Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2003, Page 7
Laugardagur 17. maí 2003
7
mjög aðgengilegt því hægt er að
teygja sig í þær með þumalputta
án þess að slepppa stýrinu í
akstri. Gæði hljómflutningstækja
eru af háum standard. Miðstöð er
auk þess mjög kröftug þegar á
þarf að halda, hvort heldur er til
þess að mæta kulda eða hita,
dreifir loftinu mjög vel um bílinn.
Það er þægilegt því þegar eigandi
fer að venjast bifreiðinni ætti
hann ekki þurfa að líta af umferð-
inni þó t.d. hækkað sé eða lækk-
að í útvarpi eða geislaspilara. Það
er hins vegar óþægilega langt í
ljósarofa fyrir aðalljós sem er
galli þegar litið er til hinna þæg-
indanna og eins er klukka
frammi við framrúðu óþægilega
langt í burtu miðað við stærð.
Hliðarspeglar er rafdrifnir og
uppnitaðir sem er gríðarlegur
kostur í íslenskri vetrarveðráttu.
Góðir geymsluvasar eru aftan á
sætum auk niðufellanlegra borða,
þannig að farþegum líður eins og
flugfarþegum með öll þægindi til
þess að matast og drekka.
Nægur kraftur
Bíllinn hefur nægjan kraft tóm-
ur eins og hann var er honum var
reynsluekið, jafnvel þó um dísil-
vél væri að ræða.Það sýndi sig
best þegar tekið var fram úr, t.d.
á stærri umferðargötum þar sem
ekki dugar að vera lengi að hlut-
unum. Sjálfskipting er mjög góð,
bílinn t.d. fljótur að skipta sér
niður þegar honum er skyndilega
gefið inn, t.d. við framúrakstur.
Einnig var í örskamma stund
ekið beinskiptum bíl með bensín-
vél. Hann reyndist vel, og skipt-
ingin einnig, þó var eins og 3. gír
væri stundum of langt frá 1. gír,
svo jafnvel þurfti að leita að hon-
um eitt augnablik.
Lágvær
Það er hátt undir bílinn svo
hann fór auðveldlega um malar-
vegi, jafnvel þar sem aka þurfti
yfir malarhrygg. Veggrip er
þokkalega gott en þegar ekið var
sæmilega hratt í beygjur mætti
finna fyrir miðflóttaaflinu, án
þess að það væri til verulegra
óþæginda. Hljóð frá vél og veg-
hljóð er mjög lítið og speglar nýt-
ast vel þegar þarf að bakka enda
er útsýni úr baksýnisspegli inni í
bílnum af fremur skomum
skammti og varlegt að treysta um
of á það. Beygjurradíus er mjög
mikill, líklega eðilegt i svo stór-
um bíl. Útsýni er hins vegar gott
úr bílnum, hvergi póstar sem
hindra það svo neinu nemi.
Bíllinn er nokkuð dýr, þó tæp-
lega miðað við þá möguleika sem
honum fylgja. Hann kostar sjálf-
skiptur með dísilvél, eins og sá
sem reynsluekið var, 3,3 milljónir
króna. Beinskiptur er hann um
400 þúsund krónum ódýrari með
bensínvél. Allur lúxus kostar
peninga, stundum hæfilega. -GG
\ •X% \Bílar
HIÐ MIKLA TEYGJUÞOL PACE
ÞAKEFNANNA GERIR AÐ ÞAU
STANDAST ÁLAGIÐ OG ÞAKIÐ
ÞITT HELDUR ÁFRAM AÐ
VERA FALLEGT OG ÞÉTT
ÞENSLA 0G SAMDRATTUR VEGNA HITABREYTINGA
HAFA YFIRLEYTT í FÖR MEÐ SÉR FLÖGNUN, TÆRINGU
OG SPRUNGUMYNDUN. SLÍKT GETUR VALDIÐ ÞAKLEKA
OG STYTT VERULEGA ENDINGU ÞAKKLÆÐNINGAR.