Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2003, Side 29
FÖSTUDAGUR 13.JÚNÍ2003 DVSPORT 29
Önnur umferð torfærunnar fer fram á Blönduósi um helgina
Önnur umferð íslandsmeist-
aramótsins í torfæruakstri
verður ekin í malargryfjunum
við Blönduós á laugardaginn
en þetta er í þriðja sinn sem
þar er haldin torfærukeppni.
Fyrri keppnir voru sérstak-
lega skemmtilegar og braut-
irnar fjölbreytilegar þrátt fyr-
ir að gryfjurnar þar séu
hvorki stórar né djúpar.
Ræðst það helst af því hversu
fjölbreytilegur jarðvegurinn
þar er.
Félögum í Akstursíþróttafélagi
Suðurnesja, sem hafa haldið þessa
keppni í samvinnu við Björgunar-
sveitina á Blönduósi, hefur því tek-
ist að leggja geysiskemmtilegar
brautir þar.
Skemmtilegar gryfjur
Keppendur hafa skemmt sér vel í
keppnunum á Blönduósi en
ánægðastur þar hefur verið Har-
aldur Pétursson á Musso sem hefur
sigrað í báðum keppnunum sem
haldnar hafa verið á Blönduósi til
þessa. Þegar þessi orð eru skrifuð er
óvíst hvort Gísli Gunnar Jónsson á
Arctic Trucks Toyotunni verður
með en Bjöm Ingi Jóhannsson er
búinn að gera við vélina í Fríðu
Grace sem blokkarsprakk daginn
fyrir torfæruna sem haldin var í Jós-
efsdal í maí. Björn Ingi, sem náði
þriðja sætinu í íslandsmeistara-
mótinu í fyrra og varð einnig í
þriðja sæti heimsbikarkeppninnar,
ædar sér að ná langt í torfærunni í
Bjarki sýndi mikla
keppnishörku og sigur-
vilja í fyrstu umferð
mótsins þó að hann
réði ekki við Gunnar
sem er á miklu öflugri
bíl.
sumar en hann velgdi Halla Pé og
Gísla G. töluvert undir uggum í
fyrra og sigraði þá í tveimur keppn-
um, annarri sem haldin var í
Bolöldum við Jósefsdal og í tor-
færunni sem haldin var við Stapa-
fell á Reykjanesi.
Öflugur nýliði
Kristján Jóhannesson var að gera
góða hluti I fyrstu umferð tor-
fæmnnar í ár en hann hreppti þar
annað sæti. Kristján hefur ekki
mikla keppnisreynslu þó að hann
hafi keppt áður í torfæruakstri. Það
skemmir ekki fyrir honum að hann
keppir á fornfrægum bíl. Er það
Heimasætan sem Árni Kópsson
smíðaði á sínum tíma og var mjög
sigursæll á. Það verður því spenn-
andi að fylgjast með Kristjáni í
sumar og sjá hvort honum takist að
halda fluginu sem hann tók í fyrstu
umferð íslandsmeistaramótsins.
Hörkubardagi
Baráttan í götubílaflokknum verður
vafalaust á milli Gunnars Gunnars-
sonar á Trúðnum, Ragnars Ró-
bertssonar á Pizza 67 Willysnum og
Bjarka Reynissonar á Dýrinu en
Bjarki sýndi mikla keppnishörku og
sigurvilja í fyrstu umferð mótsins
þó að hann réði ekki við Gunnar
sem er á miklu öflugri bíl. En allt
getur gerst og það hefur sýnt sig að
smávægileg bilun getur haft úr-
slitaáhrif í torfæruaksturskeppnum
þar sem allt veltur á því að bílarnir
haldist í lagi. Eins og jafnan hefst
keppnin kl. 13.00 á laugardaginn.
JAK
t
Haraldur Pétursson, betur þekktur sem Halli Pé, kann vel við sig í brekkunum við
Blönduós. DV-myndJAK
ffij (tKv)
fSK 1 * 1 i m:\c
l ‘ i n
■ jjMF1 x* ‘ nBJr
Árni Baldursson og Haraldur Eiríksson ræða málin við Laxá í Kjós.Áin hefur gefið
fjóra laxa, tvo á maðkinn og tvo á flugu. Laxinn er kominn í Bugðuna.
Laxveiðin hefur byrjað
fjörlega þetta sumarið
Laxveiðin hefur oft byrjað
betur en núna, reyndar eru
aðstæður ekki góðar og
vatnsleysi kemur í veg fyrir að
laxinn mæti á svæðið. En lax-
inn hefur oft gengið í mjög
litlu vatni og það er stór
straumur á sunnudaginn, svo
það er aldrei að vita hvað ger-
ist.
Hver laxveiðiáin af annarri er
opnuð þessa dagana og á sunnu-
daginn opna Laxá á Ásum, Langá á
Mýrum, Elliðaárnar og Laxá í Leir-
ársveit. Hætt var við að opna Víði-
dalsá á sunnudaginn, hún verður
ekki opnuð fyrr en á miðvikudag-
inn.
Vatnsmiklar ár
Það hafa sést laxar í Kerinu í Fitjá
í Víðidal, nokkrir fiskar, í Langá á
Mýrum er laxinn mættur líka. Lax-
inn er kominn í Fnjóská í Fnjóska-
dal og hefur sést lax í Bjarghorni,
10-12 punda fiskur, en áin er frekar
vatnsmikil þessa dagana. Ekkert
hefur sést á Hellunni eða Kolbeins-
polli ennþá en það hefur verið kíkt.
„Það sáust þrír laxar í
Bugðu, svo fiskurinn er
kominn þangað og það
voru laxar að ganga á
neðstu svæðum
árinnar."
„Það eru komnir fjórir laxar á land
og veiddist tveir í morgun f Kvíslar-
fossinum á flugu, tveir daginn áður,"
sagði Ásgeir Heiðar, er við spurðum
um stöðuna í Laxá í Kjós í gærdag.
Það var Ágúst Pétursson sem veiddi
fyrsta laxinn í ánni á þessu sumri.
„Það sáust þrír laxar í Bugðu, svo
flskurinn er kominn þangað og það c'
voru laxar að ganga á neðstu svæð-
um árinnar," sagði Ásgeir ennfrem-
ur.
Það er erfitt að henda reiður á hve
mikið hefur veiðst af laxi en líklega
hafa veiðiárnar sem hafa opnað gef-
ið um 100 laxa og hann er ennþá
stærstur sem veiddist í Blöndu, 18
punda fiskur á fluguna.
Gengur vel í urriðanum
Á þessari stundu em komnir um
800 urriðar á land og veiðimaður
sem var að koma af urriðasvæðinu
hjá Hólmfríði sagði að veiðiskapur-
inn gengi vel og það hefði veiðst vel.
Fiskurinn væri vænn en mikið væri
af flugu á svæðinu.
„Það var skemmtileg taka hjá
fiskinum en hann var vandlátur á
flugurnar eins og venjulega, en þetta
er svakalega gaman þegar hann tek-
ur,“ sagði veiðimaðurinn, sem var á
urriðaslóðum.
G. Bender