Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2003, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2003, Blaðsíða 14
14 TILVERA FÖSTUDAGUR 13.JÚNÍ2003 Tilvera Fólk ■ Heimilið ■ Dægradvöl Netfang: tilvera@dv.is Sími: 550 5824-550 5810 Hrein og bein KVIKMYNDIR: Heimildakvik- myndin Hrein og bein verður sýnd í Nýja bíói/Sambíóunum á Akureyri á morgun kl. 14 og er aðgangur ókeypis. Hrein og bein er byggð á viðtölum við 10 unga samkynhneigða (slendinga sem hafa horfst í augu við for- dóma víða í umhverfinu en ákveðið að koma úr felum og lifa frjálsir í samfélagi minnkandi for- í bíó dóma. Hún fjallar meðal annars um innri baráttu og uppgjör við foreldra og fjölskyldur svo og þau skref að fóta sig á eigin for- sendum. Myndina gerðu Hrafn- hildur Gunnarsdóttir kvikmynda- gerðarmaður og Þorvaldur Krist- insson, formaður Samtakanna 78. Hrein og bein verður frum- sýnd á kvikmyndahátíð í San Francisco á sunnudag. -EKÁ Hv/uf viltu vita? •%" 'fn'm |!L>At>[ V jm) ^*1*"**'*1 t-i4MiýdiM<lr Ulmtf <1 fcfrSA. DmmtNfLMt »,V m k*. «?.*, mm, ■roJb í*»toii< I fcrtMwfa t ifcnrii jn» pAÍam m »>w«e tróSbAt W>. <ð t M* Hvað viltu vita? BREIÐHOLT: Hvað viltu vita? er sýning sem Þjóðskjalasafn fs- lands og Menningarmiðstöðin Gerðuberg opna í dag kl. 17. Hún er byggð að nokkru leyti á skjölumfrá 18.og 19.öld sem varða jörðina Breiðholt og íbúa þar. Jafnframt er varpað Ijósi á þróun Breiðholts fram til dags- ins í dag í máli og myndum. Akureyringar horfa á sjónvarpsstöðina Aksjón: Korter I nýrri könnun sem Gallup gerði í apríl og maí fyrir sjónvarpsstöðina Aksjón á Akureyri kemur fram að 92,3% bæjarbúa nota þjónustu stöðvarinnar. Útsendingarsvæði stöðvarinnar nær til um 17.000 manns. í sams konar könnun fyrir svæðisstöð Ríkisútvarpsins á Akur- eyri kemur fram að 47,4% hlustuðu vikulega eða oftar á Útvarp Norð- urlands. Þessi könnun staðfestir nýlega könnun Rannsóknarstofn- unar Háskólans á Akureyri um að Aksjón er langmest notaði fjölmið- ill bæjarins og einnig sá auglýsinga- miðill sem nær til flestra fbúa, ólíkt því sem gerist í flestum plássum á landsbyggðinni þar sem dagskrár- hefti hafa rutt héraðsfréttablöðum og öðrum staðbundnum fjölmiðl- um úr vegi. Sjónvarpsstöðin Aksjón var stofnuð í október 1997 og verður því 6 ára í haust. Að sögn Gísla Gunnlaugssonar framkvæmda- stjóra kemur þetta mikla áhorf ekki á óvart. „í raun ekki, þetta hefur verið stígandi undanfarin ár og í takt við það sem við áttum von á,“ Þetta hefur veríð stíg- andi undanfarín ár og í takt við það sem við áttum von á. segir Gísli en aðalskrautfjöður stöðvarinnar er fréttaþátturinn Kortér sem frumsýndur er kfukkan kortér yfir sex öll kvöld og endur- sýndur á klukkutíma fresti fram eft- ir kvöldi. Með þessu móti nær þátt- urinn miklu uppsöfnuðu áhorfi hvem dag „Fólk er tilbúið að skammta sér nokkrar mínútur á hverju kvöldi í svona staðbundið fréttaefni og við ætlum okkur að auka gæði þeirra mínútna," segir Gísli og á næstu dögum hefur Ak- sjón nýjan dagskrárlið inni í Kortéri sem nefnist Dagskrá. í honum verður fjallað um þá fjölbreyttu at- burði oguppákomur sem eru íboði fyrir ferðafólk og bæjarbúa á svæð- inu. Á næstunni stendur til að stækka dreifingarsvæðið. „Við höfum átt í viðræðum við aðila á Dalvík og Grenivík og höfum mikinn áhuga á því að koma upp sendum þar,“ seg- ir Gísli en einnig eru uppi áform um enn frekari stækkun og þá líta menn einna helst til Húsavlkur og Sauðárkróks ÆD Ke Norðle r ^ BORGARLEIKHUSIÐ Lcikfélag Rcykjavikur STÓRA SVIÐ ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield f kvöld kl. 20 SÍÐASTA SÝNING í VOR DON GIOVANNI Operustúdíó Austurlands Su. 15/6 kl. 17. Má. 16/6 kl. 20. GREASE íslenska leikhúsgrúppan Fi. 26/6, FRUMSÝNING NÝJA SVIÐ 15:15 TÓNLEIKAR - FERÐALÖG Bergmál Finnlands: Poulenc-hópurinn Lau. 14/6 kl. 15:15 LITLA SVIÐ RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT Lau. 21/6 kl. 20 - AUKASÝNING, UPPSELT Su. 22/6 kl. 20 - AUKASÝNING ATH.: SÍÐUSTU SÝNINGAR ALLIR í LEIKHÚSIÐ - ENGINN HEIMA! Borgarleikhúsið er fjölskylduvaent leikhús: Börn, 12 ára og yngri, fá frítt í leikhúsið í fylgd með forráðamönnum. (Gildir á ÖFUGU MEGIN UPPÍ). k J Pfanótónleikar Tómas G. Eggertsson leikur franska svítu nr. 5 í G dúr eftir J.S. Bach, Pathétique-sónötuna eftir Beethoven, Faschingsschwank ausWien eftir Schumann og Three pieces for piano solo eftir Hafliða HaÚgrímsson. Verd kr. 1.500/1.200 1= 2 3 3 allt þaö áhuga- veröasta í heimi viðskipta í dag Iwi) 110 )■ siii íli) lllllslll E Landsbankinn Samískir dagar á Laugarvatni: Grillað hreindýrakjöt og skrautlegur klæðnaður Samar, saga þeirra, menning og staða, var þemaefni í Grunnskólan- um á Laugarvatni síðustu vikur skólastarfsins og var klykkt út með vandaðri og fjölbreyttri hátíðardag- skrá við skólaslitin sem var helguð Sömum. Þar fengu flestar listgrein- ar sinn skerf; leikrit voru flutt, ljóð eftir Sama voru lesin, fróðleiksmol- ar um Sama voru fram færðir, samískir söngvar sungnir o.fl. o.fl. Nemendur gerðu tjöld að hætti Sama með eldstóm og öllu og var m.a. boðið upp á grillað hreindýra- kjöt. Sýning var á samfsku hand- verki. Síðast en ekki síst klæddust margir nemendur skrautlegum heimagerðum samabúningum. Tveim samískum blaða- mönnum fannst mikið til um þennan viðburð og hinn mikla og ein- læga áhuga á Sömum hjá börnum, kennurum og foreldrum í þessum íslenska sveitaskóla. Sigurður Helgi Guðjónsson, sem er af samísku bergi brotinn, kom á hátíðina og flutti ávarp. Með hon- um í för voru tveir samískir blaða- menn sem fannst mikið til um þennan viðburð og hinn mikla og einlæga áhuga á Sömum hjá börn- um, kennurum og foreldrum í þessum íslenska sveitaskóla. Munu þeir fjalla rækilega um það í blöð- um sfnum í Samalandi. Úpphaflega furðuðu þeir sig á því að hér skyldi hafa verið stofnað til vináttufélags Sama og Islendinga, SAMÍS, og voru þeir hér á landi m.a. til að for- vitnast um það. Urðu þeir enn meira hlessa á Samaáhuganum á Laugarvatni. Annar blaðamaður- inn, kona að nafni Sara Marit A. Gaup, frá Kautikeino, kom tii hátíð- arinnar í fagurrauðum búningi síns héraðs. Leyfði hún börnunum að heyra hvernig samíska hljómar. Sara Marit er einnig söngkona og hefúr sungið forna samíska sálma við góðan orðstír. Færði hún skól- anum að gjöf áritaðan disk með söng sínum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.