Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Blaðsíða 12
72 ~mrm FÖSTUDAGUR29.AGÚST2003 Útiönd Hámiwiim ííiriatámn Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson, Erlingur Kristensson Netfang: gube@dv.is, erlingur@dv.is Sími: 550 5829 Reiði vegna straumrofs LONDON: Ken Livingstone, borgarstjóri í London, brást reiður við þegar rafmagn fór af borginni í hálfa klukkustund á mesta annatíma síðdegis í gær og olli miklu öngþveiti í sam- göngum. Livingstone kallaði rafmagnsleysið hreina og klára skömm. Farþegar í neðanjarðarlestum komust hvorki lönd né strönd, brautarstöðvum var lokað og þúsundir manna þurftu að reyna að finna ráð til að kom- ast leiðar sinnar. Ekki bætti svo úr skák að hellirigning var í borginni þegar þetta gerðist. Borgarstjórinn hvatti til þess að þegar í stað yrði rannsakað hvað fór úrskeiðis og sagði að straumrof í svona langan tíma ætti ekki að geta átt sér stað. Meinlausir FÆREYJAR: Hogni Hoydal, varalögmaður Færeyja, fullviss- aði bandaríska sendiherrann í Kaupmannahöfn í gær um að heimsfriðnum stafaði engin ógn af Færeyingum þótt áform landstjórnarinnar um sjálfstæði næðu fram að ganga. Hogni sagði að sjálfstæðir Færeyingar vildu áfram eiga gott samstarf við Bandaríkin. ísraelar halda áfram flugskeytaárásum: Hamasliði á asna drepinn á Gaza fsraelar halda áfram eltinga- leiknum við liðsmenn vopnaðs arms Hamas-samtakanna og tókst í gær að drepa einn þeirra þar sem hann var á ferð í asna- kerru sinni í Khan Younis-flótta- mannabúðunum á Suður-Gaza- svæðinu. í yfirlýsingu frá Hamas-samtök- unum segir að maðurinn, sem hét Hamdi Kalakh, hafi verið virkur fé- lagi vopnaðs arms samtakanna á Gaza-svæðinu, sem stundað hafi eldflaugaárásir á landtökubyggðir gyðinga á Gaza og á nærliggjandi þorp og bæi utan svæðisins að undanförnu. Það var ísraelsk þyrla sem gerði fiugskeytaárás á Kalakh og hitti eitt skeytanna beint í mark með þeim afleiðingum að bæði hann og asni hans féllu auk þess sem þrír óbreyttir borgarar særðust, þar af fjögurra ára drengur mjög alvar- lega. Svar við eldflaugaárásum Árásin var gerð aðeins nokkrum klukkustundum eftir að liðsmenn vopnaðs arms Hamas-samtakanna höfðu skotið heimasmíðuðum Qassam-flaugum á iðnaðarhverfi í bænum Ashkelon í suðurhluta ísra- els. Enginn mannskaði mun hafa orð- ið í árásinni en einni af fjórum flaug- um, sem skotið var frá Gaza í gær, var beint að bænum og er þetta í fyrsta skipti sem Qassam-flaugum er skotið svo langt inn í ísrael, en strandbærinn Ashkelon er níu kíló- metra norður af Gaza-svæðinu. Ariel Sharon mun hafa skipað hernum að grípa til nauðsynlegra gagnaðgerða og var svarað með flugskeytaárásinni á Kalakh, þeirri þriðju sem íraelar gera á liðsmenn Hamas-samtakanna sfðan sjálfs- morðsárásin mannskæða var gerð í Jerúsalem í síðustu viku. Síðan hafa ísraelsmenn drepið átta liðsmenn Hamas-samtakanna í flugskeytaárásum og sært tugi óbreyttra borgara auk þess sem tveir asnar hafa fallið í árásunum. Árásin var gerð nokkr- um klukkustundum eft- ir að liðsmenn vopnaðs arms Hamas höfðu skotið heimasmíðuðum Qassam-flaugum á iðn- aðarsvæði í bænum Ashkelon. „Ég hef fyrirskipað varnarmála- ráðherranum að grípa til viðeig- andi ráðstafana til þess að koma í veg fyrir að slíkar árásir verði gerðar í framtíðinni," sagði Sharon í gær en auk eldílauganna hafa herskáir Palestínumenn skotið meira en fimmtíu sprengjuvörpukúlum á landtökubyggðir gyðinga á Gaza- svæðinu á síðustu sex dögum. Svæðið rutt ísraelar sendu stórvirkar vinnu- vélar á svæðið þaðan sem eldflaug- unum var skotið á Ashkelon í gær og var trjám og öðrum gróðri rutt í burtu til þess að hindra frekari eld- flaugaárásir frá svæðinu. Gabi Ashkenazi, aðstoðaryfir- maður ísraelska heraflans, sagði í gær að foringjar vopnaðs arms Hamas-samtaknna og Jihad-hreyf- ingarinnar væru nú hvergi óhultir. „Þeir geta hvergi verið öruggir með sig, ekki einu sinni á leiðinni til rak- arans, í matvöruverslunina eða til bænahússins og heldur ekki á leið- inni til baka. Við munum elta uppi þá sem gerast sekir um hryðjuverk og þeir eru réttmæt skotmörk," sagði Ashkenazi. Vopnahléi hafnað Hamas-samtökin höfnuðu í gær kröfu Yassers Arafats um að endur- vekja vopnahléið sem herská sam- tök Palestínumanna rufu í síðustu viku og sagði Abdel Aziz al-Ratissi, pólitískur leiðtogi Hamas-samtak- anna, að þau tækju það ekki í mál meðan Israelar héldu áfram árás- um á liðsmenn þeirra. Hann varaði palestínsk stjórn- völd einnig við því að beita öryggis- sveitum sínum gegn liðsmönnum samtakanna en í gær réðust palest- ínskar öryggissveitir inn í bæinn Beit Hanoun í þeim tilgangi að handtaka þá sem bæm ábyrgð á eldflaugaárásunum. Nabil Shaath, utanríkisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar, sagði í gær að með því að hafna kröfu Arafats væm herská samtök Palestínumanna að skapa aukna spennu og hættuástand fyrir pale- stínsku þjóðina. „Alþjóðlegi vegvísirinn er það eina sem við höfum til þess að tryggja varanlegan frið og að því ber okkur að vinna," sagði Shaath. FALLINN ASNI: Annar tveggja asna sem fallið hafa í flugskeytaárásum Israelsmanna á síðustu dögum. íhuga að fá alþjóð- legt herlið til íraks Blair segist bera ábyrgð á birtingu nafns Kellys Richard Armitage, aðstoðar- utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, sagði í gær að bandarísk stjórnvöld væru að íhuga þann möguleika að fá alþjóðlegt her- lið á vegum Sameinuðu þjóð- anna til aðstoðar við uppbygg- inguna í frak. Þetta er í fyrsta skipti sem svo háttsettur embættismaður viðrar þennan möguleika en Armitage sagði þó að það væri skilyrði fyrir slíkum her að yfirmaður hans væri bandarískur. Hann sagði að bandarískir em- bættismenn væm nú að skoða mál- ið en búist er við að Bandaríkja- menn og Bretar muni á næstunni leggja fram drög að nýrri ályktun í Öryggisráði S.þ. sem gerir öðmm þjóðum kleift að taka þátt í uppbyggingarstarfinu. RICHARD ARMITAGE: Armitage segir að Bandaríkjamenn muni setja skilyröi fyrir alþjóðlegu herliði. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, tók á sig alla ábyrgð á því að vopnasérfræðingur- inn David Kelly var nafn- greindur sem heimildarmaður umdeildrar fréttar breska rík- isútvarpsins, BBC. Blair sat fyr- ir svörum í gær hjá nefnd Huttons lávarðar sem rann- sakar dauða Kellys. Blair sagði að ekkert væri hæft í frétt BBC um að ríkisstjórnin hefði ýkt hættuna af meintum gjöreyð- ingarvopnum íraka í skýrslu þar' um. Ef svo hefði verið, hefði hann sagt af sér embætti. David Kelly svipti sig lífi skömmu eftir að hann var nafn- greindur sem heimildarmaður BBC og varð um leið miðpunktur- VARÐIST VEL: Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, aftók með öllu í gær að stjórn hans hefði ýkt hættuna sem umheiminum stafaði af morðtólum (raka. inn í deilu stjómvalda og ríkisút- varpsins. Blair viðurkenndi þó fyrir nefndinni að stjórn sín hefði verið undir miklum þrýstingi frá tor- tryggnum almenningi um að rétt- læta stríð gegn frak. Hann hefði þess vegna viljað að skýrslan færði bestu rökin sem til væru fyrir nauðsyn hernaðaraðgerða. Forsætisráðherrann sat fyrir svömm í tæpar tvær og hálfa klukkustund og var ekki annað að sjá en að hann væri öruggur með sig. Jafnvel andstæðingar hans sögðu hann hafa komið vel fyrir. Traust almennings á Blair hefúr beðið mikinn hnekki vegna Kelly- málsins. Aðeins 22 prósent Breta telja stjórnvöld hafa komið heið- arlega fram í málinu. 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.