Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2003, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2003, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 13 DV Innkaup Veitingahúsiö Vlö Tjörnina: Portúgalskir dagar Portúgalskir dagar hefjast á Veitingahúsinu Við Tjörnina í kvöld og standa fram á sunnudag. Þar verður portú- gölsk matargerðar- list í hávegum höfð og portúgölsk vín á boðstólum. Reyndar verður öll umgjörð þessara daga á portúgalska vísu, með tónlist og öðru skemmti- legu. Rúnar Marvins- son meistarakokk- ur mun hafa vak- andi auga með öllu þessa daga. Það ætti ekki að vefjast fyrir honum en hann þekkir ágæt- lega til Portúgal og þeirrar matargerð- ar sem þar er stunduð. Áhugasamir um fjarlæga matar- menningu fá þarna einstakt tækifæri til að bragða potrúgalskar krásir mat- reiddar af meistara Rúnari. Fyrirtækið Karl K. Karlsson stendur fyrir vínþættinum en gestir eru boðnir velkomnir með Runar marvinsson Meistarakokkurinn mun hafa vakandi auga með öllu þessa daga. portúgölskum fordrykk. Gestir velja af sérstökum matseðli og get- ur heppinn matargestur unnið ferð fyrir tvo með Úrvali útsýn. TILBOÐ VIKUN Uppgrips-verslartir Olís Tilboðin gilda í mars. Bouché-súkkulaði, allar tegundir 49 kr. Örbylgjupopp, Orwille 179 kr. Mónu krembrauð 69 kr. Egils Orka, 0,5 1 135 kr. Seven Up, 0,5 1 99 kr. Latex hanskar, einnota 149 kr. Vinyl hanskar, einnota, 10 stk. 149 kr. 1 Hagkaup Tilboðin gilda til 22. mars. Hamborgarhryggur 699 kr. kg Svínahnakki með beini 399 kr. kg Svínakótelettur 499 kr. kg Dracula brjóstsykur, 115 g 99 kr. BKI kaffi, extra, 400 g 199 kr. Jacobs pítu brauð, 400 g 99 kr. Bórtus Tilboðin gilda til 16. mars. Bónus hamborgarar, 4 stk. m. brauði 199 kr. Bónus svínakótelettur m.beini 489 kr. kg Kjarnafæði bayonneskinka 599 kr. kg Ósoðin, frosin lifrapylsa 411 kr. kg Vatnsmelónur 59 kr. kg Úrval/Samkaup Tilboðin gilda til 25. mars. Nautahakk 579 kr. kg íslandsfugl, kjúklingur ferskur 399 kr. kg Lambaframp./súpukjöt 389 kr. kg Knorr Gryte 165 kr. kg Kínakál 129 kr. kg Gular melónur 149 kr. kg Perur 149 kr. kg : í Þin verslun Tilboðin gilda til 19. mars. 4 hamborgarar & 4 brauð 15% afsl. Búrfells nautahakk 15% afsl. Toro lasagne ofnréttur 239 kr. Toro tandori chicken ofnréttur 209 kr. Frón matarkex, 400 g 159 kr. Fairy uppþvottalögur, 500 ml 189 kr. 1 1-1 1 Tilboðin gilda til 19. mars. j SS helgarsteik, rauðvínslegin 1048 kr. kg SS helgarsteik, grand orange 1048 kr. kg j Hatting mini hvítlauksbrauð, 10 stk. 195 kr. j Hatting ostabrauð, 2 stk. 195 kr. River basmatic hrisgrjón, 500 g 159 kr. Cocoa Puffs, 500 g 319 kr. Prins Póló, 4 pk. 198 kr. 1 ! Krónan Tilboðin gilda til 16. mars. ' KEA ofnsteik með ítöiskum blæ 935 kr. kg Bautab. rauðvinsl. svínalærisn. 648 kr. kg Pop Secret örb. popp, 6 pk. 249 kr. GM Honey Nut Cheerios, 765 g 489 kr. Kindersúkkulaðiegg 198 kr. Fón kremkex, 500 g 219 kr. Súkkulaðibitakex, 225 g 159 kr. i : Sparversfun Tilboðin gilda til 17. mars. j Lambalærisneiðar, frosnar 828 kr. kg Lambakótilettur, frosið 828 kr. kg Lambalæri, frosið 698 kr. kg Lambahryggur, frosið 698 kr. kg Ýsuflök m/roði, frosið 398 kr. kg Léttsósa Dijon, 200 g 119 kr. Léttsósa engifer, 200 g 119 kr. I i Nettó J Tilboðin gilda meðan birgðir endast. j Norðlenska grisarif 398 kr. kg Norðlenska grisabógur 199 kr. kg Norðlenska puruofnsteik 599 kr. kg Norðlenska grísaofnsteik 629 kr. kg 0 & S gratínostur 189 kr. Knorr pastaréttur bolognese 199 kr. Santa Maria soft tortilla 219 kr. : - . ... .. _ : J Smáauglýsingar DV 550 5000 ÞJALFUNAR OG ÆFINGARPUNKTAR Sumir benda á að langvarandi streita geti ýtt undir þróun hjarta- og æðasjúkdóma. Okkur er öilum eðlilegt að bregðast við ýmsum áreitum með streituviðbrögðum sem jafnvel gera okkur kleift að yfirvinna vandann. Dæmi: Ef við stöndum augliti til auglitis við rándýr, til dæmis Ijón, sendir heilinn skilaboð eftir taugakerfinu í nýrnahetturnar (lítils kirtils ofan á nýrunum). Nýrnahetturnar losa tvenns konar hormón út í blóðið, kortisól og adrenalín. Þessi hormón gera það að verkum að víð eigum auðveldara með að bjarga okkur á flótta undan Ijóninu vegna þess að með aðstoð þeirra tekst að leysa svo mikla orku úr læðingi. En hormónin auka ekki aðeins orkuna tímabundið heldur er á sama tíma slökkt á allri langtímauppbyggingu líkamans: menn hætta að melta og hugsa um það eitt að forðast að vera étnir; það slokknar á kynhvötinni og vefir hætta að endurnýja sig, blóðþrýstingur hækkar. Ef stre'rtuviðbrögð sem þessi gera stöku sinnum vart við sig er um eðlilegan þátt hins mannlega lífs að ræða. En fólk sem er undir stöðugu álagi, til að mynda vegna fjárhagslegs óöryggis eða undirokunar í vinnu eða innan heimilisveggja, getur verið í mikilli áhættu, ef til vill vegna þess að blóðþrýstingurinn helst stöðugt hár vegna streituviðbragðanna. En einnig má geta þess að margir sem ganga í gegnum mikið andlegt álag temja sér, jafnvel ómeðvitað, lífsmunstur sem ýtir undir hjarta- og æðasjúkdóma: lífsmunstur sem meðal annars felst í aukinni alkóhólneyslu, meiri reykingum, slæmum matarvenjum og minni hreyfingu. Ef hættulegt streituástand er til staðar þarf að berjast gegn því með öllum mögulegum ráðum, til dæmis með reglubundinni líkamsþjálfun og/eða með því að leggja stund á slökun og íhugun. MATSEÐILL DAGSINS Dagur 28 Morgunverður: Súrmjólk, létt 3 dl Sólblómafræ 1 msk. Allbran 2 msk. Rúsínur 1 msk. Hádegisverður: Fiskisúpa (s.s. Toro) 3 dl Brauð 2 sneiðar Létt viðbit 2 tsk. Gúrkur 100 g + Tómatur 1 stk. Miðdegisverður: Skyr 1 dós Banani 1 stk. Kvöldverður: Píta Pítubrauð 1 stk. Hakk 80 g Salat 100 g + Fetaostur 10teningar Pítusósa, létt 2 msk. Kvöldhressing: Vfnber 250 g (ca. 70 stk.) Helstu áhættuþættir hjarta og æðasjúkdóma eru: • reykingar. • háar blóðfitur (hátt LDL kólesteról; lágt HDL kólesteról).* • kynferði (karlar og konur - eftir að þær hafa hætt blæðingum). • háþrýstingur. • sykursýki. • erfðir. • offita (sérstaklega brjóst- og kviðfita). • hreyfingarleysi. • sístreita. • LDL þekkja margir sem „slæma" kólesterólið. Sumum kann að þykja auðveldara að muna það sem „L-leiðinlega" kólesterólið. HDL þekkja margir sem „góða" kólesterólið. Sumum kann að þykja auðveldara að muna það sem „H-hjálplega" kólesterólið. Ekkert stuðlar jafn sterkt að kransæða- og öðrum æðakölkunarsjúkdómum og reykingar. Eitt af mörgu neikvæðu sem reykingar hafa í för með sér er lækkun á HDL (hjálplega) kólesterólinu. Einnig eyðileggja reykingar beinlínis æðakerfið og hjartað með því að skemma æðaþelið og auka vinnuálag hjartans. Reykingar skerða súrefni sem hjartað þarf á að halda og trufla starfsemi blóðflagna svo að skaðleg blóðsegamyndun verður líklegri. Eiturefni í sígarettureyk eyðileggja háræðar og leggja grunninn að þrengingu slagæða. Bætt heilbrigði hjarta- og æðakerfis má greina hjá öllum aldurshópum innan eins árs eftir að reykingum hefur verið Kveðja, Ólafur G. Sæmundsson næringarfræðingur HReynnc ■

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.