Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2003, Síða 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003
Útlönd
DV
Kúrdar á flótta.
Kúrdar flýja heimili
sín í þúsundatali
íbúar í Kúrda-héruðum íraks,
sem eru undir stjórn íraka í
norðurhluta landsins, flýja nú
heimili sín í stórum stíl vegna
ótta viö hefndaraðgerðir íraka
komi til stríðs, minnugir aðgerð-
anna árið 1988 þegar írakar
drápu þúsundir Kúrda með efna-
vopnum.
Langar bílalestir hafa verið á
þjóðvegum landsins síðustu daga
og leitar fólk aðallega til öruggari
þorpa norðar í landinu, nær tyrk-
nesku landamærunum, þar sem
það hyggst dvelja meðal landa
sinna þar til hættan er liðin hjá.
Stríö viö írak ekki léttvægt mál:
Mótar örlög Bandaríkj-
anna og annarra landa
George W. Bush Bandaríkja-
forseti hefur nú tekið örlagaríka
stefnu á stríð við írak, stríð sem
á sér ekkert fordæmi og gæti
haft mikil áhrif á gang mála í
heiminum í heila kynslóð, eða
lengur.
Bjartsýnustu menn gera sér
vonir um að stríðið verði stutt
og að það gangi tiltölulega vel,
að Saddam Hussein íraksforseti
verði hrakinn frá völdum, gjör-
eyðingarvopn hans verði
eyðilögð og að langþjáð íraska
þjóðin muni fagna frelsun sinni.
Og að mannfali verði lítið.
Ef allt fer hins vegar á versta
veg gæti stríðið orðið bæði blóð-
ugt og langvinnt, með miklu
mannfalli. Hryðjuverk myndu
færast í aukana og andúðin á
REUTER&MYND
Hlýtt á forsetann
Bandarískir sjóliðar hlusta á forseta sinn
setja leiðtogum íraks afarkosti.
Bandaríkjunum myndi aukast til
muna.
„Ég held að við séum komin að
vatnaskilum," sagði íhaldssami
repúblikaninn Frank Gibney í
samtali við fréttamann Reuters.
Gibney sagði að stríð við írak
myndi ekki aðeins ráða úrslitum
um pólitíska framtíð Bush heldur
einnig móta örlög Bandaríkjanna
og margra annarra. „Það verður
áreiðanlega litið á þetta sem ein-
hverja mikilvægustu ákvörðun
vorra tíma,“ sagði Frank Gibney.
Væntanlegt stríð í írak verður
hið fyrsta sem háð verður í sam-
ræmi við þá nýju öryggisstefnu
Bush að gera fyrirbyggjandi árás-
ir á lönd sem talin eru ógna ör-
yggi Bandaríkjanna.
REUTERSWND
Fiiapóló í Indlandi
Leikmenn og reiöskjótar fílapólóliðs Jaipur-borgar í Indlandi gera sig klára fyrir
pólókappleik sem fram fór á árlegri fílahátíð sem nú stenduryfir í borginni.
Hu vill aukið lýðræði
Hu Jintao, nýr
forseti Kína,
hvatti í morgun til
aukins lýðræðis í
Kína en sagði jafn-
framt að aðeins
sósíalisminn gæti
bjargað landinu.
Þá lagði hann
áherslu á áframhaldandi stjóm
kommúnistaflokksins.
Fiskurinn Færeyjum allt
Fiskafurðir voru 99,4 prósent af
útflutningi Færeyja í fyrra og
hefur hlutfallið ekki verið jafn-
hátt síðan á kreppuárunum.
íraskur herforingi horfinn
Fyrrum yfirmaður íraska hers-
ins hefur horfið sporlaust frá
heimili sínu í Danmörku. Maður-
inn var í farbanni vegna hugsan-
legra réttarhalda yfir honum fyr-
ir stríðsglæpi.
Vopnaeftirlitsmenn frá Bagdad
Vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu
þjóðanna yfirgáfu bækistöðvar
sínar í Bagdad í morgun vegna
fyrirhugaðs stríðs Bandaríkjanna
og Bretlands við írak.
Tyrkir endurskoða beiðni BNA
Ríkisstjóm
Tayyips Erdogans í
Tyrklandi ætlar að
taka aftur fyrir
beiðni bandarískra
stjómvalda um að
fá aðstöðu fyrir
hermenn þeirra
vegna komandi
stríðsátaka í írak.
Lungnapestín breiðist út
Banvænt afbrigði af limgna-
bólgu breiðist nú hratt út um
heiminn með ferðamönnum frá
nokkrum Asíulöndum og er með-
al annars komið til Evrópu.
Tafir á stjórnarskrá ESB
Valéry Giscard
d’Estaing, formað-
ur nefndar sem er
að semja drög að
stjórnarskrá Evr-
ópusambandsins,
sagði í gær að svo
kynni að fara að
verkinu yrði ekki
lokið í júní, eins
og fyrirhugað var, vegna íraks-
deilunnar. Nefndin þarf hugsan-
lega frest fram í september til að
skila af sér.
kr./stk.
Einkamál
lertu orðinn meílimur í Qub SmaitSMS
r eru á vegum Smart auglýsinga ehf.
Fíott merki
Til að panta merki sendir þú skeytið: Merki DV kódi.
T.d.: Merki DV 8001, tii að velja Coca Cola merkið og
sendir á 1919. 99 kr. stk.
Merki
' eingöngu fyrir
.NOKIA sima.
Connecting...
1332
ThltlíNOT ,
t ruCKIN'Toíol
1336
SCLF DCSTRUCT
TIMCBU*i*3i07
1351
1447
í / ¥Eh--’POOL
8001
1064
LöiMí^NGS ■BECKHflTíll
1180 8006
1056
ýswmúi
1058
PLflVVBOV
4021
PLFVVDIRL
4022
99
rkr./stk..
8002
8003
8004
■MHBK
Nú senda allir sitt SMS
óeittnúmer: 1919
iaSMBHWWiiW
Sendu SMS-skeytið DV KVK á númerið 1919
og við sendum þértil baka upplýsingar um
konur að leita að kalrmönnum frá
smáauglýsingum DV.
Að móttaka hvert SMS kostar 49 kr.
Til að afskrá þjónustuna sendu SMS-skeytið
DV KVK STOPP á númerið 1919.