Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2003, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003
11
DV
Útlönd
Bretar gera síðustu tilraun
til sátta í Öryggisráðinu í dag
Bretar munu í dag gera síðustu þrjátíu af vísindamönnum sinum leyfi -IflBjB sáttatilboðinu strax i gær og sö
Bretar munu í dag gera síðustu
tilraun til þess að ná sáttum í
Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna um
orðalag nýrrar sameiginlegrar tillögu
þríeykis Bandaríkjamanna, Breta og
Spánverja um nýja ályktun í íraks-
málinu, sem væntanlega verður lögð
fyrir ráðið til samþykktar á morgun.
Sáttatillaga um breytt orðalag til-
lögunnar, sem Bretar lögðu fram á
þriggja klukkustunda löngum fundi í
ráðinu í gær og gengur út á það að
írakar komi til móts við sex ný skil-
yrði til að forða frá stríði, hlaut
jákvæð viðbrögð fulltrúa rikjanna sex
sem enn eru óákveðin í afstöðu sinni,
en var aftur á móti hafnað af
Frökkum og Rússum.
Skilyrðin sex sem Bretar leggja til
eru í fyrsta lagi að Saddam lýsi því
yfir i sjónvarpsávarpi að Irakar eigi
gjöreyðingarvopn í fórum sínum og
lofi að aíhenda þau.
í öðru lagi gefi írösk stjórnvöld
þrjátíu af vísindamönnum sínum leyfi
til þess að ræða við vopnaeftirlits-
menn SÞ utan íraks.
I þriðja lagi að viðurkenna efna- og
sýklavopnaeign sína og afhenda þau
vopnaeftirlitinu eða að öðrum kosti
gera grein fyrir því hvað varð af
þeim.
I fjóröa lagi að koma til móts við
kröfu um að öllum ólöglegum stýri-
flaugum verði þegar eytt og í fimmta
lagi að gera grein fyrir fjarstýrðri
flugvél sem starfsmenn vopnaeftirlits-
ins uppgötvuðu nýlega í írak.
í sjötta og síðasta lagði að gera
grein fyrir öllum færanlegum efna- og
sýklavopnaverksmiðjum á hjólum.
Bandaríkjamenn eru ekkert yfir sig
hrifnir af þessu sáttaframlagi Breta og
hafa aðeins lýst því yfir að þeir séu
orðnir verulega -ergilegir yfir seina-
gangi málsins í Öryggisráðinu.
Sama er að segja um fulltrúa
Frakka og Rússa sem höfnuðu
Tony Blair
Tony Blair, forsætisráöherra Bret-
lands, leggur alla áherslu á aö ná
sáttum í Öryggisráöinu og segir aö
hernaöaraögeröir gegn írökum veröi
Bretum í hag.
sáttatilboðinu strax í gær og sögðu
það ekki gera annað en gefa grænt
Ijós á hernaðaraðgerðir þar sem
tillagan að nýrri ályktun stæði
óbreytt. Ákvörðun þeirra um að beita
neitunarvaldi í Öryggisráöinu stæði
því óbreytt.
Bresku sendifulltrúarnir segja að
skilyrðin yrðu ekki sett inn í texta
tillögunnar að nýrri ályktun heldur
aðeins lögð fram sem tillaga að mark-
miðum sem höfð yrðu til viðmiðunar
við afvopnun íraka.
Sáttatillaga Breta gerir heldur ekki
ráð fyrir því að frestur íraka til af-
vopnunar verði framlengdur en
tillaga þríeykisins gerir ráð fyrir því
að hann renni út þann 17. mars.
Fulltrúar í öryggisráðinu hafa
ákveðið að koma saman síðdegis í dag
þar sem gerð verði síðasta tilraun tO
sátta og er það von Breta að þar náist
samkomulag um aðeins lengri frest
íraka til afvopnunar.
Hamas-samtökin gagnrýna Yasser Arafat
fyrir nýtt embætti forsætisráðherra Palestínu
Palestinsku Hamas-samtökin hafa
gagnrýnt þá ákvörðun Yassers Ara-
fats um að deila völdum og stofna
embætti forsætisráðherra, sem sam-
þykkt var í palestínska þjóðþinginu
þegar það kom sama í Ramallah á
þriðjudaginn.
í yfirlýsingu sem samtökin sendu
frá sér í gær segir að með þessu sé
Arafat aðeins að koma til móts við
þrýsting Bandarikjamanna og síon-
ista og segja nýja stöðu forsætisráð-
herra aðeins ætlaða til þess að veikja
frelsisbaráttu palestinsku þjóðarinn-
ar.
Yfirlýsing Hamas-samtakanna
barst eftir að Arafat hafði fundað með
helstu pólitísku leiðtogum Fatah-
hreyfmgarinnar i gær um væntanleg-
ar stjómsýslubreytingar.
Aftur í faðml fjölskyldunnar
Hin 15 ára Elizabeth Smart aftur
komin heim, 9 mánuöum eftir rán.
Fannst lifandi 9 mánuð-
um eftip mannrán
Elizabeth Smart, fimmtán ára
stúlka frá Utah sem var rænt af
heimili sínu fyrir níu mánuðum,
fannst heil á húfi í gær. Foreldr-
ar hennar, sem gáfu aldrei upp
vonina, kölluðu þetta kraftaverk.
Elizabeth, sem var með hvíta
blæju þegar lögreglan fann hana,
sneri aftur í faðm fjölskyldunnar
á lögreglustöð í Salt Lake City.
Laganna verðir handtóku götu-
predikara að nafni Briad David
Mitchell og konu sem var með
honum. Mitchell þessi hafði unn-
ið aðeins fyrir föður Elizabethar.
„Ég vissi alltaf innra með mér
að hún væri einhvers staðar
þarna. Ég er viss um að þetta hef-
ur verið helvíti líkast fyrir
hana,“ sagði Ed Smart, faðir
stúlkunnar.
Elizabeth fannst í bíl í bænum
Sandy, um 24 kílómetra frá Salt
Lake City, eftir að lögreglan hafði
fengið vísbendingar um götupre-
dikarann sem hún hafði leitað að.
Talsmaður fjölskyldunnar sagði
að mannræningjarnir tveir hefðu
aldrei látið Elizabeth úr augsýn
og því hefði hún ekki getað flúið.
_ ... I
REUTERSMYND
Prinsinn hrærir í karamellupottunum
Karl Bretaprins brosti breitt þegar hann hræröi í karamellupottum í Kara-
mellubúðjnni í Penrith í Cumbriu. Ekki er víst aö brosiö veröi jafnbreitt í dag
þegar skýrsla um ósóma meöal starfsliös hans veröur gerö oþinber.
IMeita að Osama bin Laden
hafi verið handsamaður
s fc | j
Pakistönsk stjórn-
völd vísuðu í gær á
bug staðhæfingum
þarlends stjórnmála-
manns um að hryðju-
verkaforinginn
Osama bin Laden
hefði verið hand-
samaður. Bandarísk
stjórnvöld tóku í
sama streng.
Ráðamenn vestra
sögðust ekki hafa
neinar upplýsingar
sem styddu fullyrð-
ingu pakistanska
stjórnmálamannsins
sem var upphaflega
Ekki fundinn enn
Fréttir af handtöku Osama
bin Ladens bornar til baka.
CIA segir að leitin
að bin Laden líkist
meira því að afhýða
lauk en eltingaleik í
sjónvarpi þar sem
allt gerist á örskots-
stundu.
„Það er erfltt að
finna einstakan
mann, jafnvel í
þessu landi,“ segir
Donald Kerr hjá
CIA.
Sérfræðingar telja
að bin Laden sé um-
kringdur lífvörðum
sem nær örugglega
hafi fengið fyrirskip-
flutt á íranskri útvarpsstöð. anir um að drepa hann áður en
Yflrmaður tæknideildar hægt væri að handtaka hann.
bandarísku leyniþjónustunnar
Búnaðarbanki Islands hf.
Aðalfundur
2003
Súlnasal Hótel Sögu
laugardaginn 22. mars kl. 14.00
1 Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans
síðastliðið starfsár.
2 Ársreikningur og skýrsla bankastjórnar
fyrir liðið starfsár, ásamt skýrslu endur-
skoðanda, lagðar fram.
3 Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð
hagnaðar á síðastliðnu reikningsári.
4 Tillögur til breytinga á samþykktum
Búnaðarbanka (slands hf. sem leiða
af lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.
5 Kosning bankaráðs.
6 Kosning endurskoðanda.
7 Ákvörðun um þóknun til bankaráðsmanna.
8 Tillaga um heimild bankaráðs til kaupa
á eigin hlutum í bankanum.
9 Tillaga um sameiningu Landbúnaðarsjóðs
Búnaðarbanka íslands hf.við Menningar-
og styrktarsjóð Búnaðarbanka íslands hf.
10 Tillaga um framlag í Menningar- og styrktar-
sjóð Búnaðarbanka íslands hf.
11 Önnur mál.
Fundargögn liggja frammi á skrifstofu
bankastjómar, Austurstræti 5, Reykjavík.
BUNAÐARBANKINN
-Traustur banki