Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2003, Síða 19
:
MANUDAGUR 5. MAÍ 2003
Sport
Guörún Jóna Kristjánsdóttir og féiagar hennar í KR lutu f gras fyrir
Valsstúlkum f undanúrslitum deildabikarsins. DV-mynd Hari
Skagamaöurinn Kári Steinn Reynisson í baráttu viö Kristján Sigurösson f viöureign liöanna á Akarnesi f gær.
Skagamenn í úrslit í deildabikarnum eftir stórsigur á KR:
Áttum að skora fleiri
O-l Guðjón Sveinsson (3.)
0-2 Kári Steinn Reynisson (27.)
1-2 Bjarki Gunnlaugsson (33.)
1-3 Hjörtur Hjartarson (40.)
1-4 Hjálmur Dór Hjálmsson (78.)
Skagamenn tryggðu sér sæti í úr-
slitaleik deildabikarsins með örugg-
um og mjög sannfærandi sigri á
döprum KR-ingum á Akranesi í gær-
dag. Fyrri hálfleikur var mjög fjör-
legur og þótt Skagamenn hefðu verið
miklu beittari þá náðu Vesturbæipg-
ar nokkrum ágætum sóknarlotum.
Þeir gulklæddu gáfu tóninn strax á
þriðju mínútu með glæsilegur marki
Guðjóns Sveinssonar en um undir-
búninginn sá Grétar Rafn Steinsson
- sérlega vel gert hjá þeim félögum.
Kári Steinn Reynisson bætti við
marki en Bjarki Gunnlaugsson náði
að minnka muninn eftir misskilning
í vöm Skagamanna. Héldu þá margir
að KR-ingar væru komnir á skrið en
svo var aldeilis ekki og Hjörtur
Hjartarson jók muninn aftur i tvö
mörk sjö mínútum síðar. í seinni
háifleik, sem var öllu bragðdaufari,
voru Skagamenn áfram örugglega
með undirtökin en þeim tókst þó
ekki að gulltryggja sigurinn endan-
lega fyrr en tólf mínútum fyrir leiks-
lok.
Bæði lið fengu nokkur hættuleg
færi í hálfleiknum en það var ein-
hvem veginn deginum ljósara að
Skagamenn væm með þetta í hendi
sér. Barátta þeirra var til fyrirmynd-
ar - allar aðgerðir þeirra vorumiklu
markvissari og sigurviljinn var mun
meiri hjá þeim en KR-ingum og sæti
í úrslitaleiknum því virkilega verð-
skuldað. Skagaliðið lék vel sem heild
- allir lögðu sitt af mörkum og upp-
skeran eftir því.
Hjá KR-ingum var bitleysið aUs-
ráðandi og þá sérstaklega hjá fram-
herjum liðsins sem skorti kraft og
vilja. Vömin var síðan ekkert til að
hrópa húrra fyrir og það er óhætt að
segja að hún þurfi talsverða bætingu
- liðið er jú búið að fá á sig níu mörk
í tveimur síðustu leikjum. Gunnlaug-
ur Jónsson, fyrirliði Skagamanna,
stóð vaktina að venju vel í vörninni
og hann var virkilega ánægður með
sína menn og hafði þetta aö segja
þegar DV-Sport kom að máli við
hann rétt eftir leik:
„Við mættum ákveðnir til leiks,
staðráðnir í að komast í úrslitaleik-
inn og mér fannst við spila mjög vel
í heildina séð - sköpuðum fullt af
færum og hefðum átt að skora fleiri
mörk. Þeir sköpuðu sér ekki mikið
og við gáfum þeim þetta mark og það
sýndi sig að við vildum vinna leikinn
meira en þeir. Nú er úrslitaleikurinn
eftir og við stefnum ótrauðir á að
vinna hann,“ sagði jaxlinn Gunn-
laugur.
Maður leiksins: Grétar Rafn
Steinsson, ÍA. -SMS
Átla sigrar í röð hjá Keflavík
1-0 Þórarinn Kristjánsson (26.)
1- 1 Lee Sharpe (55.)
2- 1 Magnús Þorsteinsson (65.)
3- 1 Magnús Þorsteinsson (87.)
Keflvíkingar em komnir í úrslit
deildabikarsins eftir 3-1 sigur á
Grindavík í Egilshöll. Þetta var
jafnframt áttundi sigur þeirra í röö
í keppninni. Sigurinn hefði getað
lent hvorum megin sem var en það
sem réð úrslitum var betri nýting
Keflvíkinga og sterkari vöm. Leik-
urinn var í jafiivægi framan af,
bæði lið léku varfæmislega og
drógu leikmenn sig fljótt til baka
þegar boltinn tapaðist. Keflvíkingar
reyndu að sækja hratt upp miðjuna
en Grindvíkingar tóku sér meiri
tima í sínar aðgerðir. Færin komu
á víxl en leikmönnum gekk illa að
hitta markið í skotum sínum og átti
það eftir að verða Grindvíkingum
að falli.
Keflvíkingar tóku forystuna eftir
góða sókn upp vinstri kantinn sem
endaði með skallamarki Þórarins
Kristjánssonar eftir góða fyrirgjöf
Hólmars Rúnarssonar. Keflvíking-
ar hökkuðu meira eftir markið og
gáfu fá færi á sér.
Seinni hálfleikur hófst á sömu
nótum en litlu munaði þó að Kefl-
víkingar ykju forskot sitt en skot
Þórarins af stuttu færi var varið.
Jöfnunarmark Grindvíkinga var
klaufalegt af hálfu Keflvíkinga.
Grétar Hjartarson komst þá inn í
slaka sendingu aftur á markvörð,
boltinn barst til Lee Sharp sem
skaut boltanum af löngu færi í tómt
markið. Keflvíkingar færðu sig
framar á völlinn og það tók ekki
langan tíma fyrir þá að endur-
heimta forskotið þegar Magnús
Þorsteinsson fýlgdi eftir skoti Stef-
áns Gíslasonar af stuttu færi. Það
var síðan Magnús Þorsteinsson
sem innsiglaði sigur Keflvíkinga.
Það er engin tilviljun að Keflvíking-
um gengur svo vel þessa dagana. í
vöminni, sem er mun betri en hún
hefúr verið undanfarin ár, unnu
Zoran Ljubicic og Haraldur Guð-
mundsson vel saman. Liöið var þétt
fyrir á miðjunni þar sem Hólmar
Rúnarsson lék mjög vel og Þórar-
inn og Magnús vora mjög ógnandi í
sókninni.
„Við vorum betri og vorum að fá
fleiri færi í leiknum þó að þeir hafi
fengið sín líka. Þetta var góður leik-
ur tveggja sterkra liða sem verða í
toppbaráttu hvort í sinni deild-
inni,“ sagði Milan Jankovic, þjálf-
ari Keflvikinga, aðspurður um
hverju hann hefði breytt í vamar-
leik liðsins. Grindvíkingar áttu al-
veg þokkalegan leik aö þessu sinni
en hefðu þurft að nýta færin betur.
Bestu menn liðsins vora Ólafur
Öm Bjamason og Lee Sharp sem
stjómuðu leik liðsins af prýði og
Ray Jónsson var ógnandi á kantin-
um.
Maður leiksins: Hólmar Öm
Rúnarsson, Keflavík.
Hefndarsigur hja
Blikastulkum
1- 0 Bjamveig Birgisdóttir (3.)
2- 0 sjálfsmark (7.)
3- 0 Bjamveig Birgisdóttir (8.)
4- 0 Erna Sigurðardóttir (48.)
4-1 Olga Færseth (89.)
4-2 Mhairi Gilmour (90.)
Breiðablik sigraði ÍBV nokkuð ör-
ugglega, 4-2, í undanúrslitum deilda-
bikars kvenna í knattspymu í Fíf-
unni í gær. Þessi lið áttust við fyrir
skötrunu í riðlakeppninni og þá sigr-
aði ÍBV nokkuð örugglega. Það voru
þrjú mörk á fyrstu átta mínútunum
sem gerðu þennan leik ekki eins
spennandi og hann hefði getað orðið.
Leikurinn var fjörugur í fyrri hálf-
leik og fengu bæði lið færi til að gera
fleiri mörk.
Blikar byrjuðu seinni hálfleikinn
af sama krafti og þann fyrri, skoruðu
mjög fallegt mark eftir gott spil. Eft-
ir þetta vora leikmenn Eyjamanna
meira í sókn en mjög góður mark-
maður Blika, Dúfa D. Ásbjörnsdóttir,
varði oft mjög vel í markinu. Eyja-
stúlkur náðu síðan undir lokin að
klóra aðeins í bakkann.
„Vel spilaður leikur af okkar
hálfu. Við settum þama þrjú mörk i
byrjun sem gerði þetta náttúrlega
erfitt fyrir þær. Það var það mikið
eftir af leiknum að þetta var alls
ekki búið en mínar stelpur spiluðu
vel. Við töpuðum fyrir þeim um síð-
ustu helgi og við lærðum mikið á
þeim leik. Við skipulögöum okkur
aðeins öðruvísi út frá því hvernig
þær spiluðu og hvernig við fengum
mörkin á okkur. Það skilaði sér
mjög vel hér en við misstum aðeins
einbeitinguna í lokin og fengum á
okkur tvö mörk. Það verður bara
gaman að mæta Val. Við höfum spil-
að við þær áður í vetur og það verð-
ur örugglega hörkuleikur," sagði
Ólafur Þór Guðbjömsson, þjálfari
Breiðabliks, sigurreifur eftir leik-
inn.
Leikurinn var vel leikinn og lofar
góöu fyrir bæði lið í sumar. Góður
samleikur og mikill hraði var í
leiknum.
Maður leiksins: Dúfa D. Ás-
björnsdóttir, Breiðabliki. -MOS
Dora Mana kom
Val í urslitaleik
1-0 Dóra Maria Lárusdóttir (32.)
1-1 Hrefna Jóhannesdóttir (51.)
1- 2 Júllana Einarsdóttir (56.)
2- 2 Nína Ó. Kristinsdóttir (72.)
3- 2 Dóra María Lárusdóttir (77.)
Valsstelpur tryggðu sér sæti í
úrslitaleik deildabikarsins í knatt-
spymu með sigri á KR í Fífunni á
laugardag. Leikurinn var ágætis-
skemmtun - opinn og fjöldi góðra
færa leit dagsins ljós og svo auð-
vitað fimm mörk. Jafnræði var
með liðunum í heildina og hvor-
ugt þeirra náði neinum afgerandi
tökum á leiknum né náðu ein-
hverjum stórsóknum eða pressu.
Færin komu á víxl og bæði lið
sóttu frekar hratt og náðu oft að
opna vamimar og þá sérstaklega
með kantspili. Valur beitti því
reyndar meira og fékk aðeins
meira af hættulegum færam en
KR-stelpur sóttu nokkuð inn á
miðjuna. Dóra María Lárusdóttir
var spræk hjá Val en hún hefði
auðveldlega getað skorað fleiri
mörk - best á vellinum var þó
Nína Ó. Kristinsdóttir sem var
dugleg og skapandi. Annars var
liðið nokkuð jafnt og hlutirnir líta
vel út hjá því.
Hjá KR kom Júlíana Einars-
dóttir sterk inn af bekknum í síð-
ari hálfleik en líkt og hjá Val var
það liðsheildin sem var að skila
mestu og engin sérstök sem stóð
upp úr. Helena Ólafsdóttir, þjálfari
Vals, var ánægð með karakterinn
í liðinu og hún hafði þetta að segja
í samtali við DV-Sport í leikslok:
„Ég er mjög ánægö með stelpum-
ar og það var sérstaklega gott að
ná því að koma til baka eftir að
hafa lent undir. Bæði liðin áttu
fullt af færum enda var leikurinn
opinn og hann hefði í raun og
veru getað farið á hvom veginn
sem var. Það er gott að vera kom-
in í úrslitaleikinn og mér finnst
liðið vera á réttri leið - hópurinn
er stór og til marks um það þá
vantar enn Rósu og írisi en stelp-
umar stóðust prófið og viö stefn-
um ótrauðar á að klára dæmið,“
sagði Helena.
Maður leiksins: Nína Ó.
Kristinsdóttir, Val. -SMS