Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST2003 MENNING 7 7 Sýningarlok MYNDLIST: Á sunnudaginn lýkur sumarsýningu Listasafns Islands þar sem veitt er að venju greinargott yf- irlit yfir innlenda listasögu. Á sýningunni eru verkfrá helstu umbrotatímum íslenskrar listasögu, meðal þekktra verka sem þar má sjá eru Gullfjöll Svavars Guðnasonar og Hekla Ásgríms Jónssonar. Sérstaka athygli vekur myndin Móð- ir Jörð eftir Jón Stefánsson sem talin er gerð í kringum 1925. Listasafn fslands keypti það verk nýlega og er safninu mikill fengur í að hafa eign- ast verk eftir Jón frá þessum tíma á ferli hans. Málverkið (sjá mynd) er nú sýnt í fyrsta sinn eftir að Lista- safnið eignaðist það og ættu áhugamenn um myndlist að nota þetta tækifæri til að skoða það. Listasafn Islands er opið kl. 11-17 nema mánudaga. ^ DV vantar blaöbera í 0 Grindavík. ^ Upplýsingar gefa Anna ^ og Sigbjörn í símum | 426 7922 og 693 0375. Berlín - Akureyri - Reykjavík: Meistarar formsins komnir suður EDGAR DEGAS: Dansmær að skoða á sér ilina (um 1910). Höggmyndasýningin Meistarar formsins - Úr höggmyndasögu 20. aldar - verður opnuð í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í Laugarnesi á morgun kiukkan 15. Forseti íslands opnar sýninguna formlega að loknu ávarpi Johanns Wenzi, ný- skipaðs sendiherra hýskalands á ís- landi. Sýningin Meistarar formsins kemur til höfuðborgarinnar frá Akureyri þar sem hún stóð í sumar við miklar vinsældir en þangað kom hún frá Ríkislista- safninu í Berlín. Hér er sannarlega sjón að sjá því að á sýningunni eru óvið- jafnanleg listaverk eftir helstu módernista í evrópskri högg- myndasögu, meðal annarra Degas, Archipenko, Maillol, Moore, Marino Marini, Manolo, Laurens, Renoir, Barlach, Kollwitz, Hartung og samtíma- listamennina Sol LeWitt, Schwegler, Per Kirkeby og Axel Lischke. Sýningin er mjög vel fallin til listkennslu og er kennurum bent á að sérstaklega hefur verið unnið kennslu- efni fyrir grunn- og framhaldsskólanem- endur um hana. Á sýningunni eru einnig verk eftir brautryðjendur íslenskrar höggmyndalistar, þá Einar Jóns- son, Ásmund Sveinsson, Sigur- jón Ólafsson og Gerði Helga- dóttur. I Reykjavík verða að vísu ekki öll verkin sem sýnd voru fyrir norðan vegna plássleysis, en á móti kemur að hér bætist við eitt verk sem ekki var þar, „Atómsprengjan" eftir Sigurjón sem er frá árinu 1979 og kallast á sérkennilegan hátt á við skot- færatösku Lischkes sem mikla athygli hefur vakið á sýning- unni. Gefin hefur verið út sýn- ingarskrá á fslensku og ensku með greinum eftir Hannes Sigurðsson, safn- stjóra á Akureyri, Brittu Schmitz, yfirsýningarstjóra Hamburger Bahnhof- safnsins í Berlín, og Ólaf Gíslason listfræðing, en grein hans ber heitið Mað- urinn og rými hans á 20. öld. Sýningin stendur í rétt tæpan mánuð eða tíl 28. september og verður opin alla daga nema mánudaga. Sýningin er mjög vel fallin til listkennslu og er kennur- um bent á að sérstaklega hefur verið unnið kennslu- efni fyrir grunn- og fram- haldsskólanemendur um hana. Eru kennarar hvattir til að hafa samband við safnstjóra í síma 553 2906 vegna skólaheimsókna. SIGURJÓN ÓLAFSSON: Á leið til elskunnar minnar (1954-1955) er í fýrsta skipti sýnt almenn- ingi á þessari sýningu. Ifaras ■ spmning Kennsla hefst í FIA skólanum 22. september. Verð með námsgögnum: 99.000 kr. Vinsamlegast greiöiö staðfestingargjaldið 25.000 kr. um leiö og innritun á sér staö. Leggið inn á reikning 515-14-605933 undir PPI-FIA, nafni og heimilsfangi, annars telst skráning ekki gild. Skráning í síma 577 5555 jonina@planetpulse.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.