Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2003, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAG UR 18. JÚNÍ2003 FRÉTTIR 7 3
UPPBYGGING STÖÐVAST: Bragi Skúlason byggingameistari og Sigríður Sigurðar-
dóttir safnvörður fyrir utan Byggðasafnið í Glaumbæ en framkvæmdir eru að
stöðvast við endurgerð gamla bæjarins. DV-mynd ÞÁ
Framkvæmdir í Glaumbæ stöðvast og lítið
verður gert í Saurbæ:
Húsverndarsjóð-
ur látinn gjalda
framúrkeyrslu
Mikil fjárvöntun húsverndar-
sjóðs Þjóðminjasafnsins set-
ur nú strik í reikninginn varð-
andi endurbætur á gömlum
þjóðminjum.
Til að mynda eru endurbætur á
gamla bænum í Glaumbæ í Skaga-
firði að stöðvast og útlit er fyrir að
lítið verði gert í Saurbæ í Eyjaflrði
þar sem búið var að opna hús.
Húsvemdarsjóði Þjóðminja-
safnsins er gert að greiða niður á
þessu ári framúrkeyrslur á síðustu
áram, alls að upphæð um 20 millj-
ónir króna. Haraldur Helgason,
deildarstjóri húsvemdardeildar
Þjóðminjasafnsins, segir að fjár-
veitingar til framkvæmda á vegum
safnsins hefðu verið kjörið byggða-
verkefni þegar ríkisvaldið ákvað ný-
lega að verja nokkmm milljörðum
tii framkvæmda á næstu tveimur
ámm til samgöngumála og menn-
ingarhúsa.
Haraldur segir að aðeins 30 millj-
ónir verði til rekstrar húsverndar-
deildarinnar og framkvæmda á
þessu ári sem þýði að mjög lítið
verði gert. Eftir að sjóðurinn fékk
hæsta framlag sitt, 65 milljónir árið
2001, hafa framlög til sjóðsins dreg-
ist saman á síðustu tveimur ámm.
„Við emm ekkert of hress með
stöðuna. Við vissum ekkert af þess-
ari stjórnvaldsaðgerð með vegina
og það hefði verið kærkomið að
menn hefðu munað eftir þessu þá.
Þetta em framkvæmdir sem hefðu
gagnast mjög aðilum í héraði. Við
leitum til fagmannanna til að vinna
verkin og framkvæma þessi sér-
hæfðu vinnubrögð, hleðslumanna
og smiða. Það er líka sífellt meiri
þrýstingur á framkvæmdir vegna
menningartengdrar ferðaþjónustu.
Þetta em þeir staðir sem ferða-
menn sækja mest á, gamla bygg-
ingararfleifðin - hús sem segja svo
merka sögu þannig að mörg orð
em óþörf."
Eftir að sjóðurinn fékk
hæsta framlag sitt, 65
milljónir árið 2001,
hafa framlög til sjóðs-
ins dregist saman á síð-
ustu tveimur árum.
Átta hús í Skagafirði em á skrá
hjá húsverndardeild Þjóðminja-
safnsins: Glaumbær, Víðimýri,
Reynistaður, Stóru-Akrar, gamli
bærinn á Hólum, Gröf á Höfða-
strönd, Sjávarborgarkirkja og Pakk-
húsið á Hofsósi, en Hóladómkirkja
er í umsjá Hólanefndar. Þá em
Gilsstofa og Áshúss í eigu Byggða-
safns Skagfirðinga. -ÞÁ
Nicotinelí
Nicotinell tyggigúmmí er lyf sem er notað sem hiálparefni til að hætta eða draga úr reykingum. Það inniheldur nikótín sem losnar þegar
tuggið er, frásogast í munninum og dregur úr fráhvarfseinkennum þegar reykingum er hætt. Tyggja skal eitt stykki í einu, hægt og rólega
til að vinna gegn reykingaþörf. Skammtur er einstaklingsbundinn, en ekki má tyggja fleiri en 25 stk. á dag. Ekki er ráðlagt að nota lyfið
lengur en 1 ár. Nikótín getur valdið aukaverkunum, s.s. svima, höfuðverk, ógieði, hiksta og ertingu í meltingarfærum. Sjúklingar með
ií er ekki ætlað börnum yngri
slæma hjarta- og æðasjúkdóma eipa ekki að nota nikótínlyf nema í samráði við lækni. Nicotinell
en 15 ára nema (samráði við lækm. Kynnið ykkur vel leiðbeiningar sem fylgja pakkningunni.
nell tyggigúmmí e
Geymið þar sem börn hvorki ná til nó sjá.
H-dagurinn.
Sífellt styttist í H-daginn, er þaö
ekki? Það er að segja hjá þeim,
sem ekki eru þegar hættir! Ég
vona að þið hin séuð búin að
taka ákvörðun um að hætta í
sumar og velja ykkar eigin H-
Guðbjörg Pétursdóttír, dag. Það þurfa allir að finna rétta
hjúkrunartræðingur. tímann, sem hentar hverjum og
------------------einum best. Undirbúningurinn
skiptir miklu máli og því ættum við að gefa okkur góðan
tíma! Þó er mikilvægt að draga það ekki á langinn
að ákveða sig, velja daginn og miða allan undirbúning
við hann.
Nú skulum við aðeins staldra við og ímynda
okkur hvernig H-dagurinn gæti litið út!
Eftir allan undirbúninginn er frábært að vakna að
morgni H-dagsins! Þetta er fyrsti dagurinn í
hinum nýja reyklausa lífstíl. Við völdum
streitulausan og ánægjulegan frídag til að hætta
að reykja. Tilbúin í daginn skellum við
okkur í sturtu og förum í nýþvegin
föt. Hugum að nikótínlyfjunum ef við
ætlum að nota þau. Tökum okkur
góðan tíma í breyttar morgunvenjur.
Forðumst allt sem tengdi okkur við sígarettuna. (dag
ætlum við að gera eitthvað skemmtilegt! Við erum
kominn á framkvæmdarstigið.
Við rifjum upþ úr dagbókinni hvers vegna við hættum
einmitt núna en ekki einhvern tíma seinna.
Lítum aðeins á allt það sem gerist á fyrstu sólar-
hringunum. Það er ótrúlegt hve skjótt líkamlegt heilsufar
okkar batnar eftir að við hættum að reykja.
Eftir 20 mínútur: Blóðþrýstingur og púls fara að lækka
og blóðrás batnar.
Eftir 8 klst.: Kolsýrlingur í blóði hefur minnkað um
helming og blóðið fer að flytja súrefni á eðlilegan hátt.
Eftir 24 klst.: Hættan á að fá kransæðastíflu hefur
minnkað.
Eftir 48 klst.: Kolsýrlingur í blóði er horfinn og líffæri
líkamans hætta að þjást vegna súrefnisskorts. Lyktar-
og bragðskyn komast smám saman í eðlilegt horf.
Þetta er aðeins hluti af þeim jákvæðu hlutum, sem
eru að gerast í líkama okkar!
Við getum bætt við:
• Tjöruskítur í lungum minnkar.
■ Húðin verður hreinni og bólur hverfa.
• Hárið verður líflegra.
■ Fýla af húð og fötum hverfur.
Við förum að finna megna öskutunnulykt
af þeim sem enn reykja.
Er þetta ekki eitthvað til að sækjast eftir?
[ dag ætlum við að gera eitthvað
skemmtilegt! Við erum komin
á framkvæmdarstigið!
Og til þeirra sem þegar eru búnir
að ákveða H-daginn: Munum að
óska okkur til hamingju að kvöldi H-
dagsins, hugsum um einn dag í einu
og höfum engar áhyggjur af morgundeginum.
,— www.dv.is —
Þú nálgast eldri pistla
Upplýsingar um Nicotinell nikótínlyf
Reykingaprófið
Þú getur sent fyrirspurnir til Guðbjargar
:T»Tu 6030
Reyklaus lína. Aðstoð og ráðgjöf í síma 800 6030
alla virka daga milli klukkan 17 og 19.