aðeins tvær rjúpur. Og
þessa sögu segja fleiri veiöimenn.
Einu lélegasta rjúpnaveiðitímabili
í íjölda ára er lokið, aldrei hafa færri
rjúpur veriö skotnar en einmitt
núna. Líklega er búið að skjóta um
85-90 þúsund rjúpur, þó svo talan
gæti reyndar breyst eitthvað til hins
betra þegar allar rjúpurnar verða
taldar.
Kominn tími til að friða
rjúpuna?
Við erum á krossgötum þessa
dagana, aldrei hafa færri rjúpur
fallið fyrir veiöimönnum og sag-
an sem undirritaður heyrði vest-
ur í Dölum fyrir fáum dögum seg-
ir meira en mörg orð um ástand-
ið.
Rjúpnaveiðin hefur verið slöpp
á þessum slóðum, fáar rjúpur
hafa fengist og fyrir nokkrum
dögum voru skotveiðimenn að
reyna að fá í jólamatinn. Það
gekk erfilega, lítið var af fugli.
Sjóbirtingsparadísin
Laxá í Kelduhverfi
- hverjir selja veiöileyfi í hana?
Þeir gengu lengi, en að lokum
fundu þeir tvo rjúpnahópa og
náðu þeim. Eitthvað barst þessi
veiðiskapur í tali við þá sem áttu
heima í næsta nágrenni þar sem
veiðimennirnir höfðu reynt og
fengið þessar fáu rjúpur. Hús-
freyjan sagöist alveg vera vera
hætt að heyra i tveimur rjúpna-
hópum sem höfðu verið rétt fyr-
ir ofan húsið . Ástæðan var kom-
in í ljós, veiðimennimir sem
höfðu verið þarna fyrir skömmu
höfðu skotiö vinina, sem allir
höfðu heyrt í í nokkur ár og mjög
fáir höfðu haft áhuga á að skjóta.
Þetta voru orðnir fjölskylduvinir.
Það er óhætt að taka undir með
þeim sem vilja friða þessar fáu
rjúpur sem eftir eru, tíminn er
líka bara kominn. Það er orðið
tímabært fyrir nokkru síðan.
Skotveiðimenn sem DV-Sport
ræddi við í vikunni eru margir
komnir á þá skoðun að friða eigi
rjúpuna. Það vilji enginn veiði-
maður eiga það á hættu að skjóta
síðustu rjúpuna. Þó svo að staðan
sé sem betur fer alls ekki svo
slæm gæti hún orðið það með tíð
og tima ef ekki verða gerðar rót-
tækar aðgerðir, róttækari en gera
á strax á næsta ári.
Það er miklu nær að snúa sér
að þvi að eyða minknum sem
drepur allt sem hann nær í og er
hann farinn að minna á marga
rjúpnaveiðimenn sem hafa strá-
fellt rjúpuna á hverju hausti til
þess eins að græða á fengnum.
-G.Bender
Leiðari
vekur
athygli
Það eru alls ekki allir hress-
ir með nýjasta eintak Veiði-
mannsins sem kom út fyrir
nokkrum dögum. Útdrátturinn
úr Leiðaranum, sem við birt-
um héma í blaðinu fyrir fáum
dögum, hefur vakið mikla at-
hygli, enda hann óvenju bein-
skeyttur og harður. Leiðarar
blaðsins hafa hingað til verið
aö rólegu nótunum en ekki í
þeim tón sem kveðjur að.
-G.Bender
Litlaá er ein besta sjóbirtingsá
íslands, hún er einstök hvað vatns-
hita og fæðuframboð varðar en
vatnshiti hennar er að jafnaði 12° C
allt árið og leggur hana ekki á vet-
urna. Vaxtarstuðull hennar er
óvenju hár og er ekki óalgengt að
fá sjóbirting upp í 10 pund. Litlaá
samanstendur af mörgum hyljum,
strengjum og breiðum, á efstu
tveim svæðunum er hún lítil og
nánast samfelldur veiðistaður,
veiðistaður við veiðistað.
Litlaá stækkar þegar neðar dreg-
ur og verður meira um breiður og
þunga strengi niður að flóöi. Svæði
eitt rennur úr flóðinu og niður í ár-
mót jökulsár sem er einn af sterk-
ari stöðum Litluár. Veiðisvæðin
eru sex en aðeins er veitt á 5 stang-
ir þannig að eitt veiðisvæði er
alltaf hvílt i einu.Veiðitíminn er 12
klukkustundir á dag og veiöimönn-
um treyst til nota þær hvenær
sólarhringsins sem er. Það em að-
eins tvö ár síðan tekið var upp að
veiða og sleppa í Litluá og er það
strax byrjað að skila sér, þess
vegna verður spennandi að sjá
hversu margir Fiskar yfir 10 pund-
in veiðast þar næsta sumar. Árið
2002 veiddust 1260 sjóbirtingar, 9
laxar og góður slatti af bleikju á 5
stangir, þess má geta að það veidd-
ust 2 fiskar sem náðu 80 cm, 24 fisk-
ar á bilinu 70-80 cm og 74 fiskar
sem náðu yfir 60 cm. Til viðmiðun-
ar veiddist fyrir nokkrum árum
fiskur sem var 81 cm og þegar hann
var vigtaður var hann 19,5 pund.
Einungis má veiða á flugu. Selt er í
þriggja daga hollum verð: 12.800 kr
stöngin.
Það er Veiðifélagið Lax-á og
Pálmi Gunnarsson sem selja veiði-
leyfi í ána næsta sumar. G.Bender