Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2003, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2003, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 18.JÚNÍ2003 DV Bingó Það er komið bingó á I-röðina svo nú er komið að því að spila N- röðina. Fyrsta talan í N-röðinni er 42. Ferð fyrir tvo með Iceland Ex- press til London eða Kaup- mannahafnar er í boði. Munið að samhliða einstök- um röðum er allt spjaldið spilað. Verðlaun fyrir allsherjarbingó er vikuferð til Portúgals með Terra Nova Sól. Spilað er í allt sumar og því áríðandi að gleyma ekki bingóspjaldinu í skúffunni eða á töflunni. Verið með í DV-bingó. EFNI BLAÐSINS Kattafár Miðtúni - innlendar fréttir bls. 4 17.júní-tókst vel til - innlendar fréttir bls. 6 Bjartsýni um fiár- mögnun Hótels Selfoss - innlendar fréttir bls. 8-9 Sjö ára fórnarlamb - Erlendar fréttir bls. 10 Tólf fengu fálkaorðuna Ný bók eftir Jón Steinar ORÐUVEITINGAR: Forseti Is- lands sæmdi tólf manns heið- ursmerki hinnar (slensku fálka- orðu á Bessastöðum í gær. Þeir sem sæmdir voru orðu í gær voru Árni Tryggvason leikari, Ásdís Skúladóttir félagsfræð- ingur, Gunnar Snorri Gunnars- son ráðuneytisstjóri, Halldór Haraldsson skólastjóri, Harald- ur Stefánsson slökkviliðsstjóri, Hörður Húnfjörð Pálsson bak- arameistari,Magnús Hallgríms- son verkfræðingur, dr. Ragnar Sigbjörnsson prófessor, Stefán Runólfsson,fyrrverandi fram- kvæmdastjóri, Unnur Sig- tryggsdóttir hjúkrunarfræð- ingur,Þórarinn Eldjárn rithöf- undur og Þórunn Eiríksdóttir húsfreyja. LÖGFRÆÐI: Jón Steinar Gunn- laugsson, prófessor við Háskól- ann I Reykjavík, hefur sent frá sér bókina Um fordæmi og valdmörk dómstóla. I bókinni erfjallað um réttarheimildina fordæmi en með því hugtaki er átt við að notkun réttarheim- ildar við úrlausn í einu dóms- máli eða fleirum verði fyrir- mynd að notkun hennar í öðru máli slðar, þar sem leysa þarf úr sams konar álitaefni. Höfundur fellst ekki á útbreiddar kenn- ingar um að dómstólar hafi heimildir til að skapa nýjar rétt- arreglur sem þeir megi síðan beita með afturvirkum hætti til að byggja úrlausnir sínar á.Tel- ur hann að leggja verði til grundvallar að réttarreglan sem við á hafi verið til, þegar þau atvik urðu, sem úr þarf að leysa.Byggi stjórnskipun lands- ins á þessari meginhugsun og beri enga þörf til að víkja frá henni. Bókin er ætluð til kennslu í aðferðafræði við lagadeild Háskólans í Reykjavík og eftir atvikum aðra háskóla. Henni er einnig ætlað að vera almennt framlag til rannsókna og umræðna. Starfsmenn Orkuveitunnar björguðu ketti frá 30.000 volta rafstraumi: Sat fastur í háspennu- línu í tvo sólarhringa Djörf og skemmtileg - Menning bls. 12 Skilgreining ekki til - Fréttaljós bls. 14 Maðkur í mysu Mörtu -Tilvera bls. 16-17 Skörð höggvin í hópinn - DV Sport bls. 28 Beckham seldur - DV Sport bls. 32 Bíó og sjónvarp -Tilvera bls.26 -27 Útgáfufélag: Útgáfufélagið DV ehf. Framkvsmdastjóri: ðrn Valdimarsson Aéalritstjórí: Óli Björn Kárason Rltstjórl: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aöstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift: Skaftahlíö 24,105 Rvík, siml: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5749 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyrí: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagiö DV ehf. Plötugerö og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viömælendum fyrir viötöl viö þá eöa fyrir myndbirtingar af þeim. Fimm starfsmenn Orkuveitunnar komu ketti til bjargar á mánudag þar sem hann sat ósjálfbjarga efst uppi í rafmagnsstaur í Mosfells- bænum. Kötturinn hafði hafst þar við í tvo daga og hafði hann fest róf- una í tjörulagi. „Það var hringt í okkur þar sem Starfsmenn Orkuveit- unnar björguðu ketti frá 30.000 volta rafstuði þegar þeir ferjuðu hann niður úr háspennulínum þar sem hann hafði setið fastur í tvo daga. íbúar í grenndinni höfðu tekið eftir því að kötturinn hafði verið þarna í einhvern tíma. Við fórum með körfubíl á staðinn og þegar við komum þangað var greyið fast f tjörulagi sem var ofan á staurnum. Ég náði nú fljódega að leysa hann og þegar ég átti um einn og hálfan metra eftir niður á jörðina stökk hann úr fanginu á mér og eitthvað út í buskann," segir Leifur Ólafsson, starfsmaður Orkuveitunnar, sem bjargaði kettinum. Kötturinn virtist vera heill á húfi eftir vistina á staurnum og var frelsinu mjög feg- inn. Hann má þó þakka fyrir að ekki fór verr því 30.000 volta spenna er á háspennuvírum sem þessum og var spennan tekin af meðan á björgun- inni stóð. Mál sem þessi koma reglulega inn á borð hjá Orkuveit- unni og gera þeir þá sitt besta til að koma dýrunum til bjargar. öðrum ketti úr svipuðum aðstæð- BJARGAÐ FRÁ RAFSTUÐI: Leifur Ólafsson, starfsmaður Orkuveitunnar, bjarg- „Það er ekki algengt að svona lag- um áður,“ segir Leifur að lokum. aði ketti sem setið hafði fastur (háspennuvírum í tvo sólarhringa. Kötturinn var að komi upp á en ég hef þó bjargað agusmdv.is hætt kominn enda 30.000 volta spenna á vírunum sem umluktu hann. Greiðslustöðvun vélsmiðju KA að renna út: Rætt um kaup Skipalyftunnar í Eyjum Greiðslustöðvun Vélsmiðju KÁ á Suðurlandi á að renna út 20. júní. Reynt hefur verið að selja fyrirtækið og freista þess þannig að forða því frá yfirvofandi gjaldþroti. Við- ræður hafa verið í gangi við Skipalyftuna í Vestmannaeyj- um en biðstaða verið í málinu þar sem beðið hefur verið eft- ir heimild til nauðasamninga. Hlutverk Kaupfélags Árnesinga sem alhliða þjónustufyrirtækis við bændur og byggðina á Suðurlandi hefur breyst mikið á undanförnum árum. Sú ákvörðun að selja versl- unarreksturinn og snúa sér að hót- elrekstri hefur þar breytt einna mestu. Þar hafa verið ákveðnir erf- iðleikar sem menn telja sig nú vera Óli Rúnar Ástþórsson. að sjá fyrir endann á. Vélsmiðja KÁ, sem er orðin hlutafélag í minni- hlutaeigu KÁ, hefur svo átt í veru- legum rekstrarerfíðleikum og er nú í greiðslustöðvun sem rennur út 20. júní. Ekki er komið á hreint hvort tekst að fá nýja eigendur að rekstr- inum eða hvort fýrirtækið verður gjaldþrota. „Við hlutafjárvæddum vélsmiðju og trésmiðju KÁ 1996 og urðum minnihlutaeigendur í vélsmiðj- unni. Trésmiðjuna eigum við til helminga á móti Pennanum. Það hefúr verið stefna félagsins að skoða þá möguleika að hlutafjár- væða meira af rekstrinum. Það á að opna möguleika okkar og aðgengi að áhættufé," sagði Óli Rúnar Ást- þórsson, framkvæmdastjóri KÁ. - Hvað með vélsmiðjuna, hafa verið viðræður í gangi við Skipalyft- una í Vestmannaeyjum varðandi hugsanleg kaup? „Jú, það er rétt. Við höfum verið í viðræðum við tvo aðila sem sýnt „Efvið fáum heimild til að fara í formlega nauðasamninga eru þessir aðilar tilbúnir að koma inn í vélsmiðjuna með nýtt hlutafé." hafa áhuga á því að koma inn í það með okkur og fjármagna nauðar- samning. Ef við fáum heimild til að fara í formlega nauðasamninga eru þessir aðilar tilbúnir að koma inn í vélsmiðjuna með nýtt hlutafé". hkr@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.