Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2003, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2003, Qupperneq 10
70 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 18.JÚNÍ2003 Útiönd Heimurinn í hnotskurn Umsjón:Guðlaugur Bergmundsson og Kristinn Jón Arnarson Netfang: gube@dv.is / kja@dv.is Sími: 550 5829 Powell þrýstir á um lausn Suu Kyi BURMA: Colin Powell, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, sagði í morgun að herfor- ingjastjórnin í Burma yrði að leysa baráttukonuna Aung San Suu Kyi úr haldi og hefja lýðræðisvæðingu landsins. „Saman verðum við að segja leiðtogum Burma að sleppa Aung San Suu Kyi, stuðnings- mönnum hennar og leysa burmnesku þjóðina úr ánauð með því endurreisa lýðræðið," sagði Powell á fundi utanríkis- ráðherra ASEAN, samtaka ríkja (Suðaustur-Asíu.og sam- starfsríkja þeirra, í Phnom Penh, höfuðborg Kambódiu. Suu Kyi, sem hlaut friðarverð- laun Nóbels fyrir baráttu sína fýrir lýðræði í Burma, var handtekin í maílok og hneppt í varðhald. Herforingjarnir segja að með þv( séu þeir að vernda líf hennar og hafa til þessa hunsað háværar kröfur á alþjóðavettvangi um lausn hennar. Japönsk stjórnvöld gerðu her- foringjunum það Ijóst að að- stoð við Burma kynni að vera hætt verði Suu Kyi ekki látin laus úr haldi. Fríðartilraunir fyrir botni Miðjarðarhafs runnar út í sandinn: Sjö ára ísraelsk stúlka felld í árás Friðarumleitanir fyrir botni Miðjarðarhafs fengu enn á baukinn í gær þegar palest- ínskir vígamenn skutu sjö ára ísraelska stúlku til bana og særðu annað barn og full- orðna manneskju í árás skammt frá landamærum ísraels að Vesturbakkanum. Árásarmennirnir voru hinum megin landamæranna, í bæn- um Qalqilya. Enginn hefur lýst ábyrgð verknaðarins á hendur sér. Stúlkan sem lést var á ferð í bíl með fimm ára systur sinni og föður nærri Eyal-samyrkjubúinu skammt frá ísraelska bænum Kfar Saba. Árásin var gerð fljótlega eftir að til- „Við höfum ítrekað að andspyrna sé lögboð- inn réttur þjóðar okk- ar/'sagði Mohammed al-Hindi, háttsettur leiðtogi samtakanna Ji- had, eða Heilagt stríð. raunir Mahmouds Abbas, forsætis- ráðherra heimastjórnar Palestínu- manna, til að fá herská samtök á borð við Hamas til að láta af árásum sínum á ísrael runnu út í sandinn. „Við höfum ítrekað að andspyrna sé lögboðinn réttur þjóðar okkar,“ sagði Mohammed al-Hindi, hátt- settur leiðtogi samtakanna Jihad, eða Heilagt stríð, eftir að Abbas settist niður með fulltrúum þrettán herskárra samtaka í Gazaborg. Fundurinn stóð í hálfa fjórðu klukkustund. Tugir hafa fallið Ismail Abu Shanas, háttsettur liðsmaður Hamas, sagði að enn væri verið að ræða um vopnahlé og að samtökin, sem sóttu fundinn í gær, kynnu að halda eigin fund með Abbas í dag, miðvikudag. Hátt á sjötta tug manna hefur fallið í átökum Palestínumanna og ísraela frá því Mahmoud Abbas átti fund með þeim Ariel Sharon, for- sætisráðherra ísraels, og George W. Bush Bandaríkjaforseta í Aqaba í Jórdaníu 4. júní. Þar ítrekuðu leið- togarnir stuðning sinn við svokall- aðan Vegvísi að friði þar sem með- al annars er kveðið á um stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna ár- ið 2005, í síðasta lagi. Þungavigtarmaður kemur Bandarísk stjórnvöld hafa, í ljósi ástandsins fyrir botni Miðjarðar- hafs, ákveðið að senda Colin Powell utanríkisráðherra til þessa heimshluta á föstudag. Þar mun hann reyna að gera það sem egypskri sendinefnd mistókst í vikubyrjun, það er að segja að bjarga Vegvísinum. „Við fórum fram á það við Bandaríkjamenn að þeir tækju for- ystuna í friðarumleitununum og það er það sem við fáum,“ sagði Sil- van Shalom, utanríkisráðherra ísraels, í viðtali við ísraelska sjón- varpið í gær. Ariel Sharon hefur kveðið upp úr um það að ísraelar muni ekki gera neinar tilslakanir nema Abbas tak- ist að hafa hemil á Hamas, samtök- um strangtrúaðra sem hafa verið í fylkingarbrjósd í árásunum á ísrael frá því uppreisn Palestínumanna hófst fyrir nærri þremur árum. Bandarísk stjórnvöld hafa, í Ijósi ástandsins fyrir botni Miðjarðar- hafs, ákveðið að senda Colin Powell utanríkis- ráðherra til þessa heimshluta á föstudag. Þar mun hann reyna að bjarga Vegvísinum. Abbas hefur reynt að forðast átök við herskáu hópana, af ótta við að borgarastyrjöld meðal Palest- ínumanna kynni að blossa upp. Ráðherrann sagði að líklega myndi Condoleezza Rice, þjóðar- öryggisráðgjafi Bush Bandaríkja- forseta, koma til ísraels undir mán- aðamót til að leggja sitt lóð á vogar- skálarnar. Bush kann að mæta töluverðri andstöðu í Bandaríkjaþingi þegar hann reynir að fá það til að afnema að hluta til hömlur á beina aðstoð Bandaríkjanna við palestínsku heimastjórnina. Vilja fá aðstoðina til sín Leiðtogar Palestínumanna hafa farið fram á það við húsráðendur í Hvíta húsinu að þeir afnemi laga- klásúlur sem banna að aðstoð við Palestínumenn renni beint til heimastjórnarinnar. Margir bandarískir þingmenn segja að heimastjórnin hafi ekki gert nóg til að uppræta spillingu í palestínska stjórnkerfmu, þrátt fyr- ir umbætur sem njóta stuðnings bandarískra stjórnvalda. Þá finnst þeim sem stjórnin hafi ekki staðið sig í að koma í veg fyrir að herskáir hópar geti komist yfir fé. [ HERS HÖNDUM: Bandartskir hermenn leiða fanga (burtu í gær eftir að vopn fund- ust á heimili hans. Þegar hermaður féll eftir að leyniskytta skaut hann (bakið fóru hermenn hús úr húsi (miðbæ Bagdad í leit að andspyrnumönnum. Breskur ráðherra þorir ekki til íraks Amos barónessa, ráðherra þróunarmála í Bretlandi, seg- ir í viðtali sem kemur út í dag að hún hafi frestað fyrirhug- aðri ferð sinni til íraks vegna þess að þar væri enn of hættulegt að vera. Tilkynningin kom einungis tveimur dögum eftir að breska rík- isstjórnin tilkynnti að ástandið í írak hefði batnað til muna. í viðtal- inu, sem birtist í Financial Times í dag, segir Amos að „öryggisástand- ið, sem við verðum að koma í lag svo hægt sé að byrja endurbygg- ingu landsins fyrir alvöru, geri mönnum erfitt fyrir“. Jafnframt lýsir hún ástandinu í frak þannig að þar sé skotið á bandaríska hermenn á hverjum degi og hermenn láti þar lífið næst- um því hvern einasta dag. Þar að auki segir hún að svo virðist sem glæpir í Bagdad séu orðnir skipu- lagðari en fyrstu dagana eftir að Saddam Hussein missti völdin. Þessi ummæli Amos barónessu eru nokkuð á skjön við það sem Beverly Hughes, ráðherra innflytj- endamála, sagði á mánudag. Hún sagði að ástandið hefði batnað til muna og að óhætt væri fyrir íraka að snúa aftur heim og hjálpa til við endurbygginguna þar sem landið væri nú orðið nógu öruggt. Leyniskytta drepur hermann Amos barónessa virðist hafa eitt- hvað til síns máls því að í gær lét bandarískur hermaður lífið í Bagdad eftir að leyniskytta skaut hann í bakið. Að auki sprungu tvær sprengjur í borginni og í kjölfarið leituðu fjölmennir hópar banda- rískra hermanna hús úr húsi að leyniskyttunv og öðrum and- spyrnumönnum. Að minnsta kosti 41 hermaður hefur látist í átökum frá 1. maí, en þá lýsti Georg Bush Bandaríkjafor- seti því yfir að meiri háttar hernað- araðgerðum í írak væri lokið. Paul Bremner, yfirmaður bráða- birgðastjórnarinnar í Irak, lýsti því yfir í gær að það væri nú ólöglegt að hvetja til ofbeldis í írak. Jafnframt sagði hann að bráðabirgðastjórnin myndi taka til f réttarkerfi fraks, sem hefur verið nær óvirkt frá því stjórn Saddams féll. Spilltir dómar- ar á bandi Saddams yrðu hreinsað- ir burt úr réttarkerfinu, en í milli- tíðinni yrði komið á fót bráða- birgðadómstól.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.