Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2003, Síða 29
FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2003
29
keppni i hverju ordi
Rafpostur: dvsport@dv.is
Magnús H. Lárusson GoKart-ökumaður:
Keppir í S-Afríku
Magnús H. Lárusson GoKart-
ökumaður heldur af stað til Suður-
Afríku 13. janúar næstkomandi en
þar mun hann taka þátt í alþjóðlegu
Rotax-kartkeppninni sem haidin
verður á nýrri keppnisbraut í
Pretoriu, um 50 km frá Jóhannesar-
borg. I föruneyti Magnúsar verða
þrír aðstoðarmenn, þeir Halldór
Sigurðsson, Guðmundur Ingi Skúla-
son og Freymóður Bogason. Keppni
þessi fer fram dagana 15. til 19. jan-
úar og er lokapunktur Rotax-kart-
keppnanna sem haldnar hafa verið í
31 landi á árinu en 75 ökumenn
munu reyna með sér í Pretoríu.
Magnús hefur þegar sent keppnis-
bú sinn til Suður-Afriku, reyndar
vélar- og dekkjalausan því allir
keppendur fá nýja innsiglaða Rotax-
vél og Bridgestone-dekk afhent á
keppnisstað, en í Rotax-keppnum
þurfa allir keppendumir að nota
eins vélar, eins dekk og kerti sem
verða að vera frá Denso.
Magnús hefur æft stift fyrir þessa
keppni og tekið ótæpilega á lóöun-
um til að styrkja sig enda veitir
ekki af. Körtuakstur er mjög erfiður
og átökin mikil. Ekki er óalgengt
kartökumenn brjóti í sér riíbein
þegar miðflóttaflið og hossingur á
ósléttum brautum vinna saman.
„Ég er hræddastur við hitann,
maður á eftir að svitna mikið,“ seg-
ir Magnús sem hefur legið yfir alls
konar pælingum í sambandi við
keppnina og uppsetningu bUsins.
„Guðmundur Sigurðsson fór tU
Malasíu í fyrra og keppti í Rotax-
keppninni þar. Honum tókst að ná
40. sætinu þar en ég stefni hærra.
Brautin í Pretoríu er mjög hröð og
það verður mikU traffik í henni þeg-
ar 30 tU 35 bUar verða ræstir í
hverjum riðli.
Keppnishaldaramir álíta að mun-
urinn á miUi keppenda eftir tima-
tökur verði innan við sekúndu svo
að ég á von á harðri keppni," segir
Magnús.
Suður-Afríkumenn hafa sigrað í
öU þrjú skiptin sem alþjóða Rotax-
keppnin hefur verið haldin og nú
verða þeir á heimaveUi. „Sem betur
fer er keppnisbrautin ný svo að þeir
eru ekki vanir að keppa á henni,“
segir Magnús, „en sjálfsagt fá þeir
einhver tækifæri tU að æfa sig á
brautinni."
BUabúð Benna er umboðsaðUi
fyrir Rotax á íslandi og hélt Rotax
mótaröðina hér á íslandi í sam-
vinnu við LÍA, Landsamband Ís-
lenskra akstursíþróttafélaga. BUa-
búð Benna kostar för Magnúsar tU
Suður-Afríku. Auk þess fær Magnús
góðan styrk frá Vélaverkstæðinu
KistufeUi, BUanausti og veitinga-
staðnum Amigos, en því fylgir tölu-
verður kostnaður að fara við fjórða
mann tU Afríku. -JAK
Magnús H. Lárusson hefur æft stíft
fyrir Rotax GoKart-keppnina í
Pretoríu og ætlar hann sér að velgja
öðrum keppendum þar undir
uggum. Á neöri myndinn er hann á
fullu á Reisbrautinni í Reykjanesbæ.
Perhansel í forystu í Dakar
Franski ökuþórinn Stephane
Perhansel hefur forystu að lokn-
um öðrum keppnisdegi í París-
Dakar raUinu sem hófst i París í
fyrradag. Perhansel ekur nú
jeppa af Mitsubishi-gerð, en hann
kann vel við í sig í Paris-Dakar
raUinu því aUs hefur hann unnið
sex sinnum, en þá í öU skiptin í
mótorhjólaflokki. í öðru sæti er
Suður-Afríkumaðurinn Giniel
ViUiers en hann ekur á Nissan-
jeppa og í þriðja sæti er Japaninn
Hiroshi Masuoka. -PS
Nú getur þú pantað og
skoðað smáauglýsingarnar
á www.smaauglysingar.is
W W W- ® ^