Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2003, Page 8
8
FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003
Fréttir
DV
DVA1YNDIR GVA
Glufur myndast
Hér eru þeir Ingólfur Hartvigsson, framkvæmdastjóri Hallgrímskirkju, Jóhannes Pálmason, formaður sóknarnefndar,
og sóknarprestur Hallgrímskirkju, séra Sigurður Pálsson. Á veggnum mátti sjá hvarglufur eru að myndast,
viðgerð má ekki dragast.
Hallgrímskirkja er enn í byggingu og gífuriega fjármuni þarf til viðgerða:
178 milliónir í turninn
HaUgrímskirkja á Skólavörðu-
holti er enn í byggingu meira en
hálfri öld eftir að bygging henn-
ar hófst. Og kirkjan þarf ekki að-
eins venjubundið viðhald á
hverju ári sem kostar nokkrar
milljónir heldur standa fyrir dyr-
um meiri háttar viðgerðir á
steinsteypu á miðhluta kirkju-
tumsins. Þar er steypa víða orð-
in morkin og holur og rifur að
myndast í múrinn en á syllum
má greina mosa og skófir. Það
verður að grípa til ráðstafana
strax, þannig að skemmdirnar
breiðist ekki út og verði illvið-
ráðanlegar á þessu þekkta kenni-
leiti Reykjavíkur. Kostnaður við
þessa steypuviðgerð er áætlaður
178 milljónir króna og því veru-
lega hærri en DV greindi frá í
frétt í blaðinu í gær.
Gestkvæmt í kirkjunni
DV hitti í gær að máli þá Jó-
hannes Pálmason, formann
sóknarnefndar síðasta áratug-
inn, Ingólf Hartvigsson guðfræð-
ing, sem er framkvæmdastjóri
kirkjunnar, og séra Sigurð Páls-
Jesús Kristur
Verk Einars Jónssonar prýðir Hallgríms-
kirkju. iikneskið gaf hann kirkjunni 1948.
Verkið er skemmt eftir að maður réöst á
styttuna fyrir mörgum árum og velti
henni, verkið var sent í viðgerð en nú eru ■
skemmdir aftur að koma í Ijós.
son sóknarprest. Það er hryss-
ingslegur marsmorgunn, hlýir
vindar leika um kirkjuna, þetta
gríðarlega bákn. Innandyra er
mikið um að vera, þar hljómar
fögur kirkjutónlist frá hinu
mikla orgeli kirkjunnar, efnileg-
ur nemandi að leika fyrir Hörð
Áskelsson, söngstjóra kirkjunn-
ar. Útlendingar sitja tímum sam-
an og hlusta meðan aðrir skoða
kirkjuna.
Hallgrímskirkja er eitt af fáum
stórum mannvirkjum á íslandi
sem laðar að gesti okkar. Ekkert á
landi hér mun vera ljósmyndað
annað eins og einmitt kirkjan sem
starfað hefur í rúma tvo áratugi í
hinu mikla kirkjuskipi en áratug-
um saman var kórinn einn og sér
látinn duga fyrir kirkjuathafnir.
Könnun leiðir í ljós að í kirkjuna
koma um 700 gestir á dag í júlí-
mánuði og gestakomum fjölgar.
En stórhýsi af þessari gráðu
þarf mikið viðhald og svo virðist
sem steinsteypa 7. og 8. áratugar-
ins hafi verið gölluð. Steypu-
skemmdir eru áberandi á húsinu.
Efsti hluti kirkjuturnsins var við-
Ertu meö
Psoriasis?
Á Húölæknastöðinni, Smáratorgi 1 er verið að
framkvæma klíníska rannsókn á nýju rannsóknarlyfi
viö meðferð á sóra. Rannsóknin hefur verið samþykkt
af Vísindasiðanefnd, Lyfjastofnun og Persónuvernd.
Húðsjúkdómalæknar á Húðlæknastöðinni leita að einstaklingum,
konum og körlum á aldrinum 18-70 ára með langvarandi
skellusóra (Psoriasis) sem ekki hafa áður svarað útvortis
lyfjameðferð og vilja taka þátt í rannsókninni.
Tilgangur rannsóknarinnar er að meta öryggi, þol, lyfjafræðilega
eiginleika (hvernig lyf kemst í og fer úr blóörás og vefjum yfir
ákveðinn tíma) og Iíffræöilega virkni (áhrif lyfsins á sjúkdóm-
inn) rannsóknarlyfsins í tveimur mismunandi styrkjum hjá
sjúklingum með langvarandi skellusóra.
Uppfyllir þú þátttökuskilyrði verðir þú beðinn um að taka þátt
í rannsókninni i u.þ.b. 26 vikur. Húðsjúkdómalæknirinn mun
veita nánari útskýringar á tilhögun rannsóknarinnar og upp-
lýsingar um rannsóknarlyfið.
Hefur þú áhuga?
Haföu þú samband
við Húölœknastööina
í síma
894 9916
eðo
664 9910
og fóðu núnari
upplýsingar hjó
hjúkrunarfrœöingum
rannsóknarinnar.
Húðlæknastöðin, Smáratorgi 1
Hurðin rammgeröa
Gamla hurðin á kirkjunni er traust að sjá en heldur Ijót. Bronshurð og tilheyr-
andi búnaður kemur í hennar stað á næstu árum, stærri og hærri en sú
gamla. Á þessari hlið kirkjunnar eru skemmdir augljósar og eiga eftir að fær-
ast í aukana á næstu árum verði ekki griþið í taumana.
gerður á 9. áratugn-
um og báðir hliðar-
vængirnir og skoði
menn turninn má
sjá glögg litaskil
milli viðgerða hlut-
ans og þess sem nú
þarf að gera við. Þá
hefur kirkjulóðin
verið lagfærð svo
sómi er að en lengi
vel var hún ekki
annað en urð og
grjót.
Hálfur milljarð-
ur í breytingar
og bætur
Jóhannes Pálma-
son segir að fram-
kvæmdaáætlun sem
gildir til ársins 2005
geri ráð fyrir við-
gerð á miðjunni á
turninum upp úr og
niður úr. Hann seg-
ir að veruleg
áhætta sé tekin ef
viðgerð verður
dregin á langinn.
Hún þarf að fara
fram á einu sumri.
Þegar gengið er
inn í Hallgríms-
kirkju vekur athygli þunglamaleg
kirkjuhurðin, sem er ekki beinlín-
is merkileg smíð þótt traust sé. Á
framkvæmdaáætlun næstu ára er
að ný og samboðin hurð komi á
kirkuna. Hún verður hærri og
breiðari en núverandi bráða-
birgðahurð. Leifur Breiðfjörð hef-
ur séð um listræna hönnun hurð-
arinnar og gerð hennar. Verður
hún steypt í brons. Uppsetningin
kostar mikið fé ásamt nauðsynleg-
um opnunarbúnaði sem verður
komið fyrir í kjallara turnsins
undir hurðinni. Kostnaöur við
þetta verk er áætlaður 22 milljón-
ir króna.
í kirkjunni er talsvert óinnrétt-
Skemmdir stallar
Hér eru alþekktir stallar sem eru láréttir að ofan og
safna miklum raka og eru því útsettir fyrir steypu-
skemmdir.
að rými og stefnt að því að nýta
það. í kirkjuskipinu er meiningin
að unnið verði við að setja upp
neyðarlýsingu að kröfu Eldvama-
eftirlitsins, neyðarútgang þarf að
setja á miðju kirkjuskipi, suður-
hlið og norðurhlið. Ekkert loft-
ræstikerfi er i kirkjuskipinu og
það kemur fyrir að kalt er í kirkj-
unni. Gert er ráð fyrir 30 milljón-
um króna í nýtt kerfi.
í ár er stefnt að því að verja
126,8 milljónum til framkvæmda
við Hallgrímskirkju, á næsta ári
139,1 milljón og árið 2005 184 millj-
ónum króna, eða hátt í hálfum
milljarði á þrem árum. -JBP