Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2003, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003
Fréttir
DV
ímyndarstríð lífeyrissjóðanna
- öll fjármálafyrirtæki segjast vera með bestu ávöxtunina
Fjármálai'yrirtæki, sem hafa
með vörslu sjóða að gera sem ætl-
að er að ávaxta viðbótarlífeyri
landsmanna, auglýsa nú hvert um
annað þvert „réttar" tölur um
ávöxtun sjóða sinna. í snyrtilega
uppsettum töflum auglýstu m.a.
Kaupþing og íslandsbanki í gær
„réttar“ tölur um bestu ávöxtun-
ina. Munaði í sumum tilfellum
verulegu á ávöxtuninni en í báð-
um tilfellum auglýsandanum í
hag. Sérfræðingar sem DV ræddi
við halda því samt fram að bæði
fyrirtækin séu strangt til tekið að
fara með „rétt“ mál. Þau gefa sér
hins vegar forsendurnar að baki
uppsettum ávöxtunartöflum í aug-
lýsingunum sem eru æði misjafn-
ar. í raun hafl þessar auglýsingar
því ekkert giidi nema sem áróður
í ímyndarstríði fjármálafyrirtækj-
anna.
Meðan þessu fer fram stendur
ringlaður almúginn og veit hvorki
hvaö snýr upp né niður í „sann-
leika“ málsins, mitt í háværri um-
ræðu um neikvæða ávöxtun líf-
eyris landsmanna.
Frá -50,5% í +32,2%
Samkvæmt upplýsingum DV
rokkar nafnávöxtun á viðbótar-
sparnaði landsmanna allt frá því
Ávöxtun
skuldabréfasjóða
Rétt
skal vera
rétt!
Hart barist í ímyndarstríöi
Fjármálafyrirtækin munda vopnin og viröast öll vera aö segja sannleikann
sem hefur greiniiega margar hliöar en er byggöur á mismunandi forsendum.
að vera -50,5%, þar sem að baki
stendur sjóður sem ávaxtar ein-
göngu í hlutabréfum, og upp í
32,2% í sjóði sem ávaxtar einung-
is í tryggum verðbréfum. Þar
getur verið um sömu fyrirtæki
að ræða sem eru með ávöxtunar-
tölm- bæði á botni og toppi skal-
ans.
Ólafur Darri Andrason, deildar-
stjóri hagdeildar ASÍ, segir fram-
setningu í auglýsingum fyrirtækj-
anna þessa dagana gefa litla vit-
ræna leiðbeiningu um hvað fram-
tíðin geti gefið af sér í ávöxtun
fyrir sjóðsfélaga.
„Það sem fjármálafyrirtækin
reyna þó að gera er aö búa til sjóði
sem fela í sér misjafna áhættu. Al-
mennt séð má því segja að því
meiri áhættu sem menn taka því
hærri ávöxtun eru menn að von-
ast til að fá. í þessum fræðum
reyna menn að vega saman hag-
stæðustu samsetningu í áhættu og
líkur á ávöxtun. Þeir sjóðir sem
hafa verið að taka hvaö mesta
dýfu þurfa ekki endilega að hafa
forspárgildi varðandi framtíðina.
Þar hafa menn líklegast verið að
fjárfesta í hlutabréfum sem hafa
verið að lækka mjög mikið. Það
má líka búast við því að þegar
staðan erlendis fer að rétta úr
kútnum kunni þessi bréf að
hækka mjög mikið. Því verður
líka að horfa til þess að hluta-
bréfaeign svona sjóða er langtíma-
fjárfesting."
Ólafur segir að almennt séð sé
ávöxtunarkrafan aldurstengd. Því
yngra sem fólk er því meiri
áhættu sé eðlilegt að taka. Þrítug-
ur einstaklingur sem fær tap á
sinn lífeyrissparnað geti reiknað
með að ná því upp á næstu 30
árum. Aftur á móti þolir 67 ára
einstaklingur, sem er að fara að
nýta sér slíkan sparnað, ekki að
bíða. Því er ráðlagt að draga úr
áhættu eftir því sem líður á
starfsævina. -HKr.
Afleysingamanni í
lögreglu sagt upp
Fimmtugur Sunnlendingur var
dæmdur í gær í Héraðsdómi Suö-
urlands til greiðslu á 80.000 krón-
um fyrir brot á umferðarlögum og
lögum um fjáröflun til vegagerðar.
Ákærða var gefið að sök að
hafa í blekkingarskyni um eins
mánaðar skeið sumarið 2002, en
hann starfaði þá sem sumarafleys-
ingamaður í lögreglunni á Sel-
fossi, ekið bifreið til og frá vinnu
á Selfossi, breyttri frá fyrri skrán-
ingu, þannig að í bílinn var kom-
in dísilvél í stað bensínvélar, eins
og skráning bifreiðarinnar sagði
til um.
Ákærða var sama dag vikið úr
starfi lögreglumanns með ákvörð-
un Lögreglustjórans á Selfossi.
Við yfirheyrslu kvaðst ákærði
ekki muna hvenær hann keypti
bifreiðina, en hún hafi þá verið
með bensínvél. í apríl 2002 hafi
bensínvélin brætt úr sér. Hann
sagðist þá hafi sett dísilvél í bif-
reiðina, líklega í lok maí, og lokið
verkinu um mánuði síðar.
Ákærði kvaðst hafa ætlað með
bifreiðina í skoðun, m.a. til að
breyta skráningu hennar. Hann
hefði á þessum tíma ekki haft
auraráð til að greiða fyrir skrán-
ingu og þimgaskatt, þar sem hann
hefði ekki fengið greidd laun á
réttum tíma.
Ákærði viðurkenndi við yfir-
heyrslu að hafa notað dísilbif-
reiðina í örfá skipti, líklega um
þriggja vikna tímabil. -NH
DV-MYND GVA
Vetrarstllla
Gufubólstrarnir stíga til himsins undir góutungli. Rafmöstrin teikna sig yfir heiöina sem var vettvangur 16 bíla
áreksturs fyrir fáum dögum. Heiöin viröist sakleysisleg en getur hvesst sig eins og dæmin sanna.
Hundaínnflutningup hefur stóraukist
ir inn 92 hundar og 29 kettir. Árið
2001 voru fluttir inn 144 hundar og
49 kettir. Árið 2002 voru svo fluttir
inn 155 hundar og 44 kettir. Öll
þessi dýr fóru í gegnum einangrun-
arstöðina í Hrísey.
Heilbrigðisvottorð þarf að fylgja
dýrum sem flutt eru til landsins og
eru vottorðin send til aðalskrifstofu
yfirdýralæknis fáeinum dögrnn fyr-
ir komu dýranna. Tryggja þarf að
öll skilyrði um bólusetningu dýr-
anna og blóðpróf séu uppfyllt. Eftir
stækkun stöðvarinnar i Hrísey hef-
ur biö eftir plássi fyrir innflutt
gæludýr styst verulega. Er biðtím-
inn nú um 2-4 mánuðir. -HKr.
Innflutningur á hundum hefur
tekið stórt stökk upp á við á und-
anfómum árum. Hefur hann ríf-
lega tvöfaldast síðan 1999. Sam-
kvæmt ársskýrslu embættis yfir-
dýralæknis fyrir árið 2002 hefur
stöðug aukning verið á innflutn-
ingi hunda frá árinu 1997 en það
ár voru fluttir inn 36 hundar. Mik-
il aukning varð á innflutningi
hunda og katta frá árinu 2000 og
er það talið skýrast af því að þá
var einangrunarstöð gæludýra í
Hrísey stækkuð. Innflutningur
katta náði hámarki árið 2001 en
hundainnflutningur virðist enn á
hraðri uppleið.
Innflutningur hunda og katta
Árið 1997 vom fluttir inn 36
hundar og 17 kettir. Árið 1998 vom
fluttir inn 68 hundar og 24 kettir.
Árið 1999 vora fluttir inn 66 himd-
ar og 25 kettir. Árið 2000 vora flutt-
Stuttar fréttir
Skattbyrðin ekki meiri
Geir H. Haarde
fj ármálaráðherra
visar á bug þeirri
staöhæfingu Fé-
lags eldri borgara
að skattbyrði ein-
stalinga sé meiri
nú en áður. Ráð-
herra segir for-
ráðamenn félagsins hafa litið
fram hjá því aö launaþróun og
bótagreiðslur hafi hækkað um-
fram verðlag á undanförnum
árum. mbl.is greindi frá.
íslensk tónlist á flugi
Heildarsamtök tónlistarmanna,
Samtónn, hafa undirritað samn-
ing við fyrirtæki sem setur saman
tónlistarrásir fyrir 70 stærstu
flugfélög heims. íslensk tónlist
mun þannig hljóma í eyrum flug-
farþega um víða veröld.
Rætt um sátt
Fulltrúar olíufélaganna þriggja
munu um skeið hafa átt í viðræð;
um við fulltrúa Samkeppnisstofn-
unar um leitað verði sátta í mál-
efnum olíufélaganna, sem stofn-
unin hefur haft til rannsóknar
síðan húsleit var gerð hjá þeim í
desember 2001.
Sjónvarpsgláp eykst
Hver íslendingur eyddi að með-
altali tveimur stundum og 41 mín-
útu fyrir framan kassann í fyrra.
Þetta kemur fram í könnun
Gallup en til samanbm-ðar má
geta þess að þetta er hátt í 40 mín-
útum meira en árið 1998. mbl.is
greindi frá. -aþ
Ranghermt var í myndatexta
blaðsins í gær að Björgunarsveit-
armenn í Blöndu væru á mynd á
blaðsíðu 2. Hið rétta er aö þarna
voru félagar í Flugbjörgunarsveit-
inni í Vestur-Húnavatnssýslu.
DV-MYND JÚLÍA IMSLAND
Skemmdir
Búiö var aö gera viö handriöiö aö
ofan í morgun en eftir aö gera viö
skemmdir viö festingar í brúargólfmu.
Klunnalegur flutningabíll:
Skemmdi brýr yflr
flórar ár og póstbíl
Nokkrar skemmdir urðu á
brúm á Hornafjarðarfljóti, Smyrla-
bjargaá, Staðará, Steinavötnum og
þrem brúm i Öræfum af völdum
flutningabíls sem var að flytja
stóra beltagröfu með vökvaklipp-
um austur á Stokksnes. Grafan er
það breið að hún rakst utan í brú-
arhandriðin og í Nesjum straukst
flutningabíllinn utan í póstbílinn
sem var á suðurleið. Gröfúna með
klippunum á að nota við að taka
sundur og rífa skermana á Stokks-
nesi. Reynir Gunnarsson hjá
Vegagerðinni sagði að viðgerð á
brúnum mundi kosta nokkur
hundruð þúsunda króna en ekki
var búiö að meta tjónið. Mest var
tjónið á handriði brúarinnar á
Homafjarðarfljóti þar sem járnrið
ofan á brúnni fór af á nokkrum
stöðum. -JI
Aftur barnshafandi
í baráttunni
Þorgerður
Gunnarsdóttir,
þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins
í Suðvesturkjör-
dæmi, er bams-
hafandi nú þeg-
ar hún er að
hefja kosninga-
Þorgeröur Katrin baráttu sína.
Gunnarsdóttir. Hún er komin
fimm mánuði á
leiö og er skráð á fæðingardeild
um miðjan júlí næstkomandi.
Þorgerður og eiginmaður henn-
ar, Kristján Arason, viðskipta-
fræðingur og fyrrum handbolta-
maður, eiga fyrir tvo syni. Gunn-
ar Ari er sjö ára og Gísli Þorgeir
tæpra fjögurra. Þann yngri bar
Þorgerður undir belti í kosninga-
baráttunni fyrir flórum árum.
Sagan endurtekur sig nú. -sbs
f ókus
I Á MORGUN
í Fókus á morg-
un er velt upp
spumingunni hvort
lögleiðing kanna-
bisefha sé réttlæt-
anleg. Þá er rætt
við Elísu Arnars-
dóttur, sem leikur í
uppfærslu FG á
Rocky Horror, og kíkt á tískusýn-
ingu hjá versluninni Oasis. Við tin-
um til mestu skúrka kvikmynda-
sögunnar, birtum ferðasögu snjó-
brettastráika og hljómsveitin Ókind
segir frá fýrstu plötunni sinni.