Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2003, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003
13
x>v
Útlönd
Bush gefur Saddam og sonum hans
48 stunda frest til þess að yfirgefa írak
- aö öörum kosti verði ráöist inn í írak aö þeim tíma liönum
Bush Bandaríkjaforseti.
Bush Bandaríkjaforseti tilkynnti í
sjónvarpsávarpi i gærkvöld aö Sadd-
am Hussein Iraksforseti fengi 48
stunda frest til þess aö yfirgefa írak
eða taka afleiðingum af striði að þeim
tima liðnum.
„Það er kominn tími til að binda
enda á áratuga blekkingar og grimmd
í írak,“ sagði Bush meöal annars í
beinni útsendingu sem hófst upp úr
klukkan eitt í nótt að íslenskum tíma
eftir að ljóst var að enginn árangur
yrði af viðræðum um nýja ályktun i
Öryggisráðinu í gær.
„Saddam Hussein og synir hans
verða að yfirgefa írak innan 48
klukkustunda. Geri þeir það ekki
mun koma til hemaðaraðgerða sem
hefjast eftir þann tíma,“ sagði Bush,
en meira en 250 þúsund bandarískir
hermenn auk þúsunda breskra og
ástralskra hermanna eru nú í við-
bragðsstöðu á svæðinu við Persaflóa
og næsta nágrenni komi til stríðs.
Bush sagði að Bandaríkjamenn
hefðu fullan lagalegan rétt til þess að
verja sig og varaði við hættunni á því
að vopn íraka gætu komist í hendum-
ar á hryðjuverkamönnum og samtök-
um eins og al-Qaeda sem ekki myndu
hika við að beita þeim gegn Banda-
ríkjunum.
„Hættan er augljós og
með því að nota efiia- og
sýklavopn og jafnvel síöar
kjarnavopn úr vopnabúmm
íraka gætu hryðjuverka-
menn náð yfirlýstum mark-
miðum og drepið hundruö
þúsunda saklausra borgara í
Bandaríkjimum og öðrum
löndum heimsins. Hvorki
Bandaríkin né aðrar þjóðir
hafa gert neitt á þeirra hlut
sem réttlætir þessa stöðugu
ógn en við munum vissulega
gera allt til að sigrast á
henni. í stað þess að láta
reka á reiðanum munum við
hefja sókn til þess að tryggja öryggi
okkar,“ sagði Bush og ráðlagði öllum
erlendum borgurum og þar á meðal
fréttamönnum og starfsmönnum
vopnaeftirlits Sameinuðu þjóðanna að
yfirgefa Irak strax.
Kofi Annan, aðalframkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, tók Bush á orð-
inu og fyrirskipaði öllu starfsliði SÞ
að hafa sig á brott frá írak þar sem
stríð væri hugsanlega í aðsigi. Hann
sagði þó ekkert um það hvenær brott-
flutningur vopnaeftirlitsins hæfist en
Hiro Ueki, talsmaður þess, sagði hann
liklega hefjast í dag.
Nokkrar þjóðir höfðu þegar lokað
sendiráðum sínum í landinu, þar á
meðal Þjóðverjar og Pakistanar sem
fluttu starfsfólk sitt til Jórdaníu. Þá
hafa Tékkar og Grikkir ákveðið að
loka sendiráði sínu í Bagdad og Ind-
verjar hafa flutt mestan hluta síns
starfsliös til Jórdaníu en munu þó
halda sendiráði sínu áfram opnu.
Ávarp Bush hlaut misjöfh viðbrögð
helstu þjóðarleiðtoga heims og eins og
búast mátti við voru Frakkar harð-
orðir og sögðu heimsbyggðina and-
víga stríði. I yfirlýsingu frá franska
forsætisráðuneytinu sagði að öryggis-
ráðið hafnaði þessum afar-
kostum og að það væri
ábyrgðarleysi að taka ekki
tillit til vilja alþjóðasamfé-
lagsins. „Það er mikil ábyrgð
fólgin í því að taka fram fyrir
hendumar á Sameinuðu
þjóðunum og setja
valdbeitingu framar
réttlætinu," segir meðal ann-
ars í yfirlýsingunni.
Kínverjar segjast ennþá
halda í voninu um
friðsamlega lausn og sagðist
Wen Jiabao forsætisráðherra
ekki trúa öðru en það tækist
þrátt fyrir að örin væri
komin á strenginn.
Fulltrúar Kanada og Mexíkó hjá SÞ
lýstu þegar andstöðu sinni við stríð
en Japanar og Ástralir styðja aftur á
móti hernaðaraðgerðir. „Ég styð
ákvörðun Bush. Hann gerði allt til
þess að byggja upp samstöðu og miðað
við stöðuna held ég að hann sé að gera
rétt,“ sagöi Junichiro Koizumi,
forsætisráðherra Japans.
Frá Indónesíu, fjölmennasta mús-
límariki heims, barst harðorð gagn-
rýni og krafa um að tilraunum til
friðsamlegrar lausnar yrði haldiö
áfram.
REUTERS-MYND
Búinn að fá nóg
Robin Cook sagöi afsér sem teiö-
togi Verkamannaflokksins á þingi.
Róttínn hafinn úr ríkis-
stjórn Tonys Blairs
íraksdeilan hjó stórt skarð í
forystu breska Verkamanna-
flokksins í gær þegar Robin
Cook, leiðtogi flokksins í þinginu
og fyrrum utanrikisráðherra,
sagði af sér vegna harðlínustefnu
Tonys Blairs forsætisráðherra.
„Eg get ekki fallist á að bera
ábyrgð á því að skuldbinda Bret-
. land núna til hernaðaraðgerða í
írak án samþykkis alþjóða samfé-
lagsins eöa stuðnings heima fyr-
ir,“ sagöi Cook í breska þinginu.
Clare Short, ráðherra þróunar-
mála, sem hefur hótað að segja af
sér verði farið stríð við írak,
sagði að hún myndi senda frá sér
yfirlýsingu síðar.
íraksmálið verður rætt á
breska þinginu í dag og er búist
við að hart verði sótt að Blair.
Spilling fyrir rétt
Einn sakborninga í Elf-málinu í París
kemur í dómhúsiö í París.
Spilling meðal franska
háaðalsins fyrir rétt
Búist er við að réttarhöld sem
hófust í París í gær yfir þrjátíu
og sjö sakborningum muni svipta
hulunni af sukki og svínaríi með-
al franska háaðalsins í tengslum
við ríkisolíufélagið Elf þar sem
rúmum hálfum öðrum milljarði
króna var stungið undan.
Átta ára rannsókn á spillingu
innan Elf leiddi í ljós að ýmsir
forystumenn félagsins báru
óspart fé á menn til að tryggja
samninga í olíuauðugum löndum.
Þá rann hluti fjárins aftur í vasa
stjómendanna sjálfra.
Meðal þeirra sem tengjast mál-
inu er Roland Dumas, fyrrum ut-
anríkisráðherra Frakklands.
REUTER&MYND
Herstjóraekkjan handtekin
Serbneska þjóðlagasöngkonan Svetlana Ceca Raznatovic, ekkja herstjórans
Arkans, sem var myrtur fyrir nokkrum árum, var handtekin í gær vegna gruns
um tengsl viö moröingja Zorans Djindjics forsætisráöherra.
ferwúAVfrcw-R úm/
@ 30.500 kr.
Leigan í þínu hverfi