Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Side 27
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST2003 TILVERA 27
ALFABAKKI
G'RÍSIA
STÓRMYND GRlSLA:
BASIC:
FJðLMIÐLAVAKTIN
Hilmar Karlsson
hkarl@dv.is
Lestur og áhorf
Áður fyrr var það ein vinsælasta
afþreying almennings að taka sér
bók eða blað í hönd, láta fara vel
um sig í frístundum og lesa sér til
skemmtunar eða fróðleiks. Sú
dægradvöl er ekki jafnvinsæl nú
þrátt fyrir að aldrei hafi verið jafn-
mikið og jafnfjölbreytt lesefni í
boði, sérstaklega hvað blöð varðar.
Með tilkomu sjónvarps fóru
hlutirnir að breytast, lestur minnk-
aði og fróðleikurinn og skemmtun-
in kom úr sjónvarpí. Það gerðu sér
þó flestir grein fyrir því að sjón-
varpið kom ekki í staðinn fyrir les-
efni heldur tafði frekar fyrir lestri.
Síðan komu tölvurnar og enn hall-
aði á lesturinn. Nú er svo komið að
lestur er í vörn gagnvart áhorfi.
Ætla hefði mátt að þetta væri j
eins annars staðar á Norðurlönd- ;
unum en svo er ekki. Ef litið er til ;
blaðalesturs þá eru íslendingar
slakastir f slíkum lestri. Skandinav- i
ar lesa blöð meira en íslendingar í
samkvæmt könnunum. Ekki tel ég j
að orsökin liggi hjá íslenskum i
blöðum. Við höfum að vísu ekki
dagblöð af sömu stærð og stærstu j
blöð á Norðurlöndum en í fféttum j
og greinaskrifum stöndum við
jafnfætis. Það þarf því að leita or- j
sakanna fyrir litlum blaðalestri
annars staðar.
Freistandi væri að ætla að mis-
munurinn lægi í bóklestri en sú er
ekki ástæðan nema að litlu leyti.
Sannleikurinn er sá að vinnudagur
Islendinga er mun lengri en frænda
okkar. Eftirvinna tíðkast ekki í
sama mæli á hinum Norðurlönd-
unum og hér á landi og því má ætla
að almenningur sem hættir vinnu á
skynsamlegum tíma dags taki sér
frekar blað í hönd en þeir sem
vinna ffam að kvöldmat eða þar til
fréttir sjónvarps byrja.
STJÖRNUGJÖlF DV
Nói albínói
28 Days Later ★★★
Pirates of theCaribbean ★★★
Terminator 3 ★★★
HULK ★★★
Sindbað sæfari ★★'i
Basic ★★
What a Girl Wants ★★
Bruce Almighty ★★
Hollywood Homicide ★★
Charlie's Angels: Full Throttle ★★
Matrix Reloaded ★★
Legally Blonde 2 ★i
Lara Croft.... ★
HULK Sýnd kl. 5.30 Tilboð kr.400.B.i. 12.ára.
NÓI ALBfNÓI: Sýnd kl. 8. B.i. 12 ára. Enskur texti.
Breskir
\ æ r * Bíódagar
PURE: Sýnd kl. 6 CROUPIER: Sýndkl. 6.
THE MAGDALENE SIST.:Sýnd kl. 8 ALL OR NOTHING: Sýnd kl. 8.
LUCKY BREAK: Sýnd kl. 10 BLOODY SUNDAY: Sýnd kl. 10.15.
SWEET SIXTEEN: Sýnd kl. 10.30.
KRINGLAN tS 588 0800
ÁLFABAKKI tS 587 8900
PIRATES OF THE CARRIBEAN :
Sýnd kl. 5.30,8 og 10.30. B. i. 10 ára.
SINBAD:
Sýnd m. fsl. tali kl. 4 og 6
SINBAD: Sýnd m. ensku. tali kl. 8.
HvaÖ er í sjónvarpinu um héígina?
Helgarkvikmyndir í sjónvarpi
K R N G L A N
Sýnd m.ísl.tali kl.4 og 6.
ÁSTRÍKUR: Sýnd m. ísl. tali kl.3.50.
Afþreyingin er ífyrirrúmi þegar litið er
á hvaða kvikmyndir sjónvarpsstöðv-
arnar sýna um helgina. Pað má þó
finna innan um allan fjöldann mynd-
ir sem vert er að mæla með.
OH BROTHER WHERE ARTTHOU? George Clooney, Tim Blake Nelson og JohnTurturro
fara á kostum í hlutverkum þriggja flóttafanga.
Passion of Mind
Fyrir fáum árum sendi franski
leikstjórinn Alain Berliner frá sér at-
hyglisverða kvikmynd, Ma Vie en
Rose, þar sem hann fjallaði um
dreng sem heldur að hann sé stúlka.
í Passion of Mind gengur hann enn
lengra og fjallar um konu sem í orðs-
ins fyllstu merkingu veit ekki hver
hún er. Marie/Marty, er persónu-
klofningur sem er tvær persónur. í
öðru lífinu er hún frönsk ekkja með
tvö börn og býr í smábæ í Frakkfandi
en í hinu lífinu er hún forstjóri bóka-
forlags í New York og einhfeyp.
Demi Moore leikur Marie/Marty og
það verður að segjast eins og er að
hún er ekki mjög sterk á svellinu.
Sjánvarpið sýnirPassion ofMind í
kvöld kl. 21.50.
Los sin nombre
Los sin nombre er vel heppnuð og
hrollvekjandi spænsk spennumynd,
sem byggð er á skáldsögu Ramseys
Campbells. Segir myndin frá
Claudiu sem verður fyrir miklu sál-
rænu áfalli þegar ung lögreglukona
tifkynnir henni að ung dóttir hennar
hafi verið myrt. Fimm árum síðar
fær hún símtal ffá dóttur sinni þar
sem hún segist vera lifandi og sé
búin að ganga galdratrúarsöfnuði á
hönd. Claudia fer að leita að dóttur
sinni með aðstoð lögreglumanna og
kemst að því að það eigi að fóma
henni. Góð stfgandi er í myndinni
sem er ölf dökk yfirlitum. Þetta er
sem sagt mynd fýáir spennufíkla en
ekki viðkvæma.
Sjónvarpið sýnir Los sin nombre í
kvöldkl. 00.10.
The Story of Joan of Arc
Luc Besson tekur fyrir það sem
Frökkum er heilagast, söguna um
dýrlinginn Jóhönnu af Örk sem
brennd var á báli aðeins nítján ára.
Fer Besson að mestu leyti sömu leið
og hann gerði í The Fifth Element.
Tæknibrellur em nýttar til hins
ýtrasta í epískri stórmynd sem er
fulllöng en býr yfir miklum krafti,
svo miklum að oft á ti'ðum er eins og
Luc Besson sé á ystu nöf með að
halda þræðinum. Jóhanna af Örk hjá
Luc Besson er öðruvísi Jóhanna.
Passion ofMind
★★
Los sin nombre
★★★
The Story of Joan of Arc
★★★
Don't Say a Word
★★
Oh Brother Where Art Thou?
★★★
The Winslow Boy
★★★
Hún er ákafur unglingur sem býr yfir
sterkum vilja og miklu þreki, ung-
lingur eins og við þekkjum í nútím-
anum. Það sem helst veikir myndina
er Milla Jovovich sem er ekki sann-
færandi í titilhlutverkinu.
Stöð 2 sýnir The Story of Joan of
Arc í kvöld kl. 24.00
Don't Say a Word
Þetta er mynd sem hefði átt að
hafa alla burði til að vera afbragðs
sakamálamynd. Hún er gerð eftir
skáldsögu Andrews Klavans sem
valin var besta sakamálasaga ársins
og fjallar um sálfræðing sem fær til
meðferðar stúlku sem hefur ein-
angrað sig frá umheiminum og
tönglast stanslaust á því að hún ætli
ekki að segja frá. Ekki vantar fléttur í
ágætlega skrifað handrit samfara
góðum persónulýsingum. Leikstjór-
inn, Gary Fleder (Kiss the Girls), nær
samt ekki að binda endana saman
þannig að eftir því sem líður á
myndina verður hún æ lausari í
böndum og einstaka persónur vafra
inn og út án þess að hafa tilgang.
Stöð 2 sýnir Don’t Say a Word a'
laugardagskvöld kl. 20.55
O Brother Where Art Thou?
Coen-bræður eru í góðu formi í
kostulegri gamanmynd sem laus-
lega er byggð á kvæðabálki Hómers,
Ódysseifskviðu. Sögusviðið er Miss-
issippi á fjórða áratugnum. Kreppan
er í hámarki og spilltir stjórnmála-
menn ráða ríkjum. Almenningur
leitar huggunar í bluegrass-tónlist-
inni og eru lögin betri eftir því sem
þau eru eldri. Inn í þetta þjóðfélag
ana þrír flóttafangar, Ulysses, Pete
og Delmar. Þeir bræður, Joel og Eth-
an, hafa skapað ærslafulla og vel
gerða kvikmynd sem ber höfund-
arenikenni jjeirra. Hetjurnar sem
vaða elginn eru misvitrir eins og
kapparnir í Ódysseifskviðu á leið í
heimahagana og lenda í miklum æv-
intýrum á leið sinni þangað.
Bíórásin sýnir O Brother Where
Art Thou? á laugardagskvöld kl.
24.00
The Winslow Boy
Þetta er rómúð kvikmynd eftir
David Manet. Hann skrifar handrit-
ið eftir leikriti Terence Rattigans.
The Winslow Boy gerist árið 1912 og
eru aðalsöguhetjur myndarinnar
meðlimir Winslow-fjölskyldunnar
sem þurfa að berjast fyrir rétti sínum
og gegn ágangi fjölmiðla þegar
yngsti sonurinn er rekinn úr skóla
þar sem grunur leikur á að hann hafi
stolið peningum. Þó svo að leikstjór-
inn sé bandarískur prýða myndina
nær eingöngu breskir leikarar. í að-
alhlutverkum eru Guy Edwards,
Nigel Hawthorne, Rebecca Pidgeon
(eiginkona Mamets) og Jeremy
Northam.
Bíórásin sýnir The Winslow Boy á
sunnudagkl. 18.10.
Sýndkl.4,6,8og 10.10.
Sýnd (Lúxus kl, S, ?.4S og 10.15.
Lífíð .eftii
vmnu
PPPPP^
■ “♦fi' iti Slr* tf I ,!?í 1
MAUS: Kemur fram á Grand Rokk í kvöld.
GRAND ROKK: Bandaríska rokksveitin
Let It Burn spilar í kvöld ásamt Maus,
Dys og Molesting Mr. Bob. Tónleikarn- ' '
ir hefjast klukkan 22.
PLAYERS: Stórsveitin Sálin, með Stef-
án Hilmarsson fremstan meðal jafn-
ingja, leikur á Players í Kópavogi í
kvöld.
GAUKURINN: Hinir eitilhressu drengir
í hljómsveitinni Buffi skemmta gest-
um Gauksins í kvöld með tónlist og
gríni. Frítt inn.
VEGAMÓT: Hinn sískemmtilegi plötu-
snúður, Kári, sér til þess að gestir
Vegamóta skemmti sér vel í kvöld.
METZ: Plötusnúðurinn Andrés leikur
listir sínar á skemmtistaðnum Metz í
Austurstræti í kvöld.
GLAUMBAR: Plötusnúðurinn Þór Bær-
ing spilar geisladiska fyrir gesti
Glaumbars í kvöld.
HVERFISBARINN: Atli skemmtana-
lögga sýnir klærnar á Hverfisbarnum í
kvöld.
FELIX: Dj Valdi verður við stjórnvölinn
á Felix í kvöld.
GULLÖLDIN: Félagarnir Svensen og
Hallfunkel spila fyrir gesti Gullaldar-
innar í kvöld.
KJALLARINN: Johnny Dee verður með
old school danshátíð og partístemn-
ingu í Kjallaranum í kvöld.
CAFÉ KULTURE: Kvöldið í kvöld á Café
Kulture ber yfirskriftina Disloungical
cocktail party & disfunctional art og
verður þar boðið upp á lounge-tón-
list, kokkteila og Ijósmyndasýningu.
Dagskráin hefst klukkan 23.
KRINGLUKRÁIN: Það er borgfirsk helgi ^
á Kringlukránni um helgina og Stuð-
bandalagið frá Borgarnesi skemmtir
gestum.
BÚÁLFURINN: Hermann Ingi Jr.
skemmtir á Búálfinum í Hólagarði í
kvöld.
CATALÍNA: Trúbadorinn Sváfnir Sig-
urðarson spilar á Café Catalínu í kvöld.
FJÖRUKRÁIN: Hilmar Sverrisson spilar
á Fjörukránni í Hafnarfirði í kvöld frá
23-3.
GRÆNI HATTURINN: Danssveitin S(N
skemmtir á Græna hattinum á Akur-
eyri í kvöld. —-■
KAFFIAKUREYRI: Hljómsveitin
Spútnik treður upp ásamt hljómsveit-
inni Douglas Wilson í kvöld.
GALLERÍ DVERGUR: Gallerí Dvergur
og Tilraunaeldhúsið halda tónleika í
dag frá klukkan 17—19. Tónleikarnir
verða í portinu hjá Gallerí Dvergi við
Grundarstíg 21 í Þingholtunum.
é