Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Síða 29
t-
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST2003 DVSPORT 29
Buffon valinn verðmætastur
KNATTSPYRNA: Italski mark-
vörðurinn Gianluigi Buffon,
sem leikur með Juventus, var í
gær valinn verðmætasti leik-
maður Evrópu í hófi sem hald-
ið var í Mónakó í gær. Buffon
fór á kostum í meistaradeild-
inni á síðustu leiktíð og var
einnig valinn besti markvörður
keppninnar.
Brasilíski bakvörðurinn Ro-
berto Carlos, leikmaður Real
Madrid, var valinn besti varnar-
maður meistaradeildarinnar
og Pavel Nedved, leikmaður
Juventus, var valinn besti
miðjumaðurinn.
Hollenski markahrókurinn
Ruud Van Nistelrooy, leikmað-
ur Man. Utd, var síðan valinn
besti sóknarmaðurinn.
BESTUR: Gianluigi Buffon valinn
bestur í meistaradeildinni.
Chelsea að fá tvo í viðbót
KNATTSPYRNA: Kaupæði
Chelsea eraugljóslega hvergi
nærri lokið því að von er á að
minnsta kosti tveim leikmönn-
um til viðbótar áður en leik-
mannamarkaðnum verður
lokað 1. september. Franski
landsliðsmaðurinn Claude
Makelele er að öllum líkindum
á leiðinni frá Real Madrid til
Chelsea eftir allt saman. Félög-
in áttu í viðræðum í gær og var
fastlega búist við því að Real
tæki tilboði upp á 10 milljón
pund í Makelele. Frakkinn hef-
ur átt í stappi við Real vegna
launa og vill ekki spila aftur
fyrir félagið. Svo greindi
Tottenham frá því í gær að
markvörðurinn Neil Sullivan
væri á leiðinni til Chelsea í dag.
.«*
ÁFÖRUM? Makelele á leið til
Chelsea eftir allt saman. «
Arftaki Helga skoraði 6
Marel Baldvinsson á skotskónum fyrír Lokeren
Það var mikið fjör í leikjum gær-
kvöldsins í UEFA-bikarnum. fs-
lendingar komu víða við sögu í
nokkrum leikjum en helsta at-
hygli vakti átján ára strákur frá
Bosníu sem leysti Helga Sig-
urðsson af hólmi hjá Lyn í gær
en hann gerði sér lítið fyrir og
skoraði sex mörk.
Þessi strákur heitir Eldar Hadzih-
memedovic. Hann lék aðeins í 70
mínútur f leiknum gegn færeyska
liðinu Runavik en tókst samt á
þeim tíma að gera sex mörk en
leiknum lauk einmitt með sigri
Lyn, 6-0. Hadzihmemedovic fór
fögrum orðum um fyrrverandi
þjálfara sinn, Teit Þórðarson, eftir
leikinn.
„Ég er alls ekki ósáttur við Teit.
Hann hafði alltaf mikla trú á mér og
stóð með mér. Hann kenndi mér
mikið um fótbolta og ég kann hon-
um bestu þakkir fyrir,“ sagði
Hadzihmemedovic, aðspurður um
það hvort það hefðu ekki verið mis-
tök hjá Teiti að láta hann ekki spila
meira hjá félaginu. Helgi Sigurðs-
son og Jóhann B. Guðmundsson
léku ekki með Lyn í gær.
Gott gengi norskra
Annars gekk norskum liðum vel
með færeysk lið í gær því að Molde,
lið Ólafs Stígssonar, Bjarna Þor-
steinssonar og Andra Sigþórssonar,
vann Klaksvík auðveldlega, 4-0.
Enginn íslendinganna lék með
Molde að þessu sinni.
fslendingaliðið Lokeren var ekki í
miklum vandræðum með Dinamo
Tirana og sigraði 3-1. Marel Bald-
vinsson hélt upp á það að vera val-
inn_ í landsliðshópinn, sem mætir
Þjóðverjum í byrjun næsta mánað-
ar, með því að skora eitt marka
„Ég er alls ekki ósáttur
við Teit. Hann hafði
alltafmikla trú á mér
og stóð með mér. Hann
kenndi mér mikið um
fótbolta og ég kann
honum bestu þakkir
fyrir."
belgfska liðsins.
Manchester City rúllaði auðveld-
lega yfir TNS og var Darren
Huckerby þar á skotskónum en
hann hefur ekki verið að afreka
neitt hjá City undanfarna mánuði.
henry@d\/.ii
Á SKOTSKÓNUM: Marel Baldvinsson skoraði eitt marka Lokeren í sigri á DinamoTlrana í
gær. Marel sést hér í baráttu við einn leikmanna Tirana. Reuters
E V R Ó P A
UEFA-BIKARINN '
InLÍí
TVMKTallin-OB 0-3
Berg, Miti 2 (OB Odertse dfram).
Grindavík-Kárnten 1-1
Ray Anthony Jónsson - Almedin
Hota (Karnten áfram).
Fylkir-AIK 0-0
Klaksvik-Molde 0-4
Hestad, Gustafsson, Staurum,
Ljung (Molde áfram).
Dinamo Minsk-Bröndby 0-2
Ritov, Mattias Jonson
(Bröndby áfram).
Hadjuk Split-Haka 1 -0
Racunica (Hadjukáfram).
Lyn-Runavik 6-0
Eldar Hadzihmemedovic 6
(Lyn áfram).
Banats-Hapoel Tel Aviv 1 -2
Amiryan - Sorochaga, Endri
(Hapoel áfram).
Portadown-Malmö 0-2
Peter Ljeh 2. (Malmö áfram).
TNS-Man. City 0-2
Negouai, Huckerby
(Man. City áfram).
Dundee-Vlaznia 4-0
Novo 2, Sara, Rae (Dundee áfram).
Anorthosis-Zeljeznlcar 1 -3
Velis - Gredic, Velis sjm., Zahic
(Zeljeznicar áfram).
Lokeren-DinamoTirana 3-1
Marel Baldvinsson, Fofana 2 -
Paris Xhihani (Lokeren áfram).
Ferencvaros-Birkirkara 1-0
Dragoner (Ferencvaros áfram).
Torpedo Kutaisi-Lens 0-2
Dagui, Bakari (Lensdfram).
Dregið verður í næstu umferð í dag.
henry@dv.is
Lax slapp eftir eins
og hálfs tíma baráttu
Flókadalsá í Borgarfirði:
Það hefur verið góð veiði í
Straumunum, Svarthöfða og
Brennunni í ailt sumar vegna
þess hve vatnið á svæðinu er
lítið. í Svarthöfða hafa veiðst
um 270-280 laxar sem telst
gott.
„Núna eru komnir 270 laxar úr
ánni og það er mikið af fiski ofar-
lega í henni en þeir eru tregir að
taka hjá veiðimönnum þessa dag-
ana,“ sagði Ingvar Ingvarsson á
Múlastöðum er við könnuðum
stöðuna í Flókadalsá í Borgarfirði.
„Við vorum með holl fyrir nokkru
sem fékk 12 laxa á tveimur dögum.
Það var veiðimaður hérna sem setti
í lax á flugu og glímdi við hann í
einn og hálfan tíma í Formannin-
um en þá slapp hann. Þessi veiði-
maður var í Stóru-Laxá í Hreppum
skömmu áður og veiddi þar 17
punda fisk. Hann sagði að laxinn
sem slapp hérna í Flóku hefði verið
miklu stærri," ságði Ingvar í lokin.
Veiðin hefur lítið lagast í Gljúfurá í
Borgarfirði. Menn sem voru þar
fyrir skömmu veiddu tvo laxa og
sáu ekki mikið af fiski. Tilraun
„Hann glímdi við fisk-
inn í einn og hálfan
tíma í Formanninum."
sem gerð var við ósinn var vel þess
virði og hjálpaði ánni aðeins.
G. Bender
HVAR ER HANN? Veiðimenn hafa víða reynt í sumar. Fiskurinn getur verið tregur en
einn og einn gefur sig að lokum. DV-mynd G. Bender
Sdasa
ó^v>20-
Opid: mán-fim 9-10, fos 9-20, lau 10-17, sun 11-16
tt afsláttur “'wT
T TttVtst^IÆtpt
Siðumula 11 • 108 Reykjavik • S: 588-6500