Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2003, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2003, Blaðsíða 29
ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 29 Sharpe með Grindavík Enski knattspymumaður- inn Lee Sharpe hefur ákveð- ið að leika með Grindvíking- um í sumar en hann var hér á landi á dögunum að kynna sér aðstæður. Á heimasíðu Grindavíkur er haft eftir kappanum að hann sé fullur tilhlökkunar fyrir sumariö og hafi litist mjög vel á að- stæður. Ennfremur segir hann að staða knattspym- unnar hér á landi hafi kom- ið sér á óvart. -PS Rajpostur: dvsport@dv.is Enska knattspyrnan: Beckham alltof dýr Forseti Inter Milan, Massimo Moratti, hefur neitað því að liðið sé að íhuga tilboð i David Beckham, leikmann Man. Utd og fyrirliða landsliðsins. Það hafa verið uppi sögusagnir um að Inter sé á leiðinni með tilboð í kappann en Moratti vísar þessum fréttum á bug og segir að Beckham sé allt of dýr og að félagið myndi aldrei hafa efni á að kaupa hann og borga honum þau laun sem þarf. „Þetta er frábær leikmaður en alltof dýr,“ segir Moratti. Hann neit- aði jafnframt þeim sögusögnum að Ronaldo væri á leið til félagms en Ronaldo sagði í síðustu viku að hann myndi íhuga að leika aftur með Milan ef Hector Cuper, þjálfari liðsins, færi. „Þetta er ekki rétt. Ronaldo er í Madrid og er fmn þar. Ég efast um að hann leiki aftur í Int- er,“ sagði Moratti. -PS Enska liðið Reading: Biður West Ham afsökunar Enska 1. deildar liðið Reading hefur beðið forsvarsmenn West Ham afsökunar vegna þess að forsvarsmenn Reading létu hafa eftir sér í fjölmiðlum að þeir vildu fá Paulo Di Canio að láni það sem eftir lifði tímabils en leikmaðurinn er nýkominn til æfinga hjá West Ham eftir að hafa farið í aðgerð í Bologna á Ítalíu. West Ham neitaði beiðni Reading Stjórnarformaður Rea- ding, sem nú á í harðri baráttu við að tryggja sér sæti í umspili til að komast i úrvalsdeildina, sagði að Di Canio væri leikmað- urinn sem liðið vantaði til að tryggja sér þetta sæti. Di Canio hefur verið ósáttur við að West Ham hefur ekki viljað skrifa undir nýjan samning við hann en núverandi samningiu- hans rennur út í sumar. -PS nbúiinað spBa frítt Fabrizio Ravanelli segir að hann sé jaíhvel að spila án endurgjalds allt næsta tímabil til að hjálpa félag- inu sínu Derby County í þeim fjár- hagskröggum sem félagið er í en Derby hefur þurft að selja sína bestu leikmenn vegna fjárskorts. Það hefur gert það að verkum að fé- lagið er einnig að berjast fyrir lífi sínu knattspymulega séð og er að- eins tveimur sætum frá fallsæti. -PS Sigrar hjá Hewitt og Clijsters Lleyton Hewitt og Kim Klijsters sigruöu á alþjóðlegu bandarísku tennismóti sem lauk f Kaliforníu f Bandarfkjunum í fyrrinótt. Hewitt, sem situr í efsta sæti í karlaflokki á styrkleikalista alþjóöa tennissambandsins, vann Gustavo Kuerten örugglega, 6-1 og 6-1, og fékk fyrir þaö 400 þúsund dollara. Belgíska stúlkan Kim Klijster vann Lindsay Davenport í úrslitum, 6-4 og 7-5. Reuters Skotarnin saman í viku - íslenski hópurinn hittist í Glasgow þremur dögum fyrir leikinn Tveir leikmenn úr íslenska landsliðshópnum, sem valdir voru fyrir leikinn gegn Skotum í Glas- gow um aðra helgi, eiga við smá- vægileg meiðsli að stríða. Jóhann- es Karl Guðjónsson meiddist lítil- lega á ökkla á æfingu hjá Aston Villa fyrir helgina og Arnar Grét- arsson fékk spark í löppina í leik með Lokeren um helgina. Atli Eð- valdsson landsliðsþjálfari sagði í samtali við DV í gærkvöld aö þarna væru ekki um alvarleg meiðsli að ræða. „Ég væri búinn að heyra í um- ræddum leikmönnum ef svo væri. Ég veit ekki annað en að aðrir landsliðsmenn hafi sloppið við meiðsli frá leikjum helgarinnar. íslenska landsliðið kemur sam- an í Glasgow á miðvikudag í næstu viku. Atli bjóst við að liðið myndi æfa á fimmtudag og fostudag en leikurinn er laugardaginn 29. mars. Skoski landsliðshópurinn kemur aftur á móti saman nk. laugardags- kvöld enda leika allir leikmenn þess í skosku og ensku deildinni. Berti Vogts, þjálfari Skota, hefur því leikmenn sína í viku við æfing- ar og undirbúnings fyrir leikinn á móti íslendingum. -JKS Formúla 1 keppnin fer fram í Malasíu um næstu helgi: Schumacher hvergi banginn Michael Schumacher, hinn þýski ökumaður Ferrari-liðsins í Formúlu 1, er bjartsýnn á góðan árangur í næstu keppni sem fram fer i Malasíu um næstu helgi og segist stefna á verðlaunapall. Schumacher, sem nú stefnir á sinn sjötta heimsmeistaratitil í For- múlunni, varð í fjórða sæti í fyrstu keppninni, sem fór fram í Mel- boume í Ástralíu fyrir rúmri viku, og var það í fyrsta sinn sem Ferrari- ökumaður kemst ekki á pall síðan árið 1999. Schumacher ekur enn á Evrópukeppni félagsliöa í knattspyrnu: Diouf ekki með gegn Celtic bíl síðasta árs og mun gera það áfram á næstunni á meðan nýi bíll- inn er ekki tilbúinn en endurtekin óhöpp reynsluökumanna Ferrari á nýja bilnum hafa frestað því að hann verði tekinn formlega í notk- un. „Ég á nokkuð góöa möguleika á að vinna um helgina. Mér hefur gengið vel í Malasíu í gegnum tíð- ina,“ sagði Schumacher sem nú undirbýr sig af krafti fyrir helgina. Hann vill ekki meina að slakur ár- angur Ferrari í Ástralíu sé merki um að þeir séu að dragast aftur úr við McLaren og Williams. „Þetta var bara ein af þessum keppnum þar sem óvæntar uppákomur, s.s. rigning og innkomur öryggisbílsins, settu strik í reikninginn. Þetta þarf ekki að þýða að við séum ekki sam- keppnishæfir lengur því svona hlut- ir geta gerst og maður verður hrein- lega að taka þvi. Gamli bíllinn stendur ennþá fyrir sínu hvað áreið- anleika og frammistöðu varðar og kannski er það bara betra að ég verð á honum næstu helgi því að- stæður í Malasíu geta verið öfga- kenndar og því gott að vera á bíl og séu ekki lengir samkeppnisfærir sem maður þekkir mjög vel.“ -PS I Taliö er aö Kily Gonzalez, leikmað- ur Valencia, verði frá keppni í sex vikur og muni því missa af viður- eign Valencia og Arsenal á morgun. Gonzalez var borinn af leikvelli meiddur á ökkla í viðureign Val- encia og Atletico Bilbao á laugardag. David O'Leary, fyrrum fram- kvæmdastjóri Leeds United, hefur lýst því yfir að hvað sig varöar væri ekkert því til fyrirstöðu að hann stjómaði Leeds að nýju í framtíð- inni. Hann segist mundi taka við starfmu með glöðu geði og telur að aðdáendur liðsins myndu taka sér fagnandi. Peter Ridsdale, stjómarformaður Leeds, segir að það sé ekki við sig að sakast vegna lélegs gengis liðsins í vetur og að stuðningsmenn verði að leita orsakanna annars staðar. Hann segir að það sé við leikmenn liðsins að sakast en ekki sig og þeir heíðu átt að baula á leikmennina eftir tap- ið gegn Middlesboro á laugardag í stað þess aö vera aö eltast við sig. „Það er ekki ég sem er að sparka bolta á laugardagseftirmiðdögum heldur em þaö leikmennirnir sem sjá um það,“ sagði Ridsdale. Haraldur Hinriksson hefur gengið frá félagaskiptum yfir í 1. deildar lið HK í knattspymu. Hann hefur und- anfarin ár leikið með Skagamönn- um og Skallagrími en lék þó ekkert síðasta keppnistímabil. Haraldur hefur að undanförnu leikið og æft með HK-liðinu. Alan Shearer hefur skipt um skoö- un varðandi þá yfirlýsingu sína að til greina komi að hann leiki að nýju með enska landsliðinu en hann dró sig í hlé árið 2000. Ástæðan fyrir þessum sinnaskiptum Shearers er að hann er hræddur við viðbrögð stuöningsmanna Newcastle. Hann var harðlega gagnrýndur af þeim áö- ur en hann hætti meö landsliðinu og var það meginástæðan fyrir því að hann dró sig f hlé. Stuðningsmönn- um fannst vera hans í landsliðinu koma niður á frammistööu hans með Newcastle. Argentiski knattspyrnumaðurinn Hernan Crespo, sem ekkert hefur leikið með Inter Milan síðan í janú- ar, er nú klár í slaginn að nýju og hefur verið valinn fyrir leikinn gegn Bayem Leverkusen í meistaradeild Evrópu á morgun. Inter verður að vinna sigur í leiknum til að tryggja sér sæti í 8 liða úrslitum keppninn- ar. Inter verður án þeirra Alvaros Recobas og Christians Vieris sem taka báðir út leikbann. Steve Bruce, framkvæmdastjóri Birmingham, segir að Jóhannes Karl Guðjónsson hafi ögrað Christ- ian Dugarry sem hafi gert það að verkum að Dugarry hrækti í áttina að Jóhannesi í umdeildri viðureign Aston Villa og Birmingham á dögun- um. Bmce segir að Dugarry hafi með þessum verknaði verið að lýsa andúð sbmi á þeim orðum sem Is- lendingurinn hafi látið falla í garð Dugarrys. Enska knattspyrnusambandiö hef- ur dæmt John Gregory, fram- kvæmdastjóra Derby County, í fimm leikja bann vegna munnsöfnuðar við dómara leiksins í viðureign Derby og Portsmouth þann 8. febrúar síð- astliöinn. Að auki þarf hann að punga út 7.500 enskum pundum í sekt en Gregory hefur verið einkar laginn við það undanfarin ár að koma sér í vandræöi sem þessi eftir að hafa ausið svíviröingum yfir dómara. -PS Gerard Houllier hefur ákveðið að E1 Hadji Diouf muni ekki verða í leikmannahópi Liverpool sem mæt- ir Celtic í síðari leik liðanna í Evr- ópukeppni félagsliða á Anfield á fimmtudag. Ástæðan er sú að Diouf hrækti á áhorfanda í fyrri leik lið- anna á fimmtudag. Auk þessa hefur Senegalinn verið sviptur tveggja vikna launum. Það er ljóst að UEFA á eftir að taka mál Senegalans fyrir og er talið líklegt að það muni refsa leikmann- inum vegna atviksins. Houllier seg- ir að hann hafi ákveðið að láta leik- manninn ekki leika til að forðast einhveija árekstra vegna atviksins í síðustu viku. „Við verðum hins veg- ar að bíða og sjá hvað UEFA gerir áður en við grípum til frekari að- gerða," sagði Houllier. -PS ÞEGAR HART MÆTIR HÓRDU FSIIMDRI Sindri Reykjavfk • KlettagorSum 12 • sími 575 0000 Slndri Akureyri • Draupnisgðtu 2 • slmi 462 2360 Sindri Hafnarfirði ■ Stmndgðtu 75 • simi 565 2965

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.