Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2003, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2003, Side 15
FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 15 Utlönd Fjórir dagar í kosningar í ísrael og ekkert lát á átökunum: Þrír ísraelskir hermenn skotnir úr launsátri Palestínskir byssumenn skutu þrjá israelska hermenn til bana við Beit Haggai-landtökubyggðina í ná- grenni Hebron á Vesturbakkanum í gær. Hermennimir voru við venju- bundið eftirlit við landtökubyggð- ina þegar byssumennirnir hófu skothríð úr launsátri og hafa tvenn palestínsk öfgasamtök, Hamas og al- Aqsa-herdeildin, lýst ábyrgð á árásinni. Að sögn talsmanna hersins voru hermennirnir skotnir til bana af stuttu færi þegar þeir voru að stugga við palestínskum leyniskytt- um sem haldið höfðu uppi skothrið á landtökubyggðina. í morgun gerðu ísraelskar árásar- þyrlur eldflaugaárásir á eitt út- hverfi Gaza-borgar og var þeim að- allega beint að málmbræðslu í Zaytoun-hverfl með þeim afleiðing- um að hún var lögð í rúst auk þess sem nærliggjandi moska varð fyrir skemmdum. Þessi mynd lýsir vel ástandinu á heimastjórnarsvæöum Palestínumanna á Vesturbakkanum og Gaza þar sem varnartaus gamall maöur, ríöandi á asna sínum, er stöövaöur af ísraelskum hermanni, gráum fyrir járnum. Að sögn sjónarvotta var sex sprengjuflaugum skotið á byggingar í hverfinu og munu að minnsta kosti fimm manns hafa slasast. f kjölfarið réðist ísrelsk skrið- drekasveit á um þrjátíu skrið- og bryndrekum inn í Zaytoun-hverfið og sprengdu í loft upp heimili fjöl- skyldu Hamas-liða sem drepinn var í loftárás í fyrra grunaður um að hafa skipulagt hryðjuverk. Foringjar öfgasamtaka í hverfinu hvöttu liðsmenn sína til dáða í gegnum hátalarkerfi áðurnefndar mosku og veittu þeir ísraelsku inn- rásarsveitinni harða mótspymu en engin fréttasr höfðu borist af mann- falli. Þá bárust fréttir af átökum víðar á Gaza-svæðinu og meðal annnars í Rafah-flóttamannabúðunum þar sem nokkur íbúðir voru lagðar í rúst. Að sögn palestínsku öryggis- sveitanna voru byggingamar ekki í eigu grunaðra hryðjuverkamanna. REUTERS McDonalds Veitingastaöurinn vinsæli vann góö- an og mikinn sigur í réttarsölum al- ríkisdómstólsins í gær. Kröfum feitra vísað frá Alríkisdómstóll í Bandaríkjunum hefur vísað frá umfangsmiklu kærumáli á hendur bandarísku hamborgarakeðjunni McDonald’s. Hópur offitusjúklinga höfðaði bóta- mál á hendur fyrirtækinu í fyrra- sumar þar sem þeir töldu McDon- ald’s eiga sök á ástandi sínu. Dóm- ari vísaði málinu frá með þeim rök- um að sækjendumir gætu ekki sannað að hættan af ofáti inni á veitingastöðum McDonald’s væri ekki almennt viðurkennd. „Þaö vita allir, eða ættu að vita, að það er óhollt að borða of mikið á McDonald’s og að það getur leitt til þyngdaraukningar. Það er ekki hlutverk réttarins að vernda fólk frá ofáti. Það er enginn neyddur til að borða á McDonald’s,” sagði dóm- arinn. Talsmenn McDonald’s sögðu skynsemina hafa sigraö. Úrskurður dómarans er talinn mikill sigur fyr- ir skyndibitaiðnaðinn i Bandaríkj- unum en þar höfðu menn óttast bylgju slíkra kærumála. -hlh Áfrýjað í DVD-málinu Embætti saksóknara í Noregi hef- ur ákveðið að áfrýja til hærri dóms- stiga máli hins 19 ára gamla DVD- stráks, Jons Lech Johansens, sem dómstóll í Ósló dæmdi saklausan af ákærum bandaríska kvikmyndaiðn- aðarins um að hafa brotið höfundar- rétt með því að búa til forrit til þess aö afrita DVD-diska og koma því fyrir á Netinu. Að sögn lögmanns Johansens var alltaf búist við áfrýj- un en niðurstaða dómsins var að strákur hefði fullt leyfi til þess að gera hvað sem er við eigin diska. Slappað vel af Þeir hafa þaö gott, þeir 300 apar í Apagaröinum í Shigakogen sem eiga þess kost slappa af í heitum pottum daginn út og daginn inn. Aö sögn starfsmanna garösins mun þetta vera eini staöurinn í heiminum þar sem apar stunda slíka iöju. Þessi var meö allt á hreinu, kom sér vel fyrir og lygndi aftur augum. Ekki mikill árangur af við- ræðum Norður- og S-Kóreu Sendinefndarfulltrúar S-Kóreu segjast hafa orðið fyrir vonbrigðum með að „ekki mikill árangur” hafl nást í viðræðunum við N-Kóreu í Seoul síðustu daga. Vonbrigðin fælust í því að fá ekki N-Kóreu tO að láta af kjamorkuáætlunum sínum. Sendinefndimar tvær hétu hins vegar því að leysa deiluna á frið- samlegan máta og samþykktu að ræða málin frekar á fundi í Pyongyang, höfuðborg N-Kóreu, í apríl næstkomandi. Á meðan halda Bandaríkjamenn áfram að þrýsta á Öryggisráð SÞ að taka málið að sér sem fyrst. Erind- reki Bandaríkjastjómar, John Bolton, er nú staddur í Japan til að ræða ástandið við þarlend yfirvöld. Hann ræddi í morgun við Yoriko Kawaguchi, utanríkisráðherra Jap- ans, sem sagði honum að Banda- Haldiö heim Formaöur sendinefndar N-Kóreu í Seoul, Kim Ryung-sung (til vinstri), hélt heim á leiö í morgun. ríkjamenn ættu aö fara varlega í það að setja viðskiptaþvinganir á N- Kóreu sem hafa sagst taka slíkar að- gerðir sem klára stríðsyfirlýsingu. Bandaríkjamenn hafa áður sagt að ekkert liggi á í þeim efnum en leggja hins vegar skýra áherslu á að málið fari fyrir Öryggisráðið. Diplómatar í Alþjóða kjamorkustofnuninni í Vín- arborg segja það hins vegar ekki vera góða hugmynd þar sem það myndi einungis bæta olíu á eldinn. Eins og í Seoul, var lokaniðurstaða Bolton og Kawaguchi að leysa deil- una á friðsælan hátt. Talsmaður sameiningarráðuneyt- is S-Kóreu sagði að þeir 5 sendi- nefndarfulltrúar N-Kóreu hefðu gert það deginum ljósara aö engin eftir- gjöf myndi eiga sér stað hjá þeim nema í beinum viðræðum við Bandarikin. Sjaldséöur snjór Flest ungmenna í N-Karólínu höföu ekki kynnst snjó á sínum heimaslóö- um áöur. Þaö var því glatt á hjalla. Kuldakast í suðurríkjum Bandaríkjanna í fyrsta smn í heil 13 ár hefur snjóað að einhverju ráði í N-Kar- ólínu, sem liggur hvað nyrst af þeim fylkjum Bandaríkjanna sem teljast til suðurrikja. Kuldinn sem hefur hrjáð íbúa á norðausturströnd Bandaríkjanna fór skyndilega að gera vart við sig mun sunnar, og er svo komið að appelsínubændur í Flórída eru famir að óttast um upp- skeruna sína. Snjókoman hefur gert vart við sig, í mismiklum mæli, í báðum Karólínufylkjunum, Tennessee og hlutum af Virginíu. í N-Karólínu varð mönnum svo brugðiö að tilkynnt var um 1100 slys í umferðarösinni í gærmorgun. Búist er við því að enn kaldara gæti orðið á þessu svæði í dag. Lægð í norsku laxeldi Samkvæmt fréttum norskra fjöl- miðla spá sérfræðingar minni grósku i norsku laxeldi í ár í kjölfar stöðugrar sóknar í greininni síð- ustu tíu árin. Gert er ráð fyrir að- eins 2% framleiðsluaukningu sem er það minnsta milli ára síðan árið 1980. Sterkri stöðu norsku krónunn- ar er helst kennt um, en á síðasta ári varð 1,2 milljaröa norskra króna heildartap i greininni i Noregi sem rakið er til hás gengis norsku krón- Poul Nyrup Rasmussen. Fogh styöur Poul Nyrup til NATO NATO-ríkin keppast nú hvert af öðru við að finna verðugan arftaka George Robertsons, aðalframkvæmda- stjóra NATO, sem lætur af starfi í desember nk. og láta Norðurlöndin þar ekki sitt eftir liggja. í Danmörku er komin nokkur hreyfing á máliö en þar hefur Mogens Lykketoft, formaður Jafn- aðarmannaflokksins, hvatt ríkis- stjórn Anders Fogh Rasmussens til þess að berjast fyrir því að Poul Nyrup Rasmussen, fyrrum forsætis- ráðherra, hljóti stöðuna og hefur forsætisráðherrann þegar lýst stuðningi sínum við þá málaleitan. í Noregi hefur Kristin Krohn Devold varnarmálaráðherra verið nefnd sem vænlegur kostur og mun hún vera að íhuga máliö. Þá hefur nafn Jan Petersens, utanríkisráð- herra Noregs, einnig verið nefnt en sjálfur segist hann ekki á leið út úr norskum stjómmálum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.