Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2003, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2003, Blaðsíða 4
20 MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2003 Sport Sigurvegarinn Schumacher var kampakátur: Bara vegna nýja bílsins Michael Schumacher, heims- meistari í Formúlu 1, sigraöi í keppninni í Barcelona í gær og seg- ir hann að það megi fyrst og fremst og jafnvel einungis þakka nýja bíln- um sem þeir Ferrari-bræður óku í fyrsta sinn í gær. Schumacher fór með sigur af hólmi eftir baráttu við Spánverjann Femando Alonso, sem var á heimavelli í gær. „Ég bjóst við harðri keppni og það var staðreyndin. Viö vorum heppnir með nýja bílinn, en ég er ai- veg klár á þvi að gamli billinn hefði haft það líka. Þessi nýi er hins veg- ar alveg sérstakur. Hann er frábær, fallegur og ég elska hann,“ sagði Schumacher. Hann sagðist ekki vera sérstaklega hissa yfir frammi- stöðu Alonso. „Það er langt frá því. Ég var alltaf klár á því að þetta yrði erfið keppni, sérstaklega þegar mað- ur sér hvemig Renault-bíllinn hefur staðið sig í vikunni og um helgina." Schumacher er nú aðeins fjórum stigum á eftir ísmanninum, Kimi Raikkonen, eftir að hafa byrjað frek- ar illa i fyrstu þremur keppnunum. „Að sjálfsögðu átti ég von á því að Raikkonen myndi ekki klára eitt- hvert af mótunum og í dag var það dagurinn. Þetta var frábær dagur hvemig sem á það er litið, fyrir mótið, fyrir mig og fyrir þennan nýja bil sem ég ek nú á,“ sagði Michael Schumacher eftir keppn- ina. Það vekur athygli að maðurinn, sem ávallt er með munninn fyrir neðan neflð en hefur skilað litlu undanfarin ár, Jacques Villeneuve, ökumaður BAR, gagnrýnir lið sitt harðlega, en hann varð að hætta eft- ir aðeins 13 hringi vegna vélarbil- unar. „Það er erfitt að sætta sig við þetta. Þetta er búið að gerast alltof oft á þessu tímabili. Ég hafði meira eldsneyti en Jenson og það var þess vegna sem ég leit verr út en félagi minn hjá BAR-liðinu í tímatökunni. Ég var með betri áætlun en hann, en ég gat ekki notað hana vegna bil- unarinnar,“ sagði Villeneuve. Félagi hans var einnig i sviðsljós- inu en Jenson Button varð þess valdandi að David Coulthard datt úr keppninni eftir að Button keyrði á hann. Coulthard sagðist ekki vita hvað gerðist en stjóri McLaren-liðs- ins, Ron Dennis, kennir Button um atvikið og sagði að hann hefði reynt að taka fram úr á heimskulegu augnabliki með þessum afleiðing- um. „Þetta var bara eitt af þessum atvikum og um það er ekkert meira að segja. Svona gerist í Formúl- unni,“ sagði Button. -PS Schumacher fagnar hér öörum sigri sínum i röö í Formúlunni. Schumacher stenst ekki mátiö og sprautar kampavíni yfir Fernando Alonso, sem varö í ööru sæti í kappakstrinum í Barcelona í gær. Fimmta Formúlu-keppnin Slæmur - nýi bíllinn hjá Ferrari skilaði Michael Schumacher vann örugg- an og sanngjaman sigur í Formúlu 1 keppninni sem fram fór í Barcelona á Spáni. Ferrari gat loksins notað nýja bílinn sem svo lengi hefur verið beð- ið eftir og það var ekki að sökum að spyrja. Það er hins vegar óhætt að segja það að sá ökumaður sem kom mest á óvart í keppninni í Barcelona um helgina hafi verið heimamaður- inn Femando Alonso, hinn 21 árs gamli ökumaður hjá Renault. Hann var tvímælalaust maður dagsins. Keppni hans og heimsmeist- arans Michaels Schmnachers var hörð og þrátt fyrir að Renault-bílinn vantaði talsvert afl miðað við hinn glæ- nýja Ferrari-bíl, þá virðist hönnun hans og ökuleikni Spán- verjans vinna það að einhverju leyti upp. Alonso varð þeg- ar upp var staðið rúmlega sex sek- úndum á eftir Schumacher og þrátt fyrir að mun- urinn væri ekki meiri var sigurinn í raun aldrei í hættu. Með þessum góða árangri er Alonso fyrsti Spánveijinn til að standa á verð- launapalli í For- múlu 1 keppninni. Keppnin í heild sinni var ekki til- þrifamikil. Jean Todt var aö vonum ánægöur eftir að úrslit kappakstursins í Barcelona lágu fyrir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.