Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2003, Page 24
_______________________________________________________________________________________________________FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003
lslendingaþættir_________________________________________________________________________________________________________py
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
90 ára
Fanný Siguröardóttir,
Birkivöllum 1, Selfossi.
85 ára_____________________
Ragnhildur Siguröardóttir,
Laufhaga 3, Selfossi.
80 ára_____________________
Jóna Guðný Jónsdóttir,
Álftamýri 26, Reykjavík.
Ólafur Sigurbjörnsson,
Kirkjuvegi 11, Keflavík.
Sigríöur Þorsteinsdóttir,
Kjartansgötu 7, Borgarnesi.
75 ára_____________________
Dóra Guðmundsdóttir,
Ásbraut 15, Kópavogi.
Steinvör Jónsdóttir,
Austurbrún 4, Reykjavík.
70 ára_____________________
Gísli Jakob Alfreösson,
Klapparstíg 1, Reykjavík.
Jón Bjarni Jónsson,
Garöaflöt 11, Garöabæ.
60 ára_____________________
Jóhannes I. Friðþjófsson,
Garðaflöt 21, Garöabæ.
50 ára___________________________
Gunnar Gunnarsson,
Laugarnesvegi 57, Reykjavík.
Helgi Hermannsson,
Heiðarbraut lc, Keflavík.
Hrafnhildur Óttarsdóttir,
Eiðismýri 13, Seltjarnarnesi.
Hrafnkell S. Gíslason,
Hjallabraut 6, Hafnarfirði.
Ingibjörg Lára Haröardóttir,
Holtateigi 3, Akureyri.
Jóhanna Helgadóttir,
Stigahlíð 22, Reykjavík.
Krzysztof Józef Woskresinski,
Grundargötu 7, Grundarfirði.
Margrét Ásgeirsdóttir,
Arageröi 17, Vogum.
Sigrún Hlíf Gunnarsdóttir,
Tjarnarlundi lOf, Akureyri.
Siguröur G. Þórarinsson,
Boðaslóð 25, Vestmannaeyjum.
Sigurgeir Arnarson,
Bólstaðarhlíð 52, Reykjavík.
Valdimar Leifsson,
Sævargöröum 22, Seltjarnarnesi.
Þorsteinn Veigar Árnason,
Stórholti 4, Akureyri.
40 ára___________________________
Edda Björk Þorvaldsdóttir,
Rauðási 17, Reykjavík.
Frímann Þór Þórhallsson,
Freyjuvöllum 4, Keflavík.
Guölaugur Hilmarsson,
Vesturbergi 59, Reykjavík.
Guöni Þórhailur Tómasson,
Hálsaseli 40, Reykjavík.
Helga Sigurlaug Sigurðardóttir,
Hraunbraut 30, Kópavogi.
tngþór Karlsson,
Ásabraut 2, Sandgeröi.
Jón Marteinn Jónsson,
Ásabyggð 4, Akureyri.
Jónas Sturla Sverrisson,
Haukalind 21, Kópavogi.
Katrín Harðardóttir,
Melabraut 25, Seltjarnarnesi.
Kristinn Jón Guðmundsson,
Brekkubyggð 8, Garðabæ.
Magnús Hermannsson,
Auðbrekku 6, Húsavík.
Páll Schevlng ingvarsson,
Goðahrauni 9, Vestmannaeyjum.
Þorsteinn Haraldsson,
Sogavegi 80, Reykjavík.
Fólk í fréttum
Jón Rögnvaldsson
nýskipaður vegamálastjóri
Jón Rögnvaldsson, verkfræðingur
og aðstoðarvegamálastjóri, hefur
verið skipaður vegamálastjóri frá
1.3. nk.
Starfsferill
Jón fæddist í Flugumýrar-
hvammi í Akrahreppi 19.2. 1939.
Hann lauk stúdentsprófi frá MA
1959 og prófi í byggingaverkfræði
við TH í Stuttgart 1964.
Jón hefur verið verkfræðingur
hjá Vegagerð ríkisins, síðar Vega-
gerðinni, frá 1964, umdæmisverk-
fræðingur á Vesturlandi 1966-69,
deildarverkfræðingur 1970-76, yfir-
verkfræðingur áætlanadeildar
1976- 92, forstöðumaður tæknisviðs
1992-94 og aðstoðarvegamálastjóri
frá 1995.
Jón var formaður Kjarafélags
Verkfræðingafélags íslands 1975-76,
formaður launamálaráðs BHM
1975-76, meðdómari í Kjaradómi
samkvæmt tiinefningu BHM
1977- 85, fulltrúi í ráðgjafarnefnd
Rannsóknarstofnunar hyggingar-
iðnaðarins um skeið frá 1976, sat í
ritnefnd Tímarits Verkfræðingafé-
lags íslands 1973-75, í stjórn Taflfé-
lags Garðabæjar 1980-81, formaður
þess 1981-88, í stjórn Skáksambands
íslands 1982-92 og var forseti þess
1990-92. Þá er hann félagi í M-
klúbbnum frá 1967.
Fjölskylda
Jón kvæntist 14.8. 1964 Ásdisi
Björnsdóttur, f. 18.9. 1936,
húsmóður. Foreldrar hennar: Bjöm
Símonarson, f. 19.12. 1892, d. 9.5.
1952, búfræðikandídat og bænda-
skólakennari á Hólum, og k.h., Lilja
Gísladóttir, f. 25.3. 1898, d. 7.2. 1970,
húsmóðir.
Böm Jóns og Ásdísar eru Bjöm,
f. 3.1. 1966, tölvunarfræðingur, bú-
settur í Garðabæ; Bryndís, f. 5.6.
1970, háskólanemi og BA í sálfræði,
en maður hennar er Jón Trausti
Ólafsson, kynningar- og
blaðafulltrúi hjá Heklu hf., en sonur
þeirra er Amar Ingi, f. 1997.
Systir Jóns er Sigurveig, f. 28.5.
1933, starfsstúlka í Reykjavik.
Foreldrar Jóns: Rögnvaldur Jóns-
son, f. 29.8. 1908, fyrrv. bóndi og
kennari í Flugumýrarhvammi, og
k.h., Ingibjörg María Jónsdóttir, f.
9.7.1908, d. 9.7. 2000, húsfreyja.
Ætt
Rögnvaldur er sonur Jóns, b. í
Réttarholti í Akrahreppi, Rögn-
valdssonar, b. í Réttarholti, Björns-
sonar, b. í Eyvindarholti, bróður
Arnljóts, pr. og alþm. á Bægisá,
langafa Arnljóts Björnssonar pró-
fessors. Björn var sonur Ólafs, b. á
Auðólfsstöðum, Björnssonar, b. á
Auðóifsstöðum, Guðmundssonar, b.
í Höfnum á Skaga, Björnssonar, ætt-
fóður Hafnarættar.
Móðir Rögnvalds í Réttarholti var
FOippía, systir Sigríðar, langömmu
Ingibjargar, móður Magnúsar Jóns-
sonar ráðherra. Sigríður var einnig
langamma Sigríðar, ömmu Bjöms
Jónssonar, pr. á Akranesi. Sigriður
var einnig langamma Ingibjargar,
móður Sigurgeirs Sigurðssonar,
fyrrv. bæjarstjóra á Seltjamarnesi.
Bróðir Filippíu var Bjami, afl Elín-
borgar Lárusdóttur rithöfundar og
langafi Fjalars Sigurjónssonar, pró-
fasts á Kálfafellsstað. Filippía var
dóttir Hannesar, pr. á Ríp, Bjarna-
sonar, b. í Djúpadal, Eiríkssonar, b.
í Djúpadal, Bjarnasonar. Móðir
Jóns í Réttarholti var Freyja, systir
Jóns, afa Einars fræðimanns og
Þuríðar Pálsdóttur óperusöngkonu.
Freyja var dóttir Jóns Norðmann,
pr. á Barði. Móðir Jóns var Mar-
grét, talin laundóttir Jóns, prests og
skálds á Bægisá, Þorlákssonar.
Móðir Freyju var Katrín, systir
Margrétar, móður Jóns Þorláksson-
ar forsætisráðherra. Önnur systir
Katrínar var Guðrún, amma Sigurð-
ar Nordal. Katrín var dóttir Jóns,
pr. á Undirfelli, Eirikssonar, pr. og
skálds á Staðarbakka, Bjarnasonar,
bróður Hannesar á Ríp. Móðir
Katrínar var Björg, dóttir Benedikts
Vídalíns, stúdents á Reynistað, og
Katrínar Jónsdóttur, biskups á Hól-
um, Teitssonar. Móðir Katrínar á
Reynistað var Margrét Finnsdóttir,
biskups í Skálholti, Jónssonar.
Móðir Rögnvalds í Flugumýrar-
hvammi var Solveig Halldórsdóttir,
b. og járnsmiðs á ípishóli, bróður
Indriða Einarssonar rithöfundar.
Halldór var sonur Einars, b. á Húsa-
bakka, Magnússonar. Móðir Einars
var Sigriður Halldórsdóttir, systir
Benedikts Vídalín. Móðir Halldórs
var Euphemía, systir Konráðs
Fjölnismanns. Euphemía var dóttir
Gísla Konráðssonar fræðimanns og
Euphemíu Benediktsdóttur. Móðir
Solveigar var Sigríður Jónasdóttir,
b. í Holtskoti, Einarssonar og Arn-
fríðar Árnadóttur, b. á Seylu, Árna-
sonar. Móðir Amfriðar var Málfríð-
ur Sigurðardóttir, b. á Seylu, Ólafs-
sonar og Þórdísar Bjamadóttur,
systur Eiríks í Djúpadal.
Ingibjörg var dóttir Jóns, b. á
Flugumýri, Jónassonar, b. á Engi-
mýri, Magnússonar. Móðir Jóns var
Helga Þorsteinsdóttir, b. í Flögu,
Jónssonar og Þuríðar Benedikts-
dóttur.
Fimmtugur
Jason Ivarsson
deildarstjóri við Austurbæjarskólann
Jason ívarsson deildarstjóri,
Krummahólum 10, Reykjavík, er-
fimmtugur í dag.
Starfsferill
Jason fæddist á Vorsabæjarhóli í
Flóa í Ámessýslu og ólst þar upp.
Hann lauk stúdentsprófi frá ML
1974 og kennaraprófi frá KHÍ 1979.
Jason var kennari við grunnskóla
í Grindavík og í Kópavogi 1974-80,
skólastjóri við Fljótshlíðarskóla
1980-83, er kennari við Austurbæj-
arskólann í Reykjavík frá 1983 og er
deildarstjóri unglingadeildar sama
skóla frá 1999.
Jason keppti i frjálsum íþróttum
fyrir UMF Samhygð og HSK. Hann
keppti í blaki fyrir Þrótt í Reykjavík
og lék fimmtán landsleiki í þeirri
grein.
Jason hefur starfað að málefnum
blaksins, sat í stjóm blakdeildar
Þróttar um árabil og hefur verið
gjaldkeri og ritari í stjórn Blaksam-
bands íslands frá 1995.
Fjölskylda
Jason kvæntist 10.7. 1976 Huldu
Sváfnisdóttur, f. 3.8. 1954, kennara.
Hún er dóttir Sváfnis Sveinbjarnar-
sonar, f. 26.7.1928, fyrrv. prófasts að
Breiðabólstað i Fljótshlíð og Önnu
Elínar Gisladóttur, f. 29.4. 1930, d.
20.2. 1974, húsfreyju.
Börn Jasonar og Huldu eru Anna
Elín, f. 15.5. 1975, ferðaráðgjafi hjá
Heimsferðum, búsett í Reykjavík,
en sambýlsmaður hennar er Sigþór
Örn Rúnarsson háskólanemi; Inga,
f. 25.10. 1979, ferðaráðgjafi hjá Flug-
leiðum, búsett í Reykjavík, en sam-
býlismaður hennar er Daníel Schev-
ing háskólanemi; Sigríður, f. 12.4.
1988; Linda, f. 26.5. 1990; ívar Krist-
inn, f. 20.11. 1992.
Hálfsystir Jasonar, sammæðra, er
Svala Halldóra Steingrímsdóttir, f.
12.11. 1942, starfsmaður við iþrótta-
miðstöðina á Selfossi.
Alsystkini Jasonar eru Helga, f.
30.5. 1946, skrifstofumaður í Reykja-
vík; Markús Kristinn, f. 20.7. 1947,
bóndi á Vorsabæjarhóli í Flóa; Jón
Magnús, f. 3.12. 1948, húsasmiður og
háskólanemi; Margrét Ólöf, f. 16.1.
1959, kennari í Reykjavík; Áslaug, f.
16.1. 1959, stuðningsfulltrúi í
Reykjavík; Ingibjörg, f. 3.3. 1961,
sjúkraþjálfari í Berlín.
Foreldrar Jasonar: ívar Kristinn
Jasonarson, f. 5.7. 1910, d. 30.7. 1963,
bóndi og hreppsstjóri á Vorsabæjar-
hóli í Flóa, og Guðmunda Kristjana
Jónsdóttir, f. 29.10. 1922, húsfreyja.
Ætt
ívar var bróðir Stefáns, b. og
fyrrv. hreppstjóra og fréttaritara á
Vorsabæ. ívar var sonur Jasonar, b.
í Vorsabæ, Steinþórssonar, b. á
Arnarhóli, Eirikssonar, b. þar,
Freysteinssonar.
Móðir ívars var Helga ívarsdótt-
ur, b. í Vorsabæjarhjáleigu, Guð-
mundssonar, b. þar, Gestssonar, b. í
Vorsabæ, Guðnasonar. Móðir Guð-
mundar Gestssonar var Sigríður
Sigurðardóttir, systir Bjarna Sívert-
sens riddara.
Guðmunda Kristjana er dóttir
Magnúsar Jóns Samúelssonar, frá
Saurum í Keldudal í Dýrafirði, og
k.h., Halldóru Gestsdóttur hús-
freyju.
mmúsm
Oskar Andrésson frá Saurum, Borgar-
braut 70, Borgarnesi, lést á heimili sínu
mánud. 20.1.
Ágúst Sverrisson, Melhaga 17, Reykja-
vík, lést á heimili sínu sunnud. 19.1.
Þórhildur Björg Kristjánsdóttir, Ketils-
braut 5, Húsavík, lést þriöjud. 21.1.
Áslaug Skúladóttir, fyrrv. sendiráösfull-
trúi, Rekagranda 10, Reykjavík, andað-
ist á líknardeild Landspítalans aö kvöldi
mánud. 20.1.
Smáauglýsingar
DV
550 5000
ilf :
Gunnar Jón Vilhjálmsson
verkamaður í Ólafsvík
Gunnar Jón Vilhjálmsson verka-
maður, Dvalarheimilinu Jaðri,
Ólafsvík, er sjötíu og fimm ára í
dag.
Starfsferill
Gunnar Jón fæddist í Reykjavík
en ólst upp í Ólafsvík og átti þar
heima lengst af. Hann var í bama-
skóla í Ólafsvík.
Gunnar Jón vann lengi í fisk-
vinnslu og var við byggingarvinnu i
Ólafsvík. Hann spilaði í ýmsum
hljómsveitum um árabil og hefur
samið ýmis dægurlög, s.s. Viö
Breiðafjörð og Vordraumur.
Fjölskylda
Hálfsystur Gunnars Jóns, sam-
mæðra, voru Erna Guðmundsdóttir,
nú látin; Þorbjörg Guðmundsdóttir,
nú látin.
Hálfbræður Gunnars Jóns, sam-
feðra, eru Bergur Vilhjálmsson, f.
12.7. 1933, búsettur í Kópavogi; Jón
Norðfjörð Vilhjálmsson, f. 1.12.1928,
rafveituvirkjameistari og rafvirkja-
meistari, búsettur i Mosfellsbæ.
Foreldrar Gunnars Jóns voru Vil-
hjálmur Björgvin Guðmundsson
(Vilhjálmur frá Skáholti), f. 29.12.
1907, d. 4.8.1963, skáld og verslunar-
maður í Reykjavík, og Þórunn
Ágústa Gumílaugsdóttir, f. 14.8.
1903, d. 6.6. 1991, húsmóðir í Ólafs-
vík.
H^HHH£Z!5IZ9
Útför Siguröar Jóns Kristmundssonar,
Karlsbraut 2, Dalvík, fer fram frá
Dalvikurkirkju laugard. 25.1. kl. 13.30.
Bjarni Marinó Stefánsson, Lindargötu
63, Reykjavik, verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju föstud. 24.1. kl. 10.30.
Valdimar Þórarinsson, Húsatúni,
Haukadal, Dýrafirði, verður jarðsunginn
frá Þingeyrarkirkju laugard. 25.1. kl.
14.00.
Steindór Guömundsson frá Hvammi i
Lóni verður jarðsunginn frá Hafnarkirkju
föstud. 24.1. kl. 13.30. Jarðsett veröur
í Stafafellskirkjugarði að athöfn lokinni.
Guömunda Ásgelrsdóttir verður
jarðsungin frá Stokkseyrarkirkju laugard.
25.1. kl. 14.00.
Margrét Sæmundsdóttir frá Miðhúsum,
Garði, verður jarðsungin frá
Útskálakirkju laugard. 25.1. kl. 14.00.
Reidar Vilhelm ísaksen, Hraunbæ 103,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
föstud. 24.1. kl. 13.30.