Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2003, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 13.JÚNI2003
Vonir um menningarhúspeninga brugðust
Einar Njálsson, bæjarstjóri í
Árborg, segist ekki gjörkunn-
ugur hvernig eignarhaldi
sveitarfélagsins Árborgar í
fasteignum Hótels Selfoss er
háttað. Hins vera hafi fulltrúar
bæjarins farið yfir það með
lögmönnum og hafi verið
staðfest að menningarsalur-
inn er ekki partur af því sem
auglýst var á uppboðinu sem
fallið var frá í gærmorgun.
Segir hann vonir um að fjár-
magn til menningarhúsa á
landsbyggðinni kæmi einnig
til Selfoss hafi brugðist.
Einar sagði að bærinn hefði
byggt hótelið fyrir um 25
árum og rekið það þar til það
var selt eignarhaldsfélaginu
Brúárið 2000. Um 120 millj-
ónir hafi vantað til að klára
salinn og ekki hafi reynst
unnt að fá til þess fjármagn.
Leitað til ríkisins
Þegar ríkisstjórnin viðraði
hugmyndir um að reist yrðu
menningarhús víða um
landsbyggðina vonuðust
margir til að Selfoss yrði inni í
þeirri mynd og þar með yrði
hótelinu bjargað. Bæjarstjóri
segir að það hefði vissulega
getað breytt dæminu en nú
virðist Ijóst að ekkert verði af
því.
„Ég hef ítrekað leitað eftir því
en það hefur ekki fengist í
gegn. Ég hef sjálfur setið
fundi um þessi mál en ekki
hefur verið ijáð máls á að
veita fé til Selfoss vegna
menningarhúss." Einar sagði
að vissulega hefði slíkt getað
hjálpað til að koma salnum (
stand. Nú væri hins vegar
búið að ákveða að veita fé í
þessu skyni til Vestmanna-
eyja. Hann vildi þó ekkert
segja um hvort þar væri litið á
Vestmannaeyjar sem eina
fulltrúa Sunnlendinga varð-
andi framlag til menningar-
húsa.
Hótelið á Selfossi
er skuldum vafið
Veðskuldir tæpar527milljónir króna
UPPBOÐ: Eyrarvegur 2, þar sem Hótel Selfoss er til húsa, var auglýst á uppboði hjá sýslumanninum á Selfossi, m.a. vegna vangreiddra opinberra gjalda.
Uppboð var auglýst á Eyrar-
vegi 2 í síðustu viku en þar er
Hótel Selfoss til húsa. Átti
uppboð að fara fram á þriðju-
dag en var afturkallað. Fjöl-
margir gerðarbeiðendur voru
að málinu og veðskuldir rúm-
ar 527 milljónir króna á eign-
inni. Það mun fyrst og fremst
vera mikill kostnaður vegna
uppbyggingar hótelsins sem
er að sliga rekstur hússins.
Tveir eigendur eru skráðir að
húseignum hótelsins að Eyrarvegi 2
á Selfossi. Þar er um að ræða Sel-
fosskaupstað og Eignarhaldsfélagið
Brú hf. sem er dótturfélag Kaupfé-
lags Ámesinga.
Þeir sem kröfðust uppboðs á
húseignum eru Arkis ehf., Gólf-
lagnir-Flotun ehf., Málningarþjón-
ustan ehf., Olíuverslun Islands hf.,
Ræktunarsamband Flóa/Skeiða
ehf., Samskipti ehf., Sýslumaður-
inn á Selfossi, Vatnsverk ehf. og ör-
yggismiðstöð íslands hf. Allir þessir
aðilar, nema sýslumaður, eiga
þinglýst veð í þessum húseignum
Brúar hf. Þá er DV kunnugt um að
fleiri verktakar og iðnaðarmenn á
Selfossi eigi inni hjá fyrirtækinu
vegna uppbyggingar á hótelinu og
sumir verulegar upphæðir.
Langstærsti veðhafinn
er Sparísjóður Kópa-
vogs sem er með 56 veð
á 1. veðrétti auk
tveggja veða á 2. og 3.
veðrétti, samtals að
upphæð 381.452.000
krónur.
Með 58 veð í húsinu
Langstærsti veðhafmn er hins
vegar Sparisjóður Kópavogs sem á
dögunum var í fréttum vegna lán-
veitinga til manna sem tengjast
Landssímamálinu svokallaða. Er
sparisjóðurinn með 56 veð á 1. veð-
rétti auk tveggja veða á 2. og 3. veð-
rétti, samtals að upphæð
381.452.000 krónur. Þá er Byggða-
stofnun með um 90 milljóna króna
veðkröfu sem skráð er á 1. veðrétti
á eftir kröfum SPK. Einnig er sveit-
arfélagið Árborg með stórt veð, eða
rúmar 28,7 milljónir króna, sem er
á 4. veðrétti.
KÁ keypti hótelið af sveitarfélag-
inu á sínum tíma og var kaupverð-
ið samkvæmt heimildum blaðsins
um 40 milljónir króna með ákveðn-
um skilyrðum. Því fylgdi samning-
ur um að lokið yrði við að innrétta
mikinn sal sem ætlaður var til nota
fyrir ýmiss konar menningarstarf-
semi. Byrjað var á að byggja við
hótelið sem var með 20 herbergi og
stofnað var eignarhaldsfélagið Brú
við hlið KÁ. Byggð var álma með 80
herbergjum til viðbótar, en Hótel
Selfoss er rekið sem sjálfstætt félag
en er líka í eigu KÁ.
Hótelið, sem upphaflega var
byggt sem félagsheimili, var þing-
lýst með eignarlýsingu á Brú hf.
þann 13. október árið 2000. Það er
einnig þinglýst í eigu Selfosskaup-
staðar samkvæmt eignalýsingu frá
16. mars 1987. Gerður mun hafa
verið einhvers konar kaupleigu-
samningur um menningarsalinn
sem fólst í því að Brú hf. eignaðist
hann á tilteknu árabili eftir að hann
væri tilbúinn. Enn bólar þó ekkert á
framkvæmdum og salurinn er enn
óinnréttaður. Samt er búið að kosta
hundruðum milljóna króna til að
reisa nýja gistiálmu við hótelið.
Hótel fyrir slikk
Talsverð reiði ríkir á Selfossi í
garð KÁ og Brúar, m.a. þar sem ekki
hafi verið staðið við samninga við
bæinn. Eins vegna þess að Kaupfé-
lagið hafi nánast fengið hótelið gef-
ins á sínum tíma því að bærinn hafi
þá þegar verið búinn að leggja
hundruð milljóna króna í húsið.
Heimildarmenn DV telja að þá hafi
Sigurður Skúli Bárðarson,
hótelstjóri á Hótel Selfossi,
segir reksturinn í eigu
Kaupfélags Árnesinga en
húsið sé síðan leigt af Eign-
arhaldsfélaginu Brú ehf.
sem líka er í eigu KÁ.
Hann segist ekki geta sagt til
um hvað verði um hótelrekstur-
inn ef uppboðið fer fram á hús-
eignum þeim sem hótelið er
starfrækt í. Ekki bætir úr skák að
hátt gengi krónunnar fælir frá er-
lenda ferðamenn.
Hótel Selfoss er fjögurra
stjörnu hótel með 100 herbergj-
um, fjórum funda- og veislusöl-
um, veitingaaðstöðu og bar. Sér-
ieyfissamningar eru síðan í gildi
á milli Hótel Selfoss og Flug-
leiðahótelanna um bókunar-
það verið um 500-600 milljóna
króna virði en var svo selt Brú hf. á
40 milljónir króna. Við söluna hefði
þjónustu og markaðsmál. Hótel-
ið opnaði 1. júní á síðasta ári og
þótti mörgum þá kostulegt að í
kynningu var getið um aðstöðu
hótelgesta sem fælist m.a. í að-
Töluvert hefur verið
um afpantanir það
sem afer júní. Maí
kom ágætlega út en
óvissa er með fram-
haldið. Ástæðan er
m.a. ofhátt gengi á
krónunni.
gangi að líkamsrækt, snyrtistofu
og bíósal. Ekkert af þessu hafi þó
verið til staðar þegar hótelið
opnaði, þar á meðal var „menn-
bærinn einnig gengist undir að rífa
leikskóla, sem stóð rétt við hótelið,
með æmum kostnaði. hkr@dv.is
ingarsalurinn" góði.
Sigurður segir að töluvert hafi
verið um afpantanir það sem af
er júní. Maí hafi komið ágætlega
út en óvissa sé með framhaldið.
Ástæðuna segir hann m.a. óhag-
stætt gengi, þ.e. hátt verð á krónu
gagnvart dollar og evm. Það valdi
því að Bandaríkjamenn og fleiri
afpanti ferðir til íslands sem sé
orðið of dýrt land fyrir ferða-
menn. Þá nefnir hann einnig öra
uppbyggingu á hótelrými t
Reykjavík á síðustu mánuðum
sem hafi óneitanlega áhrif á hót-
elrekstur í nágrannasveitarfélög-
unum.
í dag em starfandi 26 starfs-
menn á Hótel Selfossi eða svip-
aður mannskapur og á frystitog-
ara. Áframhaldandi rekstur skipt-
ir því væntanlega vemlegu máli
fyrir sveitarfélagið. hkr@dv.is
Óvissa um framhaldið