Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2003, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2003, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 13.JÚNÍ2003 FRÉTTIR 13 1-------------------------- Hillary vorkennir Monicu CLINTON: Hillary Clinton,fyrrum for- setafrú Bandaríkjanna, segist vor- kenna Monicu Lewinsky og öllum sem hlut áttu að máli þegar framhjá- hald Bills Clintons og Lewinsky varð opinbert. Þetta kemur fram í viðtali sem sent verður út á hinni bresku ITN-sjónvarpsstöð í kvöld. Jafnframt segir hún í viðtalinu að fórnarlömb þessa hneykslismáls hafi verið mjög mörg. Ástæðan fyrir því sé að mestu leyti sú að pólitískir andstæðingar Bills Clintons hafi reynt að nýta sér hneykslið til hins ítrasta. „Þeir voru tilbúnir að eyði- leggja hvern sem er til að binda enda á forsetatíð manns míns og létu ekkert stöðva sig. Þetta fólk var meira að segja tilbúið til að grafa undan stjórnarskránni til að koma honum úr embætti," segir Hillary Clinton í viðtalinu. MEÐ BLÓÐIDRIFNA SKYRTU: Reiður palestínskur unglingur heldur hátt á loft blóði drifinni skyrtu þar sem hann stendur ofan á bíl sem eyðilagðist í flugskeytaárás ísra- elska hersins á Gaza i gær. Háttsettur leiðtogi Harðlínusamtakanna Hamas lét lífið í árásinni, svo og eiginkona hans og barnung dóttir. Fjórir vegfarendur til viðbótar létu lifið í árásinni. ísraelski herinn harmaði dauða mæðgnanna og Hamas-liðar hétu þvi að koma fram hefndum fyrir fallinn leiðtoga sinn. Undanfarna tvo sólarhringa hafa hátt í fjörutíu menn fallið í átökum Palestínumanna og [sraela, átökum sem bandarísk stjórnvöld kenna Hamas um. Serbneska lögreglan réðst til atlögu: Stríðsglæpa- maður gómaður Sérsveitir serbnesku iög- reglunnar gerðu áhlaup á íbúð í Belgrad í morgun og handtóku mann sem var ofarlega á lista yfir eftir- lýsta stríðsglæpamenn. Til harðra átaka kom við þjóð- ernisöfgamenn sem höfðu safnast saman á götunni fyrir neðan. Háttsettur heimildarmaður í serbneska innanríkisráðuneyt- inu staðfesti í morgun við frétta- mann Reuters að búið væri að færa Veselin Sljivancanin, fyrr- um ofursta í júgóslavneska hernum, ívarðhald. Beiðni hafði komið þar um frá Bandaríkja- mönnum svo hægt væri að ganga frá frekari efnahagsaðstoð við Serbíu. Sljivancanin hafði verið á flótta undan réttvísinni frá því Slobodan Milosevic var steypt af stóli forseta Júgóslavíu í októ- bermánuði árið 2000. Lögreglan hafði setið um íbúðina í tíu klukkustundir áður en hún lét til skarar skríða. Svo virðist sem ofúrstinn fyrrverandi hafi komið þangað til að halda upp á fimmtugsafmælið sitt. Stríðsglæpadómstóll Samein- uðu þjóðanna ákærði Slji- vancanin árið 1995 fyrir aðild að fjöldamorðum á tvö hundruð Króötum og öðrum júgóslav- neskum borgurum sem ekki voru Serbar eftir að júgóslav- neski herinn lagði undir sig borgina Vukovar 1991. Sljivancanin hafði hótað að sprengja sig í tætlur. A/lir íþráttax/iðburáir í beinni á risaskjám. Puui. Eóáur matseáill. Tökum aá akkur bápa, starfsmannafélög. Stórt ag gatt dansgólf. SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SÍMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Auglýsing um breytingar á deiliskipulagi og á aðalskipulagi í Reykjavík • í samræmi við 18. og 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar til kynningar tillögur að breytingum á deiliskipulags- áætlunum og aðalskipulagi í Reykjavík: Reykjanesbraut/Stekkjarbakki, Smiðjuvegur, mislæg göngutenging (göngubrú). Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Reykjanesbrautar við Mjódd og Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001 -2024. Tillögurnar gera ráð fyrir að í stað þess að göngutenging liggi um gatnamótin verði byggð aðskilin göngubrú yfir Reykjanesbraut, norðan fyrirhugaðra gatnamóta. Breytingin er gerð þar sem hæðarlega tengingarinnar verður betri auk þess sem umferð óvarinna vegfarenda er aðskilin frá bílaumferð. Nánar um tillögurnar vísast til kynningargagna. Nauthólsvík, breyting á deiliskipulagi. Tillaga lýtur að breytingum á deiliskipulagi Nauthólsvíkur. Tillagan gerir m.a., ráð fyrir að afmörkuð verði lóð og byggingarreitur fyrir veitingahús þar sem núverandi veitingahús stendur (Nauthóll). Við það verður hluti af bílastæðum, sem áður voru almenn stæði, hluti af lóð veitingahússins. Þá gerir tillagan ráð fyrir að byggingarreitur fyrir biðskýli verði minnkaður, almenn bílastæði, næst baðhúsi, breytist í stæði fyrir fatlaða og 40 hjólastæði, lóð fyrir bátanaust er skilgreind og skilmálum breytt. Einnig gerir tillagan ráð fyrir að stígar, lagnir og sjóvarnargarður séu færðir inn á skipulagið í samræmi við framkvæmdir auk þess sem byggingarreitur á svæði D, sem áður var fyrir veitingahús, falli niður og breytist á ný í svæði fyrir leikvöll. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Skildinganes, endurskoðað deiliskipulag. Tillaga lýtur að endurskoðun á deiliskipulagi Skildinganess sem afmarkast af Einarsnesi, Skildinganesi, Skeljanesi og útivistarsvæði með strandlengju. Um er að ræða tillögu að endurskoðuðu deiliskipulagi fyrir svæðið sem byggir á eldra skipulagi og þeim húsum og byggðamynstri á svæðinu. Tillagan gerir þó ráð fyrir nokkrum breytingum m.a. á skilmálum svæðisins, m.t.t. fenginnar reynslu, en markmið hennar er að gera þá skilmála skýrari. Þá gerir tillagan jafnframt ráð fyrir breytingum á byggingarreitum og skilmálum nokkurra óbyggðra lóða m.t.t. óska, ábendinga og athugasemda þar um. Tillagan gerir ráð fyrir að lokun á milli Skildingatanga og Skeljatanga haldist auk þess sem unnið hefur verið með gönguleiðir á svæðinu svo eitthvað sé nefnt. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Aðalskipulag Reykjavíkur 2001-2024, breyting á skilgeiningum mið- svæða M5, M6, M8 og skilgreiningu athafnasvæða. Tillagan lýtur að breytingum á skilgreiningum á miðsvæðum M5, M6, M8 og skilgreiningu athafnasvæða, varðandi heimildirtil reksturs matvöruverslana á þessum svæðum. Þá gerir tillagan ráð fyrir leiðréttingu á orðalagi varðandi miðsvæði M8. Varðandi miðsvæði M6 gerir tillagan ráð fyrir að sérstaklega verði kveðið á um bann við rekstri matvöruverslana á M6 svæðinu norðvestan Grafarholts, milli Vesturlandsvegar og Grafarholts. Varðandi miðsvæði M5 gerir tillagan ráð fyrir að óheimilt verði að reka matvöruverslanir á þeim svæðum nema það sé sérstaklega leyft í deiliskipulagi. Til að taka af allan vafa um rekstur matvöruverslana á athafnasvæðum, s.s. á athafnasvæðunum í Hálsahverfi, Hádegismóum, Smálöndum og á Gylfaflöt, gerirtillagan ráð fyrir að tekið verði fram í skilgreiningu um athafnasvæði að óheimilt sé að veita leyfi til rekstar nýrra matvöruverslana á þeim. Þá gerir tillagan ráð fyrir að leiðrétt verði villa í skilgreiningu miðsvæðisins M8. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 - 16.15, frá 13. júní 2003 - til 25. júlí 2003. Einnig má sjá tillögur á heimasíðu sviðsins, skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við þær skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eigi síðar en 25. júlí 2003. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 13. júní 2003. Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur . . ............................................................ ...........

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.