Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2003, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2003, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 Sport i>v Gpindavík-Haman 97-73 2-0, 7-5, 13-7, 22-11, (31-20). 31-22, 38-26, 44-28, 48-36, (55—43). 5545, 59-48, 64-48, 69-50, (74-56). 76-56, 86-71, 97-73. Stig Grindavik: Páll Axel Vilbergsson 21, Darrell Lewis 19, Helgi Jónas Guðfinnsson 19, Guðmundur Bragason 16, Predraq Pramenko 13, Guðlaugur Eyjólfsson 7, Jóhann Þ. Olafsson 2 Stig Hamars: Marvin Valdimarsson 20, Keith Vassell 19, Svavar Pálsson 16, Lárus Jónsson 12, Hallgrímur Brynjólfsson 2, Pétur Ingvarsson 2, Hjalti Pálsson 2. Dimarar (1-10): Kristinn Óskars- son og Björgvin Rúnarsson (7) Gcedi leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 700. Maöur leíksins: Páll Axel Vilbergsson, Grindavík. Fráköst: Grindavík 49 (14 i sókn, 35 í vöm, Lew 13), Hamar 43 (19 í sókn, 24 í vöm, Vassell 15). Stoðsendingar: Grindavík 23 (Helgi J. 7), Hamar 17 (Láms 7). Stolnir boltar: Grindavík 7 (Lewis 2, Guölaugur 2, Helgi 2), Hamar 12 (Vassell 5). Tapaðir boltar: Grindavík 17, Hamar 15. Varin skot: Grindavik 8 (Guðmundur B. 4), Hamar 4 (Svavar 2, Hjalti 2). 3ja stiga: Grindavik 7/21 (33%), Hamar 2/15 (13%). Víti: Grindavík 26/34 (76%), Haukar 17/24 (71%). Gpíndavík-Hamap 2-1 Gríndavík tók á móti Hamri í oddaleik í úrslitakeppni Intersport-deildarinnar: Gpimhrikingap öpugg- lega í undanúpslit - tuttugu og fjögurra stiga sigur Grindvíkinga í Röstinni í gærkvöldi Grindvíkingar sigruðu Hamars- menn nokkuð örugglega, 97-73, í Röstinni í gærkvöldi í oddaleik og eru þar með komnir áfram í undanúr- slit úrslitakeppni Intersportdeildar- innar í körfubolta. Þessi rimma lið- anna er búin að vera bráðfjörug og baráttan allsráðandi. Heimamenn léku á als oddi í fyrsta leikhluta og náðu strax tempói i leik sinn en þetta var allt miklu erfiðara hjá gestunum. Jafnræði var í öðrum leikhluta og það var tólf stiga munur á liðunum í hálfleik. Þótt aldrei megi afskrifa Hamarsmenn þá tryggðu Grindvík- ingar sér nánast sigurinn í þriðja leikhluta. Þeir juku forskotið jafnt og þétt og það varð mest tuttugu og tvö stig og ekki bætti úr skák fyrir gest- ina að Pétur Ingvarsson var kominn í alvarleg vifluvandræði. í lokaleik- hlutanum neituðu Hamarsmenn að gefast upp og þeim tókst að minnka muninn í þrettán stig en heimamenn áttu nóg inni og hleyptu Hvergerðing- um ekkert lengra og kláruðu leikinn með stæl; frábær troðsla frá Darrell Keith Lewis var skemmtilegur endir fyrir þá. Hamarsmenn geta borið höfuðið hátt eftir þessar þijár viður- eignir því þeir veittu deildarmeistur- unum harða keppni. Keith Vassel lék mjög vel í fyrri hálfleik en átti erfið- ara uppdráttar i þeim seinni enda fékk hann þá á sig góða vöm. Lárus Jónsson gaf allt sem hann átti í þetta og þessi drengur er með stórt hjarta og er orðinn einn af bestu leikstjóm- endum deildarinnar. Marvin Valdi- marsson lék vel og Svavar Páll Páls- son var duglegur en lenti í villuvand- ræðum. Þessir leikmenn bám uppi leik liðsins og liðið hefði sárlega þurft framlög frá fleimm. Hjá Grind- víkingum var Helgi Jónas öflugur í fyrri hálfleik en Láras Jónsson náði að hægja á honum í þeim seinni. Páll Axel Vilbergsson var liðinu verulega dýrmætur eins og svo oft áður, Guð- mundur Bragason lék mjög vel og Darrel Keith Lewis gerði fína hluti inni á milli. Þá lék Predraq Pramen- ko vel á köflum í gærkvöldi. Páli Axel var létt í leikslok og sagði Hamarsmenn alltaf erfiða viðureign- ar og bætti þessu við: „Þetta era bún- ir að vera hörkuleikir, viö voram ákveðnir í að svekkja okkur ekkert á tapinu i Hveragerði heldur bara rífa okkur upp og klára dæmið og það tókst. Við unnum saman sem lið og mættum virkilega tilbúnir til leiks og ætluðum okkur ekki í snemmbúið sumarfrí,“ sagði Páll Axel Vilbergs- son. -SMS Pétur Ingvarsson þjálfari Hamars: Svekktur en stoltur Pétur Ingvarsson var að von- um svekktur eftir leik en stoltur af sínum mönnum. Þetta hafði hann að segja: Við gáfum allt í þetta en það var því miður ekki nóg. Þeir eru einfaldlega með betra lið en við létum þá hafa verulega fyrir hlutunum og har- áttan var góð. Þetta er búið að vera erfitt tímabil og við erum búnir að ganga í gegnum alls- konar djöfulsins rugl og læti. Við börðum okkur síöan sam- an og sýndum karakter undir lok mótsins." Pétur er meö laus- an samning og sagði að nú sett- ust menn niður í rólegheitunum og ræddu framhaldið. „Það er ekkert komið á hreint nema að nú er sauðburður að nálgast," sagði Pétur og glotti. Þop og IG upp í 1. deild Þór frá Akureyri og lG frá Grindavík tryggðu sér um helg- ina sæti í 1. deild karla í körfuknattleik. Þór sigraði ÍG í úrslitaleik, 94-91. í öllu falli hefðu Þórsarar leikið í úrvals- deildinni í vetur en sökum slæmrar fjárhagsstöðu fór liðið niður í 2. deild. Skagamenn, sem áttu lengi sæti í úrvalsdeildinni, lentu í þriðja sæti eftir sigur á Grund- firðingum. Eyjamenn sigruðu Dalvíkinga í leik um fimmta sæt- ið og Árvakur lagði Hörð í leik um sjöunda sætið. -JKS Keflavík tók á móti Aftureldingu í deildarbikarnum: Stópsigup Grindvíkingar fögnuðu vel að leikslokum f gærkvöldi þegar þeir lögðu Hamar að velli og tryggðu sér sæti í undanúrslitum Intersport-deildarinnar. DV-mynd E.ÓI. flpnar Gunnlaugs- son æfip með KR KÓRFUBOLTI J G3 B A Indiana-Portland...........88-95 O'Neal 31 (12 frák.), Artest 16, Harrington 12 (11 frák.) - Sabonis 16, Patterson 15, Stoudamire 14, Wallace 14 Phoenix-Toronto............95-91 Marion 30, Marbury 25, Hardaway 18 - Peterson 17, Davis 16 (15 Irák.), Carter 15 LA CIippers-LA Lakers . . .85-102 Miller 15, Parks 13, Richardson 13 - O'Neal 42, Bryant 26, Fisher 9 Amar Gunn- laugsson, knatt- spyrnumaður- inn kunni, mun æfa með Síma- deildarliði KR á næstunni en bróðir hans, Bjarki Gunn- laugsson, mun leika með lið- inu í sumar. Kristinn Kjæmested, stjómarmaður í KR-Sport, staðfesti þetta í samtali við DV-Sport i gær- kvöldi. Amar er sem kunnugt er samn- ingslaus um þessar mundir eftir að samningi hans við Dundee Utd var rift fyrr í vetur. Varðandi þá spum- ingu hvort hann myndi leika fneö liðinu sagði Kristinn að það kæmi alveg til greina af hálfu KR en hins vegar vegna nýrra félagaskipta- reglna væri það erfítt fyrir Amar ef hann hygðist reyna að komast aftur í atvinnumennsku. Samkvæmt þess- um reglum mun Arnar ekki geta leikið annars staðar í Evrópu fyrr en i janúar ef hann leikur hér á landi í sumar. Talið er líklegt að Amar muni jafnvel bíða fram yfir félagaskipta- gluggann í júlí næstkomandi og ef ekkert kemur út úr því er mögu- leiki að hann leiki hér á landi í sumar. 1- 0 Magnús Þorsteinsson . . .(19) 2- 0 Þórarinn Kristjánsson . .(24) 3- 0 Þórarinn Kristjánsson . . (59) 4- 0 Hafsteinn Rúnarsson . . . (72) 5- 0 Magnús Þorsteinsson . . .(75) Keflavík og Afturelding mættust í Reykjaneshöll í deildarbikarnum í gærkvöld. Leikurinn var eign Keflvíkinga frá upphafi og sigruðu þeir, 5-0, og hefði sigurinn getað orðið mun stærri en mörg góð færi og þar með talin vítaspyrna fóru forgörðum hjá Keflvíkingum að þessu sinni. Það má segja að misskilningur í vöm Keflavíkur á 17. mínútu hafi vakið þá. Þeir björguðu þar naumlega og skoruöu tveimur minútum seinna. Þar var að verki Magnús Sverrir Þorsteinsson en hann komst einn inn fyrir vöm Aftureldingar og var öryggið uppmálað. Fimm mínútum síðar átti Hólmar Rúnarsson sendingu á Magnús sem fékk Axel Gómes markvörð á móti sér og sendi á Þórarin sem var einn á markteig og skoraði gott mark. Aðeins mínútu síðar var Þórarinn mættur aftur nánast á sama stað en náði ekki góðu skoti og Axel sá við honum. Á 37. mínútu var klafs í vítateig Keflavikur og vildu leikmenn Aftureldingar fá víti og virtust hafa eitthvað til síns máls en dómari leiksins var ekki á sama máli. Magnús Keflvíkingur slapp í gegn á 58. mínútu en skaut i stöng úr dauðafæri og minútu síðar sendi Jónas Sævarsson fina sendingu á Þórarin sem var einn á auðum sjó og skoraði með skoti í stöng og inn. Á 72. mínútu átti svo Ólafur ívar Jónsson sendingu fyrir á Hafstein Rúnarsson sem hafði komiö inn á skömmu áður og hann afgreiddi, knöttinn snyrtilega í netið. Það var svo títtnefndur Magnús sem gerði fimmta og síðasta markið er hann slapp einu sinni sem oftar í gegnum vöm Aftureldingar og lék á markvörð þeirra og skoraði. Keflvíkingar fengu svo færin til að bæta við. Hjörtur Fjeldsted fékk gott færi 10 mínútum fyrir leikslok en tókst ekki að skora og Þórarinn Kristjánsson var svo felldur í vítateig á 87. mínútu en vítaspyman hans fór yfir markið. Keflvíkingar voru mun sterkari aöilinn í þessum leik. Magnús og Þórarinn vora mjög duglegir að skapa sér færi og þeir Hólmar og Jónas voru að gera fina hluti á miðjunni. Hjá gestunum átti Axel flnan leik í fyrri hálfleik en annars náðu þeir sér aldrei almennilega á strik að þessu sinni. Keflvíkingar eru þar með komnir í 9 stig en Afturelding er enn án stiga í A riðli deildarbikarsins. Maður leiksins: Magnús Þorsteinsson, Keflavík. -EÁJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.