Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2003, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2003, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 DV Fréttir Fráfarandi þingmenn sitja til 10. maí: Tveir milljarðar á mínútu í lokaræðunni Ljóst er að alþingismennirnir Sverrir Hermannsson, Karl V. Matthíason, Sigríður Jóhannes- dóttir, Svanfríður Jónasdóttir og Ólafur Örn Haraldsson hafa setið sitt síðasta þing, a.m.k. í bili, en þau eru ekki í kjöri í alþingis- kosningunum 10. maí nk, nema Ólafur Örn sem skipar heiðurs- sæti. Líklegt er að þeim fækki enn frekar þar sem ekki ná allir end- urkjöri þótt þeir bjóði sig fram. Ný kjördæmaskipan leiðir viss rök að því, sem og fylgi stjóm- málaflokka í skoðanakönnunum. Hraut gull af munni Ólafur Örn Haraldsson, Fram- sóknarflokki, segist ætla að taka af fullum þunga þátt í kosninga- baráttunni þótt ljóst sé að hann verði ekki áfram á þingi. Hann ætli að miðla reynslu sinni og styðja við bakið á þeim sem nú verða í orrahríðinni. „Ég er með tvennt eða þrennt í sigti í einkageiranum sem gæti orðið mitt hlut- skipti í atvinnu- lífinu en það hefur verið það mikið að gera að ég hef ekki getað sinnt því. Eg er þingmaður til 10. maí svo þjóð- in er ekki alveg laus við mig! Mér fannst síðustu tveir dagarnir svolítið sér- stakir í þinginu, margt sem leitaði á hugann og sem betur fer er margs að sakna. Síðasta ræðan mín á þingi stóð í 3 mínútur en ég mælti þar fyrir 6 milljöröum í fjár- aukalögum vegna svokallaðra flýtiframkvæmda, svo það voru 2 milljarðar á mínútu. Það var mjög innihaldsrík ræða og mér fannst vænt um að það voru lokaorðin. Mér hraut gull af munni! Það er ekki síður gagnlegt að sitja við borð í matsal og taka þar þátt í umræðum meö þessu skemmti- lega og hæfileik- aríka fólki með miklar en ólíkar skoðanir og reynslu. Ég hætti því mjög sáttur. Ég vona að ég hafi mark- að einhver spor. Ég ætla í 5 daga ferð með Ferðafélaginu inn í Þjórsárver í sumar og ætla að njóta þess að sjá þetta ósnorta land, byrja alveg austast og held í vestur. Það er erfitt að hætta fjallaklifri og náttúruskoðun," seg- ir Ólafur Öm Haraldsson. Sagði upp andlega Svanfríður Jónasdóttir, Sam- fylkingu, segir að hún hafi sagt upp andlega fyrir nokkru og þá sé þingmaður í raun hættur. Hún segist þó vera þingmaður tO 10. maí, verði með sína skrifstofu í Alþingi og tekur við sínum pósti og verkefnum og skyldum sem al- þingismaður. „Ég mun halda áfram mínu framhaldsnámi í stjórnun í Kenn- araháskólanum og stefni að því aö ljúka mastersverkefni næsta vet- ur. Ætli ég reyni ekki að nýta mér það á vinnumarkaðnum. Ég er að gera það nú sem ég mátti ekki vera að meðan ég var yngri og er að láta það rætast nú þegar syn- imir eru allir fluttir að heiman. Ég hugleiddi hvort það hefði ekki verið eitthvað sem ég ætlaði að gera áður en ég fór að eiga böm. Nú er komið að því. Maður var vakandi og sofandi síðustu daga þingsins og ég ekki með nein smáverkefni sem fullrúi Samfylkingarinnar í iðnaðar- nefnd. Nú ligg ég heima í flensu, það er eins og ég gangi svona rosa- lega á varabirgðimar, er geysi- brött þar til tömin er búin, en er svo algjörlega búin líkt og íþrótta- menn eftir erfiðan leik,“ segir Svanfríður Jónasdóttir. -GG Ólafur Öm Haraldsson. Svanfríður Jónasdóttir Hjólreiöamenn: Gegn hægri beygju á rauðu Ijósi Landssamtök hjólreiðamanna mótmæla harðlega framkomnu lagafrumvarpi Hjálmars Ámason- ar og Vilhjálms Egilssonar um að heimila hægri beygju á rauðu ljósi. Segja samtökin að ef mið sé tekið af reynslu af slíkri heimild frá Bandaríkjunum bendi flest til að slysum á gangandi og hjólandi vegfarendum muni fjölga veru- lega. Benda samtökin á umsögn Um- feröarráðs (nú Umferðarstofu) til allsherjamefndar Alþingis á síð- asta ári. Þar kom fram í nýlegri þýskri tölfræðiúttekt frá 4 fylkj- um Bandaríkjanna að slysum fjölgaði um 54% á gangandi og 91% á hjólandi vegfarendum, þar sem hægri beygja á rauðu ljósi var leyfð. Samtökin segja að með frum- varpinu sé verið að vega alvar- lega aö þeirri tegund umferðar sem þó er yfirlýst stefha stjórn- valda að auka sem mest vegna umhverfisverndarsjónarmiða. -HKr. Framkvæmdavetur Tími vorframkvæmdanna er löngu hafinn og jafnt borgarstarfsmenn sem undirverktakar eru á miklu iöi um allan bæ. Endurgerö Laugavegar er aö mestu lokiö og nú eru vinnuvélarnar byrjaöar aö éta sig ofan i Bankastræti en framkvæmdum viö fegrun þessa götuspotta á aö Ijúka í byrjun sumars. Þegar því verki veröur lokiö hefur öll leiöin frá Barónstíg aö Lækjartorgi fengi kærkomna andlitslyftingu. Veöriö síöustu vikur hefur ekki spillt gleöi jarövinnumanna og er útlit fyrir aö þeim sækist verk sitt fljótt og vel enda hlýindi og stilla í veröurkortunum fram undan. Tll varnar mengunarslysum Settjarnir neöan Breiöholts taka viö úrgangi úr yfirborösvatni oggeta þar meö hindraö aö einhverju leyti mengunarslys í Elliöaánum. Umhverfisvænar settjarnir í landi Reykjavíkur: Tjarnirnar hindra umhverfisslys Reykjavíkurborg er að gera sett- jamir neðan Breiðholtshverfis sem eiga að hindra umverfisslys í Elliðaánum ef t.d. olíuslys verður í hverfinu. Settjamimar taka við yfirborðsvatninu og þannig er hægt að sía frá óþverrann og þar með hindra að hann komist í El- liðaárnar. Sveiflur í stærð laxa í Elliöaánum hafa m.a. verið raktar til óæskilegra efna sem kunna að berast frá yfirborðsvatni í nálæg- um bæjarhverfum. Ólafur Bjarnason, verkfræðing- ur hjá Reykjavíkurborg, segir að settjamimar taki við ýmissi mengun sem komi frá götunum og ef olíuslys verður er hægt að skilja olíu frá vatninu áður en það fer í ámar. „Þetta er ekki bara gert fyrir laxveiðimenn heldur er þetta lóð á vogarskálarnar í þeirri viðleitni að ganga betur um. En við gerum þetta víöar í borginni, s.s. í Graf- arvogi, og þetta verður gert í Graf- arholti, svo dæmi séu tekin um viðkvæm svæði sem hafa forgang. Svona settjöm hefur verið tekin í notkun viö Víkurvegargatnamót- in,“ segir Ólafur Bjamason. -GG Brotlð land Miklar jarövegsframkvæmdir standa nú yfir í neöanveröum Laugardal í Reykjavík þar sem mikil íþróttamiöstöö er aö rísa. Hún mun auka möguleika fólks til líkamsræktar til muna og tengja íþróttamannvirkin á svæöinu betur saman en veriö hefur. fltorka tapar 138 milljónum Fjárfestingarfélagið Atorka tap- aði 138 milljónum króna frá 1. maí til 31. desember á síðasta ári. Þetta er þó minna tap heldur en á síðasta reikningsári þegar tapið nam 187 milljónum króna. Hlutafé félagsins var 1.474 milljónir króna í lok árs 2002 en var 1.048 milljónir í lok apríl 2002. Þrátt fyrir tap á rekstri síðasta árs leggur stjórn félagsins til að greiddur verði 5% arður af hluta- fé sem gerir um 74 milljónir króna. Er arðgreiðslan í sam- ræmi við þann arð sem félagið á von á af helstu eignarhlutum sín- um. -VB Úp tapi í hagnað Itjá MP Verðbréfum Hagnaður MP Verðbréfa hf. á árinu 2002 var 5,7 milljónir króna, samanborið við 112,7 millj- óna tap árið áður. Eigið fé félags- ins nam 701,8 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi í árslok og lækkar um rúmar 15 milljónir króna milli ára. í tilkynningu frá félaginu kem- ur fram að mikill viðsnúningur hafi orðið til hins betra á flestöll- um sviðum í starfsemi félagsins frá árinu 2001. Sigurður Valtýsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri MP Verðbréfa en hann var áður for- stöðumaður fyrirtækjasviðs. Hann tekur við af Auði Finnboga- dóttur sem fer utan til náms. -VB Afl með 317 miiyóna króna hagnað Hagnaður af rekstri Afls, fjár- festingarfélags hf„ fyrir tímabilið 1. maí til 31. desember 2002 nam 317,2 milljónum króna. Eigið fé samtals nam 3.156,2 milljónum króna í lok árs 2002. Skuldir fé- lagsins voru 19 milljónir í lok árs og eiginfjárhlutfallið var 99,3%. Stjórnin leggur til aö greiddur verði 9% arður á hlutafé, að fjár- hæö 171 milljón krónur, eða sem nemur um 54% af hagnaði ársins. Hluthafar í lok árs 2002 voru 3.533 og áttu þrír hluthafar yfir 10% hlut í félaginu, en það eru Landsbanki íslands með 19,5%, Þorsteinn Vilhelmsson með 19,5% og Ránarborg ehf., sem er fjár- festingarfélag í eigu Þorsteins Vilhelmssonar, með 15,3%. Stærstu eignarhlutar Afls fjár- festingarfélags í dag eru Hraö- frystihúsið Gunnvör hf„ tæplega 19% hlutur, og Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna hf„ rúmlega 8% hlutur. Af eignum félagsins nema peningalegar eignir og skuldabréf um 50% hlutdeild. -VB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.