Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2003, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2003, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 25 ]3V Tilvera Biogagnrym Smárabíó - Punch-Drunk Love ★★★ Alt oðruvisi romantisk namanmynd •9“. um í Kópavogi 1 dag. Kl. 12.15: Mozart, hver er það? Tónlist fyrir alla fjölskylduna. Bergþór Pálsson óperusöngvari, Auður Hafsteins- dóttir fiðluleikari og Nina Mar- grét Grímsdóttir píanóleikari lokka áheyrendur með sér inn í undraveröld tónskáldsins og per- sónunnar Wolfgangs Amadeusar Mozarts með tali, tónum og leik- rænum tilburðum. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir á með- an húsrúm leyfir. Kl. 20.30 verður svo Litla heimstónlistarhátíðin í Kópavogi. Red Rum frá Finnlandi. Bardukha úr Reykjavik og South River Band frá Ölafsfirði koma fram á vegum Blue North Music Festivals. Verð kr. 2.000. Leikið á fjórar flautur Hallfríður Ólafsdóttir leikur Konsert fyrir flautur eftir Einoju- hani Rautavaara, á tónleikum Sin- fóníuhijómsveitar íslands kl. 19.30. Verkið sem höfundmr hefur kallað Dansar með vindunum er sérstakt vegna þess að einleikar- inn leikur ekki aðeins á eina flautu heldur fjórar. Ampop á Grand Rokk Hljómsveitin Ampop leikur á tónleikum á Grand Rokk í kvöld. Plötusnúðar frá Thule, 500 kr. inn, 20 ára aldurstakmark, hefst kl. 23. Hell is for Heroes á Gauknum Breska rokksveitin Hell Is for Heroes leikur á Gauknum í kvöld ásamt Minus og Brain Police. Húsið opnað kl. 20. Buff á Amsterdam Hljómsveitin Buff verður með uppistand og almennt bull á Amsterdam frá 22 til miðnættis. Blúsþrjótarnir á Vídalín Blúsþrjótarnir spila á Vídalín í kvöld. Húsið opnað kl. 22. Atli á Glaumbar Atli skemmtanalögga skemmtir á Glaumbar í kvöld. Stemning á Hverfisbarnum Sjonni & Jói sjá um stuðið á Hverfisbamum í kvöld. Tommi White á Sólon Húskóngurinn Tommi White snýr skífum á Sóloni í kvöld. Hello Kitty og Sunboy á 11 Dj Hello Kitty og Dj Sunboy laða fram ljúfa tóna á nýja staðn- um á Laugavegi 11 í kvöld. Sif Gunnarsdóttir skrifar gagnrýni um kvikmyndir. gangur og solarhringsfrelsi Fjórar kvikmyndir verða frum- sýndar á morgun. Þar ber fyrst að telja hina margverðlaunuð The Pian- ist sem Roman Polanski leikstýrir. Er hún tilnefnd til nokkurra ósk- arsverðlauna. Þá verður einnig tekin til sýningar nýjasta kvikmynd Spike Lee, The 25th Hour, athyglisverð kvikmynd um um sólarhring í ævi tilvonandi fanga. Jennifer Lopez mætir til leiks i hinni vinsælu ösku- buskumynd, Maid in Manahattan, og krakkamir fá sinn skammt í Þmmu- brækumar. The Pianist The Pianist hefúr farið mikla sig- 25th Hour Edward Norton leikur manninn sem er á ieiö í fangelsi. urfór á síðustu mánuðum og unnið til fjölda verðlauna. Þykir myndin mikill sigur fyrir Roman Polanski sem ekki hefur komið með jafn góða kvikmynd frá því hann gerði Chinatown. í myndinni er hann að fjalla um atburði sem hann kynntist bam að aldri, gyðinga í gettóinu í Varsjá. „Ég vissi alltaf að ég myndi einhvem tímann gera kvikmynd um þennan sársaukaatburð í pólskri sögu en ég vildi ekki að það yrði sjálfsævisögulegt," segir Polanski. Það vom minningar pianóleikar- ans Wladyslaws Szpilmans sem heiil- uðu Polanski og hann ákvað að kvik- mynda þær og er myndin búin að fá eftirsótt kvikmyndaverðlaun á kvik- myndahátíðinni í Cannes og er til- nefnd til óskarsverðlauna sem besta kvikmynd og Polanski sem besti leik- stjóri. Einnig fær tilnefningu sem leikari í aðalhlutverki Adrian Brody,sem leikur píanistann sem býr í gettóinu á stríðsárunum. Honum tekst að sleppa út fyrir múrana og leynist í rústmn borgarinnar. Þar kemur honum til hjálpar þýskur for- ingi sem er mikill tónlistaraðdáandi. The Pianist Adrian Brody leikur Wladyslaw Szpilman, gyöing serrisleppur úr gettóinu í Varsjá. Maid in Manhattan Maid in Manhattan náði miklum vinsæld- um í Bandaríkjunum og má það að hluta til þakka miklum vinsæld- um Jennifer Lopez sem er daglegur gestur í Thunderpants Bruce Cook og Rupert Grint í hlutverk- um strákanna Patricks og Alans. slúðurdálkum dagblaða. Þykir hún standa sig vel í hlutverki þjónustu- stúlkimnar. Að vísu fær hún verðug- an mótleikara sem er Ralph Fiennes. í Maid in Manhattan leikur Lopez Marisa Ventura sem er einstæð móð- ir í New York. Hún vinnur sem her- bergisþema á einu glæsilegasta hót- eli í Manhattan. Ótrúleg atburðarás veldur því að hún hittir Christopher Marshall (Fiennes), myndarlegan erf- ingja stjómmálaveldis sem heldur að hún sé gestur á hótelinu. Örlögin taka síðan málin í sínar hendur. Með önnur hlutverk fara Stanley Tucci, Natasha Ric- hardson og Bob Hoskins. Leikstjóri er Wayne Wang sem síðast leikstýrði hinni ágætu kvikmynd The Center of the World. Meðal eldri mynda hans má nefna Joy Luck Club, Blue in the Face og Smoke. 25th Hour 25th Hour er nýjasta mynd Spikes Lees. Hann hefur hingað til eingöngu gert kvikmyndir þar sem kynbræður hans era aðalpersónumar. Nú bregöur svo við að hvítur mað- ur er aðalpersónan og er það úrvalsleikarinn Edward Norton sem leikur aðalhlut- verkið með verðlaunaleikurun- um Edward Norton (Red Dragon, American History X), Philip Seymour Hoffman (Red Dragon, Boogie Nights) og Bri- an Cox (Hannibal Lecter í Man- hunter). Myndin fjallar um Monty Brogan sem er að byrja síðasta sólarhringinn sinn sem frjáls maður áður en hann géfur sig fram við lögregluna og byrjar sjö ára dóm sinn fyrir eiturlyfla- sölu. Áður en hann fer í fang- elsi vill hann skemmta sér ærlega með bestu vinum sín- um: verðbréfasalanum Frank ; Slattery og enskukennaranum Jakob Elinsky sem öfundar vini sína af spennumiklu lífi þeirra en ætlar samt aldrei að hætta að i kenna þó að pemngam- ’ ir séu betri í þeirra störfum. Vinimir þrír byrja kvöldið snemma og Maid in Manhattan Jennifer Lopez ieikur þjónustustúlkuna á fínu hóteli á Manhattan skemmta sér vel. En Monty hefur gert áætlun um hvemig kvöldið á að enda sem hvorki Jakob né Frank vita af... Aðrir leikarar í 25th Hour eru Philip Seymour Hofiman, Brian Cox, Rosario Dawson og Anna Paquin. Ttiunderpants Thunderpants, eða Þrumubrækur, eru bama- og fjölskyldumynd. Mynd- in segir okkur af 10 ára strák, Patrick Smash að nafni, sem hefur þann hvimleiða fæðingargalla að leysa vind í tíma og ótíma. Hann langar til þess að verða geimfari þegar hann verður stór. Besti vinur hans, Alan, sem er mikill uppfinningamaður, ákveður að hanna sérstakan búning fyrir Patrick þannig að hann geti ein- angrað vindganginn og til að beisla gasið sem hann leysir. Já, Patrick og Alan eiga síðan eftir að lenda í mikl- um ævintýrum. Og viti menn, geim- ferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, ákveður að leita til Patricks því hann hann þarf að koma hætt komnu geimfari til aðstoðar. Patrick fær því draum sinn uppfylltan, hann er orð- inn geimfari og, það sem meira er, vindgangur hans kemur honum og öðrum að góðum notum. Með helstu hlutverk fara Simon Gallow, Stephen Fry, Celia Imrie, Ned Beatty, Bruce Cook og Rupert Grint. -HK lífiö Bíófrumsýningar: Tónleikar í Salnum Tvennir tónleikar verða í Saln- Píanisti, þjónustustulka, vind- Paul Thomas Anderson leik- stjóri og Adam Sandler leikari eru báðir vel þekktir í heimi kvik- myndanna. Anderson komst á lista yfir áhugaverða leikstjóra með myndunum Boogie Nights og Magnolia og Adam Sandler hefur leikið í gamanmyndum eins og Little Nicky og Big Daddy. í mynd- inni Punch Drunk Love stíga þeir báðir skref í nýja átt. Anderson reynir ekki að kafa eins djúpt hér og í fyrri myndum sínum - er ekki að afhjúpa jafnstórar samfélags- meinsemdir heldur sýnir okkur smærri sögu með einfaldari (og elskulegri) söguþræði en áður. Sandler sýnir áður óþekkta breidd og dýpt sem leikari og býr til eftir- minnilega og trúverðuga persónu. Barry Egan (Sandler) er ein- kennilegur maður. Hann vinnur í litlu fyrirtæki sem selur spenn- andi hluti eins og drullusokka með skrauti. Hann á erfitt með samskipti við annað fólk og áreiti af hvaða tagi sem er getur komið af stað áköfum grátköstum eða óstjómlegri bræði sem brýst út í ofbeldi gegn dauðum hlutum - eins og glerhurðum eða baðher- bergi á veitingastað. Barry á sjö systur sem eru allar yfirþyrmandi vitlausar og leiðinlegar og maður fær grunsemdir um kúgun og and- legt ofbeldi í æsku Barrys. Barry virðist ekki eiga neina vini og aldrei fara út á meðal fólks, enda víðáttufælinn, og einu samskipti hans við konur eru þegar hann hringir í kynlífslínur með slæm- um árangri. En líf hans breytist Adam Sandier kemur á óvart í hlutverkinu. þegar hann hittir Lenu (Watson), blíðlega starfsystur einnar systur hans, og með þeim takast feimnis- legar ástir. Adam Sandler kemur sannar- lega á óvart i hlutverki Barrys. Feimnislegt augnaráð, hik og vandræðaskapur felur ekki nema að hluta til bælda reiðina sem býr undir niðri og brýst út öðru hverju. Watson er fln líka en fær alltof lítinn tíma á tjaldinu til að maður skilji persónu hennar, til dæmis hvers vegna hún fellur fyr- ir þessum ómögulega manni. Punch Drunk Love er eins kon- ar rómantísk gamanmynd, þ.e.a.s. hún fjallar vissulega um mann og konu sem kynnast og verða ást- fangin þrátt fyrir ýmis ljón í veg- inum. En hér er engin stjömu- björt nótt, kona í glæsilegum kjól eða kampavínsglitrandi ástarjátn- ingar, bara sú einfalda von að ást- in geti sigrað allt. Það besta við Punch Drunk Love er að það er ómögulegt að giska á hvað gerist næst. Barry er óútreiknanlegur í viðbrögðum sín- um við öðru fólki og þar að auki gerast óútskýranlegir hlutir, eins og þegar stofuorgeli er skyndilega hent út úr bíl fyrir framan vinnu- stað hans. Punch Drunk Love er fyndin, hjartnæm og verulega skrýtin - og merkilega góð. Leikstjórn og handrit: Paul Thomas Anderson. Kvikmyndataka: Robert Elswit. Tónlist: Jon Brion. Aöalleik- arar: Adam Sandler, Emily Watson, Philip Seymour Hoffman o.fl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.