Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2003, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003
DV
11
Fréttir
Kveldúlfs, útgerðarfyrirtækis Thors
Jensens. Kallaði Thor Jensen bygg-
ingamar Kveldúifshöfða, en bæjar-
búar nefndu þær gjarnan Kveldúlfs-
stöðina. Gömlu Kveldúifsbygging-
amar voru brotnar niður á síðari
hluta nýliðinnar aldar.
Ekki óumdeilt
Framkvæmdir á svæðinu eru eng-
an vegin óumdeildar og hafa íbúar í
Skuggahverfmu m.a. gagnrýnt að
lokað verði fyrir útsýnið með bygg-
ingu svo hárra blokka við Skúlagöt-
una. Slík húsaþyrping sé ekki í sam-
ræmi viö lágreistu byggðina þar fyr-
ir ofan og skyggi auk þess á útsýnið.
Skipulagsyfírvöld hafa þó fallist á
þessar fyrirætlanir og segist Einar
Ingi Haildórsson telja að nokkuð góð
sátt sé um málið þó alltaf séu skipt-
ar skoðanir um slík verkefiii.
Hugmyndir varðandi skipulag í
efri hluta Skuggahverfisins, í reit
miili Lindargötu og Hverfisgötu,.
hafa einnig verið i gangi. Fréttir inn
að fækka þyrfti um 40 hús á svæðinu
til að rýma fyrir nýrri byggð ollu
m.a. uppnámi meðal ibúa í maí 2001.
í dag er þó reiknað með að frekar
verði reynt að endurbyggja eins
mörg hús á svæðinu og skynsamlegt
er talið en meirihluti íbúða sem rætt
hefur verið um að rífa eða fjarlægja
er í eigu einstaklinga.
-HKr.
f ;.i ifTf.i rtj? piiut ojf-öyþ pu&nh
í útrýmingarhættu?
- bensínafgreiðsla aðeins gegn kortum í dreifbýli - og í
þéttbýlinu óska stöðugt fleiri eftir að dæla sjálfir
Bensínafgreiðslumenn virðast
vera stétt í útrýmingarhættu á ís-
landi. Með nútíma rafeindatækni og
viðskiptakortum færist það í vöxt
að fólk afgreiði sig sjálft. Ómannað-
ar bensínstöðvar eru sífellt að verða
meira áberandi, hér á landi og er-
lendis. Og jafnvel þar sem full þjón-
usta er í boði kjósa menn í æ ríkari
mæli að dæla sjálfir á tankinn. Ekki
eru allir viðskiptavinir ánægðir
með þetta, vilja gömlu þjónustuna,
enda þótt sjálfsafgreiðslan spari
mönnum allnokkurt fé.
„Á fámennustu stöðum landsins
er þjónusta víða komin í sjáifsala.
Það er okkar leið til að bjóða upp á
sólarhringsþjónustu í smáum
byggðarlögum," sagði Bergþóra Þor-
kelsdóttir, rekstrarstjóri Olíufélags-
ins hf., í gær. Hún segir að víða á
Vestfjörðum, Austfjörðum og víðar
séu ekki forsendur að reka stöðvar
með mannskap. Hún bendir á að á
stærri stöðunum sé stór hluti og
stækkandi að velja sjálfsafgreiðslu
enda þótt full þjónusta sé I boði.
„I nágrannalöndum okkar sérðu
hvergi nokkurs staðar hensínaf-
greiðslumann, þetta starf hefur
löngu verið aflagt - það má segja
að þetta sé deyjandi stétt,“
ságði Bergþóra.
Engin þjónusta
Svo viröist sem fólk hallist meir og meir aö ómönnuöum bens-
ínstöövum eöa velji aö dæla sjálft á bifreiöar sínar.
Ekki hentar það
öllum að nota sér
sjálfsafgreiðslu á bens-
íni. Viðmælandi blaðsins
á Suðurlandi sagði að hann
hefði lent í því að prúðbúinn
maður kom til veislu angandi
af bensíni þar sem hann
neyddist til að dæla sjálfur á
bílinn. Hann sagði enn fremur
að á Klaustri og í Vík væri ekkert
bensín að hafa nema með korti.
„Fatlað fólk á ekki gott með að
dæla á tankinn og ég hef heyrt að
fótluð kona hafi þurft að hringja úr
bil sínum í farsíma inn til bensínaf-
greiðslumannsins og beðið um að-
stoð, en ekki fengið,“ sagði viðmæl-
andi blaðsins. Bergþóra Þorkels-
dóttir sagði að flestum væri það
auðvelt að afgreiða sig sjálfir og
vera snöggir að því. Ef einhver ræð-
ur ekki við að afgreiða sig sé reynt
að koma til móts við þá einstak-
linga.
-JBP
Flugatvik Boeingþotu Flugleiða á Gardermoen í fyrra:
Nokkrir samverkandi
þættir taldir orsökin
Boeing 757-þota Flugleiða, TF-FIO,
lenti í kröppum dansi við Gar-
dermoen-flugvöll við Ósló þann 22.
janúar á síðasta ári. Litlu munaði að
stórslys yrði er þotan tók dýfur þegar
flugmenn reyndu að rífa hana upp eft-
ir að hætt var við lendingu. Fram kom
í máli rannsóknaraðila í fyrra og i við-
tölum við sjónarvotta að hreyfingar
vélarinnar hefðu verið „mjög óeðlileg-
ar“ og að vélin heföi verið komin
„hættulega lágt“ i aðfluginu. Rann-
sóknarstofiiun flugslysa í Noregi
(HSL) stýrði rannsókn málsins í ná-
inni samvinnu við Rannsóknamefnd
flugslysa á íslandi (RNF) og hefúr nú
skilað niðurstöðum sínum.
í niðurstöðum skýrslunnar er ekk-
ert eitt atriði tilgreint sem skýrir
hvers vegna flugatvikið varð heldur
virðist vera um samspO margra þátta
að ræða. Nokkur atriði eru þó til-
greind sem orsök í flugatvikinu, þ.e.
mikill meðvindur i aðflugi, starfsað-
ferðir flugumferðarstjórnar í Ósló,
samstarfi flugmanna um borð ábóta-
vant og bilun i aðflugstækjum. Þá var
ekki farið eftir skilgreindum starfsað-
ferðum i fráhvarfsfluginu og hæðar-
stilling i fráhvarfsflugi truflaði eðlileg-
an feril flugvélarinnar.
Settar eru fram eftirfarandi fjórar
tillögur til úrbóta í öryggisátt.
Flugleiðir hófu þegar á síðasta ári
ýmsar aðgerðir í kjölfar flugatviksins,
þar með taldar aðgerðir sem þessar til-
lögur ná til.
Rannsóknamefnd flugslysa í Noregi
leggur til:
1. Að aðilar í flugstarfsemi endur-
skoði starfsaðferðir þegar hætt er við
aðflug. Fyrirtækið (þ.e. Flugleiðb:)
ætti einnig að endurskoða þjálfun
flugmanna varðandi fráhvarfsflug í
kjölfar óstöðugs aðflugs.
2. Að fyrirtækið (þ.e. Flugleiðir)
ætti að huga að áætlunum tfl stuðn-
ings fyrir starfsfólk sem lendir í flug-
slysum eða flugatvikum.
3. Að fyrirtækið (þ.e. Flugleiðir)
ætti að huga að nýtingu upplýsinga
sem flugriti skráir tO að fylgjast á
reglubundinn hátt með framkvæmd
flugrekstrarstaðla.
4. Að flugmálastjómin í Noregi meti
áhrif af því þegar flugumferðarstjóm
styttir aðflugsleiðir í blindflugi fyrir
áhafnir sem hugsanlega hafa takmark-
aða reynslu af Óslóarsvæðinu og áhrif
þess á getu áhafnarinnar tO að stjórna
orku flugvélarinnar og gera aðflugið
stöðugt.
Auk þessara fjögurra megintOlagna
í öryggisátt koma fram í skýrslunni
ábendingar tO Flugleiða. Þessi atriði
ná meðal annars tO þjálfunar í áhafna-
samstarfi, framsetningu í handbókum
á stefiiu félagsins og upplýsingagjafar
tO farþega í kjölfar flugatvika.
í kjölfar atviksins við Ósló voru
flugstjóri og flugmaður vélarinnar
leystir undan starfsskyldum um hríð
og fóm síðan í gegnum endurþjálfun.
Að þeirri þjálfun lokinni hófu þeir
störf sem flugmenn.
-HKr.
UTSALA ALDARINNAR
Allt að 70%
afslá
tíshuhús
Hveiýisgötu 52, sími 562 5110.
! 1 I.1 J 1]"!"". "j .1 li | ií«i 1)1) j' | | ...