Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2003, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2003, Síða 8
24 MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2003 Sport Hvemig fer eýivígiö, á milli Hauka og IR um Is- landsmeistaratitilinn í handknattleik? Geir Sveinsson: Ég veit það bara hreinlega ekki en það verður tíminn að leiða i ljós. Þetta verður vonandi spennandi og skemmtilegt ein- vígi. Árni Stefánsson: Að öllu eðliiegu ættu Haukar að vinna, 3-1. Ef ÍR-ingar mæta með rétt hugarfar geta þeir hæg- lega stritt Haukamönnum. Bjarki Sigurfisson: Haukar vinna, 3-1. Þeir hafa meiri breidd og reynslu en ÍR og það skilar þeim titlinum. ÍR-liðið er ungt og efnilegt og á framtíð- ina fyrir sér. Sigurpall Árni Afialsteinsson: Ég held að Haukar merji sigur og það þurfl að leika fimm leiki til að knýja fram úrslit. Bæðin liöin hafa breiðan hóp og varla er hægt að finna veikan blett í leik þeirra. Jóhann Ingi Gunnarsson: Haukamir hafa þetta, 3-1. Ég byggi það einfaldlega á þeirri reynslu sem þeir búa yfir. Það verður hreinlega ailt að ganga upp hjá ÍR-ingum svo þeir eigi að hafa möguleika gegn Hauk- unum. Við eigum eftir að sjá spennandi og skemmtilega leiki. DV Slagurinn um íslandsmeistaratitilinn í handknattleik hefst annaö kvöld: Ungip, fnískir og banhungpaðir - segir Ágúst Jóhannsson sem spáir í einvígiö á milli Hauka og ÍR Einvígi Hauka og IR um íslands- meistaratitilinn í handknattleik karla hefst á morgun en fyrsti leik- ur liðanna verður háður á Ásvöllum í Hafnarfirði. Það lið sem fyrr vinn- ur þrjá leiki verður meistari og eru margb" sem spá því að fimm leiki þurfi til aö knýja fram meistarana að þessu. Þama fara lið með nokkuð ólíkan bakgrunn en eins og allir vita hafa Haukarnir haft á að skipa einu sterkasta liöi landsins um ára- bil en ÍR-ingar hafa í auknum mæli látið æ meira að sér kveða og eru nú komnir með ungt og upprenn- andi lið sem á eflaust eftir að veita Haukum harða mótspymu. Liöin sem hafa mestu breiddina Ágúst Jóhannsson, þjálfari Gróttu/KR, segir að það komi honum í sjálfu sér ekki á óvart að þessi lið berjist um íslandsmeist- aratitilinn að þessu sinni. Bæði lið- in eru vel mönnuð góðum einstak- lingum og hafa verið að gera það gott í deildinni á þessu yfirstand- andi tímabili. Þau hafa að hans mati mestu breiddina en það sé samt ekki nein ávisun á árangur Viggó Sigurðs- son hefur verið að gera góða hluti með Haukaliðið. í vetur hefur Júlí- us Jónasson staðið sig vel í stykkinu með ÍR-liðið þannig að það á ekki að koma neinum á óvart að þessi fé- lög berjist nú um þennan eftir- sótta titil. - Hvemig sérð þú fyrir þér þennan bardaga þessara liða? „Það er Haukunum í hag að þeir þekkja þessa stöðu vel að kljást um titilinn en það er hins vegar alveg nýtt fyrir hið unga og efnilega lið ÍR. Haukamir þurfa fyrst og fremst að halda sér við efnið, halda ein- beitingunni og mæta ekki kæru- lausir til leiks. Það segja flestir að í þessu einvígi séu Haukamir stóra liöið og ÍR-ingar litla liðið og það er út af fyrir sig gott og gilt. Út frá sögunni eru Haukarnir sigur- stranglegri en hinu má ekki hörkugóðu og skemmtilegu liði. Ég held að við eigum eftir að sjá hörku skemmtilega leiki, þetta er ný staða fyrir ÍR-liðið en á móti kemur að liðið er ungt og banhungrað að vinna þennan titil. Einn stærsti styrkleiki ÍR-inga er að þeir bera aldrei virðingu fyrir andstæðing- um sínum inni á vellinum. Þeir þurfa að halda því áfram en það kemur til með að mæða mikiö á Ingimundi, Ólafi og Einari, enda þeirra lykilmenn ásamt Hallgrími í markinu. Það sýnir hvað mikla breidd ÍR-ingar hafa að þeir missa Hreiðar Guömundsson markmann en Hallgrímur kemur i hans stað og er búinn að vera besti leikmað- ur þeirra í síðustu leikjum.“ Sjálfstraust og reynsla - Ef þú berð þessi tvö liðið sam- an, í hverju liggur styrk- og veik- leiki þeirra? „Kostimir hjá Haukum eru þeir fyrst og fremst að þeir hafa mikið sjálfstraust og reynslu. Þeir eru sterkir í sókn og vöm, hafa góða markmenn og reyndan og virtan þjálfara. í þessum þáttum liggur st- yrkleiki liðsins og verðum við bara þeim þegar út í baráttuna er kom- ið. Veikleiki liðsins gæti hugsan- lega verið sá að leikmennirnir væru hreinlega orðnir saddir, ég get samt ekki séð það og það eru fá- ir veikleikar í þessu liði. Breiddin eru mikil og liðið hefur að baki sér sterkan hóp stuðningsmanna. Þetta telur allt og ég hef mikla trú á því að þeir klári þetta einvígi. Styrkleiki ÍR-inga liggur fyrst og fremst í breiddinni og innan þeirra vébanda eru ungir og mjög frískir strákar sem em banhungraðir að ná árangri. Á móti kemur að reynslan er ekki þeirra megin enda að standa i þessum sporum í fyrsta skipti. Það gæti vegið þungt í svona einvígi eins og þessu.“ - Gæti orðið um jafhar viður- eignir að ræða eða sérðu eitthvað annað fyrir þér? „Já, ég hallasc frekar að jöfnum leikjum en eins og ég sagði hef ég meiri trú á Haukum í einvíginu og þeir vinni það, 3-1. Við eigum fýrir höndum skemmtilegt einvígi. Þama fara vel skipuð og skemmti- leg lið og sterkur áhangendahópur er á bak við þau bæði. Handboltans vegna vona ég að fimm leiki þurfi til að fá úr því skorið hverjir verða íslandsmeistarar, Haukamir eiga að klára þetta, ÍR er litla liðið, og Hafnarfjarðarliðið standist press- una þegar upp verður staðið. Líst vel á nýja keppnisfyrirkomulagið - Þú hefur ekki legið á skoðun- um þínum og því er ekki úr vegi að fá þitt álit á nýja keppnisfyrir- komulaginu sem leikið verður eftir á næsta timabili. „Mér líst bara ágætlega á það og sniðugt að prófa það og sjá hvernig það kemur út. Ég hef trú á því að þetta fyrirkomulag gæti gert deild- ina skemmtilegri og dragi að fleiri áhorfendur en áður. Það var tíma- bært að gera eitthvað en ég hef alltaf sagt og segi enn að vandamál- in liggi fyrst og fremst hjá félögun- um sjálfum. Félögin gera leikina ekki áhugaverða og umgjörðin um þá hefur bara ekki verið nógu að- laðandi. í núverandi kerfi voru margir leikir ekki áhugaverðir og slakir um leið og höfðu ekki mikla þýðingu. Riðlakeppnin í byrjun móts næsta haust gerir það að verkum að liðin verða að vera klár í slaginn 20. september en þó liðin mistigi sig þar eiga þau enn þá möguleika. Leikimir verða ef- laust jafnari og meira fyrir augað og mótið verður því um leið meira krefjandi fyrir liðin. Mér fannst ekki tímabært að fara út í stærri breytingar á mótinu og vonandi heppnast þetta fyrirkomulag. Eftir mótið á næsta tímabili verður far- ið yfir stöðuna og metið hvernig til hafi tekist, við skulum bíða og sjá, þetta var alla vega fyrsta skrefið. Menn verða að líta á þetta jákvæð- um augum, gefa þessu tækifæri, en auðvitað vora fleiri möguleikar í boði. Þetta var niðurstaðan og von- andi verður þessi breyting lyfti- stöng fyrir handboltann,“ sagði Ágúst Jóhannsson, þjálfari Gróttu/KR, í samtalinu við DV. -JKS en hjá því verður samt ekki litið að gleyma að ÍR-ingar hafa á að skipa að bíða og sjá hvað þetta dugar ÍR-ingar tryggfiu sér sæti í úrsiitaleiknum mefi þvf afi leggja Valsmenn afi velli í undanúrslitunum. Þafi gekk ýmislegt á í þeirri vifiureign eins og myndin ber giöggt vitni um. Ágúst Jóhanns- son, þjálfari Gróttu/KR.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.