Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2003, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2003, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 Innkaup DV Gettu betur í sjónvarpinu í kvöld - undanúrslit: Sömu menn og í fyrra - sami stað- ur. DV í heimsókn hjá MR-liðinu í Gettu betur, þeim Snæbirni Guð- mundssyni, Oddi Ástráðssyni og Atla Frey Steinþórssyni. Helgi H. Guðmundsson er liðsstjóri og vara- maöur. Æfing aö hefjast heima hjá Snæbirni. Aðeins fjögur lið eftir og spennan eykst. „Viö höfum engu gleymt og komum ferskir í undanúr- slitin," fullyrða þeir félagar. Þeir eru allir á þriðja ári í Menntaskólanum í Reykjavík og sjálfkjömir fulltrúar hans í keppn- inni, enda stimpluðu þeir sig ræki- lega inn í fyrra sem sigurvegarar. Segja það reglu í sumum skólmn að hafa próf á haustin og varpa efstu mönnum úr því inn í keppnisliðið, án tillits til reynslu. „Það er svipað og að sitja í ríkisstjóm sem alltaf væri borið fram vantraust á í upp- hafi hvers þings,“ segja þeir og finnst það greinilega ekki mjög gáfu- legt. Oddur og Snæbjöm vom liðs- stjórar í hittifyrra þótt þeir sæjust ekki á skjánum svo þeir eru að „vasast í þessu þriðja árið í röð“, eins og þeir orða það. Búast þeir við að standa í þessu að minnsta kosti ár í viðbót og jafnvel halda utan um arftakana. „Þetta snýst um að halda hefðunum við og koma reynslunni áfram til nýrra þátttakenda,“ segja þeir. Þið eruð þá eðlilegir Nú hefur MR unnið Gettu betur 10 sinnum í röð og þótt enginn efist um gáfur keppendanna velta ýmsir því fyrir sér hvort þeir séu á laun- um frá skólanum og æfi kannski á sumrin líka. Þessar getgátur kann- ast þeir félagar við. „Viö erum oft spurðir að þessu. Meira að segja hittum við rektorinn okkar á fórn- um vegi og spurði hann hálfá- hyggjufullur: „Hvemig er það, æfið þið allt árið, strákar?" Honum létti þegar svo var ekki. „Það er gott,“ sagði hann. „Þið eruð þá eðlilegir.“ Sannleikurinn er sá að við höfum vikulegar æfingar framan af vetri og þéttum þær þegar keppnistíma- bilið hefst. En fimm mánuði á árinu hugsum við ekki um keppnina og vinnum á sumrin eins og hverjir aðrir. Laun fyrir keppnina eru þau verðlaun sem veitt eru en það eina sem við fáum frá skólanum er frí á keppnisdaginn og ókeypis pitsur á æfingum frá skólafélaginu. í sumum skólum hafa liðin frjálsa mætingu í tíma en þannig hefur það aldrei ver- ið í MR.“ Þeir neita því ekki að pitsur séu að veröa hversdagslegar. „Þegar maöur er svangur þá er þetta ágætt,“ segja þeir og gera lítið úr því að þeir þurfi að halda sér í lík- amlegu formi. „Aðalatriðið er að missa sig ekki í ein- hverja vitleysu. Ekki djamma of mikið heldur reyna að sofa og borða vel.“ Spurðir um sinn andlega leið- toga, nefna þeir þjálfarann, Sverri Teitsson. „Sverrir er okkar erkiklerk- ur - þó hann sé krati!“ Það kemur í ljós að allir hafa þeir ákveðnar skoö- anir í pólitík, bæði til hægri og vinstri, og Snæbjörn er meira að segja í framboði í vor í Reykjavík suður, fyrir Vinstri græna. Segja þeir þó mismunandi skoðanir í stjórnmál- um ekki hafa áhrif á vinskapinn. Snobbhænur og hrokagikkir Þeir félagar eru ánægðir með gamla MR-inginn Svein Guðmars- son sem dómara en fmnst spuming- amar hafa verið ótrúlega léttar hjá honum í síöustu keppnum. Búast þeir við að það breytist í undanúr- slitunum og segja skemmtilegast þegar einhver vinna liggi bak við svarið. En hafa þeir spáð í áherslur Atli, Hörkulið Oddur, Helgi liösstjóri og Snæbjörn segjast DV-MYND SIG. JOKULL koma ferskir í undanúrslitin. Sveins? „Við höfum ekkert fest okk- ur í guðfræðinni þótt hann sé í þeirri deild og höfum heldur ekki kafað djúpt í Tinna sem hann virð- ist hafa mikinn áhuga á,“ segja þeir sallarólegir. Þeir hlakka til að fara til Akureyrar að keppa og Oddur, sem á systur í MA, er að hugsa um aö dvelja þar fram á sunnudag. Spurður hvort ekki verði erfitt fyrir systur hans að velja með hverjum hún eigi aö halda svarar hann viss: „Nei, hún veit það vel.“ MR-liðið hefur verið sigursælt í fleiri keppnum framhaldsskólanna. Atli Freyr sigraði í þýskukeppni í fyrra og ferðaðist um Þýskaland í mánuð í fyrrasumar en fær ekki að fara núna þótt hann hafi unnið aft- ur. MR á líka sigurvegarana í ár í eðlisfræði og efnafræði og ljóða- keppni í frönsku. „MR-ingar reyna að vinna allt sem að kjafti kemur enda erum við taldir miklar snobb- hænur og hrokagikkir og gerum í að láta fólk halda að svo sé,“ segja þeir og halda áfram: „En þetta er bara keppnisskap og skemmtun og það er ekki til neins að taka þátt í keppni ef maður hefur ekki gaman af því. A.uövitað vilja svo allir vera sér og sínum skóla til sóma.“ -Gun. Höhniengu gteymt - segja MR-ingarnir Mæta þrautþjálfaöir til leiks: Gonef við sáum vjttausir -ingar halda að - segja MA-ingarnir léttlyndir Bjartsýnir Halldór, Bjarni og Benedikt segja tímabært aó landa sigri fyrir noröan. Það var létt yfir liði MA þegar blaðamaður DV kíkti inn á æfingu á þriðjudaginn í stofu H1 í nýbygg- ingu Menntaskólans á Akureyri. Þeir Halldór Brynjar Halldórson, Benedikt Reynisson og Bjami Jósep Steindórsson sátu einbeittir á svip yfir bókunum meðan þjálfarinn, Einar Sigtryggson, gekk um gólf eins og þaulvanur fótboltaþjálfari, tilbúinn að kalla nýjar skipanir inn á leikvöllinn af hliðarlínunni. Alls voru átta manns mættir á hina dag- legu æfingu sem hefst klukkan fjög- ur. Auk liðsins og þjálfarans voru það liðsstjórinn, Elmar Geir, sem gengur undir nafninu E1 Margeir, og þrír aðstoðarmenn liðsins, þau Sinnep, Flosi og Tryggvi. Eitthvað fannst blaðamanni nafngiftir að- stoðarmannanna undarlegar og þeg- ar hann innti liðið eftir því hvemig stúlkurnar tvær hefðu fengið nöfn- in Sinnep og Flosi hófst einhver sú langsóttasta útskýring sem gefin hefur verið norðan Alpafjalla þannig að hún er varla til þess hæf að vera höfð hér eftir, enda með öllu óskiljanleg. Rétt nöfn á stúlk- unum fengust því ekki. i tveimur bolum Aðspurðir hvort liðið stundaði einhverjar þolæfingar yfir keppnistímabilið svöruðu þeir kapparnir neitandi en Einar þjálfari viðurkenndi að hafa einu sinni skipað þeim að taka göngutúr í kringum skólann, enda hefðu þeir verið orðnir „steiktir" í hausnum eftir langa æfingu og famir að bulla full- mikið, að hans sögn. Það fer ekki mikið fyrir hjátrúnni hjá liðinu en alltaf leynist smásérviska inn á milli. „Ég fór óvart í tvo boli í fyrstu keppnina, síðan hef ég alltaf haldið því. Ég lagði mig nefnilega fyrir keppnina og þeg- ar ég vaknaði klæddi ég mig. Það var ekki fyrr en ég kom heim að ég áttaði mig á því að ég hafði farið í bol yfir bol,“ segir Bjami en aðrir meðlimir vildu ekki gefa upp hvaða hjátrú þeir hefðu, enda skoöun þjálfarans að ef menn gæfu hana upp myndi hún örugglega hætta aö virka. Þetta eru grúpppíur Menntaskólinn á Akureyri hef- ur unnið spurningakeppnina tvisvar sinnum. „Við erum rétt á hælum MR-inga,“ segir Halldór brosandi, vitandi það að langt er í land fyrir MA að nálgast 11 sigra MR-inga. Sigramir tveir unnust á árunum 1991 og 1992 og því kom- inn tími til að landa titlinum aftur norður, að mati keppenda MA í ár og örugglega margra fleiri. En hvers konar týpur gerast að- stoðarmenn í spurningaliði? „Þetta eru grúppíur," segir liðs- stjórinn E1 Margeir sposkur á svip, en þegar blaðamaður spyr hann hvað sé þá með karlmann- inn í aðstoðarmannahópnum bæt- ir hann við: „Hann er grúppía hjá grúppíunum." Þá vitum við það. Skipulagt lið Greinilegt er að það er létt yfir æfingunum og erfitt að fá hópinn til að svara einhverjum spurning- um af viti. „Það er ágætt ef MR- ingarnir halda að viö séum vit- lausir,“ segir Einar og sú hugsun bærir á sér hjá blaðamanni að þetta geti verið taktík sem hann hafi sett upp áður en viðtalið hófst. En hvernig sem fer í kvöld er ljóst að hér er um geysisterkt og skipulagt lið að ræða sem ætlar sér stóra hluti og ef þeir félagar gerast ekki sigurvegarar þetta árið þá mæta þeir bara tvíefldir að ári, enda enginn þeirra að útskrif- ast frá skólanum í vor. -ÆD

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.