Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST2003
TILBÚINN: Þessl tfu punda lax er nánast til-
búinn til slátrunar. Svona llta þeir út og flök-
in eru myndarleg þegar búiö er aö gera aö.
Kerin eru 321 dag. í einu þeirra eru Ld. um
50 þúsund fiskar, 4,5 kfló aö þyngd hver.
Reikni nú hver út verömætin miðað viö aö
afurðaverð er 150 til 200 krónur kflóið.
DV-myndir GVA
Milljarða verðmæta-
sköpun í Mjóafirði
Háttí annað eins mun bætastvið á Reyðarfirði
-„erum að byrja að slátra affullum krafti
Frá og með árinu 2005 er stefrit að
því að slátra 8 þúsund tonnum af
eldislaxi í Mjóafirði, miðað við nú-
verandi stöðu framleiðslu sem geng-
ur vonum framar. Áform eru einnig
um að slátra 6 þúsund tonnum í
Reyðarfírði. Þannig verður verð-
mætasköpun til þjóðfélagsins miðað
við núverandi afurðaverð um 4,4
milljarðar króna. Er þá t.a.m. einnig
búið að reikna með flutningskostn-
aði til íslenskra flugfélaga en sölu-
verð afurðanna má reikna með að sé
rúmlega þrír milljarðar króna. í
kringum þetta munu skapast störf
fyrir tugi manna og kvenna á Aust-
fjörðum.
Þegar horft er til þess að samtals
14 þúsund tonn af fiski verði fram-
leidd f þessum tveimur fjörðum er
fróðlegt að horfa til þess saman-
burðar að kvóti er fyrir um 5.500
tonn af þorski í Fjarðabyggð allri -
Neskaupstað, Eskifirði og Reyðar-
firði.
Vaxandi byggð í Mjóafirði
DV fór út að kvíunum í Mjóafirði í
sólskininu í gær þar sem hundraða
milljóna króna fjárfestingar ýmist
vögguðu rólega á haffletinum í formi
tveggja nýrra og myndarlegra fóð-
urpramma eða sprikluðu, stukku og
syntu í þeim 32 kvíum sem þegar eru
komnar í fjörðinn. Athygli vekur að í
Mjóafirði, þar sem margur heldur að
sé nánast engin byggð, kúrir Brekku-
þorp þar sem búa nú um 40 rnanns.
Já, ungt og upprennandi fólk líka.
Þar er meira en nóg að gera.
Þama er gríðarlegur uppgangur,
reyndaí eins og á öðmm fjörðum
fyrir austan.
„Við emm að byrja að slátra á
fullu. í ár reiknum við með að slátra
2.500 tonnum. 6 til 7 þúsund tonn-
um á næsta ári en 8 þúsund tonnum
á ári eftir það miðað við að þau
starfsieyfi fáist sem óskað hefur ver-
ið eftir," sagði Guðmundur Valur
Stefánsson, fiskeldisfræðingur og
framkvæmdastjóri Sæsilfurs í Mjóa-
firði. Hann nam ffæðin í Noregi og
starfaði þar í 13 ár. I dag ferðast hann
AÐBÚNAÐUR GÓÐUR: Um borð í öðrum fóðurprammanum er aðstaðan ótrúlega góð.
Fóðrið er í sílóum um borð en tíu þúsund tonnum af laxamat er dreift frá prömmunum
gegnum plaströr sem stýrt er með tölvu eftir mikilli tækni. Fóðurstjórinn fylgist svo vel
með út um gluggana.
reglulega á milli Reykjavfkur og
Mjóafjarðar þar sem hann fylgist
með hinum ótrúlega fullkomna eld-
isbúnaði sem felst ekki síst í tölvu-
stýrðum fóðurbúnaði um borð í nýj-
um prömmunum smíðuðum í Nor-
egi þar sem aðstaða öll er þannig að
aðdáun vekur.
Með tölvum er meira að segja
hægt að sjá nokkuð nákvæmlega
hvað „hver kví þyngist mikið á dag“.
IÐANDI LÍF: Undirfjöllunum í Mjóafirði kúrir Brekkuþorp. Þar búa nú um 40 manns - líka
ungt og upprennandi fólk. Það er nefnilega rífandi uppgangur í þessum firði þar sem
margur heldur að sé nánast engin búseta.
NAFNASKOÐUN: GuðmundurValur Ríkharðsson, til vinstri, ber ábyrgð á öðrum fóð-
urprammanna. Hann skoðar laxana í hverri kví reglulega, mælir þyngd þeirra, súrefni, hitastig
og annað og tekur þannig mið af fóðurgjöfinni. Nafni hans, GuðmundurValur Stefánsson,
fylgist með en þeir eru í nánu samstarfi, hvort sem sá síðarnefndi er í Reykjavik eða í Mjóafirði.
Þetta er önnur stóriðja
Úti á Mjóafirði iðar allt af h'fi - fisk-
urinn stækkar og dafnar - lífmassinn
eins og þeir kalla það fyrir austan -
laxinn sjálfur, sem er misstór, kost-
aði mest af öllu. „Lagerinn sjálfur".
Hann stækkar með hverjum degin-
um í kvíunum og síðan munu menn
slátra að meðaltali um 45 tonnum á
dag þegar allt er komið á fullt í Mjó-
afirði. Allt þetta ævintýri, sem nær
ekki síst til næsta fjarðar, Neskaup-
staðar, mun kosta 1,6 til 1,8 milljarða
króna þegar upp verður staðið en
þar verður laxinum einmitt slátrað.
Laxasláturhúsið kostaði unt 200
milljónir, brunnbáturinn svokallaði,
sem flytur fisk til slátrunar víðar af
landinu, kostaði 240 milljónir,
prammarnir um 120 milljónir en
lífmassinn kostaði mest, um 750
milljónir króna. Á bak við þetta
stendur aðallega Samherji en einnig
Sfldarvinnslan í Neskaupstað.
„Þetta er önnur stóriðja á svæð-
inu,“ sagði Smári Geirsson, formað-
ur bæjarráðs Fjarðabyggðar. Hér
mun skapast fjöldi starfa vegna
flutnings, hafnarumferðar, slátrun-
ar, pökkunar og þjónustu. Þetta á
eftir að vinda mjög upp á sig," sagði
Smán. ottar@dv.is