Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2003, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2003, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 Fréttir DV Fækkun fiskimjölsverksmiðja vegna gæðakrafna: fllleiðingarnar hr ftalegar lyrir Raufarhafnarbúa LOÐNUVERKSMIÐJUR A ISLANDI Síldarvinnslan hf. ísfélag Vestm. hf. Síldarvinnslan hf. Hraðfrystist. Þórshafnar hf. Tangi hf. i. Síldarvinnslan hf. Síldarvinnslan hf. Haraldur Böðvars. hf. HmásMitsf Stldarvlnnslan hf. Síldarvinnslan hf. Síldarvinnslan hf. Hraðfrystlhús Eskifjarðar Loðnuvinnslan hf. Gautavík hf. Skeggey ehf. Samherji hf. F & L Grandi hf. (áður Faxamjöl hf.) Vlnnslustöðin hf. ísfélag Vestm. hf. Verksmlðjur með eldþurrkun Verksmiðjur með gufuþurrkun Verksmiðjur með loftþurrkun Verksmiðjur með gufuþurrkun/loftþurrkun Eftir sameiningu Síldarvinnsl- unnar í Neskaupstað og SR- mjöls 6. mars sl. sagði stjórnar- formaður sameinaða fyrirtækis- ins, Þorsteinn Már Baldvinsson, framkvæmdastjóri Samherja, að eölilegt væri að skoða það að fækka loðnuverksmiðjunum eitt- hvað frá því sem nú er í landinu. Bæði eru verksmiðjur sem ekki sinna nútímakröfum um útbún- að og eins gætu færri verksmiöj- ur sinnt því að bræða það magn sem berst að landi, jafnvel þegar veiði gengur best. Verksmiðjan á Reyðarfirði verður lögð niður í lok loðnuvertíðarinnar, en þar er eldþurrkun á hráefninu, og ein önnur verksmiðja SR-mjöls, verksmiðjan á Raufarhöfn, hefur einnig eldþurrkara. Flestar aðr- ar verksmiðjur eru með óbeina loftþurrkun, þ.e. eru með eldofn sem dregur í gegn loft sem hitn- ar og þurrkar efnið. Sú aðferð er mun umhverfisvænni og auk þess mun auðveldara að ráða við þann reyk sem hefur komið frá eldþurrkuninni. Einstaka verk- smiðjur eru með gufuþurrkun, s.s. Vinnslustöðin í Vestmanna- eyjum, Gná í Bolungarvík og Hraðfrystistöð Þórshafnar, og enn aðrar sem blanda saman gufuþurrkun og loftþurrkun, eins og verksmiðjurnar í Grindavík og í Krossanesi við Akureyri. „Til þess aö geta framleitt gæða- mjöl eru verksmiðjur með óbeina loftþurrkun bestar vegna þess að þar er best að stjóma hitastiginu í þurrkuninni. í gufuþurrkara er hitastigið of hátt nema hægt sé að hafa gufuþurrkarana undir lág- þrýstingi sem fer betur með vör- una,“ segir Jón Reynir Magnússon, framkvæmdastjóri Félags íslenskra fiskimjölsframleiðenda. Fækkun verksmiðja í dag er starfrækt 21 loðnu- verksmiðja á landinu - hefur fækkað um 5 á þremur árum. Þær verksmiðjur störfuðu á Hvammstanga, í Grundarfirði, á Djúpavogi, Hornafirði og í Reykjanesbæ. í dag eru 6 starf- ræktar á suðvesturhorni lands- ins, tvær í Vestmannaeyjum, ein á Vestfjörðum, 4 á Norðurlandi og 8 á Austfjörðum - þar af 6 í eigu nýstofnaðs fyrirtækis Síld- arvinnslunnar og SR-mjöls. - Hvað finnst Jóni Reyni um þá hugmynd að fækka verk- smiðjum? „Á sínum tíma, fyrir um 15 árum, stóðum við frammi fyrir því að breyta verksmiðjunum til þess að framleiða betra mjöl og mæta kröfum heilbrigðisyfir- valda vegna mengunar og fleira. Á þeim tíma hefði verið auðveld- ara að hrinda í framkvæmd áætl- unum að fækkun verksmiðja en nú, þegar gríðarlega hefur verið fjárfest til uppbyggingar flestra þeirra,“ segir Jón Reynir Magn- ússon. Díoxínmengunaróttinn hefur hjaðnað Fyrir þremur árum var um- ræða um bann á notkun kjöt- og

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.