Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2003, Page 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003
Fréttir
DV
DV-MYND ÞÓK
Vilja fá Davíð með sér á „tveggja turna tal“
Bæöi Össur og ingibjörg Sólrún beindu spjótum sínum einkum að Sjálfstæöisflokknum í gær. Össur lýsti því hvar flokkana greindi einkum á og Ingibjörg Sól-
rún skoraöi á Davíð í opinbera umræöu um skattamál.
Kosningafundur Samfylkingarinnar í Kópavogi:
Ingibjörg skorar á Davíð
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
skoraöi í gær á Davíð Oddsson
að „stíga niður af stalli sínum“
og ræða skattamál viö sig og
aðra „dauðlega" frambjóðendur.
„Ég er til, hvað með hann?“
sagði Ingibjörg og uppskar dynj-
andi lófatak á kosningafundi
Samfylkingarinnar sem haldinn
var í Salnum í Kópavogi í gær.
Hún sagði að stjórnarflokk-
arnir hefðu ekki staðið við lof-
orð sín um skattalækkanir frá
því fyrir síðustu kosningar.
„Hverjar eru efndirnar? Efnd-
irnar birtast í því að stærra
hlutfall af landsframleiðslu fer
nú í skatta en raunin var fyrir
rúmum áratug," sagði Ingibjörg.
Skattleysismörk hefðu ekki
haldið í við verðlagsþróun og
lækkun álagningarhlutfalls
hefði ekki dugað til að vega upp
á móti því.
Ingibjörg vísaði til þess að í
svari fjármálaráðherra sjálfs
kæmi fram að skattbyrði hefði
þyngst hjá öllum nema þeim
sem hefðu hæstar tekjurnar - og
hún hefði þyngst mest hjá þeim
sem hefðu lægstar tekjur.
Meiri launamunur
Ingibjörg sagði að í tölum fjár-
málaráðuneytisins kæmi einnig
fram að misskipting hefði aukist.
Tekjur þeirra 10% framteljenda
sem hafa lægstar tekjur hefðu
hækkað um ríflega 60% frá árinu
1995. Þetta eru ríflega 5.400 fram-
teljendur með um 143 þúsund
krónur í meðaltekjur á mánuði.
Á hinn bóginn hefðu tekjur
þeirra 5% sem hafa hæstar tekj-
ur hækkað um 134% á sama
tíma. Þetta eru um 2.700 framtelj-
endur með um eina og hálfa
mifljón á mánuði.
„Munurinn á hópunum var
sjöfaldur árið 1995 - hann er tí-
faldur í dag,“ sagði Ingibjörg Sól-
rún. „Þetta segir okkur bara eitt:
Bilið hefur verið að aukast á
mflli þeirra ríkustu og og þeirra
fátækustu. Þeir ríku eru að
verða ríkari.“
Samfylkingin vill ekki flata
skattalækkun sagði Ingibjörg:
„Við viljum skoða fjölþrepa
skattbyrði sem hefur þá kosti að
það dregur úr skattbyrði þeirra
sem hafa meðaltekjur og dregur
úr áhrifum jaðarskatta.“
Meirihluti fyrir fyrningarleið
Össur Skarphéðinsson lagði í
ræðu sinni áherslu á muninn
sem væri á Samfylkingunni og
Sjálfstæðisflokknum. Munurinn
væri einkum í fjórum málaflokk-
um: Auðlindum, velferð, Evrópu
og lýðræði.
í fyrirspurnatíma sagði Össur
meðal annars að skattar væru að
sínu mati of háir á íslandi. í máli
hans kom fram að Samfylkingin
myndi ekki hækka skatta á fyrir-
tækjum.
Össur sagði tímabært að skoða
breytt rekstrarform í heilbrigðis-
þjónustu, einkarekstur, ef tryggt
væri að kostnaður sjúídinga yk-
ist ekki og kostnaður ríkisins
minnkaði án þess að það kæmi
niður á gæðum þjónustunnar.
Ingibjörg Sólrún sagði að það
vantaði ekki endilega fjármagn í
heilbrigðiskerfið heldur endrn--
skipulagningu.
Össur sagði að Samfylkingin
væri til viðræðu og samráðs um
hve hátt hlutfall kvótans væri
eðlilegt að afskrifa á ári hverju
samkvæmt fyrningarleiðinni
sem flokkurinn boðar. En hann
taldi jafnframt að fyrirningar-
leiðin væri komin í pólitískan
meirihluta meðal íslenskra kjós-
enda. -ÓTG
Pharmaco með ytlr þrjá milljarða í hagnaO
Stjóm Pharmaco hf. kynnti nið-
urstöður ársreiknings fyrir árið
2002 á fundi í Listasafni íslands í
morgun. Þar kom fram að síðasta
ár er það besta í sögu félagsins. Var
hagnaður af rekstri félagsins á ár-
inu 3.166 milljónir króna sam-
kvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé í
árslok nam 20.295 milljónum króna
samkvæmt efnahagsreikningi.
Hlutafé félagsins nam 420 mifljón-
um króna í ársbyrjun. Vegna sam-
einingar við Delta hf. var það aukið
um 170 milljónir og önnur kaup á
eigin hlutabréfum að frádreginni
sölu þeirra námu 20 milljónum
króna. Útistandandi hlutafé í árslok
var 574 milljónir króna. Hluthafar í
félaginu voru í árslok 2.420, en þeir
voru 1.474 í upphafi síðasta árs og
fjölgaði því um 946 á árinu. Einn
Rýnt í ársskýrisu Pharmaco í morgun
hluthafi, Amber Intemational Ltd.,
átti yfir 10% eignarhlut í félaginu
og hafði hann aukist í 28,7% í árs-
lok.
í febrúar 2002 var eignarhluti í
Bravo Holdings Ltd. seldur fyrir um
440 milljónir króna og nam hagnað-
ur af sölunni 254 milljónum. í apríl
var stofnað nýtt félag, Pharmaco -
Island ehf. sem yfirtók rekstur fé-
lagsins á íslandi frá 1. júní. Félagið
seldi í maímánuði 80% hlut í
Pharmaco - ísland fyrir um 890
milljónir króna að teknu tilliti til
sölukostnaðar. Hagnaður af þeirri
sölu nam 355 milljónum króna.
í árslok var aö mestu lokið bygg-
ingu nýrrar verksmiðju í Dupnitsa
í Búlgaríu. Heildarkostnaður við
framkvæmdina nam um 1.260 miflj-
ónum króna í árslok. -HKr.
Ævintýriö í Reykhólasveit:
Hinn kálfurinn
fannst líka
- og var óþekkur
Hinn kálfurinn frá Stað í Reyk-
hólahreppi er kominn í leitimar
heill á húfi. Það var á fóstudags-
kvöldið að ungur maður úr Árbæ
kom akandi sunnan úr Reykjavík
og ók fram á kálf við þjóðveginn.
Þar var kominn hinn kálfurinn sem
gengið hefur úti í allan vetur. DV
hefur greint frá heimkomu fyrri
kálfsins og þær fréttir vakið mikla
athygli. Það er nánast einsdæmi að
nautpeningur lifi af útigöngu heilan
vetur.
Eiríkur Snæbjömsson, bóndi á
Stað, sagði í morgun að þeir félagar
hann og Þórður Jónsson, bóndi í
Árbæ, hefðu lagt upp morguninn
eftir til leitar á sexhjólum sínum.
Þeir fundu bola litla eftir talsverða
leit. Farið var með hann heim á
Stað þar sem hann hefur eflaust
fagnað góðu skjóli og heytuggu.
„Hann var mun betur á sig kom-
inn en fyrri kálfurinn og var óþekk-
ur þegar við náðum honum loks-
ins,“ sagði Eiríkur í morgun. Hann
sagði að menn væru undrandi á
þessu. Ef þessi saga hefði gerst fyrir
einni öld væri varla vafi á að talið
væri að álfar hefðu skotið skjóls-
húsi yfir dýrin og þeir gengið í
björg. Eiríkur sagði að mikið hefði
verið haft við í leitinni að kálfunum
og jafnfram að endirinn væri hinn
ákjósanlegasti. -JBP
fsmaður handtekinn
Lögreglan í Reykjavík var í gær-
kvöld kvödd að húsnæði á Skóla-
vörðustíg. Var talið að þar sæti
ósjálfbjarga maður upp við vegg og
virtist vegfaranda sem gerði lögregl-
unni viðvart, líkast þvi að hann
væri frosinn. Þegar að var komið
reyndist var um að ræða ísklump,
sem frystur hafði verið utan um
pappagínu í fótum. Klumpurinn var
verk á vegum Listháskóla íslands
sem var með sýningu í gallrí Nema
hvað á Skólavörðustíg um helgina.
Þetta var í annað skiptið sem ísmað-
urinn var tekinn og færður af Skóla-
vörðustígnum.
„Þetta var gína sem ég klippti út
úr pappa og klæddi í fót,“ sagöi
Magnús Ámason skiptinemi í List-
háskólanum, en hann átti heiðurinn
af því að búa ísmanninn umdeilda
til. „Síðan frysti ég hann og setti
hann á sýningu sem við opnuðum
sl. laugardag."
Magnús sagði að hreinsunardeild
Reykjavíkurborgar hefði síðan tekið
manninn í sína vörslu sl. sunnudag
og hefði hann þá bráðnað talsvert
niður.
„Ég fór í gær að leita að honum
og fann hann hjá hreinsunardeild-
inni,“ sagði Magnús enn fremur.
„Ég tók hann með mér og kom hon-
um aftur fyrir. hann var þá enn
gaddfreðinn. Ég þorði ekki annað en
að setja hann inn í galleríið, en varð
síðan að taka hann aftur út af því að
hann rennbleytti gólfið þar inni. í
gærkvöld var svo hringt í mig og
mér sagt að lögreglan væri mætt við
6., mann á tveimur bílum. Þeir tóku
ísmanninn, sem ég hafði raunar gef-
ið nafnið Sveinbjörn Jónsson. Ég
býst ekki við að hitta hann oftar úr
því sem komið er.“
Sveinbjöm ísmaður er nú í vörslu
lögreglunnar. -JSS
Fíkniefni fundust
við húsleit
Lögreglan í Keflavík gerði hús-
leit í tveimur húsum í Keflavík í
gærkvöld. Við leitina fundust 7
grömm af hassi, 6 grömm af am-
fetamíni og 3 grömm af marijúana.
Að sögn lögreglunnar vom fimm
menn handteknir vegna málsins.
Um er að ræða góðkunningja lög-
reglunnar og voru þeir yfirheyrðir
í gærkvöld. Þeim var öllum sleppt
að yfirheyrslu lokinni og telst mál-
ið nú upplýst. -EKÁ