Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2003, Page 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003
Fréttir
DV
Er gjaldþrotahrina fram undan í kjötiönaöi?
Segja ástandiö aðeins
vena toppinn á ísjakanum
Gjaldþrot kjúklingabúsins ís-
landsfugls í Dalvíkurbyggð þykir
endurspegla ástandið sem ríki á
öllum kjötmarkaði í landinu, ekki
bara í kjúklingaframleiðslu. Við-
búið er að verði ekkert gert í mál-
inu, sem ekki er í sjónmáli, munu
fleiri gjaldþrot fylgja í kjölfarið.
Það þykir mörgum dæmigert um
úrræðaleysið að málið skyldi
ekki koma til umræðu á nýaf-
stöðnu Búnaðarþingi fyrr en á
síðasta degi þess.
Jónatan Svavarsson, fram-
kvæmdastjóri kjúklingabúsins
Reykjagarðs, segir að ástandið í
dag sé aðeins toppurinn á ísjak-
anum í vanda allrar kjötfram-
leiðslu í landinu. Sala undir
kostnaðarverði gangi ekki, en hjá
Reykjagarði hafi verið hagrætt
mjög harkalega, farið í endur-
skipulagningu og uppsagnir á
starfsfólki en það nægi ekki al-
mennilega til þess að halda skút-
unni á floti.
„Við höfum haft það grundvall-
arsjónarmið að selja ekki undir
kostnaðarverði, en við erum með
mikla fjárbindingu í eldishúsum,
stofnahúsum, sláturhúsum og
vinnslu og það þarf umtalsverðar
tekjur til þess aö standa undir
framlegð. Það eru allir að tapa á
ástandinu, bæði í kjúklingum og
öðrum kjötgreinum. Á svona
markaði þarf að vera ákveðinn
fjöldi framleiðenda til þess að
samkeppnin sé virk. Það er eng-
um gerður greiði með því að
koma hér á fákeppni, við stönd-
um okkur alls ekki betur þannig.
Fjárfestingar eru í mörgum til-
fellum alveg út í hött, við höfum
fjárfest eins og við séum milljóna-
þjóð. Þar liggur meira vandinn,
við erum að súpa seyðið af
ákvörðunum sem voru teknar
fyrir alllöngu síðan, og menn
ekki viljað horfast í augu við. Það
er búið að fleyta þessum fyrir-
tækjum áfram, sumum með mörg
hundruð milljón króna neikvætt
eigið fé. Það gengur ekki upp. Því
lengur sem það er dregið að
horfast í augu við staðreyndir,
því sárari verður aðgeröin og
skellurinn harðari," segir Jónat-
an Svavarsson.
- Þurfa Bændasamtökin eða
önnur hagsmunasamtök að beita
sér af hörku í þessu máli?
„Menn sem hafa mikilla hags-
muna að gæta þurfa að beita sér,
og það innan tíðar. Bændasamtök-
in eiga erfitt um vik ef þau þurfa
að beita sér gegn ákveðnum aðil-
um, kannski leysist vandinn eftir
markaðslögmálum. Það verður
emhver „tiltekt" á markaðnum og
menn munu átta sig á því að ekki
gengur að eyða peningum sem
ekki er aflað. Markaðurinn þolir
ekki aðra svona „krísu“, segir
Jónatan Svavarsson, fram-
kvæmdastjóri Reykjagarðs. -GG
Dauftan fugl rek-
up á Böggvis-
staðasandi
Mikið af dauðum fugli hefur
fundist á Böggvisstaðasandi við
Dalvík undanfarna daga, og
hefur göngufólk kvartað mjög
undan því. Starfsmenn Steypu-
stöövarinnar hreinsuðu til í
íjörunni fyrir helgina og skiptu
fuglshræin nokkrum hundruð-
um. Dánarorsök fuglanna ligg-
ur ekki fyrir en margir hverjir
eru ákaflega horaðir og ræfils-
legir.
Samkvæmt heimildum DV
koma svona tilvik oft upp og
telja fuglafræðingar líklegustu
skýringuna snögga breytingu á
fæðu. A síðasta ári rak talsvert
mikið af dauðum fugli á
Böggvisstaðasandi skömmu eft-
ir áramótin. -HIÁ
Mislukkað innbpot
Tilraun var gerð til að bijótast
inn i apótek á Rauðarárstíg í nótt.
Var þar reynt að spenna upp
glugga, en þeim sem þar voru að
verki tókst ekki aö komast inn og
hurfu því af vettvangi. Einhverjar
skemmdir urðu á gluggaumbúnaði
við þessa innbrotstilraun. -HKr.
Hiti um allt land
Ekkert lát er á hlýindum á
landinu þegar tveir dagar eru til
vorfjafndægra.
Víða var átta stiga hiti í byggð’
á sjötta tímanum í morgun og má
búast við sumarhlýju víða á
landinu í dag. Á Hveravöllum var
súld i nótt og 2 stiga hiti. -HKr.
DVA1YND HALLDÓR INGI ÁSGEIRSSON
Fuglshræln
Þorsteinn Benediktsson og Magnús Jónsson, starfsmenn Steypustöövarinnar, nýbúnir aö hreinsa upp hræin.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði um erfiða stöðu í leikskólanum í Áslandi:
Utilokar ekki yflrtöku
„Ég vil ekki útiloka að Hafnar-
fjarðarbær taki yfir rekstur leik-
skólans ef um það næst samkomu-
lag,“ sagði Lúðvík Geirson, bæjar-
stjóri í Hafnarfirði, um þá stöðu
sem komin er upp í leikskólanum
í Áslandi í Hafnarfirði. Þar hafa
skólastjóri og aðstoðarskólastjóri
sagt upp störfum vegna sam-
starfsörðugleika við Sunitu Gand-
hi sem áður var framkvæmda-
stjóri við grunnskólann Áslands-
skóla í Hafnarfirði. íslensku
menntasamtökin reka umræddan
leikskóla. Hætta starfsmennimir
tveir 1. júní næstkomandi ef mál-
ið hefur ekki verið leyst þá.
Þetta mál fór af stað með þeim
hætti að foreldrafélag barna í leik-
skólanumÝ rituðu bæjaryfirvöld-
um bréf og óskuðu eftir því að
Hafnarfj arðarbær yfirtæki rekst-
ur skólans.
Lúðvík Geirsson sagði að málið
væri nú á borði leikskólanefndar
og fræðsluráðs. Það væri í hönd-
um fræðslustjóra að fylgja því eft-
ir. Menn heföu vissulega áhyggjur
af þeirri stöðu sem upp væri kom-
in.
„Við berum vissulega skyldur
og ábyrgð í málinu," sagði Lúðvík,
sem sagði að fyrirhugaðar væru
viðræður við Sunitu í kjölfar þess
óöryggis sem komið væri upp í
leikskólastarfinu.
Sunita er nú framkvæmdastjóri
umrædds leikskóla en þar eru yfir
100 böm. Bréf foreldra hefur þeg-
ar verið tekið fyrir í leikskóla-
nefnd bæjarins. Fundur bæjaryfir-
valda með Sunitu verður væntan-
lega á næstu dögum en hún hefur
verið erlendis. -JSS
Grjótkast á sendiráð
Bandaríkjanna
Ræða Bandaríkjaforseta síöast-
liðna nótt um að gefa Saddam
Hussein íraksforseta 48 stunda
frest til að yfirgefa landið og fara í
útlegð virðist hafa farið misvel í ís-
lendinga. Þannig tók maður sem
setið hafði að sumbli í miðborginni
sig til og mótmælti yfirvofandi að-
gerðum Bandaríkjamanna með því
að hefja árás með grjótkasti á
sendiráð þeirra við Laufásveg. Ör-
yggisverðir á staðnum brugðust
skjótt við og handsömuðu mann-
inn. Var lögregla kölluð á staðinn
klukkan 1.45 i nótt og tók manninn
í sína vörslu en sleppti honum að
loknu tiltali. Engar skemmdir urðu
á sendiráðinu. -HKr.
Flensufaraldur:
Leggstfypst og
fpemst á böpn
og unglinga
Flensa af B-stofni herjar nú á
landsmenn. Sigurður Guðmunds-
son, yfirlæknir Heilsugæslunnar í
Hvammi í Kópavogi, segir að
margir séu veikir, en fyrst og
fremst virðist flensan leggjast á
börn og unglinga, hvað svo sem
veldur. Sigurður segir ekki nein
sérstök lyf vera gefin við flens-
unni, fyrst og fremst gildi að fara
vel með sig. Flensan hefur dreifst
um allt land.
Töluvert hefur verið að gera í
lyfjabúðum síðustu dægur vegna
flensu sem er að ganga. Flensan er
þó ekki skæðari en undanfarin ár,
liggur þó fólk yfirleitt ekki skemur
en í 5 til 7 daga. Lyfjafræðingur í
Lyfju við Smáratorg í Kópavogi seg-
ir að þetta sé meiri aðsókn en venju-
lega en þessi tími sé hefðbundinn
„flensutími" og í gangi séu alls kon-
ar umgangspestir og „krakkapestir".
Aðallega er fólk að sækja sýklalyf,
hóstamixtúrur og hálstöflur. -GG
Lést af slysförum
Pilturinn
sem fannst
látinn við
Húsavikur-
höfða á
sunnudag hét
Haukur
Böðvarsson.
Haukur var
16 ára, fædd-
ur 1. júní
1986. Hann
bjó í foreldrahúsum að Bald-
ursbrekku 6 á Húsavík. Hann
var nemandi við Framhalds-
skólann á Húsavík. Talið er að
Haukur hafi látist af slysforum.
Haukur
Böövarsson.
Stuttar fréttir
íslendingar taldir
Stefanía Reinhardsdóttir Khali-
feh, aðalræðismaður íslands í
Jórdaníu, telur að rúmlega 20 ís-
lendingar kunni að vera í staddir
í nágrenni við hugsanleg átaka-
svæði yfirvofandi stríðs í Irak. Ut-
anríkisráðuneytið vinnur nú að
talningu þeirra. Nokkrir tugir is-
lendinga hafa verið að störfum á
svæðinu fyrir flugfélagið Atlanta
en þeir munu flestir vera farnir
eða í þann mund að yfirgefa svæð-
ið. mbl.is greindi frá.
Flugvélaeldsneyti komið
Flugvélaeldsneyti var flutt til
landsins um helgina. Um nokk-
urra vikna skeið hefur verið
skortur á slíku bensíni eftir að
upp komst að birgðir hérlendis
uppfylltu ekki gæðakröfur.
Deilt um bruna í Hafinu
Síldarvinnslan í Neskaupstað
hefur stefnt Sögn ehf. og Trygg-
ingamiðstöðinni vegna 76 millj-
óna tjóns sem varð í eldsvoða í
desember 2001. Tjónið varð þegar
verið var að kvikmynda eldsvoða
fyrir kvikmyndina Hafið. Deilt er
um hvort þarna hafi brunnið
„kvikmyndaver" eða frystihús.
mblis sagði frá.
Vilja banna bensínflutning
Bæjarráð Akraness skorar á
dómsmálaráðherra að banna elds-
neytisflutninga um Hvalfiaröar-
göng. Sama viðhorf mun uppi í
Borgarbyggð.
Atvinnuleysi í hámarki
Atvinnuleysi
mælist nú rétt yfir
4% og hefur að
mati Gissurar Pét-
urssonar, forstjóra
Vinnumálastofn-
unar, að líkindum
náð hámarki.
Hann telur að at-
vinnuástand muni fara batnandi
á næstu vikum. Atvinnuleysi hef-
ur ekki verið meira í nærri sjö ár
en árið 1996 mældist það að með-
altali 4,4%. Um liðin mánamót
voru 6.212 manns skráð atvinnu-
laus hérlendis. mbl.is greindi frá.
-aþ