Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2003, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2003, Blaðsíða 30
30 DVSPORT FÖSTUDAGUR 13.JÚNÍ2003 BRUGÐIÐ Á LEIK: Stelpurnar í íslenska kvennalandsliðinu í handknattleik voru á æfingu á Ásvöllum í Hafnarfirði í fyrrakvöld þar sem þær brugðu á leik fyrir Ijósmyndara DV. DV-myndÞÖK íslenska kvennalandsliðið leikur tvo leiki gegn Evrópumeisturum Dana um helgina: .4 m 11 Bjartsýnn á framtíðina Stefán Arnarson, landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik, telur mikinn efnivið vera til staðar íslenska kvennalandsliðið í handknattleik stendur í stór- ræðum þessa dagana en á næstu dögum eru fram und- an sex leikir ytra þar sem hæst ber tvo leiki við Evrópu- meistara Dana og það er langt síðan íslenska landslið- ið hefur att kappi við jafn- sterkt landslið. Leikirnir við Dani fara fram á laugardag og sunnudag en á þriðjudag keppir liðið við Ikast - eitt sterkasta félagslið heims, og það verður ekki síður spennandi fyrir stelpurnar að mæta því liði. Á miðvikudaginn er síðan förinni heitið til Portúgals þar sem háðir verða þrír leikir við landslið Portúgala. Leikirnir eru liður í undir- búningi liðsins íyrir for- keppni Evrópumeistara- mótsins sem hefst í haust. DV-Sport leit inn á æfingu liðsins á Ásvöllum og náði tali af þeim Stefáni Arnars- syni landsliðsþjálfara og Hörpu Melsted, sem er einn leikreyndasti leikmaður liðsins. Mikil áskorun „Það verður skemmtilegt og mik- il áskorun íyrir liðið að fá að takast 'á við svo sterkt lið sem Danir eru, það er langt síðan við höfum spilað við þær og við hlökkum til. Þótt fram undan séu leikir við sterka og erfiða andstæðinga þá komum við alveg hundrað prósent í þessi verk- efni og höfum fulla trú á því sem við erum að gera,“ sagði Harpa. Sjáum hvar við stöndum Við komum til með að sjá svona nokkurn veginn hvar við stöndum með því að spila á móti svona Það verður skemmti- legt og mikil áskorun fyrir liðið aðfá að takast á við svo sterkt lið sem Danir eru og það er langt síðan við höfum spilað viðþær og við hlökkum til. sterku liði - þær dönsku spila mjög hraðan bolta og við höfum verið að keyra upp hraðann á þessum æf- ingum - bæði með þessa leiki sem fram undan eru í huga og eins hentar það okkur ágætlega að spila hratt." Spilum hraðar en áður En hver er helsti styrkur liðsins, að mati Hörpu? „Á síðustu árum hefur liðið spilað æ hraðar og er farið að ná góðum tökum á hraðanum - við höfum í okkar röðum rosalega snögga hornamenn eins og Dag- nýju (Skúladóttur) og Hönnu (G. Stefánsdóttur) sem að mínu mati eru á heimsmælikvarða. Vörnin og markvarslan eru síðan auðvitað þeir lykilþættir sem þurfa að vera í lagi til þess að okkur takist að nýta hraðann eins og við viljum." Sátt við þróunina Aðspurð um stöðu og þróun Harpa Melsted, landsliðskona í handknattleik. kvennahandboltans hér á landi segir Harpa ástand mála vera gott og segist ekki sjá annað en upp- sveiflan sem í gangi hafi verið und- anfarin ár haldi áfram: „Ég er mjög sátt við þróunina í greininni og það er fullt af efnilegum stelpum að koma upp. Hvað landsliðið varðar þá hefur það verið í sókn á síðustu árum og það helst auðvitað í hend- ur við aukin verkefni. Til að mynda voru leikirnir við Svía í fyrra mjög lærdómsríkir og þar fengum við staðfestingu á því að við eigum al- veg erindi í þessi góðu lið. Til þess að byggja upp gott landslið þurfum við mikið af verkefnum og það er það sem Stefán er að gera - fá fullt af leikjum enda vinnst þetta ekkert öðruvísi," sagði Harpa. Spennandi verkefni „Það verður sérstaklega spennandi og skemmtilegt að takast á við dönsku Evr- ópumeistarana og ég vil bara meina - eins og staðan er í dag - að það sé sigur fyr- ir fslenskan kvennahand- bolta að vera boðið að spila á móti þeim - liðið var að gera vel á alþjóðlegum Stefán Arnarson grundvelli í fyrra og þess þjálfari (slenska styrkleikarnir og veikleikarnir? „Við erum með fína blöndu,“ segir Stefán ákveðinn og heldur áfram: „Liðið getur spilað hraðan bolta mjög vel enda höfum við yfir að ráða mörgum fljótum leikmönn- Eitt aðalverkefnið er að ná að stjórna hrað- anum allan leiktímann því liðið sem gerir það hefur yfirhöndina. um og við sáum það í leikjum liðs- ins í fyrra að þegar því tókst að stjórna hraðanum þá var það yfir- leitt með forystuna og því er eitt aðalverkefnið að ná að stjórna hraðanum allan leiktfm- ann. Aðalveikleiki liðsins er að það vantar örvhenta leikmenn og það er auðvit- að mikill missir að Guð- mundu Ósk (Kristjáns- dóttur) sem er með slitin krossbönd og Jónu Mar- gréti (Ragnarsdóttur) sem er meidd á öxl og það munar um minna. Þá eru vegna fáum við þetta góða kvennalandsliðsins. Ungar og efnilegar stelpur boð. Það er tilhlökkun í hópnum og þessir leikir allir sem eru fram undan eru gríðarlega mikilvægur liður í undirbúningi og uppbyggingu liðsins fyrir stóra verkefnið sem hefst í haust - und- ankeppni Evrópumótsins.“ Vantar örvhenta leikmenn En hvernig flnnst Stefáni bland- an í liðinu vera og hverjir eru helstu eins og Dröfn (Sæmunds- dóttir) og Ragnhildur (Guðmunds- dóttir), sem ég hefði gjarnan viljað hafa í hópnum, einnig meiddar. Ef við hins vegar höldum áfram að fá næg verkefni þá er ég mjög bjart- sýnn á framtíð landsliðsins og kvennahandboltans í heild," sagði Stefán Arnarson, þjálfari kvenna- landsliðsins í handknatdeik. SMS LANDSLIÐSHÓPUR ÍSLANDS Stefán Arnarson hefur valið sautján stúlkur (landsliðshóp sinn. Fjórir nýliðar eru í hópnum, Elísabet Gunnarsdóttir úr Stjörnunni.Guðrún Hólmgeirsdóttir úr Víkingi, Alla Gorkorian úr fBV og Harpa Vífilsdóttir úr FH. Markverðir: Helga Torfadóttir, Holsterbro 26 ára/50 landsleikir Berglind Hansdóttir.Val 21 árs/13 landsleikir Aðrir leikmenn: Elísabet Gunnarsd., Stjörnunni 18 ára/nýliði Guðbjörg Guðmundsd.,Víkingi 21 árs/4 landsleikir Kristín Guðmundsd., Holsterbro 24 ára/19 landsleikir Harpa Vífilsdóttir, FH 20 ára/nýliði Hafrún Kristjánsdóttir.Val 23 ára/8 landsleikir Harpa Melsted, Haukum 28 ára/34 landsleikir Dagný Skúladóttir, Moulineaux 23 ára/24 landsleikir Drífa Skúladóttir, Val 23 ára/16 landsleikir Hrafnhildur Skúladóttir, Holsterb. 25 ára/43 landsleikir Hanna Stefánsdóttir, Haukum 26 ára/18 landsleikir inga F.Tryggvadóttir, Holsterbro 30 ára/46 landsleikir Guðrún Hólmgeirsdóttir, Víkingi 22 ára/nýliði Brynja Steinsen, Haukum 26 ára/45 landsleikir Ragna K.Sigurðard.,Gróttu/KR 21 árs/3 landsleikir Alla Gorkorian, (BV 31 árs/nýliði tis

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.