Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Blaðsíða 30
30 DVSPORT FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST2003 Við ætlum að ná tökum á þessu aftur UMMÆLI: Aðalsteinn Víglundsson, þjálfari Fylkis, mátti horfa upp á lið sitt falla úr Evrópukeppninni í gær. „Við náðum ekki að búa til marktækifæri þótt við værum oft í góðri aðstöðu til að skapa þau. Þá kom slæm eða van- hugsuð sending fyrir framan vörnina þeirra þannig að ekki varð neitt úr neinu. Strákarnir börðust samt eins og Ijón og voru staðráðnir í að loka á Svíana og taka hressi- lega á móti þeim. Við ætluðum virkilega að klára dæmið en það vantaði aðeins upp á sóknarleikinn til þess. Það var stefnan að draga þá upp völl- inn en eftir að þeir urðu manni færri var það ekki nokkur leið. Þetta eru stórir og sterkir strák- ar í toppþjálfun og þeir voru stórhættulegir í öllum föstum leikatriðum. Það var samt það eina hjá þeim sem olli okkur vandræðum og við vorum með boltann nánast allan seinni hálfleik," sagði Aðalsteinn sem er að snúa við hræðilegu gengi liðsins undanfarna daga. „Við ætlum að ná aftur tökum á leik okkar. Til þess verðum við að byrja á byrjuninni, aftast, og vinna okkur fram völlinn. Við gerðum það í þessum leik og markmiðið hjá okkur var að fá ekki á okkur mark því það gildir tvöfallt. Það vantaði bara uþp á að ná að skapa sér eitthvað í sókninni." Mark(a)laust hjá Fylki Fylkismenrt héldu hreinu gegn sænska liðinu AIK Solna sem var mikil framför frá því í síðustu tveim leikjum (9 mörk á sig) en þegar.upp er staðið var svekkjandi að horfa upp á alltof varkára Árbæinga nýta ekki góða stöðu sína (manni fleiri í 70 mínútur) til að slá Svíana út. í stað þess að keyra á þá og taka meiri áhættu í sóknarleiknum varð leikurinn hundleiðinlegt miðjuþóf var- kárra liða og úrslitin komu því ekki á óvart - markalaust jafntefli - og Fylkismenn eru því úr leik. Með þessum úrslitum er eins og áður sagði Fylkisliðið úr leik, þökk sé einu marki sænska liðsins, skoruðu á 89. mínútu fyrri leiks- ins. Af leiknum í gær er ekki margt að segja. Svíarnir byrjuðu betur og skoruðu reyndar mark eftir 9 mín- útur, sem var dæmt af vegna rang- stöðu, en eftir að þeir misstu mann út af eftir aðeins 20 mínútur var ljóst að þeirra hlutskipti yrði að halda hraðanum niðri og loka svæðum fyrir sóknarmenn Fylkis- manna. Það tókst Svíunum vel auk þess sem þeir ógnuðu Fylkisliðinu nokkuð í föstum leikatriðum. Fylkismenn sköpuðu sér engin góð færi í þessum leik og voru að auki alltof ragir við að láta vaða á markið þrátt fyrir að aðstæðurnar byðu upp á slíkt. Ólafur Ingi Skúlason átti góðan leik fyrir Fylki, sérstaklega í fyrri hálfleik. Aðrir stigu framfaraslaef frá síðustu leikjum en því miður alltof stutt til að rífa leik liðsins al- mennilega upp. Svíarnir glíma við vandamál á heimaslóðum, líkt og Fylkismenn, og það var vel sjáanlegt á litlu sjálfstrausti hjá leikmönnum liðs- ins. Það er því súrt í broti að ís- lenskt lið nýti sér það ekki betur þegar allt er lagt upp í hendurnar á þeim, líkt og í gær. Það var raun- hæfur möguleiki á að slá út þetta sænska lið en því miður var sóknarleikur Fylkismanna alltof bitlaus. Fyrirliði Svíanna, Krister Nor- din, gladdist með félögum sínum í ORÐÍEYRA: Ólafurlngi Skúlason lét til sína taka í síðasta leik sínum fyrir Fylki í sumarog héráeinn leikmaður AIK eitthvað vantalað við hann. DV-mynd Hari kÆkd pp g®\ s leikslok. „Þetta var mjög erfiður leikur fyrir okkur, sérstaklega eftir að við urðum ranglega manni færri. Við höfðum markið frá Rásunda með okkur og mér fannst við hafa góð tök á þessum leik all- an tímann. Nú er bara að vona að þessi leikur verði upphafið að betra gengi hjá okkur í sænsku deildinni," sagði Nordin sem hreifst sérstaklega af Ólafi Ingi Skúlasyni og hrósaði honum eftir leikinn. Ágústmánuður hefur reynst Fylki afar erfiður - vankantar liðs- ins hafa opinberast og liðið hefur spilað sig út úr öllum keppnum. Fram undan eru lokaleikir ís- landsmótsins og barátta fyrir því að komast í Evrópukeppnina að ári til að gera þar betur en í gær. EKKERT LIÐ ÁFRAM Ekkert íslenskt lið náði að komast í gegnum fyrstu hindrun í Evrópu- mótunum í ár. KR í forkeppni meist- aradeildar UEFA, Fylkir og Grindavík í forkeppni UEFA-bikarsins og KA í Intertoto-keppninni. Lið sem hafa farið áfram frá 1993: 2003 Ekkert lið komst áfram 2002 FH Intertotokeppnin 2001 Grindavík Intertotokeppnin Fylkir UEFA-bikarinn* 2000 Leiftur Intertotokeppnin KR Meistaradeild Evrópu* 1999 (A Intertotokeppnln ÍBV Meistaradeild Evrópu* 1998 Ekkert lið komst áfram 1997 ÍBV Evrópukeppni bikarhafa* KR UEFA-bikarinn* 1996 KR Evrópukeppni bikarhafa* lA UEFA-bikarinn* 1995 KR Evrópukeppni bikarhafa* (A UEFA-bikarinn* 1994 lA UEFA-bikarinn* 1993 ÍA Evrópukeppni meistaraliða* Valur Evrópukeppni bikarhafa* * þýðir að þetta hafi verið forkeppni Áttum erindi áfram sagði ólafur Ingi Skúlason sem lék sinn siðasta leik fyrir Fylki í sumar Ólafur Ingi Skúlason lék kveðju- leik sinn með Fylki í gær og eins og í undanfömum leikjum var hann besti maður liðsins. „Mér fannst við stjórna leiknum eftir að þeir urðu manni færri en við náðum bara aldrei að skapa okkur neitt af viti. Við fengum ágæta möguleika á að skapa okk- ur eitthver færi en líkt og í undan- förnum leikjum hefur okkur ekki gengið vel fram á við. Við höfum flotið vel á vörninni í sumar en vantar enn að skapa okkur meira í sókninni," sagði Ólafur Ingi í sam- tali við DV Sport f gær. „Við spiluðum samt mun betur en í undanförnum Ieikjum, létum boltann vinna fyrir okkur, spiluð- um með fullu sjálfstrausti og þetta leit vel út. Það vantaði bara herslumuninn hjá okkur að koma okkur í færi og klára þau. Mér „Við spiluðum mun betur en í undanförn- um leikjum finnst við eiga erindi í næstu um- ferð, alveg eins og þeir, ef tekið er mið af þessum tveimur leikjum sem voru jafnir. Þetta er sfðasti leikurinn hjá mér í bili og nú held ég bara aftur út til Englands. Það kemur maður f manns stað; Fylkir er með góðan og stóran hóp og ég hef ekki áhyggjur af brotthvarfi mínu,“ sagði Ólafur Ingi að lokum. ooj.sport@dv.is Fylkir (5-4-1) Gui spjöid: Kjartan Sturluson...........3 Fylkir: Hrafnkell Helgi Valur Daníelsson ....... 3 <M)- Ólafur Ingi Hrafnkell Helgason ........3 (89->- (67., Sverrir Sverrisson..2) NK: Engin. Þórhallur Dan Jóhannsson... 2 1,3110 spjötd: Arnar Þór Úlfarsson ........3 Engln. Gunnar Þór Pétursson......2 -------—----- Eyjólfur Héöinsson..........3 Sk<*(á m3rk): (60., Theódór Óskarsson....1) ®(1'_ 10(71 Finnur Kolbeinsson ........1 ' Ólafur Ingi Skúlason ......4 » , __ Ólafur Páll Snorrason ......3 ^ukaspymur. HaukuringiGuðnason ........2 ten (58., Sævar Þór Gislason .... 2) ^ ^ Samtals 14 menn.........34 Varin skot Kjartan 7 - • Svensson 1. Dómari: Mark Steven Whltby frá Wales (5). Áhorfendur 1193. Maður leiksins hjá DV Sporti: Ólafur Ingi Skúlason, Fylki AIK (4-5-1) HSkan Svensson............2 Per Nilsson...............4 GarySundgren..............3 Fredrik Björck............4 DanlelTjernström .........3 Stefan Ishizaki...........4 Krister Nordin............2 Karl Corneliusson.........3 Mats Rubarth .............1 Martin Áslund.............2 Daniel Hoch...............2 (81., Kwame Quansah......-) Samtals 11 menn..........30 Grindvíkingar vor Grindvíkingar voru aðeins einni og hálfri mínútu frá því að tryggja sér þátttökurétt í næstu umferð UEFA-bikarsins í gær- kvöld. Eftir að hafa náð væn- legri stöðu í seinni hálfleik - manni fieiri og marki yfir - héldu Grindvíkingar ekki haus, bökkuðu og fengu á sig dýrkeypt mark í blálokin. Leikurinn fór mjög rólega af stað og virtist nokkur taugaspenna í leikmönnum beggja liða. Liðin tóku sér upphafsmínúturnar í að þukla hvort á öðru og átta sig á að- stæðum en rigning og nokkur vind- ur var í Grindavík á meðan leik stóð. Grindvíkingar fóru sér að engu óðslega og voru greinilega meðvit- aðir um það að 1-0 sigur myndi fleyta þeim áfram í næstu umferð. Þeir lágu frekar aftarlega, vörðu mark sitt með kjafti og klóm og reyndu síðan að sækja hratt á aust- urríska liðið. Fyrir vikið voru leik- menn Kárnten meira með boltann en gekk bölvanlega að opna vörn Grindvíkinga þar sem þeir Ólafur Örn og Sinisa Kekic voru sem kóng-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.