Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Blaðsíða 18
18 TILVERA FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST2003 Hljómsveitin írafártók upp nýja plötu íFlórida: Hljómsveitin írafár er komin aftur heim til íslands eftir að hafa verið önnum kafin við upptökur á nýrri plötu í sól- skinsríkinu Flórída Vignir Snær Vigfússon, lagahöf- undur og gítarleikari sveitarinnar, segist halda að hann verði jafnvel ánægðari með þessa plötu en þá fyrri sem var fyrsta plata sveitarinn- ar og sú söluhæsta á íslandi fyrir síðustu jól. „Þetta var bara alveg frábært og afskaplega ljúft líf,“ segir gítarleik- arinn Vignir. „Við vorum reyndar ekki inni í Orlando heldur leigðum okkur hús í hverfí sem heitir Thousand Oakes og er úthverfi Or- lando. Þetta var hálfgerð villa, stórt og fínt hús með sundlaug, og það er alls ekki hægt að segja að hafi farið illa um okkur.“ Mælir með upptökum erlendis Makar hljómsveitarmeðlima voru skildir eftir heima á Fróni þótt Birgitta og Hanni búi að sjálfsögðu við þau forréttindi að geta „tekið makann með“ út um allt. „Með okkur voru upptökustjórinn okkar, Þorvaldur Bjarni, með allar sínar græjur, og Guðjón sem hefur gert myndböndin okkar. Ég mæli hik- laust með því að hljómsveitir fari svona út ef þær hafa tök á því. Mað- ur getur einbeitt sér algjörlega að DISNEY: (slendingareru greinilega ekki einir um að dást að henni Birgittu. Þessi íbúi Disneylands var að minnsta kosti yfir sig ástfanginn og ekki dvínaði hrifningin þegar stjarnan smellti á hann kossi. GRÆJURNAR: Upptökustjórinn Þorvaldur Bjarni við græjurnar sem Kanarnir neituðu að flytja. Á endanum varð að senda þær með leigubll og treysta á að bílstjórinn væri heiðarlegur og góður maður. því sem maður er að gera og gefur sér góðan tíma enda kemst maður ekkert í burtu. Ég vona innilega að við getum gert þetta aftur með næstu plötu. Hún kemur reyndar ekki strax en það er um að gera að skipuleggja sig fram í tímann,“ seg- ir Vignir og hlær. - VINNAN: Birgitta naut sín vel í Orlando enda ekki aliir sem fá tækifæri til að syngja inn á plötu á sundlaugarbakka á Flórída. SlÐASTl DAGURINN: Hópurinn skellti sér í Universal studios og eyddi þar síðasta degi ferðarinnar. SÓLBRÚN OG SÆLLEG: Irafár á góðri stundu í Orlando. „Þetta var alveg frábært og afskaplega Ijúft líf," segir Vignir. Nauðsynlegt að hitta Mikka Það fór lítið fyrir sönnu popparalíf- erni í ferðinni og Vignir segir að frí- tíminn hafi farið í að hlaða batteríin. „Spilamennskan undanfarið hefur verið mikil og við vorum mjög heima- kær allan tímann. Við urðum reyndar náttúrlega að líta í Disney World og Universal studios enda hverjum manni nauðsynlegt að hitta Mikka mús að minnsta kosti einu sinni á ævinni." Vignir viðurkennir þó að á heimleiðinni hafi hljómsveitin lent í undarlegu ævintýri. „Upptökugræjurnar okk- ar urðu eftir í Bandaríkjunum. Við vorum í góðu samstarfi við Flug- leiðir sem sendu græjurnar fyrir okkur út. Á heimleiðinni þurftum við svo að fljúga með amerísku flugfélagi frá Baltimore til Orlando og starfsfólk þess neitaði að taka græjurnar vegna þunga. Við tvístig- um í smástund en enduðum á að senda dótið með leigubíl og treysta því að bflstjórinn færi með það á réttan stað. Síðan höfum við ekkert frétt af græjunum góðu en höfðum samband við Flugleiðir þegar við komum heim. Þær gengu strax í málið og ég á von á að græjurnar skili sér hvað úr hverju.“ Ball á Nasa í kvöld Ætlunin er að Ameríkuplatan komi út í byrjun nóvember en ekki er enn komið nafn á hana. „Það er verið að vinna í því og nokkrar hug- myndir eru á borðinu. Það getur vel verið að nafnið komi til með að tengjast einhverju úti, stað eða upplifun. Mér þykir það lfldegt. Svo verður bara að koma í ljós hvað fólki finnst um plötuna. Sjálfur held ég að við verðum ánægðari með hana en þá görnlu." f kvöld verður írafár með stórdansleik á Nasa og Vignir segist geta lofað miklu stuði. „Ég held það verði að minnsta kosti enginn fyrir vonbrigðum. Eða við vonum ekki!“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.