Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2003, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2003, Blaðsíða 31
FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 31 Sport Draumal Andebo' ’ tvr.r fiölSKV»dur (yrirtæ^i . rbír , samvinnu vt» D'(- Opna ástralska meistaramótið í tennis: Einokun ísienski hopurinn, sem keppir á Ólympíuhátíð æskunnar í alpagreinum í Slóveníu, kom saman í höfuöstöövum íþrótta- og Ólympíusambands íslands í fyrrakvöld en hópurinn hélt utan í gærmorgun. DV-mynd E. Ól. Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar hefst í Slóveníu á sunnudaginn: 12 frá íslandi - átta keppendur í alpagreinum og Qórir í skíðagöngu Vetrarleikar Ólympíuhátíðar Evrópuæskunnar hefjast í Bled í Slóveníu á sunnudaginn og lýkur á fimmtudaginn í næstu viku. Alls tekur 41 Evrópuþjóð þátt í leikunum en keppnisgreinar eru alpagreinar, skíðaganga, snjóbretti, skíðaskotfimi, ísknattleikur og skautaíþróttir. Tólf keppendur, átta í alpagrein- um og fjórir í skíðagöngu, munu keppa fyrir hönd íslands á leiknun- um og lagði hópurinn af stað til Sló- veníu í gær. Að auki eru meö í för Benedikt Geirsson aðalfararstjóri, Daníel Jakobsson flokksstjóri, Mundína Hermannsdóttir sjúkra- þjálfari og tveir þjálfarar, Ámi Geir Ómarsson í alpagreinum og Helgi Jóhannesson í göngu. íslensku keppendumir koma víðs vegar að og era á aldrinum 16-18 ára. í alpagreinum keppa Ama M. Ragnarsdóttir, 16 ára, Ingibjörg Jónsdóttir, 17 ára, báðar frá Eski- firði, Guðjón Ólafur Guðjónsson, 17 ára, úr Reykjavík, Kári Brynjólfs- son og Snorri Páii Guðbjömsson, báðir 16 ára, frá Dalvík, Karl Frið- rik Jörgensen, 17 ára, frá Neskaup- stað, Katrín Ósk Þorsteinsdóttir, 17 ára, úr Kópavogi og Ólöf Andrés- dóttir, 16 ára, frá Seltjamamesi. í skíðagöngu keppa Elsa Guðrún Jónsdóttir og Hjaiti Hauksson, sem bæði era 17 ára, og Hjörvar Marons- son 18 ára, öll frá Ólafsfirði, og Kristján Ó. Ástvaldsson 17 ára frá ísafirði. Þetta mót er glæsiiegt í sniðum og verður Ólympíueldurinn tendraður við setningarathöfnina á sunnudag- inn. -ósk - Williams-systur mætast enn einu sinni í úrslitaleik Bandarísku systumar Venus og Clijsters gat í tvígang tryggt sér sig- urinn í leiknum. Það gerð- ist þó ekki, Serena sneri töpuðum leik yfir í unninn og sýndi að það er engin til- viljun að hún hefur unnið þrjú stórslemmumót í röð. „Þetta var ótrúlegur leik- ur. Ég hef alltaf verið bar- áttumanneskja og ég sagði við sjálfa mig að ég vildi ekki tapa 6-1 í síðasta sett- inu. Ég hélt því bara áfram og allt i einu var ég komin yflr,“ sagði Ser- ena. Clijsters var mjög vonsvikin eftir leikinn enda hafði hún sig- urinn í hendi sér. „Ég reyndi og reyndi en þegar allt kom til alls var ég bara ekki nógu góð.“ Serena Wiiliams tryggðu sér sæti í úrslitum opna ástralska meistaramótsins í tennis þegar þær lögðu belgísku stúlkurnar Justin Henin og Kim Clijsters í undanúrslitum. Þær systur hafa haft mikia yflrburði á tennisveilinum undanfarið ár og tróna í tveimur efstu sætum styrkleiklista Al- þjóða tennissambandsins. Venus Williams Miklir yfirburöir Venus hafði mikla yflrburði gegn Henin og vann í tveimur settum, 6-3 og 6-3. Venus hefur ekki enn tapað setti á mótinu en þetta er í fyrsta sinn sem hún kemst í úrslit á þessu móti. „Ég hef aldrei fyrr kom- ist í þessa stöðu þannig að ég er mjög sátt,“ sagði Ven- williams us eftir leikinn. Serena Wlll,ams Henin viðurkenndi að hún heföi mætt ofjarli sinum að þessu sinni. „Venus var miklu ákveðnari en ég i leiknum og ég átti aldrei mögu- leika,“ sagði Henin. Frábær endurkoma Serena Williams sýndi ótrúlega keppnishörku þeg- ar hún sigraði Kim Clijsters í þremur settum, 4-6, 6-3 og 7-5. Serena var ansi nálægt því að tapa síðasta settinu þvi að hún var undir, Andre Agassi 5-1, og Agassi í hörkustuöi Bandaríkjamaðurinn Andre Agassi vann auð- veldan sigur á Wayne Ferreira frá Suður-Afríku í undan- úrslitum í karlaflokki. Agassi vann í þremur settum, 6-2, 6-2 og 6-3. Ferreira átti aldrei möguleika í leiknum enda er Agassi í hörkuformi og verður að teljast sigurstranglegur í úrslitaleiknum þar sem hann mætir annaöhvort landa sínum, Andy Rodd- ick. eða Þjóðverjanum Rainer Schúttler. „Ég byrjaði vel og eftir það var leikurinn auðveld- ur,“ sagði Agassi. -ósk Jörundur Áki Sveinsson, landsliösþjálfari kvenna, á æfingu með stúlkum sínum fyrir leikinn gegn Spáni síöastliðiö vor. Jörundur Áki veiur æfingahóp Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari kvennalandsliðsins, hefur valið 17 manna æfingahóp fyrir vináttulandsleik gegn Bandaríkjunum sem fram fer vestanhafs 16. febrúar næstkomandi. Þær stúlkur sem spila erlendis vora ekki valdir í æfmgahópinn en búast má því að einhveijar þeirra verði vald- ar í endanlegan hóp. Þar á meðal era markverðimir Þóra B. Helgadóttir og María B. Ágústsdóttir, Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Edda Garðarsdóttir og Eva Sóley Guðbjömsdóttir en þær stunda allar nám í Bandaríkjunum. Aö auki spila þær Guðlaug Jónsdóttir og Erla Hendriksdóttir í Danmörku og Katrín Jónsdóttir i Noregi. Hópurinn er skipaður eftirtöldum leikmönnum: Markverðir: Dúfa D. Ásbjömsdóttir, Breiðabliki, og Lára B. Einarsdóttir, Stjömunni. Aðrir leikmenn: Björg Ásta Þórðardóttir, Breiðabliki, Margrét R. Ólafs- dóttir, Breiðabliki, Margrét Lára Viðarsdóttir, ÍBV, Ásdís Þorgilsdóttir, KR, Ásthildur Helgadóttir, KR, Hólmfríður Magnúsdóttir, KR, Hrefha H. Jóhann- esdóttir, KR, Olga Færseth, KR, Dóra María Lárasdóttir, Val, Dóra Stefáns- dóttir, Val, íris Andrésdóttir, Val, Laufey Jóhannsdóttir, Val, Laufey Ólafs- dóttir, Val, Málfríður Ema Sigurðardóttir, Val, Rósa Júlía Steinþórsdóttir, Val. -ósk Fnski bortinn l^eikmenn. tjóri. -SSúS1 -» Glssileð '<erð1aU 'Ar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.