Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2003, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 13.JÚNÍ2003 FRÉTTIR 7 7
Aðferðin við fjárdráttinn
í upphafi var ljóst að um stórfellt
I auðgunarbrot var að ræða og
beindist rannsóknin íyrst og fremst
að árunum 1999 og 2000 og að hin-
um kerfisbundnu rangfærslum í
tölvukerfi fyrirtækisins. Við nánari
rannsókn málsins kom í ljós að
málið náði einnig til áranna
2001-2003 og að fyrrum aðalgjald-
keri beitti jafnframt öðrum aðferð-
um. Hann naut trausts yfirmanna
og samstarfsmanna og bjó yfir mik-
illi þekkingu á bókhalds- og eftir-
| litskerfi Símans. Hann nýtti sér
traust samstarfsmanna sinna svo
og þessa þekkingu til afbrotsins til
að hylja slóð sína. Stærstum hluta
Brotið nemur nú 250
milljónum króna. Um
130 milljónir runnu til
fyrirtækisins Alvöru
lífsins ehf. en 120 millj-
ónir falla undir annan
fjárdrátt gjaldkerans.
fjárins náði hann með því að breyta
textaskrám með upplýsingum um
reikninga sem hann átti að greiða
og millifærslum sem hann átti að
framkvæma. Allt virtist rétt og eðli-
lega skráð í sjálfu bókhaldskerfinu
en upplýsingum var breytt eftir að
þær voru komnar út úr bókhalds-
kerfinu á leið til banka.
Starfsfólk Símans hefur unnið
náið með lögreglu við rannsókn
málsins og nú er ljóst að brot gjald-
kerans voru einnig framin með öðr-
um aðferðum, þ.e. misferli við út-
gáfu tékka, óheimilum millifærsl-
um í bankalínu auk stuldar á reiðu-
fé. Til að fela slóð sína notaði hann
biðreikninga félagsins með ólög-
mætum hætti, tvígreiddi reikninga
og nýtti sér ofgreidda reikninga auk
ólögmætra gjaldfærslna á gengis-
mun og vaxtagjöldum fyrirtækisins.
Aðferðir hans voru því margslungn-
ar og um margt óhefðbundnar,
ásetningur mikill én á sama tíma
naut hann trúnaðar.
Umfang auðgunarbrotsins
Rannsókn er ekki lokið en hefur
leitt í ljós auðgunarbrot sem nemur
250 milljónum króna. Taiið er að
Dæmi um aðferð
við fjárdráttinn
Samkvæmt bókhaldi átti að
greiða fyrirtæki A reikning en
skránni var breytt þannig að
upphæðin rann inn á reikning í
eigu B. Svarskrá frá bankanum
var síðan breytt að nýju áður en
hún var lesin inn í bókhalds-
kerfið í þá vem að reikningur A
hefði verið greiddur. Þannig gat
Sveinbjörn velt upphæðinni á
undan sér án þess að nokkuð
vantaði f bókhaldið.
Viðskiptin
við Skjáeinn
1. í ágúst til október 1999
lagði Sveinbjörn inn á reikn-
ing íslenska sjónvarpsfélags-
ins tæpar 25 milljónir króna í
þremur greiðslum. I lok árs-
ins var sú fjárhæð endur-
greidd.
2. Árið 2000 keypti Svein-
bjöm víxil af Burnham
Intemationai að fjárhæð 42
milljónir sem hann hafði ekki
heimild til. Sá víxill var
greiddur af íslenska sjón-
varpsfélaginu á gjalddaga í
nóvember sama ár.
3. Árið 2001 var gerð upp
skuld við íslenska sjónvarps-
félagið að upphæð 18,6 millj-
ónir þar sem greiddar vom
6,6 milljónir og 12 milljónir
vom settar á skuldabréf.
Greiðsla af því hefur farið
fram á vöxtum og afborgun-
um og lýkur því skuldabréfi á
næsta ári.
Ráðning
Sveinbjörns
- leitað var til ráðningarstofu
sem mælti með honum til
starfsins
- hóf störf hjá Landssíman-
um 1. október 1998
- útskrifaðist úr Wet Mesa
High, Albaquerque, New
Mexico í Bandaríkjunum
1985
- stundaði rekstrarhagfræði
við University of New Mexico
1987-1989
- fór í Tækniskóla fslands
1991 og lauk þar námi sem
iðnrekstrarfræðingur af
framleiðslusviði
- sótti námskeið í markaðs-
fræðum hjá Endurmenntun-
arstofnun HÍ
- verkstjóm í byggingariðn-
aði, rak eigið fyrirtæki og
gerði markaðskannanir
- sölustjóri hjá Kexverksmiðj-
unni og fjármálastjóri hjá
Fínum miðli.
Hert eftirlit hjá
Landssímanum
- skýrari aðgreining starfa og
verkefna
- tryggt að þeir sem sjái um
varðveislu fjármuna hafí ekki
aðgang að bókun á gjalda-og
tekjulykla
- vinnuaðferðir við allar af-
stemmingar hertar
- reglur um meðferð ávísana
hertar
- almennar innágreiðslur til
lánardrottna stöðvaðar.
búið sé að upplýsa brotið að mestu
en ekki er loku fyrir það skotið að
upphæðin eigi eftir að hækka. Um
130 milljónir mnnu til fyrirtækisins
Alvöm lífsins ehf. en 120 milljónir
falla undir annan fjárdrátt gjaldker-
ans. Svo virðist sem hann hafi dreift
fjármagninu, sem hann tók ófrjálsri
hendi, samkvæmt eigin geðþótta og
mun sá þáttur koma í ljós þegar lög-
reglurannsókn lýkur. Síminn hefur
lagt áherslu á að rekja allar greiðsl-
ur frá aðalgjaldkeranum og munu
endurkröfur verða gerðar sam-
kvæmt lögum.
Innra og ytra eftirlit
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri
Símans, sagði ljóst að málið væri
álitshnekkir fyrir Símann og hefði
reynt mikið á starfsmennina. Að-
ferðir gjaldkerans voru um margt
óhefðbundnar og slungnar og fóm
Aðferðir hans voru því
margslungnar og um
margt óhefðbundnar,
ásetningur mikill en á
sama tíma naut hann
trúnaðar.
fram hjá hefðbundnu innanhúss-
eftirlitskerfi Símans og Ríkisendur-
skoðunar. Ljóst er að ytri og innri
eftirlitskerfi virkuðu ekki eins og til
var ædast en að hans sögn verður
áfram unnið við að bæta það og alla
innri ferla, bæði innanhúss og með
utanaðkomandi sérfræðingum.
Lánveitingar Símans
Að sögn Brynjólfs stundar Síminn
ekki almenna lánastarfsemi. Hins
vegar lánar Síminn dóttur- og hlut-
deildarfyrirtækjum sínum, sam-
kvæmt samþykki stjórnar, og skuld-
breytir ef viðskiptavinir lenda í van-
skilum. Alvara lífsins ehf. er hins
vegar ekki dóttur- eða hlutdeildar-
fyrirtæki Símans. Síminn ávaxtar
lausafé sitt til skamms tíma, t.d.
með því að kaupa víxla og önnur
verðbréf og sagði Brynjólfur að
þessi viðskipti hefðu í öllum tilvik-
um farið í gegnum löggild verð-
bréfafyrirtæki og banka. -ekA
■■■■■■■■■■■■■líHB^^H
Hvers konar reykingamaður ertu?
í dag ætlum viö aö kíkja á reykingapróf, sem getur leiöbeint þeim, sem vilja nota nikótínlyf
til að hjálpa sér til að hætta aö reykja. Prófið verður aldrei tæmandi, en gefur þó gott yfirlit
yfir reykingar þínar og hvaða reikingalyf þú ættir að nota. Ef þú ert í vafa um eitthvað getur
þú fengið góð ráð í næsta apóteki, eða sent inn fyrirspurn til mín á heimasíðu dv.
Guðbjörg Pétursdóttir,
hjúkrunarfræðingur.
Hve margar sígarettur reykirðu á dag?
□ færri en 10 = 0 stig □ 10 - 20 = 1 stig
□ 21 - 30 = 2 stig □ fleiri en 30 = 3 stig
Hvenær reykirðu mest?
□ Síðla dags / Alveg sama = 0 stig □ Snemma dags = 1 stig
Reykirðu ofan í þig?
□ Aldrei = 0 stig □ Öðru hvoru = 1 stig □ Alltaf = 2 stig
Hvenær færðu þér fyrstu sígarettuna eftir að þú vaknar?
□ Eftir 1 klst. = 0 stig □ Eftir 30 - 60 mín. = 1 stig
□ Eftir 5 - 30 mín. = 2 stig □ Eftir 0 - 5 mín. = 3 stig
Er verst að sleppa morgunsígarettunni?
□ Nei = 0 stig □ Já = 1 stig
Áttu erfitt með að virða reykingabann?
□ Nei = 0 stig □ Já = 1 stig
Reykiröu þegar þú ert veik(ur)?
□ Nei = 0 stig □ Já = 1 stig Samtals:
Svör
0-3 stig - Reykir með öðrum:
Þú ert ekki endilega háð(ur) nikótíni.
Þú getur notað 2 mg nikótíntyggigúmmi
eða 1 mg munnsogstöflu eftir þörfum.
4-7 stig - Reykir af vana:
Þótt reykingar þínar séu aðallega slæmur
ávani, áttu erfitt með að vera án nikótíns.
Nikótínplástur, -tyggigúmmi eða -
munnsogstafla auðveldar þér að hætta.
8-12 stig - Stórreykingamaður:
Þú ert mjög háð(ur) nikótíni og hefur
mikið gagn að nikótínplástri, tyggigúmmi
eða munnsogstöflu.
Byrjaðu t.d. með sterkasta nikótín-
plásturinn, 21 mg. Ef þú vilt heldur
nikótíntyggigúmmí skaltu byrja með 4
mg og ef þú kýst munnsogstöflur, skaltu
byrja með 2 mg. Þegar þörfin er mest
getur þú notað 2 mg tyggigúmmí eða 1
mg munnsogstöflursamhliða plástrinum.
Þú nálgast eldri pistla á www.dv.is
Upplýsingar um Nicotinell nikótinlyf
finnurðu á www.dv.is
Nicotinell
Nicotinell tyggigúmmí er lyf sem er notað sem hjálparefni til að hætta eða draga úr reykingum. Það inniheldur nikótín sem losnar þegar
tuggið er, frásogast í munninum og dregur úr fráhvarfseinkennum þegar reykingum er hætt. Tyggja skal eitt stykki í einu, hægt og rólega
til að vinna gegn reykingaþörf. Skammtur er einstaklingsbundinn, en ekki má tyggja fleiri en 25 stk. á dag. Ekki er ráðlaat að nota lyfið
lengur en 1 ár. Nikótín getur valdið aukaverkunum, s.s. svima, höfuðverk, ógleði, hiksta og ertingu í meltingarfærum. Sjúklingar með
slæma hjarta- og æðasjúkdóma eiga ekki að nota nikótínlyf nema í samráði við lækni. Nicotinell tyggigúmmí er ekki ætlað börnum yngri
en 15 ára nema í samráði við lækni. Kynnið ykkur vel leiðbeiningar sem fylgja pakkningunni. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.