Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Síða 10
10 MENNING FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST2003
Menning
Leikhús ■ Bókmenntir ■ Myndlist ■ Tónlist ■ Dans
Umsjón: Silja Aðalsteinsdóttir
Netfang: silja@dv.is
Sími: 550 5807
Jurtafræði
NÁTTÚRA: Mál og menning hefur gefið út
handbók á ensku og þýsku um náttúru Is-
lands, fugla, dýr og plöntur eftir Jon Feilberg
náttúrufræðing og Benny Génsbal sem samið
hefur margar náttúrulýsingarbækur. Á ensku
heitir bókin Plants and Animals of lceland en á
þýsku DieTiere und Pflanzen Islands. Itarlega
er fjallað um 70 fuglategundir, allar helstu
hvalategundir og landspendýr og 220 blóm-
plöntur og grös. Handhæg kort sýna útbreiðsl-
una. Ritið kemur út á dönsku hjá Gads Forlag.
Plöntukort
PLÖNTUR: Kortadeild Máls og menn-
ingar hefur gefið út nýtt plöntukort
sem lýsir á einkar aðgengilegan hátt
öllum helstu jurtum sem vaxa á íslandi:
78 blómplöntum, helstu gróplöntum,
grösum, þörungum, skófum og svepp-
um. Einnig eru útbreiðslukort og upp-
lýsingar um kjörlendi. Kortið byggist
m.a. á (slensku plöntuhandbókinni eftir
Hörð Kristinsson. Vatnslitamyndir gerði
Jón Baldur Hlíðberg.
4
Ragnari Gíslasyni hefur alltaf þótt gaman að segja sögur og nú koma þær út tvær í einu:
Veröldin
er
r
víddum
Ragnar Gíslason stýrir fjölmennasta
unglingaskóla landsins, Garðaskóla í
Garðabæ. Hann telur forréttindi að fá að
umgangast íslenskt æskufólk en gerir
meira en leiða það á menntabrautinni.
Nýlega tók hann að skrifa spennusögur
fyrir unglinga og gefur nú út - ekki eina
heldur tvær.
„Ég hef alltaf haft gaman af að segja sögur,"
segir Ragnar sem þrátt fyrir annríki á fyrsta
degi nýs skólaárs gefur sér tíma til að setjast
niður og lýsa lítillega tilurð bókanna. Hann
kveðst oft hafa lagt til efni í skólablöð á árum
áður og einnig hafa samið námsefni í samfé-
lagsfræði.
„Einn unglingur sagði líka við
mig að það væri svo vont að
sofna með harðspjaldabækur.
Þær beinlínis meiddu mann!"
„Síðan heltók mig það hugarfóstur að reyna
að skrifa skemmtilegar sögur fyrir krakka. Ég
byrjaði upp úr 1995. Þessar tvær bækur, Setu-
liðið og Tara, eru hálfgerðir tvíburar því þær
urðu tilbúnar nokkurn veginn samhliða. Salka
gefur bækurnar út í kiljum að minni ósk. Mér
finnst unglingar vilja hafa bækurnar í baktösk-
unni og geta lesið þær ( strætó, útilegu eða á
skólaferðalagi. Einn unglingur sagði líka við
mig að það væri svo vont að sofna með harð-
spjaldabækur. Þær beinlínis meiddu mann!"
Var að skoða gömul virki
- Nú eru þetta spennusögur þannig að óvíst
er að nokkur geti sofnað fyrr en hann hefur
lokið lestrinum! Fannst þér vanta slíkar sögur?
„Já, úr íslenskum veruleika. Þegar ég var
kennari hér í Garðaskóla var biðröð á bóka-
safninu eftir ísfólkinu. Það voru reyfarakennd-
ar ævintýrasögur sem krakkarnir drukku í sig,
svipað og mfn kynslóð beið eftir Basil fursta og
bókunum eftir Enid Blyton.
Umhverfið í Setuliðinu er Hafnarfjörður, þar
sem ég bjó, og Garðabærinn, þar sem ég bý
núna. Sagan gerist að nokkru uppi á Garða-
holti. Hugmyndinni Iaust niður í mig þegar ég
var þar á gangi að skoða gömul hervirki og upp
STRlÐSÁRAMINJAR: Ragnar Gíslason situr hér á leifum loftvarnabyrgis sem leikur stórt hlutverk I nýútkomlnni sögu hans, Setuliðinu. DV-mynd Hari
rifjaðist saga sem ég hafði sagt alltof ungum
börnum í Öldutúnsskóla! Þar kom þráðurinn
og síðan spannst hann áfram.
Sögusviðið í Töru er Vatnsendahverfið. Þar
keyrði ég um daglega í mörg ár, á leiðinni upp
í Grafarvog, þegar ég var skólastjóri í Folda-
skóla. Þar fæddist söguþráður í huga mér og iét
mig ekki í friði."
Hernámsminjar í hættu
- Þú leitar bæði í fortíðina og framtíðina í
sögunum þínum.
„Veröldin er í mörgum víddum og krakkar
hafa gott af því að glíma við að tengja saman
atburði fortfðar og nútíðar. í Töru er litið til
framtíðar líka. Þar er leitast við að vera með
nútímaleg hugtök án þess þó að fara út í eitt-
hvert bull. AUt á þetta sér rætur í íslensku um-
hverfi."
- í Setuliðinu eru þér hemámsárin hugstæð.
Hvers vegna?
„Við strákarnir í Reykjavík lékum okkur í
hernámsminjum, uppi í öskjuhlíð og úti í
Vatnsmýri, og fundum þar hluti. Það er rótin
að því sem kemur fram í Setuliðinu. Heima hjá
mér var meira að segja tU Bretahjálmur, hvern-
ig sem á því stóð. Það em líka síðustu forvöð að
skrifa um einhvem sem upplifði hernámsárin
og láta hann vera núlifandi og í fuUu fjöri.
Síðan var ég heillaður af þeim minjum sem
em úti á Garðaholti og verður að varðveita,"
heldur hann áfram. „Mér finnst að fslendingar
mættu gæta betur að hernámsminjum; þær
em smám saman að hverfa. Þessi saga mín er
kannski einn liður í að benda á það. Ég er þó
ekkert endilega að fræða en það sakar ekki að
tengja sögur við eitthvað í raurtvemleUcanum.
Samt em þetta ekki kennslubækur heldur
spennubækur." gun@dv.is
Síðustu forvöð að sjá Smekkleysusýninguna Humar eða frægð í Hafnarhúsinu:
Minjar um nýliðna nútíð
BJÖRK: Alveg hefði mátt sýna fleiri fræga búninga
hennará sýningunni.
Á sunnudaginn lýkur Smekkleysusýn-
ingunni Humar eða frægð í Listasafni
Reykjavíkur - Hafnarhúsi en hún hefur
staðið í allt sumar. Aðsókn hefur verið
afar góð og hafa fleiri gestir, bæði inn-
lendir og erlendir, heimsótt húsið í
sumar en nokkru sinni fyrr. Smekk-
leysa kveður með glæsibrag annað
kvöld, þegar Einar Örn, Kritkal Mazz,
Exos og Tómas Thx halda tónleika á
Gauki á Stöng við Tryggvagötu. Húsið
verður opnað klukkan 21.
Á sýningunni er rakin saga Smekkleysu-
útgáfunnar frá upphafi 1986 með áherslu á
hennar frægustu afurðir og aðstandendur,
Sykurmolana og Björk. Á sýningunni em
ýmsir sögulegir munir og minjar en eink-
um er hún þó fólgin í heilmiklum texta um
afrek viðkomandi listamanna.
Góður smekkur er geldur, gegn honum
ber að berjast með öllum ráðum - það er
fmmstefna Smekkleysu. Framsækin list
hefur jafnan boðið góðum smekk birginn
og iðulega verið dæmd úr leik sem smekk-
leysa - en sigrað samt að lokum eins og
dæmin sanna á sýningunni.
Auk sýningarinnar sjálfrar hafa fjölmarg-
ir listamenn komið að skipulagðri dagskrá
í sumar, meðal annarra Curver, Einar Öm,
Sjón, Jóhamar, Siggi Ármanns, Egill Sæ-
björnsson, Ragnar Kjartansson, hljóm-
sveitin Kimono, Mínus, The Hafler Trio,
Einar Melax, Rósa Þorsteinsdóttir, Stein-
dór Andersen, Kristín Lámsdóttir, söng-
hópurinn Gríma, .Sigtryggur Baldursson,
Steingrímur Guðmundsson, Þór Eldon,
Hafdís Bjarnadóttir, Ragnar Emilsson og
miklu, miklu fleiri.
Fjórar sýningar verða í Smekkleysubíói í
fjölnotasal Hafnarhússins um helgina. Á
morgun kl. 14 verður sýnd myndin Björk at
The Royal Opera House og kl. 16 verða
sýndar nýútgefnar upptökur frá tónleikum
söngkonunnar undir heitinu Björk - Live-
box. Á sunnudaginn kl. 14 verður Rokk í
Reykjavík sýnd og kl. 16 Björk - Livebox.
4J