Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2003, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST2003
Mikið um sjúkraflutninga í vikunni
LÖGREGLA: 25 sjúkraflutning-
ar voru skráðir hjá lögreglunni
á Selfossi í síðustu viku og
þrettán umferðaróhöpp en
slys urðu á fólki í nokkrum
þeirra. Á föstudag var rútu
ekið aftan á sendibíl á Ölfusár-
brú. Áreksturinn var nokkuð
harður og hlaut ökumaður
sendibílsins minni háttar
áverka. Þá valt rúta á Kjalvegi á
miðvikudagskvöld. Ökumaður-
inn, sem var einn í bifreiðinni,
slasaðist talsvert og var fluttur
með þyrlu Landhelgisgæsl-
unnartil Reykjavíkur. Bæði
slysin eru til rannsóknar hjá
lögreglu og beinist hún meðal
annars að ástandi hópbifreið-
anna. Á föstudag slösuðust
síðan tveir erlendir ferðamenn
og voru þeir fluttir á sjúkrahús
í Reykjavík. Ökumaðurinn veitti
ekki athygli hraðahindrun og
ók of geyst yfir hana með þeim
afleiðingum að farþegarnir
tveir köstuðust upp úr sætum
sínum og skullu í þakið. Ekki er
talið að meiðsl þeirra séu al-
varleg en ætla má að bílbelti
hefðu getað komið í veg fyrir
þetta slys hefðu þau verið not-
uð, líkt og lög gera ráð fyrir.
14 sækja um stöðu sviðsstjóra
SWPULAG: Alls hafa 14 um-
sóknir borist um stöðu sviðs-
stjóra umhverfis- og tæknisviðs
Hafnarfjarðarbæjar en þeir sem
sóttu um eru: Arinbjörn Vil-
hjálmsson arkitekt, Bjarki Jó-
hannesson, verkfræðingur, arki-
tekt og skipulagsfræðingur,
Björn Jóhannesson landslags-
arkitekt, Finnur Birgisson arki-
tekt, Gísli Hermannsson verk-
fræðingur, Gísli Ó. Valdimarsson
verkfræðingur, Ingólfur Hjörleifs-
son verkfræðingur, Jón Magnús
Halldórsson byggingafræðingur,
Óskar Örn Jónsson verkfræðing-
ur, Sigurþór Aðalsteinsson arki-
tekt, Smári Þorvaldsson verk-
fræðingur.Trausti S. Harðarson
arkitekt, Viktor Þór Sigurðsson
byggingafræðingur og Þormóð-
ur Sveinsson arkitekt.
Barnaskóli Hjallastefn-
unnar er nýr kostur
EINKAREKSTUR: Lögð verður meiri áhersla á nám í stærðfræði, tungumálakennslu o.fl.
Bæjarráð Garðabæjar hefur
samþykkt samning við Hjalla-
stefnuna ehf. um rekstur nýs
barnaskóla í bænum fyrir börn á
aldrinum 5-8 ára alls staðar af
höfuðborgarsvæðinu en börn úr
Garðabæ njóta forgangs.
Skólinn, sem verður að Vífllsstöð-
um, verður rekinn samkvæmt hug-
myndaffæði Hjallastefnunnar en
Garðabær greiðir tiltekna upphæð
með hverjum nemanda úr Garðabæ
sem sækir skólann. Hjallastefnunni
er ekki heimilt að innheimta skóla-
gjöld íyrir grunnskólanám barna úr
Með tilkomu skólans
geta foreldrar í Garða-
bæ valið um ólíka skóla
fyrir börn sín, óháð
efnahag.
Garðabæ og ekki hærri leikskóla-
gjöld en samkvæmt gjaldskrá leik-
skóla Garðabæjar hveiju sinni. Með
tilkomu skólans geta foreldrar í
Garðabæ því valið um ólíka skóla
fyrir böm sín, óháð efnahag. Sam-
kvæmt samningnum ábyrgist
Hjallastefnan að skólastarfið upp-
fylli aðalnámskrár og lög og reglu-
gerðir um leik- og gmnnskóla.
Skólastarfið verður í anda Hjalla-
stefnunnar og því að mörgu leyti
ólfkt þvf sem þekkist í öðmm gmnn-
skólum í Garðabæ. Nám fimm ára
bamanna á t.d. að brúa bilið á milli
leik- og gmnnskólastarfs og þar
verður lögð meiri áhersla á nám í
stærðfræði, tungumálakennslu o.fl.
en almennt í leikskólum.
Tveir góðir kostir
Ásdís Halla Bragadóttir bæjar-
stjóri segir að tilkoma nýja skólans í
Garðabæ marki tímamót. í fyrsta
sinn hafi foreldrar gmnnskólabarna
og börnin sjálf frjálst val um tvo
kosti þegar kemur að skólagöngu
bamanna. „Þetta er lykilatriði í
mínum huga. Þótt gmnnskólarnir í
Garðabæ séu tvímælalaust með
þeim bestu er ekki óhugsandi að
einhverjir foreldrar telji að skóla-
starfið sem boðið verður upp á í
Barnaskóla Hjallastefnunnar henti
sínum börnum betur. Þar sem
Hjallastefnunni er ekki heimiit að
innheimta skólagjöld fyrir gmnn-
skólanámið geta foreldrarnir nú
sjálfir valið á milli tveggja góðra
kosta, eingöngu með tilliti til þess
hvað hentar barninu sjálfu. Ég er
því ekki í vafa um að þessi nýi skóli
verði til hagsbóta fyrir nemendur í
Garðabæ og skólastarfið í heild
sinni."
1
I
Ósáttur við
málsmeðferð
sjálfstæðis-
manna
Sigurður Björgvinsson, bæjar-
fulltrúi í Garðabæ, lagði ffam
bókun vegna samnings bæjarins
um Bamaskóla Hjallastefhunnar
en hann er ekki sáttur við máls-
meðferð Sjálfstæðisflokksins í
málinu. Að mati hans em atriði í
gögnum málsins sem standast
engan veginn nánari skoðun og
em á mörkum þess að vera lögleg
samkvæmt sveitarstjórnarlögum.
Telur hann t.d. að þetta mál sé
allt of seint fram komið. Það hafi
ekki verið rætt í skólanefndinni
né hafi gefist tími til umræðu
innan bæjarstjómar. Segir hann
að það sé nánast óvinnandi veg-
ur að skólinn geti byrjað í haust
vegna hins stutta fyrirvara. Rétt-
ast sé að fresta málinu svo að það
hljóti eðlilega umfjöllun og með-
göngu. Þá segir í bókuninni að á
síð'asta bæjarráðsfundi hafi verið
fullyrt að bæjarsjóður yrði ekki
aðili að leigusamningi Hjalla-
stefnunnar og Landspítalans en
samkvæmt samningnum núna
sé Garðabær orðinn leigutaki
húsnæðisins en ffamleigi Hjalla-
stefhunni ehf. Telur Sigurður það
vera á gráu svæði lagalega séð.
Nýr tölvuormur dreifði sér hratt um heiminn í gær:
Einstaklingar og smærri
fyrirtæki í mestri hættu
Nýr tölvuormur dreifði sér hratt
um heiminn í gær eftir að hans
varð fyrst vart á mánudags-
kvöldið. Einstaklingar og smærri
fyrirtæki eru í mestri hættu.
Ormurinn ræðst á veikleika sem
finnst í flestum í Windows-stýri-
kerfum og hefur verið þekktur
síðan 16. júlí.
Ormurinn er kallaður Blaster og
þekkist líka undir nöfnunum MS-
Blast eða Lovsan. Eitt helsta sér-
kenni hans er að hann dreifir sér ekki
með tölvupósti eins og flestar tölvu-
veimr og tölvuormar, heldur dreifir
hann sér sjálfkrafa á Netinu og stað-
ametum fýrirtækja. Um leið og hann
hefur smitað tölvu hefur hann leit að
tölvum sem tengjast viðkomandi
tölvu og reynir að setja sig upp f
þeim. Þannig dreifist hann mjög
hratt og var til að mynda kominn
hingað til lands örfáum klukkutím-
um eftir að hans varð fyrst vart í út-
löndum, samkvæmt upplýsingum
ffá Friðriki Skúlasyni ehf.
í nöp við Microsoft
Svo virðist sem ormurinn hafi ekki
verið hannaður til að skemma þær
tölvur sem hann sýkir. Sennilega er
versta afleiðing sýkingar sú að það
hægir á netvinnslu sýktra tölva og
tölvukerfa vegna þess að ormurinn
er sífellt að reyna að dreifa sér. Orm-
urinn er einnig hannaður þannig að
þær tölvur sem sýkjast munu 16.
ágúst framkvæma svokallaða „Deni-
al-of-Service“ árás á uppfærsluvef
Microsoft. Slíkar árásir lýsa sér
þannig að gríðarlega margar tölvur
reyna allar samtímis að hafa mikil
samskipti við ákveðna vefþjóna en
það veldur því að vefþjónarnir anna
ekki eftirspurn og vinna mjög hægt
eða fijósa. Jafnframt hægir á
vinnslugetu hinna sýkm tölva á
meðan þær taka þátt í atganginum.
Svo virðist sem hönnuði Blasters
sé einmitt mikið í nöp við Microsoft
því í kóða Blaster-ormsins eru skila-
boð til Bills Gates, stofnanda og
stjómarformanns Microsoft. Þar er
honum bent á að hann ætti að hætta
að eltast við gróðasjónarmið og snúa
sér frekar að þvf að þróa villulausan
hugbúnað.
Tiltölulega einfalt að verja sig
Fyrir nokkrum vikum gaf
Microsoft út hugbúnaðarviðbót sem
stoppar í öryggisgatið sem Blaster
nýtir sér en notendur em misdug-
legir við að sækja sér slíkar viðbætur.
Þess vegna geta ormar á borð við
Blaster nýtt sér öryggisgöt sem em
vel þekkt og tiltölulega einfalt á að
vera að stoppa í. Á uppfærsluvef
Microsoft, www.windowsupda-
te.com, er hægt að nálgast allar hug-
búnaðarviðbætur fyrirtækisins og
þar á meðal viðbótina sem stöðvar
Blaster.
Þeir sem em með veimvarnarhug-
TÖLVUR í HÆTTU: Tll að vera alveg viss um
að sleppa við vágest á borð við Blaster þarf
að stoppa í öll göt Windows-stýrikerfisins,
hafa nýuppfærða veiruvörn og ekki skemm-
ir að hafa eldvegg uppsettan.
búnað og uppfærðu hann í gær ættu
einnig að vera hólpnir og ekki
skemmir það heldur fyrir að vera
með eldvegg uppsettan á tölvunni.
Ókeypis eldvegg má m.a. fá á vefn-
um www.zonealarm.com.
Stór fyrirtæki em oftast með þessa
hluti í lagi og því er ólíklegt að þau
muni verða fyrir miklum skaða af
völdum Blasters. Hins vegar em ein-
staklingar og lítil fyrirtæki síður vak-
andi fyrir netöryggismálum og verða
því frekar fyrir barðinu á vágestum á
borð við Blaster.
kja@dv.is
DUGLEGUSTU VEIRURNAR
Veiruvarnafyrirtækið Central
Command gefur mánaðarlega út
lista yfir duglegustu veirurnar og
segir hversu hátt hlutfall hver veira
er af heildarveirutilkynningum
mánaðarins. Svona leit listinn út
fyrir júlí, en líklegt er að Blaster-
ormurinn komist hátt á lista ágúst-
mánaðar.
1. Worm/Klez.E 19,2%
2. Worm/Sobig.E 17,9%
3. Worm/BugBear.B 17,6%
4. Worm/Sobig.A 6.6%
5. Worm/Sobig.C 4,2%
6. Worm/Sircam.A 2,9%
7. Worm/Ganda 1,8%
8. Worm/Hawawi.E 1,6%
9. W32/Funlove.4099 1,5%
10. Worm/Avril.A 1,2%