Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2003, Blaðsíða 27
ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003
27
DV
Tilvera
Kvikmyndagagnrýni
lífiö
Laugarásbíó/Smárabíó - Maid in Manhattan ★★
Einleikarpróf í Salnum
Mattías Birgir Nardeau
óbóleikari og Snorri Sigfús
Birgisson píanóleikari munu
halda tónleika á vegum
Tónlistarskólans í Reykjavík í
Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs,
kl. 20. Tónleikarnir eru seinni
hluti einleikaraprófs Matthiasar
Birgis Nardeau frá skólanum.
Aðgöngumiðar eru seldir við
innganginn frá kl. 19.30.
Kraftur Auðar lifir áfram
Þáttakendur í Frumkvöðla-Auði
hafa tekið sig saman og stofnað
félagsskap í þeim tilgangi að hlúa
áfram að Auði, þ.e að virkja þá
kunnáttu og þekkingu sem af
verkefninu hlaust. Fyrsti
aðalfundur félagsins verður
haldinn í Háskólanum í Reykjavík
milli kl. 18 og 20 í Bauninni, 3.
hæð.
Líkamleg orka
Guðjón Bergmann fræðir um
líkamsæfmgar, öndun, slökun,
matarræði, losun og kynorkuna.
Fyrirlesturinn er hluti af
námskeiðinu Jóga sem lífstíll á 21.
öldinni (sjá nánar inn á
www.gbergmann.is) AUir
velkomnir svo lengi sem húsrúm
leyfir. Stakur fyrirlestur kostar
2.200 kr. Fyrirlesturinn er haldinn
á 3. hæð að Ármúla 38.
Námstefna um
kvennaheilsu
Námstefna um kvennaheilsu
verður haldin í Norræna húsinu
kl. 16.30-18.15 í dag. Ókeypis
aðgangur. Það er Lionshreyfmgin
á íslandi sem stendur fyrir
námstefnunni. Setning: Þórunn
Gestsdóttir, varaumdæmisstjóri
Lions. Fundarstjóri: Katrín
Fjeldsted, alþingismaður og
heimilislæknir. Konur og
kransæðasjúkdómar: Halldóra
Bjömsdóttir hjartalæknir.
Beinvemd og forvamir: Hildur
Thors heimilislæknir. Em
hormónar hættulegir: Bryndís
Benediktsdóttir. Sjúkdómar
kvenna í bókmenntum: Katrín
Fjeldsted.
7-KD íVíöistaöaskóla í heimsókn á DV
Áslaug María Jóhannsdóttir, Áslaug Sara Hreiöarsdóttir, Brynjar Arnarson,
Bylgja Sif Baldursdóttir, Elín Lovísa Elíasdóttir, Hlynur Júlíusson, llja Tvérskoj,
Inga María Eyjólfsdóttir, Ingólfur Arnarson, Kristrún Úlfarsdóttir, Linda Björg-
vinsdóttir, María Sif Guömundsdóttir, Nína Jónsdóttir, Reynir Pablo Rodríguez,
Sigríöur Arnfjörö Ólafsdóttir, Sindri Örn Steinarsson, Sunna Hlíf Friöriksdóttir.
Kennarinn heitir Magnús Sigurjónsson.
Sheen á svarta listann
Það er ekki nýtt að leikarinn
góðkunni, Martin Sheen, sé fremst-
ur í flokki þegar mótmæla á stríðs-
rekstri. Hann tekur yfirleitt þátt í
flestum mótmælum í Hollywood og
hefur þurft að sitja yfir eina nótt í
fangelsi. Hann er að sjálfsögðu
fremstur í flokki þeirra leikara
sem mótmæla fyrirhuguðu stríði
gegn írak og hefur nú fengið
áþreifanlega að finna fyrir því.
Vinsæl auglýsing, þar sem hann er
ásamt syni sínum
Charlie Sheen að
auglýsa visakort,
hefur verið tekin
úr umferð vegna
mótmæla hans.
Enn ein staðfest-
ing á því að það
borgar sig ekki
Martin Sheen fyrjr Ameríkana í
Enn einu sinni jjag ag setja sig
á svarta list- upp á móti hinum
ann í Was- stríðsglaða forseta
hington.
Öskubuska orðin ein
Sif
Gunnarsdóttir
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
stæð móðir í IMew York
Öskubuska komln í fína dressiö
Jennifer Lopez er öskubuska nútímans
Þið munið sög-
una um Öskubusku
sem missti fóður
sinn' og þurfti að al-
ast upp með and-
styggilegri stjúp-
móður og tveim
skelfilega vondum
systrum. Hún var
látin þrífa, elda,
sauma og höggva
eldivið. Þrátt fyrir
það náði hún í
prinsinn - reyndar
þegar búið var að
dressa hana upp sem
prinsessu. En hún
komst til metorða af
því hún var væn við menn og mál-
leysingja - þess vegna hjálpuðust
allir að við að koma henni í kon-
unglega hjónasæng.
Þetta vel þekkta ævintýri er
þráður nýjustu myndar Jennifer
Lopez, Maid in Manhattan. Ösku-
buska, eða Marisa, er einstæö
móðir 10 ára gullfallegs og bráð-
gáfaðs drengs og vinnur á hinu eð-
alfína Beresford-hóteli í New
York. Þegar hún er að stelast til að
máta fót efnaðrar konu, í stað þess
að vera að þrífa klósettið hennar,
kemur hinn bráðmyndarlegi póli-
tíkus Christopher (Fiennes), held-
ur að hún sé fín kona og fellur fyr-
ir henni. Játar Marisa að hún sé í
Dolce & Gabbana-dragt i leyfis-
leysi og fer hnípin að búa rúm?
Eða fer hún umsvifalaust í göngu-
ferð með prinsinum, heldur áfram
að ljúga, verður ástfangin og fer í
finum kjól á ball? Svariö fáið þið
ekki hér - ef þið eruð spennt verð-
ið þið bara að fara á myndina.
En getur Öskubuska verið ein-
stæð móðir og unnið á hóteli? Að
sjálfsögðu. í einni vinsælustu
mynd síðustu aldar, Pretty Wom-
an, var öskubuska gleðikona. Og
eru ekki Mette Marit og sonur ný-
búin að vinna hjarta Hákonar
krónprins af Noregi? Þótt Marisa
vinni á hóteli en ekki í öskustó
stjúpmóður sinnar vinnur hún
enn við þrif og þótt hún sýni ein-
hverja tilburði til að fá stöðu-
hækkun klúðrar hún því með því
að ljúga um uppruna sinn og sofa
í einni hótelsvítunni (hjá einum
hótelgestinum). Þannig að hún
þarf, eins og Öskubuska forðum,
hjálp auðugs og valdamikils
manns til að koma sér upp úr
þeirri þjóðfélagsstöðu sem hún er
fost í. Skilaboðin eru: Stelpur,
finnið ykkur ríkan eiginmann og
lifið hamingjusamar til æviloka.
En að segja að Maid in Manhatt-
an sé fyrirsjáanleg er náttúrlega
út í hött. Söguþráðurinn skiptir
hér engu máli. Við vitum allt um
leiðarlok, það er leiðin sjálf sem á
að vekja áhuga okkar. Og Maid in
Manhattan er alls ekki án sjarma.
Lopez og Fiennes eru fríðleiksfólk
og fara ágætlega með sykursætan
textann. Sonurinn, leikinn af Tyler
Posey, er nánast óbærOega krúttleg-
ur (ég gæfi ekki mikið fyrir sam-
bandið ef hann hefði verið orðljótur,
ófriður eða ófyrirleitinn) og Bob
Hoskins er einn af fjölmörgum ágæt-
um aukaleikurum sem umkringja
parið. Á sýningunni sem ég fór á
var salurinn fullur af rómantískum
stelpum á öUum aldri - ætli þær
sæki um á Hótel Sögu strax í dag?
Lelkstjóri: Wayne Wang. Handrít: Kevin
Wade. Kvikmyndtaka: Karl Walter Linden-
laub. Tónlist: Alan Silvestri. Aðalleikarar:
Jennifer Lopez, Ralph Fiennes, Tyler Pos-
ey, Natasha Richardson, Stanley Tucci og
Bob Hoskins.
Vinsælustu kvíkmyndirnar_________
Húsið áfram á traustum grunni
Aðra vikuna í röð var gaman-
myndin Bringing Down the House
langvinsælasta kvikmyndin og
frumsýningarmyndirnar höfðu
ekkert í hana að gera. Virðist
myndin bæði höfða til hvítra og
svarta. í öðru og þriðja sæti eru
Agent Cody Banks og The Hunted
- ólíkar myndir sem þó báðar eru
sakamálamyndir. Agent Cody
Banks á að höföa til unglinga og
The Hunted til eldri, enda mikill
aldursmunur á aðalleikurum
myndanna.
í Agent Cody Banks leikur
ungstirnið Freddie Muniz ungan
skólapilt sem virðist í fyrstu eins
og flestir félagar hans. Hann er þó
ekki allur þar sem hann er séður
heldur er hann á mála hjá CIA.
Tommy Lee Jones leikur aðalhlut-
verkið í The Hunted. Leikur hann
FBI-löggu sem er á slóð hættulegs
morðingja sem virðist hafa mest
gaman af að elta bráð sína uppi og
Agent Cody Banks
Frankie Muniz leikur Cody Banks
sem leikur tveim skjöldum.
veiða hana í gildru. Benecio del
Toro leikur morðingjann. Þriðja
nýja myndin er Willard, sem er
endurgerð eldri kvikmyndar þar
sem fjallað er um ungan mann
sem er í nánu sambandi við rott-
ur. Engin þessara þriggja kvik-
mynda hefur vakið hrifningu
gagnrýnenda vestanhafs. -HK
ALLAR UPPHÆÐIR 1 PUSUNDUM BANDARIKJADOLLARA.
FYRRI INNKOMA INNKOMA FJÖLDI
SÆTl VIKA TITILL HELGIN: ALLS: BÍÓSALA
O 1 Bringing Down the House 22.054 61.287 2801
o - Agent Cody Banks 14.064 14.064 3369
o - The Hunted 13.482 13.482 2516
o 2 Tears of the Sun 8.705 30.721 2973
o 4 Chicago 7.105 124.845 2600
o 3 Old School 6.670 60.775 2452
o 5 How to Lose a Guy in 10 Days 4.685 93.724 2430
o - Willard 4.010 4.010 1761
o 7 Daredevil 3.030 96.033 2054
© 6 Cradle 2 the Grave 2.974 31.688 2150
© 8 The Jungle Book 2 2.533 43.659 2064
0 9 Shanghai Knights 1.548 57.240 1316
0 12 The Pianist 1.303 18.630 574
© 11 The Hours 1.250 37.394 814
© 14 About Schmidt 1.093 61.630 713
© 16 Lord of the Rings: Two Towers 1.014 333.623 612
© 17 The Quiet American 990 8.700 396
© 10 The Ufe of David Gale 901 18.810 893
© 15 The Recruit 685 51.485 640
© 13 Gods and Generals 645 12.241 706
Vinsælustu myndhöndin
Dularfull tákn
Gæðamyndin Signs, sem
gefin var út á myndbandi
og DVD í síðustu viku, fer
beint í efsta sæti mynd-
bandalistans. Signs er
nýjasta kvikmynd M.
Night Shyamalan og ber
hann upp spurningar um
tilveru okkar og hvort
hægt sé að ógna henni með
heimsókn úr alheiminum.
Hann veltir upp möguleika
sem er vísindaskáldskapur
af bestu gerð, auk þess sem
mannlegi þátturinn er of-
arlega í huga hans. Hvem-
ig við stöndum gagnvart
slíkri heimsókn andlega er það
sem hann veitir okkur nýja og
sterka innsýn í og Shyamalan tek-
ur þann þátt fram yfir
frásögn af atburðin-
um sjálfum sem að
mestu er séður úr
fjarlægð þar til í lok-
in.
Aðalpersónan er
presturinn Graham
Hess (Mel Gibson)
sem býr á bóndabæ
ásamt tveimur börn-
um sínum, Morgan
(Rory Culkin) og Bo
(Abigail Breslin) og
bróður sínum,
Merrill (Joaquin
Phoenix). Graham
hefur hætt prests-
störfum í kjölfar
þess að eiginkona
hans lést í bílslysi.
Morgun einn vakn-
ar fjölskyldan við að
búið er að koma fyr-
ir risastóru tákni á
jörð þeirra. Þetta
tákn er sett niður
víðar í heiminum og leitt er að því
getum að geimverur hafi verið að
verki. -HK
N 10. 16. MARS
FYRRI VIKUR
S/ETl VIKA tmu (DREIFINGARAÐILI) ÁUSTA
© _ SlgnS (SAM MYNDBÖND) 1
© 1 The Bourne Identity (Sam myndbönd) 3
o 2 XXX (SkIfan) 3
o 0 _ Mr. Deeds (skífan) 1
4 Sorority Boys (sam myndbönd; 4
© 3 Insomnia isam myndbönd) 5
o 5 Serving Sara (Sam myndbönd) 6
o 6 Windtalkers (skífan) 4
7 K-19: The Widowmaker (myndform) 5
© 16 Pluto Nash (sam myndböndi 2
© 8 The Sum of All Fears isam myndbönd) 8
© n The Sweetest Thlng (skífan) 8
© 10 Blg Trouble (sam myndbönd) 4
© 9 Swimfan (myndform) 4
© © 14 The Rlng (skífan) 3
17 Hable Con Ella (skífan) 2
© 12 Van Wllder (myndform) 9
© 15 Unfaithful (skífan) 10
© _ The Forelgner (skífan) 1
© _ About a Boy (sam myndböndn) 17